Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Kjartan Magnússon borgar-fulltrúi benti á það í grein hér í
blaðinu í gær að Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri bæri allra manna
mesta ábyrgð á því hvernig komið
væri í húsnæðis-
málum í borginni.
Kjartan benti áað Dagur hefði
verið „borgar-
fulltrúi í sextán ár,
þar af tólf í meiri-
hluta. Á þessum
tíma hefur hann haft
mikil áhrif á mótun
húsnæðisstefnu
borgarinnar, t.d.
sem formaður skipu-
lagsráðs, formaður
borgarráðs og borg-
arstjóri. Þegar Dag-
ur var formaður
skipulagsráðs var lóðaframboð
mjög takmarkað í Reykjavík en þær
fáu lóðir sem buðust voru hins veg-
ar boðnar upp í því skyni að borgin
fengi sem hæst verð fyrir. Þetta
hafði að sjálfsögðu í för með sér að
húsnæðisverð stórhækkaði og víta-
hringur myndaðist á húsnæðis-
markaði sem enn sér ekki fyrir end-
ann á“.
Þá benti Kjartan á að síðustu tvökjörtímabil hefðu einkennst af
klúðri og misheppnaðri húsnæðis-
stefnu sem Dagur hefði átt stærstan
þátt í að móta. „Allan þennan tíma
hefur Dagur gefið innantóm loforð
um að mikil uppbygging sé hafin
eða við það að hefjast. Ekkert bólar
t.d. á þeim 2.500-3.000 leiguíbúðum
sem hann lofaði fyrir síðustu kosn-
ingar,“ sagði Kjartan.
Borgarstjóri hefur enn og afturkynnt mikil áform um hraða
uppbyggingu á næstu árum. Stað-
reyndin er þó sú, að fólk getur ekki
með góðu móti flutt inn í loftkastala
Dags B. Eggertssonar. Ekki einu
sinni þeir sem eru allir af vilja gerð-
ir.
Kjartan
Magnússon
Loftkastalar eru
óhentug heimili
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Lífeyrissjóður verzlunarmanna | Kringlan 7 | 103 Reykjavík | Sími 580 4000 | skrifstofa@live.is
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinn miðvikudaginn 21. mars
kl. 18:00 á Grand Hótel Reykjavík.
DAGSKRÁ FUNDARINS
» Venjuleg ársfundarstörf
» Samþykktabreytingar
» Önnur mál
Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 25. janúar 2018
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
ÁRSFUNDUR 2018
live.is
ÍM
Y
N
D
U
N
A
R
A
F
L
/
L
V
Veður víða um heim 14.2., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri 3 alskýjað
Nuuk -18 skúrir
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló 1 skýjað
Kaupmannahöfn 1 þoka
Stokkhólmur 0 léttskýjað
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 2 heiðskírt
Brussel 4 léttskýjað
Dublin 9 léttskýjað
Glasgow 6 rigning
London 4 rigning
París 4 rigning
Amsterdam 4 heiðskírt
Hamborg 3 heiðskírt
Berlín 4 léttskýjað
Vín 2 skúrir
Moskva -9 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 9 alskýjað
Barcelona 11 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 4 súld
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -5 skýjað
Montreal -2 alskýjað
New York 2 alskýjað
Chicago 0 þoka
Orlando 19 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:23 18:02
ÍSAFJÖRÐUR 9:38 17:56
SIGLUFJÖRÐUR 9:22 17:39
DJÚPIVOGUR 8:55 17:28
Karlmaður á fimmtugsaldri var í síð-
ustu viku dæmdur í átta mánaða
fangelsi, þar af sex skilorðsbundna,
fyrir manndráp af gáleysi, líkams-
meiðingar af gáleysi og umferðar-
lagabrot. Maðurinn gerðist sekur um
ofsaakstur um Norðurlandsveg þar
sem hann var ófær um að stýra bif-
reið sinni vegna deyfilyfja og olli
hann umferðarslysi þar sem ökumað-
ur annarrar bifreiðar lét lífið.
Maðurinn ók um Öxnadalsheiði
skammt vestan við Grjótá í júní 2016
þegar hann ók aftan á aðra bifreið
sem ekið var í sömu átt. Sú bifreið
kastaðist framan á smárútu sem var
ekið á móti bifreiðunum.
Í dómi Héraðsdóms Norðurlands
kemur fram að maðurinn hafi ekið á
162 km/klst hraða þar sem hámarks-
hraðinn var 90 km/klst á bifreið sem
var ónothæf vegna ástands hemla á
vinstra framhjóli, verulega þunnra
hemlaklossa í afturhjólum, ryðmynd-
unar í hemladisk, óvirks höggdeyfis
og vanstilltra lega. Maðurinn játaði
brot sitt en hann á að baki langan
sakaferil. Hann var sviptur ökurétt-
indum í eitt ár og gert að greiða 1,3
milljónir kr. í málskostnað.
Í fangelsi
fyrir ofsa-
akstur
Gáleysi ökumanns
leiddi til banaslyss
Símafyrirtækið Nova braut lög um persónuvernd
með því að miðla persónuupplýsingum til fyrrver-
andi eiginkonu manns sem leiddi síðan til þess að
konan réðst með ofbeldi á aðra konu sem maður-
inn hafði átt í samskiptum við. Í úrskurði Persónu-
verndar kemur fram að maðurinn hafi kvartað til
Persónuverndar í júní í fyrra yfir miðlun Nova á
persónuupplýsingum um hann.
Í kvörtuninni kemur meðal annars fram að fyrr-
verandi eiginkona mannsins fékk útprentað yfirlit
yfir símanúmer hans hjá Nova, sem skráð var á
fyrirtæki. Þar sá konan við hverja hann hafði talað
í síma og hverjum hann hafði sent sms-skilaboð.
Segir að hún hafi komið auga á að maðurinn hafði
verið í samskiptum við tiltekna konu, sem hún
þekkti til. Hafi hún í framhaldinu farið til kon-
unnar og ráðist á hana með ofbeldi. Maðurinn
upplýsti að sú líkamsárás hefði verið kærð til lög-
reglu.
Nova bar fyrir sig að konan hefði villt á sér
heimildir en hún sagðist vera að óska eftir um-
ræddum gögnum fyrir hönd fyrirtækis og framvís-
aði greiðslukorti með nafni fyrirtækisins. Kemur
því fram í umfjöllun Persónuverndar að Nova telji
að frumástæðu þess að konan komst yfir upplýs-
ingarnar megi rekja til blekkinga hennar. Aftur á
móti segir að starfsmaður Nova hafi gert mistök
með afhendingu upplýsinganna, þar sem vinnulag
Nova geri ekki ráð fyrir að upplýsingar af þessu
tagi séu afhentar þeim sem um þær biður. Fram
kemur í úrskurði Persónuverndar að miðlun upp-
lýsinganna hafi verið óheimil og að Nova hafi borið
að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þær
kæmust í hendur óviðkomandi, til dæmis með því
að tryggja að sá sem óski afhendingar sé skráður
sem þar til bær aðili fyrir hönd fyrirtækisins.
Lög brotin með afhendingu símagagna
Fyrrverandi eiginkona fékk upplýsingar um símtöl fyrrverandi eiginmanns