Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Um áramótin bárust
þau tíðindi að nýr
stjórnmálaflokkur, Sósí-
alistaflokkur Íslands,
hygðist bjóða fram í
verkalýðsfélögum og
eftir áramótin auglýsti
flokkurinn eftir fólki
sem væri óánægt með
stjórn Eflingar og vildi
velta henni úr sessi. Fé-
lagsmenn voru hvattir
til að gefa kost á sér í
framboð gegn sitjandi stjórn félags-
ins. Það er ekki nýtt að félagsmenn í
stéttarfélögum rísi upp gegn sitj-
andi stjórnum stéttarfélaga. Það er
lýðræðislegt og sjálfsagt mál. Það
þekki ég mjög vel frá síðustu árum
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
þar sem óánægður hópur í félaginu
bauð fram gegn sitjandi stjórn ár
eftir ár á tíunda áratugnum. En það
er alveg nýtt að stjórnmálaflokkur
sem er að mestu leyti undir stjórn
eins manns með vafasama fortíð
gagnvart launafólki og aldrei hefur
komið nálægt verkalýðsmálum beiti
sér með þessum hætti. Það eru tíð-
indi. Það eru reyndar mjög vond tíð-
indi fyrir verkafólk og samtök þess.
Rifjum aðeins upp söguna. Bein-
um tengslum milli stjórnmálaflokka
og verkalýðshreyfingar lauk 1942
þegar skil voru gerð milli Alþýðu-
sambandsins og Alþýðuflokksins.
Ástæðan var nokkuð augljós.
Flokksmenn allra stjórnmálaflokka
voru félagsmenn í stéttarfélögum
Alþýðusambandsins. Þeir vildu ekki
að ASÍ væri beitt í flokkspólitískum
tilgangi. Framboð Sósíalistaflokks
Íslands er einmitt ætlað að gera
þetta. Það blasir við á heimasíðu
flokksins að hann skilgreinir sig sem
róttækan sósíalistaflokk. Hann ætl-
ar að bylta þjóðfélaginu. Allir stjórn-
málaflokkar eru að mati Sósíal-
istaflokksins spilltir og gengnir í
sæng með auðvaldinu. Í Eflingu –
stéttarfélagi eru félagsmenn í öllum
stjórnmálaflokkum og í trúnaðarráði
og ef ég þekki það fólk rétt, þá mun
það ekki láta bjóða sér svona innrás
stjórnmálaafla inn í félagið.
Málflutningur forystu hins nýja
framboðs er í samræmi við þetta.
Þar er byrjað á því að hóta verkföll-
um. Nú hef ég nokkra reynslu af
verkföllum af langri starfsævi í mínu
stéttarfélagi hér áður fyrr. Verkföll
eru neyðarráðstöfun þegar allt ann-
að hefur verið reynt. Það þarf að
hafa fólkið með sér í gegnum langan
aðdraganda að verkfalli. Verkföll
eru ekki til að hafa í flimtingum.
Enginn sem vill láta í alvöru taka
mark á sér í baráttu fyrir betri kjör-
um, byrjar á því að hóta andstæð-
ingunum. Stéttarfélög hafa alltaf
haft það markmið að ná samningum
fyrir sitt fólk og betri kjörum. Það
er ekki takmark í sjálfu sér að efna
til illinda á vinnu-
markaði eins og lesa
má úr málflutningi
Sósíalistaflokksins.
En þetta leiðir ein-
mitt hugann að því að
verkalýðsbarátta er
langhlaup þar sem
reynir á þolgæði
fólks. Reynslan er þar
besta veganestið.
Þess vegna hafa stétt-
arfélögin þjálfað upp
talsmenn sína og for-
ystumenn. Þeir koma
allir úr röðum fé-
lagsmanna, hafa haft brennandi
áhuga á að leiðrétta kjör þeirra sem
verra hafa það í þjóðfélaginu. Ekk-
ert kemur í stað reynslunnar af
vinnu í stéttarfélögunum. Það er
ótrúleg einföldun á veruleikanum ef
fólk heldur að það gangi inn í for-
ystu stéttarfélaga án þess að hafa
nokkuð lagt til á þessum vettvangi
áður. Ekkert er verra en verkalýðs-
leiðtogi sem stendur frammi fyrir
atvinnurekendum með upphrópanir
einar.
Ég tel það líka bera vott um nokk-
urn hroka þegar því er lýst yfir að
það þurfi að hreinsa út úr stjórn
stéttarfélags alla þá sem þar eru þar
sem þeir séu ekki að þjóna fé-
lagsfólkinu. Ég hef setið í þessari
sömu stjórn Eflingar og þekki þar
engan fyrr eða síðar sem hefur ekki
farið inn í stjórn, brennandi af áhuga
á að láta gott af sér leiða. Hið nýja
framboð Sósíalistaflokksins á ekki
einkarétt á réttlætinu. Það má líka
skoða allt starf Eflingar – stétt-
arfélags undanfarna tvo áratugi og
reyna að finna því stað að stjórn fé-
lagsins hafi ekki unnið að hags-
munum félagsmannanna.
Svo er það sérstakur kafli út af
fyrir sig hvernig foringjar annarra
stéttarfélaga hafa beitt sér gegn
stjórn Eflingar. Það er bæði
ódrengilegt og félagslega heimsku-
legt. Félagsfólkið í Eflingu á það
skilið að fá að taka ákvarðanir um
sína forystu án afskipta formanna
annarra stéttarfélaga, VR eða
VLFA. En þetta er gert með fullu
samþykki Sósíalistaflokksins undir
forystu formannsefnis framboðsins.
Þarna sitja tveir formenn og eitt for-
mannsefni saman og véla um fram-
tíð fólksins í Eflingu – stéttarfélagi.
Þykir það bara í lagi. Þetta er sama
fólkið og hefur síðan grafið undan
heildarsamtökum launafólks innan
ASÍ og hvatt til úrgöngu úr samtök-
unum. Ég spyr. Er þetta í lagi?
Er þetta í lagi?
Ég vil skora á félagsmenn Efl-
ingar að hrinda þessari árás. Þessi
aðferð að forystumenn annarra
stéttarfélaga hlutist til um innri
stjórn stéttarfélags er ekki bara
árás á stjórn Eflingar. Hún snýst
um sjálfsákvörðunarrétt fé-
lagsmanna í stéttarfélögum. Að þeir
fái að ráða ráðum sínum sjálfir. Hún
er árás á allt innra starf stétt-
arfélaga. Árás á það fólk sem situr í
stjórnum stéttarfélaga um allt land
og er að vinna að hagsmunamálum
launafólksins í félögunum sínum.
Nei, þetta er ekki í lagi.
Er þetta í lagi?
Eftir Snorra
Ársælsson » Fólkið í Eflingu á
það skilið að fá að
taka ákvarðanir um sín
innri mál án afskipta
formanna annarra
stéttarfélaga.
Snorri
Ársælsson
Höfundur á langan feril innan Dags-
brúnar og Eflingar – stéttarfélags.
Hann var fyrst trúnaðarmaður uppi í
Sigölduvirkjun, sjómaður og síðan
starfsmaður og trúnaðarmaður Dags-
brúnar hjá Samskipum í nærri tvo
áratugi. Þá varð hann starfsmaður og
trúnaðarmaður Eflingar meðal bens-
ínafgreiðslumanna hjá Skeljungi um
margra ára skeið.
Lengri útgáfu af þessari grein má lesa á
mbl.is/netgreinar
Hörmungarástand Sunnu
Elviru Þorkelsdóttur vek-
ur mikla reiði og vanmátt
hjá okkur landsmönnum
hennar. Hún er verr sett á
sjúkrahúsi á Spáni en jafn-
vel hættulegir glæpamenn
á Íslandi, ég tel víst að þeir
myndu allir njóta viðeig-
andi læknisþjónustu í fang-
elsi. Eða er það ekki rétt?
Spánn telst til vest-
rænna menningar-
samfélaga en framganga
lögreglu þar er á allan hátt óskiljanleg og dapurleg þó að ekki sé meira sagt.
Hvar er réttlætið og mannúðin í garð stórslasaðrar konu?
Ég hvet íslensk stjórnvöld til að gera ALLT sem í þeirra valdi stendur til
að koma henni sem allra fyrst heim til Íslands og óska henni og fjölskyldu
hennar alls hins besta í bataferlinu.
María L. Einarsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Ákall til íslenskra stjórnvalda
Sunna Elvíra Höfundur telur framgöngu spænsku lög-
reglunnar gagnvart Sunnu Elviru vera dapurlega.
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Atvinna