Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Síða 21
Þarna mega allar þær stúlkursem eru búnar að ná við-miðum í afrekshóp og þær sem hafa náð viðmiðum í hópinn sem heitir ungir og efnilegir og allar þær sem hafa tekið eða munu taka þátt í landsliðsverkefnum á þessu tímabili mæta á æfingar,“ segir María For- tescue, framkvæmdastjóri Skauta- sambands Íslands, um æfinguna á föstudagskvöldið en sambandið fær úthlutaða tíma á svellinu frá ÍBR á móti Íshokkísambandinu. Á þessum æfingum eru jafnan um tíu stúlkur sem taka þátt í afreks- starfinu í Reykjavík en þær eru úr Birninum og Skautafélagi Reykja- víkur. Fleiri til viðbótar æfa síðan listskauta hjá Skautafélagi Akureyr- ar. María þekkir þennan heim vel en hún er sjálf fyrrverandi skautari og er ennfremur með alþjóðleg dóm- araréttindi. „Það er misjafnt hvort þau fá frjálsan tíma eða hvort við skipuleggjum eitthvað. Núna er stutt í Reykjavíkurleikana og eftir þá förum við út til Finnlands á Norð- urlandamótið þannig að þennan mánuðinn leyfum við þjálfurum al- veg að vera með frjálsar hendur á þessum æfingum,“ segir María en keppni í listhlaupi á skautum stend- ur yfir á Reykjavíkurleikunum næstkomandi föstudag, laugardag og sunnudag. Leikarnir og Norðurlandamótið eru stærstu hópaverkefnin í list- skautunum og jafnframt umfangs- mestu verkefnin hjá Skauta- sambandinu. María segir að það sé mikill upp- gangur í íþróttinni. „Við bíðum með krosslagða fingur á hverju móti og vonumst til þess að í dag sé dagurinn sem við náum lágmörkum inn á þessi stærri mót. Það gæti verið eitthvað sem gerist á þessu tímabili. Það þarf að ryðja þessa slóð og þá trúum við að margar fylgi í kjölfarið,“ segir hún og vonast eftir að geta sent keppendur fyrr en síðar á Evr- ópumót, þar sem aðeins er keppt í senior-flokknum og heimsmeist- aramót unglinga (Junior Worlds). Listskautar eru frekar ung íþrótt á Íslandi. „Við erum ung í Alþjóða- sambandinu en íþróttin hefur verið til hér mjög lengi,“ segir hún en Skautasamband Íslands fékk full- gilda aðild að Alþjóðaskauta- sambandinu árið 2002. Hún segir að iðkendum hafi fjölg- að en það sem þurfi til nú til að stækka íþróttina sé annað innanhúss skautasvell. „Ístíminn er að mestu nýttur fyrir utan þann tíma sem er á skólatíma,“ segir María sem vonast til þess að til dæmis bæjarfélög í nágrenni Reykjavíkur byggi skautahöll. „Þetta er ein af þessum íþróttum sem við keppum mikið við almenn- ing um það svæði sem við iðkum okkar íþrótt á sem tíðkast ekki mikið í öðrum íþróttagreinum.“ Myndirðu vilja sjá fleiri skauta sér til gamans, að almenningur stundaði skautaíþróttina á ruddum tjörnum, vötnum og öðrum útisvell- um í meira mæli? „Algjörlega, þannig stækkar íþróttin, með því að fólk komist í snertingu við þetta, hafi gaman og vilji fara,“ segir María sem sjálf hef- ur ánægju af því að skauta úti eftir að hún hætti að keppa og æfa sjálf. „Ég vann sem flugfreyja hjá Em- irates í Dubai og alltaf þegar ég ferðaðist um heiminn tók ég skaut- ana með mér ef það var úti- skautasvell þar sem ég var að fara. Ég hafði ekki lengur gaman af því að fara í skautahallir þar sem það var troðið af fólki en að skauta á úti- skautasvelli finnst mér ennþá mjög gaman.“ Samblandið af hinu tæknilega og listfenginu er það sem heillar Maríu hvað mest við íþróttina. „Í þessari íþrótt þurfa einstaklingar að vera mjög tæknilega sterkir ásamt því að skilja tónlist og geta túlkað hana með hreyfingum sínum og ofan á það allt saman að láta þetta líta út fyrir að vera lítið sem ekkert mál,“ segir hún en þetta er mjög líkamlega krefjandi íþrótt. Nú styttist í Vetrarólympíuleika, þar sem skautaíþróttin er áberandi, býstu við fleiri iðkendum eftir leik- ana? „Algjörlega, sjálf byrjaði ég að suða um að fá að æfa skauta í kjöl- farið á Ólympíuleikum eftir að hafa horft á þá þar. Áhuginn vaknar oft svona enda er þetta einhver sjón- varpsvænasta íþrótt í heimi.“ María Fortescue er framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands. Skautaíþróttin er í sókn hérlendis eins og sjá mátti á æfingu afrekskvenna í listskautum í Egilshöll um síðustu helgi. Framundan eru síðan Reykjavíkurleikarnir um næstu helgi og Norðurlandamót á eftir því. Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Myndir: Haraldur Jónasson hari@mbl.is Listskautar á tímamótum ’Í þessari íþrótt þurfaeinstaklingar að veramjög tæknilega sterkirásamt því að skilja tónlist og geta túlkað hana með hreyfingum sínum og of- an á það allt saman að láta þetta líta út fyrir að vera lítið sem ekkert mál. 21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.