Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 12
móttökunni á Hótel KEA og notað
hverja stund til smíða í vaktafríum.
Ég hef oft verið beðinn um að selja
stytturnar, en svarið er alltaf nei.
Smíðarnar veita mér svo mikla
ánægju að ég hef einfaldlega ekki
tímt að láta þær frá mér, enda lít ég
svo á að þótt heitið geti að ég hafi lok-
ið við gerð þeirra séu þær ekki endi-
lega fullmótaðar. Alltaf megi skipta
inn sextugur segist hann njóta þess
að leika sér og búa til sögur um „fólk-
ið“ sem hann skapar. „Ég grínast
stundum með að ég sé ennþá í dúkku-
leik. Munurinn er bara sá að ég smíða
dúkkurnar mínar sjálfur og þær eru
býsna fyrirferðarmiklar, enda í
mannsstærð. Annað slagið gef ég
þeim smá andlitslyftingu, tek þær inn
og klæði í önnur föt, sem þýðir að ég
mála á þær nýja kjóla eða aðrar flík-
ur og hengi meira eða öðruvísi skraut
á þær.“
Hugmyndaflugið á sér lítil tak-
mörk. Skrautið á styttunum saman-
stendur af ótrúlegustu hlutum, sem
hann sankar að sér héð-
an og þaðan. „Ég
klippi, beygla, brýt eða
flet út efni eins og göm-
ul belti, jólaskraut úr
blikki, litrík barna-
leikföng, kaðla, krana
og rafmagnsvíra svo
fátt eitt sé talið, mála
síðan eða úða með alls konar litum og
nota til að punta stytturnar. Raf-
magnsvírar geta verið skóreimar og
bútur úr eldhúskrana silfurhólkur á
skotthúfu, eins og til dæmis hennar
Sigríðar,“ nefnir Hreinn sem dæmi.
Garðpallur kveikti
hugmyndina
Hann velur efniviðinn með tilliti
til þess að hann sé veðurþolinn. Einn-
ig – og ekki síst í meginstoðirnar,
„beinagrindurnar“, sem hann smíðar
svo haganlega úr fúavörðu timbri
eins og notað er í garðpalla og annað
sem þarf að þola veðrun. Raunar
voru garðpallar, sem Hreinn smíðaði
fyrir átta árum, kveikjan að tréfólk-
inu.
„Eftir tuttugu ára búsetu í
Reykjavík lét ég drauminn rætast og
keypti mér gamalt hús á Akureyri.
Fyrstu árin var ég ýmislegt að dytta
að því og seinna smíðaði ég gróður-
hús og palla í kringum það. Mig lang-
aði að gera eitthvað úr afgangsefninu
og þá fæddist þessi hugmynd og ég
fékk um leið útrás fyrir sköp-
unargleðina. Síðan ég kom hingað
norður hef ég unnið í gesta-
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Frostið bítur ekki á þau néheldur snjókoma og hríð-arkóf. Sigríður situr semfastast á sínum hesti með
Indriða sér við hlið og Guðrún frá
Lundi og Sigurður sýslumaður sem
og fleiri tréstyttur standa keikar í
klakaböndum á sínum stað í bakgarð-
inum hjá Hreini Halldórssyni, al-
þýðulistamanni á Akureyri. Þórunn
hyrna og maður hennar, Helgi magri,
eru hins vegar meðal þeirra sem ætíð
hafa vetursetu í kjallaranum. „Þau
eru svo viðkvæm og
með mikið skraut sem
þolir illa veður og
vinda,“ útskýrir
Hreinn.
Áður en lengra er
haldið er vert að taka
fram að þau Sigríður
og Indriði eru sögu-
persónur í Pilti og stúlku frá árinu
1850 eftir Jón Thoroddsen, Guðrún
frá Lundi er höfundur Dalalífs og
fleiri vinsælla sveitarómana, og
skrautbúnu hjónin námu hér land í
fyrndinni. Sigurður á sér fortíð en
ekki fyrirmynd því hann var fyrsta
tréstyttan sem Hreinn smíðaði.
„Sigurður er orðinn átta ára og
búinn að standa úti meira og minna
frá fæðingu. Hann hefur tekið nokkr-
um stakkaskiptum í áranna rás því
upphaflega var hann garðyrkjumað-
ur í grænum fötum eða þar til hann
kynntist og hreifst af Guðrúnu frá
Lundi. Þar sem hún leit ekki við hon-
um brá hann sér niður í kjallara hjá
mér og kom út aftur í svörtum sýslu-
mannsfötum með kaskeiti,“ segir
Hreinn brosandi. Hann kallar parið
sýslumannshjónin, þótt Guðrún hafi
hvorki verið sýslumannsfrú né við
nokkurn Sigurð kennd svo vitað sé.
Listamenn þurfa stundum að taka
sér skáldaleyfi, líka þeir sem kalla sig
alþýðulistamenn.
Ennþá í dúkkuleik
Hreinn virðist ekki taka sjálfan
sig mjög hátíðlega. Þótt hann sé orð-
um lit eða breyta þeim og betr-
umbæta á einhvern hátt.“
Hreinn tekur sem dæmi að í
fyrstu stytturnar hafi hann notað
járnbolta fyrir augu, en þeir hafi átt
það til að ryðga og því hafi hann
brugðið sér í hlutverk augnlæknis og
skipt þeim út fyrir plast. Hann getur
ómögulega gert upp á milli hvort sé
skemmtilegra að smíða, mála eða
Ævintýraveröld í bakgarðinum
Sumar tréstyttur Hreins Halldórssonar eru inn-
blásnar af íslenskum bókmenntum. Aðrar af ævintýr-
um bernskunnar og hefur frekar fjölgað í þeim hópi
síðustu misserin. Rauðhetta og úlfurinn, Mjallhvít,
Dimmalimm og fleiri ævintýrapersónur, sem hafa
verið á stjái í bakgarðinum heima hjá honum á
Akureyri á sumrin, færðu sig um set rétt eftir áramót-
in og eru nú á Amtsbókasafninu um stundarsakir þar
sem þær hvetja börn til að lesa meira.
Sigurður er
átta ára og bú-
inn að standa úti
meira og minna
frá fæðingu.
Sumar og vetur Dimmalimm, svan-
urinn, kóngssonur og Gosi hall-
arvörður undu sér vel í garðinum
hjá Hreini í sumar. Sýslumanns-
hjónin og Sigríður og Indriði láta
ótíðina í vetur ekki á sig fá og meira
að segja Helgi magri, landnáms-
maður Eyjafjarðar, brá sér upp úr
kjallaranum til að láta smella af sér
mynd með Hreini sem grófvinnur
stytturnar í gróðurhúsinu á veturna.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Margar stærðir, gerðir og litir. Pokar og ilmspjöld á lager.
Þrifalegu ruslaföturnar
Bo Touch Bin
Verum til fyrirmyndar og flokkum ruslið með Bo
ormsson.is · umboðsmenn um allt land lágmúla 8 · sími 530 2800
Gerið góð kaup!