Morgunblaðið - 23.12.2017, Side 52
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 357. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 997 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Dauðakoss fyrir ímynd Streep?
2. Fundu draugaskip í Tálknafirði
3. Skyggni mun spillast hratt
4. Vil ekki hlusta á þig „tussan þín“
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 með snjókomu og skafrenningi, fyrst á Vest-
fjörðum en á Norður- og Austurlandi síðdegis. Heldur hægari sunnan heiða.
Á sunnudag (aðfangadagur jóla) Norðaustan 8-15, hvassast NV-til. Snjókoma norðan-
og austantil, en él í öðrum landshlutum. Frost 2 til 8 stig, en fer kólnandi með kvöldinu.
Á mánudag (jóladagur) Norðaustan 8-15 m/s með éljum, en rofar til sunnan- og vest-
anlands. Frost 3 til 15 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
„Mér hafði verið sagt að stemningin
væri einstök hérna og sú hefur ald-
eilis verið raunin. Stundum þarf að
stöðva leiki til þess að róa áhorf-
endur sem hafa lifað sig full-
hressilega inn í leikina,“ segir Arna
Sif Pálsdóttir, landsliðskona í hand-
bolta, sem leikur fyrst Íslendinga í
ungversku úrvalsdeildinni og líkar
dvölin í Ungverjalandi vel. »4
Álagið gleymist í
einstakri stemningu
Guðjón Valur Sigurðsson,
landsliðsfyrirliði í hand-
bolta, er í níunda sinn í
hópi tíu efstu í kjöri
íþróttamanns ársins hjá
Samtökum íþróttafrétta-
manna. Í íþróttablaði
Morgunblaðsins í dag má
lesa um þá tíu sem urðu
efstir í kjörinu að þessu
sinni en úrslitin verða til-
kynnt við hátíðlega at-
höfn 28. desember. » 2
Guðjón Valur á
lista í níunda sinn
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Í Dimmuborgum við Mývatn hafa 13
íslenskir jólasveinar aðsetur fyrir
hver jól. Þeir hafa komið í Dimmu-
borgir árlega síðan 2005 til þess að
gleðja Mývetninga og ferðafólk.
Einn jólasveinninn, Gáttaþefur,
kom til byggða í Dimmuborgir í gær.
„Ég átti að vera heima að taka
til en ég fór að hlakka til og ég gat
ekki beðið með að koma, taka á móti
fólki og hlakka til jólanna,“ segir
Gáttaþefur.
Auk þess að sinna gestum sem
koma í Dimmuborgir sjá jólasvein-
arnir um að gefa þægum börnum í
skóinn.
„Veistu það að við gefum minna
af venjulegum kartöflum í skóinn.
Við gefum meira af sætum kart-
öflum. Þá eru börnin kannski ekki
alveg óþekk en samt ekki alveg
stillt. Við tökum þátt í hnattvæðing-
unni og fylgjum alþjóðlegum
straumum og gefum stundum
franskar kartöflur í skóinn ef börnin
eru ekki nógu stillt. Það er verst að
þau eru bara ánægð með að fá
franskar í skóinn.“
Gáttaþefur segir að Grýla sé al-
veg hætt að borða börn.
„Hún er alltaf í hellinum sínum.
Hún er dottin á kaf ofan í ástar-
sögur. Hún liggur allan daginn og
les þær. Aumingja Leppalúði er út
um allt að finna nýjar sögur. Svo
held ég að hún sé orðin vegan. Ég er
samt ekki viss. Ég hitti hana svo
sjaldan,“ segir Gáttaþefur og bætir
við að það sé stutt síðan hann fór
loks að heiman.
„Þegar maður er fæddur
sautján hundruð og grænkál – eða
var það súrkál? – og kemst loks að
heiman þá vill maður bara vera
heima hjá sér. Við förum samt alltaf
til foreldra okkar, Grýlu og Leppa-
lúða, á jólunum.“
Einu sinni á ári hittast allir 13
jólasveinarnir og fara saman í bað í
Dimmuborgum.
„Bað einu sinni á ári er alveg
nóg,“ segir Gáttaþefur og bætir við
að Stúfur hafi ekki verið með í ár.
„Hann var á Akureyri með leiksýn-
ingu og heldur að hann sé frægur.“
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Jólasveinar Gáttaþefur og Bjúgnakrækir, tveir af þrettán bræðrum sem
heimsækja Dimmuborgir á hverju ári og færa börnum franskar í skóinn.
Jólasveinarnir þrettán koma saman og baða sig í Dimmuborgum á jólunum
Grýla dottin í
ástarsögurnar
og orðin vegan
„Stærsti hluti þeirra sem sækja
Dimmuborgir heim á aðventunni
eru íslenskar fjölskyldur,“ segir
Ólafur Þröstur Stefánsson sem rek-
ur ferðaþjónustu á Mývatni.
Hann segir að flestir komi af
Norðurlandi, allt frá Austfjörðum til
Skagastrandar og eitthvað af fólki
komi frá höfuðborgarsvæðinu.
„Erlendir ferðamenn koma í
skipulögðum ferðum en þeim hefur
farið fækkandi undanfarin þrjú til
fjögur ár sem kaupa sér þjónustu.
Ferðamenn sem keyra hringinn á
eigin vegum staldra við í Dimmu-
borgum og gista jafnvel í sveitinni,“
segir Ólafur og bætir við að aðalat-
vinnuvegur Mývetninga fyrir utan
skólana og Kröflu sé nú ferða-
mennska.
Íslenskir ferðamenn á aðventu
FERÐAMENNSKA
Morgunblaðið kemur næst út
miðvikudaginn 27. desember. Að
venju verður öflug fréttaþjón-
usta á fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, yfir jóladagana.
Hægt er að senda ábendingar
um fréttir á netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifenda verð-
ur opið í dag, Þorláksmessu, frá
kl. 8-12. Þjónustuverið verður
opnað á ný miðvikudaginn 27.
desember kl. 7. Sími þjónustu-
vers er 569-1122 og netfangið er
askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónustan er opin á
Þorláksmessu frá kl. 6-12. Síma-
númerið er 569-1440.
Skiptiborð Morgunblaðsins
verður lokað yfir jólin. Netfang
ritstjórnar er ritstjorn@mbl.is.
Hægt er að bóka dánartilkynn-
ingar á mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is um jólin
Jólafagnaður Hjálpræðishersins
verður á morgun, aðfangadag, í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Borðhald hefst klukkan 18 en hús-
ið verður opnað skráðum gestum
kl. 15:30. Fyrir borðhald verða
jólasöngvar og dansað í kringum
jólatréð. Dagskrá lýkur klukkan
20. Allir þeir sem ekki hafa tök á
að dveljast hjá vinum og vanda-
mönnum á aðfangadagskvöld eru
boðnir hjartanlega velkomnir í
fagnaðinn.
Morgunblaðið/Ómar
Jólafagnaður
Hjálpræðishers-
ins í Ráðhúsinu
„Maður vill spila leiki sem þessa og
hefur gaman af. En þessir leikir verða
auðvitað mjög erfiðir,“ segir Jóhann
Berg Guðmundsson sem mætir topp-
liðum með Burnley í
ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu
um jólin og þarf til
að mynda að mæta
til æfinga á sjálfan
jóladag. » 3
Jóhann æfir á jóladag
og á erfiða törn