Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Björgunarsveitir stóðu í ströngu í
óveðrinu sem geisaði í gær. Dagurinn
byrjaði eldsnemma hjá björgunar-
sveitarmönnum á Suðurlandi. Þjóð-
veginum var lokað frá Hvolsvelli að
Jökulsárlóni klukkan fimm í gær-
morgun en austast á Suðurlandi var
veður mjög slæmt sem og á austan-
verðu suðvesturhorninu.
Um tíma voru allflestir vegir í upp-
sveitum Árnessýslu ásamt Hellis-
heiði, Þrengslum og Suðurstrandar-
vegi lokaðir en mikið var um útköll
beggja vegna Hellisheiðar. Fjöldi bíla
sat fastur í Þrengslum á tíunda tím-
anum en um svipað leyti var bíl ekið á
kyrrstæðan björgunarsveitarbíl sem
sinnti vegalokunum á gatnamótum
Þrengsla og Hellisheiðar. Mjög
slæmt skyggni var þegar slysið varð.
Austanmegin heiðarinnar rigndi
inn verkefnum til björgunarsveita
vegna bíla í vandræðum í Ölfusi og
milli Hveragerðis og Selfoss en fjöldi
bíla fór út af veginum. Veður gekk
hratt niður upp úr hádegi en björg-
unarsveitarmenn fylgdu bílalestum
frá Þingvöllum síðdegis í gær þar
sem 150 strandaglópar höfðu safnast
saman í þjónustumiðstöðinni.
Erilsamt og vegir lokaðir
Bílar fastir og
fólk í vandræðum
í ófærðinni í gær
Morgunblaðið/Hari
Lokanir Vegum hefur víða verið lokað undanfarna daga vegna veðurs.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þau taka gleði sína á ný. Það er haugur núna á
bílastæðinu og við ætlum að bæta á hann mjúk-
um snjó,“ segir Sigmundur Þorgrímsson, bæj-
arverkstjóri á Húsavík, um snjóhrúgu á bíla-
stæði Borgarhólsskóla sem framkvæmdanefnd
bæjarins hefur samþykkt að verði ekki fjarlægð
við snjóhreinsun starfsmanna áhaldahúss bæj-
arins.
Nemendur Borgarhólsskóla höfðu samband
við sveitarfélagið Norðurþing um að breytingar
yrðu gerðar á snjóhreinsun á skólalóðinni. Vildu
þau fá að halda uppsöfnuðum snjó sem til fellur
við snjómokstur en er venjulega ekið í burtu.
Þau leika sér á hrúgunni.
Málið var tekið fyrir í framkvæmdanefnd
Norðurþings og afgreitt með manneskjulegum
hætti: „Framkvæmdanefnd þakkar nemendum
Borgarhólsskóla fyrir erindið og felur fram-
kvæmda- og þjónustufulltrúa að tala við menn-
ina sem taka snjóinn og segja þeim að hætta því
svo krakkarnir geti leikið sér.“
Sigmundur er maðurinn sem stjórnar mönn-
unum sem taka snjóinn. Hann fagnar frumkvæði
krakkanna og segir að starfsmenn áhaldahúss-
ins hafi gaman af þessu máli. Hann segir sjálf-
sagt að leyfa haugnum að standa svo krakkarnir
geti leikið sér. Börnin gera holur í hauginn og
renna sér niður hann. Sigmundur segir nauðsyn-
legt að færa hauginn í öryggisskyni, svo börnin
renni ekki inn á bílastæðið.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Segja mönnunum sem taka snjóinn að hætta
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar
sendu frá sér ályktun í gær þar
sem stéttarfélagið hvetur verka-
lýðshreyfinguna til að nýta sér
ákvæði í kjarasamningum aðildar-
félaga Alþýðusambands Íslands og
Samtaka atvinnulífsins með því að
segja upp gildandi kjarasamning-
um í febrúar. „Það er ef Samtök at-
vinnulífsins fallast ekki á að leið-
rétta forsendubrest og þá
misskiptingu sem endurspeglast í
launahækkunum til annarra hópa
launafólks umfram félagsmenn
ASÍ,“ segir í ályktun félagsins.
Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ)
birti á heimasíðu sinni í gær nið-
urstöður viðhorfskönnunar þar sem
fram kemur að meirihluti fé-
lagsmanna vill segja upp kjara-
samningum.
Kjararáð forsendubresturinn
Á heimasíðu félagsins segir að
félagsmenn vilji segja samningnum
upp vegna skýrs forsendubrests.
Kristján Þórður Snæbjörnsson, for-
maður RSÍ, segir að kjararáð hafi
valdið þeim forsendubresti. „For-
sendubresturinn varð fyrir ári þeg-
ar menn voru að meta kjarasamn-
inga sem þá var búið að gera. Þar
voru tveir til þrír kjarasamningar
sem lágu til grundvallar og gerðu
það að verkum að við gátum frest-
að þessu mati til ársins í ár. Aðal-
ástæðan fyrir því að menn eru
ósáttir eru úrskurðir kjararáðs og
hvernig þeir hafa úrskurðað á síð-
ustu árum til útvalinna hópa innan
æðstu stétta innan ríkisins,“ segir
Kristján og bætir við að þær hækk-
anir valdi aukinni stéttaskiptingu.
„Menn eru ekki tilbúnir að sætta
sig við það að stéttaskipting sé að
aukast á meðan ástandið er eins og
það er. Þar af leiðandi telja þeir að
það sé betra að setjast að samn-
ingaborðinu og sækja einhverjar
hækkanir fyrir okkar menn.“
Félag vélstjóra og málmtækni-
manna (VM) býst við því að taka
ákvörðun fyrir lok mánaðarins um
hvort segja eigi upp samningum.
„Við erum ekki komnir með neina
niðurstöðu í þetta ennþá. Við vor-
um að vinna í því að funda með
trúnaðarmönnum í síðustu viku og
erum að fara í stærri fyrirtæki og
heyra í félagsmönnum okkar,“ seg-
ir Guðmundur Ragnarsson, formað-
ur VM. „Þegar línurnar fara að
skýrast boðum við fulltrúaráðið
okkar á fund þar sem tekin verður
ákvörðun um þetta.“
Vilja segja upp kjarasamningum
Framsýn hvetur aðildarfélög ASÍ til að segja upp kjarasamningum fyrir lok
mánaðarins Meirihluti félagsmanna RSÍ vill einnig segja upp kjarasamningum
1,3% launa-
hækkun
hjá BSRB
Afturvirkt vegna
launaskriðs hjá öðrum
Félagsmenn
BSRB sem
starfa hjá ríkinu
mega búast við
því að fá 1,3%
launahækkun
greidda aftur-
virkt frá 1. jan-
úar 2017 um
næstu mánaða-
mót. Aðildar-
félög BSRB
ákveða hvert fyrir sig hvernig launa-
hækkunin kemur til framkvæmda og
ætti slíku, að sögn Elínar Bjargar
Jónsdóttur, formanns BSRB, að
vera lokið fyrir lok mánaðarins.
Launahækkunin kemur til vegna
ákvæðis í rammasamkomulagi um að
félagsmenn BSRB myndu fá það
launaskrið sem yrði á almennum
vinnumarkaði umfram launaskrið á
hinum opinbera vinnumarkaði.
„Þetta er fyrsta mælingin sem
gerð er á þessu tímabili og hún er
þannig að starfsmenn ríkisins sem
eru í BSRB eiga að fá að meðaltali
1,3% hækkun. Þetta átti að liggja
fyrir 1. janúar 2017 og þess vegna er
þetta afturvirkt,“ segir Elín en gild-
istíminn var festur fyrirfram.
Laun félagsmanna BSRB sem
starfa hjá sveitarfélögum taki hins
vegar ekki breytingum. Ástæðan sé
sú að laun starfsmanna sveitarfélaga
hafi hækkað meira en laun á almenn-
um vinnumarkaði á árunum 2013 til
2016. Segir á vef BSRB að launaþró-
unin verði mæld áfram og leiðrétt
vegna áranna 2017 og 2018 ef tilefni
reynist til þegar þær tölur liggi fyrir.
mhj@mbl.is
Elín Björg
Jónsdóttir
Eldingar dundu yfir Mýrdalssand
og nágrenni seinnipartinn í gær og
segir Óli Þór Árnason, veðurfræð-
ingur hjá Veðurstofu Íslands, ekki
oft sem svo mikið sjáist af eldingum
á svo afmörkuðu svæði.
„Það var frekar staðbundinn
bakki að ryðja úr sér töluverðu af
eldingum,“ segir Óli Þór en mestu
eldingarnar voru á milli 17 og 19.
Eldingarnar náðu um tíma rétt suð-
ur af Hornafirði. „Yfirleitt fylgir
þetta élja- eða skúragörðum sem
myndast í suðvestanátt,“ segir Óli
Þór en í gær var þó undantekning á
enda sterk austanátt. ash@mbl.is
Eldingar geisuðu
yfir Mýrdalssandi