Morgunblaðið - 15.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Með sölu Sigurðar Pálma Sigur-
björnssonar og fjölskyldu á hlut í
Sports Direct lýkur viðskiptafléttu
sem hófst 2012. Málið varðar verslun
Sports Direct í Kópavogi.
Móðurfélag þeirrar verslunar,
Rhapsody Investments (Europe), er
skráð í Lúxemborg. Félagið varð til
2009 þegar nafni annars félags var
breytt. Ingibjörg Stefanía Pálma-
dóttir, móðir Sigurðar Pálma, kom í
stjórn Rhapsody Investments árið
2012. Félag henni tengt, Guru Invest
S.A., var skráð fyrir 27% hlut og Sig-
urður Pálmi fyrir 33% hlut þegar
hlutafé var aukið 2012.
Fjallað var um Guru Invest í
tengslum við Panama-skjölin.
Fóru úr stjórn félagsins
Á föstudaginn var barst svo til-
kynning til fyrirtækjaskrár Lúxem-
borgar um að þau mæðgin væru far-
in úr stjórn félagsins. Þá kom fram í
Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins
í gær, að Mike Ashley, aðaleigandi
Sports Direct-keðjunnar, hefði
keypt 60% hlut Sigurðar Pálma og
fjölskyldu í verslun Sports Direct á
Íslandi. Haft var eftir Sigurði Pálma
að kaupverðið væri trúnaðarmál.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í
ágúst að Ashley hygðist fara með
deilu við Sigurð Pálma og Ingibjörgu
fyrir dómstóla. Vísað var til fréttar í
Lundúnablaðinu Times. Fjallaði
blaðið um meintar vanefndir Ingi-
bjargar Stefaníu og Sigurðar Pálma.
Hafði Fréttablaðið eftir Sigurði
Pálma að deilan hefði verið leyst.
Takmarkaðar upplýsingar hafa birst
um afkomu Rhapsody Investments í
fyrirtækjaskrá Lúxemborgar. Þar
hafa fyrst og fremst birst tilkynn-
ingar um breytingar á stjórn (sjá
tímaás hér fyrir ofan).
Samhliða stofnun félagsins í Lúx-
emborg var stofnað félag um rekstur
Sports Direct á Íslandi, NDS ehf.
Verslunin var fyrst á Smáratorgi en
var svo flutt í Lindir.
Skömmu fyrir frystingu eigna
Meðal stjórnarmanna í Rhapsody
Investments var Jeffrey Ross Blue.
Fjallað var um aðkomu Ross Blue
að öðru félagi, Bohemian Partners, á
forsíðu Fréttablaðsins 31. júlí 2010.
Þar sagði að Jón Ásgeir Jóhannes-
son, eiginmaður Ingibjargar Stefan-
íu, hefði millifært rúmar 110 millj-
ónir króna degi eftir að eignir hans
voru kyrrsettar í Bretlandi 11. maí
2010. Orðrétt sagði í fréttinni:
„Færð voru rúm 585 þúsund pund
til tveggja breskra fyrirtækja,
Aspiring Capital Partners LLP og
Bohemian Partners LLP. Forsvars-
menn fyrirtækjanna eru nánir sam-
starfsmenn Jóns Ásgeirs, Tina Mar-
ee Kilmister og Jeffrey Ross Blue,
einn af fyrrverandi stjórnendum
Baugs. Fjárhæðirnar hafa nú verið
kyrrsettar,“ sagði m.a. í fréttinni.
Fram kom í Morgunblaðinu í
ágúst að miðað við tífaldan hagnað
Sports Direct á Íslandi árið 2016
eftir skatta mætti ætla að verðmæti
verslunarinnar væri um 690 milljón-
ir. Fréttablaðið nefndi hærri tölur.
Þá urðu þau tíðindi hjá Jóni Ás-
geiri í haust að keðja breskra kjöt-
verslana sem tengdist honum var
tekin til gjaldþrotaskipta. Um það er
fjallað hér til hliðar.
Sports Direct-fléttu lokið
Sigurður Pálmi og fjölskylda selja hlut sinn í verslun Sports Direct í Kópavogi
Breskar kjötbúðir í Lundúnum tengdar Jóni Ásgeiri teknar til gjaldþrotaskipta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skógarlind 2 Verslun Sports Direct í Kópavogi hefur skilað hagnaði.
Sigurður Pálmi
Sigurbjörnsson
Mike
Ashley
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Ingibjörg Stefanía
Pálmadóttir
Rhapsody Investments (Europe) S.A. í Lúxemborg (móðurfélag Sports Direct á Íslandi)
Heimild: Fyrirtækjaskrá
Lúxemborgar
Nafni
félagsins
breytt í
Rhapsody
Invest-
ments
(Europe)
S.A.
28. maí
2009
Félagið
Zel S.A.
stofnað
16. maí
2006
Karim Van Den
Ende kemur í
stjórn félags-
ins. Hann kom
á sínum tíma
að stofnum
félagsins sem
stofnaði Moon
Capital. Það
félag fór með
eignarhlut í
365 miðlum
16. júní
2011
Tina
Kilmister
kemur í
stjórn í
stað Van
Den Ende
3. febrúar
2012
Kilmister fer
úr stjórn en
í stað koma
Jeffrey Ross
Blue, Bob
Mellors,
Dave Forsey
og Ingibjörg
Stefanía
Pálmadóttir
19. júní
2012
Fin- Contrôle
S.A. hættir að
sjá um bókhald
17. maí
2013
Bob
Mellors
hættir í
stjórn
13. ágúst
2014
Jeffrey Ross
Blue hættir
í stjórn en
í stjórnina
koma Sig-
urður Pálmi
Sigurbjörns-
son og Justin
Barnes fyrir
Guru Invest,
skv. tilkynn-
ingarskjali
9. apríl
2015
Dave
Forsey
hættir í
stjórn en
í staðinn
kemur
Rachel
Stockton
12. júlí
2017
Sigurður
Pálmi og
Ingibjörg
Stefanía
hætta í
stjórn og
Adegoke
Adedotun
Ademola
kemur í
staðinn
9. febrúar
2018
Hlutafé auk-
ið í 460.970
evrur með
útgáfu 1.387
nýrra hluta
að verðmæti
310 evrur
hver
13. ágúst
2012
Hluthafar 2012* Hlutir Hlutfall
Jeffrey Ross Blue 208 15,0%
Sportsdirect.com S.A. 347 25,0%
Guru Invest S.A. 374 27,0%
Sigurður Pálmi
Sigurbjörnsson 458 33,0%
Alls 1.387
*Hluthafaskrá virðist ekki hafa verið uppfærð. Samkvæmt
Times seldi Blue hlut sinn til Sports Direct árið 2015.
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til leigu 242 fm. skrifstofuhúsnæði á efstu hæð við Strandgötu í Hafnarfirði. Húsnæðið getur hentað
fyrir ýmsa starfsemi. Frábært útsýni er yfir höfnina. Laust 1. apríl. Ekki vsk. húsnæði.
Húsnæðið skiptist í stóran sal, móttöku, 4 skrifstofur og fundarherbergi. Útgangur er út á svalir úr einni
skrifstofu. Húsnæðið er stúkað niður með léttum veggjum og því er auðvelt að breyta veggjaskipan.
Dúkur er á gólfum og lagnastokkar með veggjum. Lyfta. Sameiginlegur þakgarður er við húsið.
Fjöldi bílastæða er við húsið.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL LEIG
Strandgata 75 – 220 Hfj.
Gerð: Skrifstofuhæð
Stærð: 242 m2
Leiguverð: Tilboð
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur,
löggiltur fasteignasali og
löggiltur leigumiðlari
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Samkvæmt bresku
fyrirtækjaskránni
var félagið Muddy
Boots Real Foods
Limited tekið til
gjaldþrotaskipta
fyrir áramót. Fé-
lagið var stofnað
22. október 2008.
Samkvæmt
bresku fyrirtækjaskránni skuldaði
Muddy Boots kröfuhöfum um 481
þúsund pund. Þar af skuldaði félagið
127,5 þúsund pund til South Molton
Capital. Það félag hét áður Guru
Capital.
Guru Capital var hluthafi í Muddy
Boots Real Foods samkvæmt árs-
skýrslu um félagið 2015.
Þá sagði í ársskýrslu Guru Capital
2015 að félagið var í eigu Guru Invest
og Jóns Ásgeirs. Hann var þá einn
stjórnenda Muddy Boots.
Jón Ásgeir hætti í stjórn 2016 og í
staðinn kom Jón Skaftason.
Tengsl við Panama-félag
Fram kom í fyrirtækjaskrá
Lúxemborgar (27.8. 2012) að Guru
Invest var hluthafi í móðurfélagi
Sports Direct á Íslandi. Heimilisfang
Guru Invest var hjá höfuðstöðvum
Mossack Fonseca í Panama.
Hjónin Roland og Miranda Ballard
stofnuðu Muddy Boots. Félagið seldi
kjöt en fram kom á vef þess á sínum
tíma að það seldi m.a. til 140 stór-
markaða Waitrose í Bretlandi og vef-
verslunar Ocado.
Lundúnablaðið The Daily Tele-
graph ræddi við Miröndu haustið
2013. Sagði hún hjónin hafa afþakkað
samstarf við Tesco-keðjuna, þá
stærstu á breskum matvörumarkaði.
The London Evening Standard
sagði frá því í nóvember að Ballard-
hjónin hefðu sett ævisparnaðinn í
Muddy Boots. Verslanirnar hefðu
verið orðnar fimm og áform um að
opna fleiri. Tugir myndu missa vinn-
una við gjaldþrotið.
Keðja með
vandaðar
kjötvörur
Sögu Muddy
Boots Foods lokið
Keðjan seldi
m.a. borgara.
Fulltrúar sveitarfélagsins Árborgar
munu óska eftir frekari upplýsingum
frá yfirvöldum samgöngumála um
hugmyndir um vegtolla á nýja brú
yfir Ölfusá, segir
Ásta Stefánsdótt-
ir, framkvæmda-
stjóri sveitarfé-
lagsins. Eins og
fram kom í Morg-
unblaðinu á dög-
unum telur Sig-
urður Ingi Jó-
hannsson sam-
gönguráðherra til
greina koma að
innheimta tolla á
ákveðnum nýjum vegum sem byggð-
ir verði á næstu árum. Kanna verði
kosti einkaframkvæmda og -fjár-
mögnunar og ef skynsamlegar út-
færslur finnist sé ekkert útilokað.
Fyrir öllu sé þó að gæta alls jafn-
ræðis – og uppbygging í vegamálum
þurfi að vera hraðari en verið hefur.
Í þessu tilliti telur samgönguráð-
herra til greina koma að bygging
nýrrar Ölfusábrúar, sem er á sam-
gönguáætlun og til stendur að reisa
á næstu árum, verði fjármögnuð með
veggjöldum. Hafi vegfarendur þá
áfram þann valkost að fara um nú-
verandi brú yfir Ölfusá í miðbænum
á Selfossi eða þá nýju brúna sem
verður nokkuð fyrir ofan bæinn og
mun liggja yfir svonefnda Efri-
Laugardælaeyju.
„Áform eða hugmyndir um gjald-
heimtu hafa ekki verið kynnt fyrir
bæjaryfirvöldum, fyrir utan það sem
lesa hefur mátt í fjölmiðlum að
undanförnu. Samráð um allt svona
við heimamenn á hverjum stað er þó
nauðsynlegt,“ segir Ásta Stefáns-
dóttir. Hún bendir á að bæjarráð Ár-
borgar hafi lagst gegn hugmyndum
um vegtolla á Suðurlandsvegi, sem
komu til umræðu á síðasta ári vegna
hugmynda sem Jón Gunnarsson,
ráðherra samgöngumála í fyrri ríkis-
stjórn, setti fram og var með í
vinnslu.
„Í ályktun okkar í fyrra bentum
við á að skattlagning á einstaka leið-
um og vegum gengi gegn jafnræði.
Ríkissjóður hefur nú þegar umtals-
verðar tekjur af bílum og umferð um
vegi landsins. Þessi sjónarmið gilda
enn og ég tel að nú þurfi að skoða
fjármögnun vegakerfisins heildsætt,
en ekki taka einstakar leiðir út fyrir
sviga með hugsanlega tilheyrandi út-
gjaldaauka fyrir þá sem búa við þá
vegi,“ segir bæjarstjórinn í Árborg.
Efast um tolla
á Ölfusárbrú
Gegn jafnræði Vilja upplýsingar
Ásta
Stefánsdóttir