Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er alltaf gott að koma aftur til
Íslands,“ segir Osmo Vänskä, heið-
ursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, sem kemur fram á tvennum
tónleikum með sveitinni í vikunni.
„Að þessu sinni setti veðrið smá
strik í reikninginn, því ég kom til
landsins degi seinna en ætlað var
vegna óveðursins á sunnudag. Veðr-
áttan hér hefur mótandi áhrif á bæði
land og þjóð,“ segir Vänskä.
Fyrri tónleikar hans verða í Eld-
borg Hörpu í kvöld kl. 19.30 og þar
stjórnar hann svítunni Kijé liðsfor-
ingja eftir Sergej Prokofíev og Sin-
fóníu nr. 6 eftir Dmítríj Shostako-
vitsj ásamt frumflutningi á Silfur-
fljóti eftir Áskel Másson þar sem
Einar Jóhannesson klarínettleikari
leikur einleik, en Einar var fyrsti
klarínettleikari Sinfóníunnar um
áratuga skeið. „Mér þykir afar vænt
um að Einar skuli vera einleikari
tónleikanna, því hann var leiðari ár-
in sem ég var aðalhljómsveitarstjóri
SÍ,“ rifjar Vänskä upp.
Einstakur hljóðheimur Áskels
Aðspurður segir hann ávallt
spennandi að fá sem hljómsveitar-
stjóri að taka þátt í frumflutningi
nýrra verka. „Það fylgir því alltaf
mikil eftirvænting þegar ný verk fá
að hljóma í fyrsta sinn,“ segir
Vänskä og tekur fram að bráðnauð-
synlegt sé að hlúa að tónskáldum
samtímans svo ný verk skili sér til
áheyrenda í bland við klassíkina.
„Ég er sannfærður um að verk Ás-
kels muni falla í góðan jarðveg hjá
áheyrendum, enda er hljóðheim-
urinn í því einstakur og lýríkin alls-
ráðandi. Hann leikur sér meðal ann-
ars að því að láta tréblásturshljóð-
færaleikarana nota munnstykki sín
til að framkalla óvanaleg hljóð og
anda gegnum hljóðfærin,“ segir
Vänskä og tekur fram að hann heyri
mörg náttúruhljóð í verki Áskels.
Seinni tónleikarnir verða í Norð-
urljósum Hörpu á morgun, föstu-
dag, kl. 18. Þar stjórnar Vänskä aft-
ur Sinfóníu nr. 6 eftir Shostakovitsj
og Tríó fyrir strengi eftir Gideon
Klein ásamt því að leika einleik á
klarínett í þáttum úr Kvartett fyrir
endalok tímans eftir Olivier Messia-
en. „Ég flutti verkið í heild sinni á
tónleikum í Seúl í Suður-Kóreu
skömmu fyrir jól og hlakka til að
leika hluta þess aftur. Þetta er ein-
staklega fallegt verk fyrir klarín-
ettið.“ Vänskä hóf sem kunnugt er
tónlistarferil sinn sem klarínettleik-
ari og var orðinn leiðari hjá Turku-
fílharmóníunni fyrir tvítugt. Á ár-
unum 1977-82 var hann annar af
tveimur leiðurum hjá Fílharmóníu-
sveitinni í Helsinki á sama tíma og
hann nam hljómsveitarstjórn. Eftir
að hann var ráðinn aðalhljómsveit-
arstjóri Sínfóníuhljómsveitar Lahti
1988 gafst sífellt minni tími fyrir
klarínettið.
„Og árið 2001 lagði ég klarínettið
á hilluna og spilaði ekkert í þrjú ár.
Að þeim tíma liðnum fannst mér
nauðsynlegt að byrja að spila aftur –
því ég saknaði þess svo, á sama tíma
og mér fannst ómögulegt að stjórna
án þess að vera sjálfur spilandi tón-
listarmaður. Ég velti því alvarlega
fyrir mér hvers konar stjórnandi ég
gæti verið ef ég kæmi ekki fram sem
hljóðfæraleikari líka. Ég er þannig
sannfærður um að klarínettið geri
mig að betri hljómsveitarstjóra með
sama hætti og hljómsveitarstjórnin
nýtist mér sem klarínettleikara.
Spilamennskan snýst um öndun og
að skapa tónlist með öllum lík-
amanum og það skilar sér í stjórn-
endastörf mín með margvíslegum
hætti,“ segir Vänskä og tekur fram
að það hafi tekið sig mjög langan
tíma og mikla vinnu að komast í
fyrra spilamennskuform.
„Ég kem reglulega fram sem
klarínettleikari, en leik þá aðallega
kammertónlist – enda ótrúlega mik-
ið til af fallegum kammerverkum
sem skrifuð hafa verið fyrir klarín-
ettið. Í því samhengi mætti sem
dæmi nefna klarínettkvintetta eftir
Brahms og Mozart,“ segir hann.
Fjalla öll um mennskuna
Vänskä starfaði í Lahti í tvo ára-
tugi, en á árunum 1993-96 var hann
einnig aðalstjórnandi SÍ og gegndi
stöðu aðalgestastjórnanda SÍ frá
árinu 2014 þar til hann var gerður að
heiðursstjórnanda. Frá árinu 2003
hefur hann verið aðalstjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Minnesota
og hlotið mikið lof fyrir starf sitt
með þeirri sveit.
Vänskä segist hlakka til að fá
tækifæri til að stjórna sinfóníu Shos-
takovitsj tvo daga í röð. „Í Minne-
sota gefst hljómsveitinni ávallt tæki-
færi til að flytja sömu efnisskrána
þrisvar til fjórum sinnum. Endur-
tekningin er nauðsynleg fyrir hljóm-
sveitir til að þroskast í listinni. Hver
flutningur er eins og ferðalag þar
sem hvert ævintýrið rekur annað,“
segir Vänskä og finnst sérstaklega
spennandi að stjórna verkinu í
tveimur ólíkum rýmum.
Yfirskrift föstudagstónleikanna er
„Stríð og friður“, en athygli vekur
að öll verkin á tónleikunum tvenn-
um, nema verk Áskels, eru samin af
mönnum sem urðu vitni að hild-
arleik seinni heimsstyrjaldarinnar.
„Verkin þrjú hvort kvöld mynda
góða heild. Öll verkin fjalla um
mennskuna og hvernig við tökumst
á við áskoranir, hvort sem þær birt-
ast í einræðisherrum eða stríði.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heiður Osmo Vänskä á æfingu með Sínfóníuhljómsveit Íslands í gærdag.
Gat ekki lagt klarínettið
á hilluna til frambúðar
Osmo Vänskä stjórnar í kvöld og leikur einleik á morgun
Bandaríska þungarokkssveitin Metallica hlýtur Polar-
tónlistarverðlaunin í ár, en verðlaunin hafa verið nefnd Nób-
elsverðlaun tónlistarinnar. Frá þessu greinir BBC. Meðal
fyrri verðlaunahafa eru Paul McCartney, Joni Mitchell, Bob
Dylan, Patti Smith, Pink Floyd, György Ligeti og Björk,
sem hlaut þau ásamt Ennio Morricone árið 2010.
Í umsögn dómnefndar segir að enginn hafi samið jafn lík-
amlega og hamslausa tónlist sem sé á sama tíma afar að-
gengileg síðan Wagner samdi tilfinningalegt umrót sitt og
fallbyssur Tsjaíkovskíj hljómuðu. „Með virtúósa spila-
mennsku hópsins og notkun á hröðum tempóum hefur
Metallica leitt tónlistina á áður ófarnar slóðir. Með orðum
Metallica hefur jafnt táningsherbergjum og tónleikasölum
verið umbreytt í Valhöll.“
Verðlaunin verða afhent í Stokkhólmi 14. júní og fær
sveitin að launum eina milljón sænskra króna sem sam-
svarar ríflega 12,5 millj. ísl. kr. Sveitin hefur þegar ákveðið
að gefa verðlaunaféð til All Within My Hands, sem eru góð-
gerðarsamtök sem hjálpa samfélögum í vanda með mat-
arbönkum, áfallahjálp eftir stórslys og tónlistarmeðferð.
„Þetta færir okkur í virðulegan félagsskap,“ segir
trommuleikarinn Lars Ulrich um verðlaunin. „Þetta er stór-
kostleg viðurkenning á öllu því sem Metallica hefur verið að
gera síðustu 35 árin.“ Gítarleikarinn og forsöngvarinn
James Hetfield segist einnig þakklátur fyrir viðurkenn-
inguna.
Metallica var stofnuð í Kaliforníu og hefur á síðustu 30 ár-
um selt yfir 125 milljón plötur. Þeirra á meðal eru Kill ’Em
All, Ride the Lightning, Master of Puppets, And Justice for
All og Black Album, sem kom sveitin fyrir alvöru á kortið.
Polar-verðlaununum var komið á fót 1989 að frumkvæði
Stigs Anderson, umboðsmanns sænsku hljómsveitarinnar
ABBA. Verðlaunin eru nefnd eftir upptökustúdíói Ander-
son, Polar Music, þar sem ABBA hljóðritaði flestar plötur
sínar.
Metallica hlýtur
Polar-verðlaunin
Morgunblaðið/ÞÖK
Kröftugir Félagarnir Kirk Hammett og James Hetfield í
ham á tónleikum Metallica í Egilshöll árið 2004.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fim 1/3 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Lau 17/2 kl. 20:00 53. s Lau 24/2 kl. 20:00 55. s Lau 3/3 kl. 20:00 Lokas.
Mið 21/2 kl. 20:00 54. s Fös 2/3 kl. 20:00 56. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Lóaboratoríum (Litla sviðið)
Fim 15/2 kl. 20:00 8. s Sun 18/2 kl. 20:00 9. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas.
Í samvinnu við Sokkabandið.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Mið 21/2 kl. 19:30 Fors Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn
Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn
Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn
Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn
Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 22.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 18/2 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00 Sun 11/3 kl. 16:00 Síðustu
Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn
Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Þri 27/2 kl. 19:30 Auka Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn
Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 17.sýn
Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn
Lau 24/2 kl. 19:30 Auka Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 18/2 kl. 13:00 11.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 15/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30 Lau 3/3 kl. 22:30
Fös 16/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00
Fös 16/2 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 22:30 Fim 8/3 kl. 20:00
Lau 17/2 kl. 20:00 Sun 25/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00
Lau 17/2 kl. 22:30 Fim 1/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 22:30
Sun 18/2 kl. 21:00
Konudagur
Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fim 22/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30
Fös 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Allt um sjávarútveg