Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 26
BRÚNAÐ SMJÖR OG SÍTRÓNUPOPP Bræðið 6 msk af smjöri í potti yfir miðlungshita þar til það brúnast, eða í u.þ.b. 7 mínútur. Takið af hitanum og bætið úti í 1 ½ tsk af rifnum sítrónuberki. Hellið þessu yfir popp- skálina og blandið. Stráið yfir 2 tsk af salti. SESAMFRÆ-POPP Hitið 6 msk af smjöri með 2/3 bolla sesamfræja í litlum potti yfir miðlungshita í u.þ.b. 5 mínútur. Hrærið út í 1 msk af sykri og 1 msk af salti. Hellið yfir poppskálina og blandið vel saman. TRUFFLUPOPP Bræðið 6 msk af smjöri og blandið út í það 1 ½ msk trufflu- olíu, ¼ bolla af rifnum parmesan, 1 tsk salt og ½ tsk pipar. Hellið yfir poppskálina og blandið. PARMESAN-RÓSMARÍNPOPP Blandið út í poppskálina ½ bolla af rifnum parmesan-osti, 3 msk olífuolíu, einni msk af fínt skornu rósmaríni og 2 tsk af salti. OSTAVEISLUPOPP Takið 2 bolla cheddar ost, 1 bolla rifinn par- mesan og ½ bolla af rifnum pecorino-osti og blandið við poppið. Dreifið þessu á ofnplötu (á bökunarpappír). Bakið við 175°C í ca. 3 mín- útur, þangað til cheddar-osturinn er bráðn- aður. Saltið. HVÍTLAUKS- OG KRYDDJURTAPOPP Bræðið 4 msk af smjöri í potti og bætið út í 4 rifnum hvítlauks- rifjum, einn tsk af fínt skornu rósmaríni, tsk af salvíu og tsk af timían og eldið í eina mínútu. Hellið yfir poppskálina og stráið yfir 2 tsk af salti. BEIKON- OG GRASLAUKSPOPP Eldið 6 sneiðar af beikoni þar til stökkt. Þerrið og skerið í litla bita en geymið olíuna sem kemur af því. Stráið yfir poppskálina 2 msk af beikonolíunni og 2 msk af bræddu smjöri. Blandið beikoni saman. Blandið úti í ½ bolla af smátt skornum graslauk og ½ tsk af cayenne-pipar. Saltið. KARRÝ-POPP Bræðið um 100 g smjör í potti á lágum hita. Bætið við 2 bollum af rúsínum og 2 bollum af pist- asíuhnetum, 3 msk af sykri, 1 msk af karrý og eldið í 2 mín- útur. Blandið þessu svo í popps- kálina og saltið. GRÁÐOSTA- OG MÖNDLUPOPP Bræðið 4 msk af smjöri og hellið yfir poppskálina. Blandið 1 bolla af muldum gráðosti saman við ásamt 1 bolla af smátt skornum ristuðum möndlum. Saltið. SINNEPS- SALTSTANGAPOPP Hrærið saman 4 msk af bráðnu smjöri og 2 msk af dijon-sinnepi, 1 tsk sykri og ½ tsk salti. Hellið þessu yfir poppskálina og bland- ið saman við 4 bollum af salt- stöngum (litlum pretzels). Thinkstock Poppaðu upp poppið Það er hægt að gera fleira við popp en að salta það! Hvernig væri að hafa kósíkvöld um helgina og bjóða upp á allt öðruvísi popp? Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is MATUR Of mikið salt á popp getur hreinlega skemmt ánægjuna af þessubrakandi góðgæti. Gott er að salta fyrst smávegis og smakka og bæta þá við ef þurfa þykir. Varlega í saltið! 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018 KANILSYKURSPOPP Bræðið 6 msk af smjöri og hellið því yfir popp- skálina. Bætið út í poppið 4 bollum af kanil- morgunkorni (t.d. Cinnamon Toast Crunch), 1/3 bolla sykri, 2 tsk kanil og 1 tsk salti. BÍOPOPP Bræðið um 100 g af smjöri yfir lágum hita. Hellið yfir poppskálina og stráið yfir 2 tsk af salti. PEPPERONI-PIZZAPOPP Setjið einn bolla af smátt skornu pepperoni í pott ásamt 1 msk af matarolíu og steikið þar til stökkt. Þerrið með eldhúspappír en geymið auka olíu sem eftir er í pottn- um. Poppið í þeirri olíu ¾ bolla af poppmaís og bætið svo út í pepperoni-bitunum, einum bolla af rifnum mozzarella, ½ bolla af rifnum parmesan, 2 msk af ólífu- olíu og 1 tsk af rifnum hvítlauk. Stráið að lokum yfir þurrkuðu óreganó og salti. Í uppskriftunum er ein poppskál miðuð við 12 -16 bolla af poppuðu poppi. Almennt er miðað við um ¾ bolla poppbauna sem nemur tæpum 2 dl af baunum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.