Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018 Um áramótin bárust þau tíðindi að nýr stjórnmálaflokkur, Sósí- alistaflokkur Íslands, hygðist bjóða fram í verkalýðsfélögum og eftir áramótin auglýsti flokkurinn eftir fólki sem væri óánægt með stjórn Eflingar og vildi velta henni úr sessi. Fé- lagsmenn voru hvattir til að gefa kost á sér í framboð gegn sitjandi stjórn félags- ins. Það er ekki nýtt að félagsmenn í stéttarfélögum rísi upp gegn sitj- andi stjórnum stéttarfélaga. Það er lýðræðislegt og sjálfsagt mál. Það þekki ég mjög vel frá síðustu árum Verkamannafélagsins Dagsbrúnar þar sem óánægður hópur í félaginu bauð fram gegn sitjandi stjórn ár eftir ár á tíunda áratugnum. En það er alveg nýtt að stjórnmálaflokkur sem er að mestu leyti undir stjórn eins manns með vafasama fortíð gagnvart launafólki og aldrei hefur komið nálægt verkalýðsmálum beiti sér með þessum hætti. Það eru tíð- indi. Það eru reyndar mjög vond tíð- indi fyrir verkafólk og samtök þess. Rifjum aðeins upp söguna. Bein- um tengslum milli stjórnmálaflokka og verkalýðshreyfingar lauk 1942 þegar skil voru gerð milli Alþýðu- sambandsins og Alþýðuflokksins. Ástæðan var nokkuð augljós. Flokksmenn allra stjórnmálaflokka voru félagsmenn í stéttarfélögum Alþýðusambandsins. Þeir vildu ekki að ASÍ væri beitt í flokkspólitískum tilgangi. Framboð Sósíalistaflokks Íslands er einmitt ætlað að gera þetta. Það blasir við á heimasíðu flokksins að hann skilgreinir sig sem róttækan sósíalistaflokk. Hann ætl- ar að bylta þjóðfélaginu. Allir stjórn- málaflokkar eru að mati Sósíal- istaflokksins spilltir og gengnir í sæng með auðvaldinu. Í Eflingu – stéttarfélagi eru félagsmenn í öllum stjórnmálaflokkum og í trúnaðarráði og ef ég þekki það fólk rétt, þá mun það ekki láta bjóða sér svona innrás stjórnmálaafla inn í félagið. Málflutningur forystu hins nýja framboðs er í samræmi við þetta. Þar er byrjað á því að hóta verkföll- um. Nú hef ég nokkra reynslu af verkföllum af langri starfsævi í mínu stéttarfélagi hér áður fyrr. Verkföll eru neyðarráðstöfun þegar allt ann- að hefur verið reynt. Það þarf að hafa fólkið með sér í gegnum langan aðdraganda að verkfalli. Verkföll eru ekki til að hafa í flimtingum. Enginn sem vill láta í alvöru taka mark á sér í baráttu fyrir betri kjör- um, byrjar á því að hóta andstæð- ingunum. Stéttarfélög hafa alltaf haft það markmið að ná samningum fyrir sitt fólk og betri kjörum. Það er ekki takmark í sjálfu sér að efna til illinda á vinnu- markaði eins og lesa má úr málflutningi Sósíalistaflokksins. En þetta leiðir ein- mitt hugann að því að verkalýðsbarátta er langhlaup þar sem reynir á þolgæði fólks. Reynslan er þar besta veganestið. Þess vegna hafa stétt- arfélögin þjálfað upp talsmenn sína og for- ystumenn. Þeir koma allir úr röðum fé- lagsmanna, hafa haft brennandi áhuga á að leiðrétta kjör þeirra sem verra hafa það í þjóðfélaginu. Ekk- ert kemur í stað reynslunnar af vinnu í stéttarfélögunum. Það er ótrúleg einföldun á veruleikanum ef fólk heldur að það gangi inn í for- ystu stéttarfélaga án þess að hafa nokkuð lagt til á þessum vettvangi áður. Ekkert er verra en verkalýðs- leiðtogi sem stendur frammi fyrir atvinnurekendum með upphrópanir einar. Ég tel það líka bera vott um nokk- urn hroka þegar því er lýst yfir að það þurfi að hreinsa út úr stjórn stéttarfélags alla þá sem þar eru þar sem þeir séu ekki að þjóna fé- lagsfólkinu. Ég hef setið í þessari sömu stjórn Eflingar og þekki þar engan fyrr eða síðar sem hefur ekki farið inn í stjórn, brennandi af áhuga á að láta gott af sér leiða. Hið nýja framboð Sósíalistaflokksins á ekki einkarétt á réttlætinu. Það má líka skoða allt starf Eflingar – stétt- arfélags undanfarna tvo áratugi og reyna að finna því stað að stjórn fé- lagsins hafi ekki unnið að hags- munum félagsmannanna. Svo er það sérstakur kafli út af fyrir sig hvernig foringjar annarra stéttarfélaga hafa beitt sér gegn stjórn Eflingar. Það er bæði ódrengilegt og félagslega heimsku- legt. Félagsfólkið í Eflingu á það skilið að fá að taka ákvarðanir um sína forystu án afskipta formanna annarra stéttarfélaga, VR eða VLFA. En þetta er gert með fullu samþykki Sósíalistaflokksins undir forystu formannsefnis framboðsins. Þarna sitja tveir formenn og eitt for- mannsefni saman og véla um fram- tíð fólksins í Eflingu – stéttarfélagi. Þykir það bara í lagi. Þetta er sama fólkið og hefur síðan grafið undan heildarsamtökum launafólks innan ASÍ og hvatt til úrgöngu úr samtök- unum. Ég spyr. Er þetta í lagi? Er þetta í lagi? Ég vil skora á félagsmenn Efl- ingar að hrinda þessari árás. Þessi aðferð að forystumenn annarra stéttarfélaga hlutist til um innri stjórn stéttarfélags er ekki bara árás á stjórn Eflingar. Hún snýst um sjálfsákvörðunarrétt fé- lagsmanna í stéttarfélögum. Að þeir fái að ráða ráðum sínum sjálfir. Hún er árás á allt innra starf stétt- arfélaga. Árás á það fólk sem situr í stjórnum stéttarfélaga um allt land og er að vinna að hagsmunamálum launafólksins í félögunum sínum. Nei, þetta er ekki í lagi. Er þetta í lagi? Eftir Snorra Ársælsson » Fólkið í Eflingu á það skilið að fá að taka ákvarðanir um sín innri mál án afskipta formanna annarra stéttarfélaga. Snorri Ársælsson Höfundur á langan feril innan Dags- brúnar og Eflingar – stéttarfélags. Hann var fyrst trúnaðarmaður uppi í Sigölduvirkjun, sjómaður og síðan starfsmaður og trúnaðarmaður Dags- brúnar hjá Samskipum í nærri tvo áratugi. Þá varð hann starfsmaður og trúnaðarmaður Eflingar meðal bens- ínafgreiðslumanna hjá Skeljungi um margra ára skeið. Lengri útgáfu af þessari grein má lesa á mbl.is/netgreinar Hörmungarástand Sunnu Elviru Þorkelsdóttur vek- ur mikla reiði og vanmátt hjá okkur landsmönnum hennar. Hún er verr sett á sjúkrahúsi á Spáni en jafn- vel hættulegir glæpamenn á Íslandi, ég tel víst að þeir myndu allir njóta viðeig- andi læknisþjónustu í fang- elsi. Eða er það ekki rétt? Spánn telst til vest- rænna menningar- samfélaga en framganga lögreglu þar er á allan hátt óskiljanleg og dapurleg þó að ekki sé meira sagt. Hvar er réttlætið og mannúðin í garð stórslasaðrar konu? Ég hvet íslensk stjórnvöld til að gera ALLT sem í þeirra valdi stendur til að koma henni sem allra fyrst heim til Íslands og óska henni og fjölskyldu hennar alls hins besta í bataferlinu. María L. Einarsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Ákall til íslenskra stjórnvalda Sunna Elvíra Höfundur telur framgöngu spænsku lög- reglunnar gagnvart Sunnu Elviru vera dapurlega. Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.