Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 13
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
skreyta. „Ég er alltaf glaður og
ánægður við sköpunina. Útkoman
verður oft öðruvísi en ég sá upp-
haflega fyrir mér. Verkið þróast í
ferlinu og stundum kem ég sjálfum
mér á óvart með útfærslum sem mér
hafði ekki einu sinni dottið í hug.“
Ævintýrapersónur
bernskunnar
Yfirleitt segist Hreinn vera með
eina í takinu í einu. Undanfarið hafi
hann þó haft þær tvær eða þrjár, og
unnið að þeim jöfnum höndum, enda
var hann að keppast við að gera sex-
tán sögupersónur klárar fyrir heil-
mikið ævintýri, sem hófst 9. janúar á
Amtsbókasafninu og stendur til laug-
ardagsins 24. febrúar. Þar eru í aðal-
hlutverkum sextán ævintýraverur úr
smiðju Hreins.
„Síðustu misseri hefur hugur
minn og listsköpun snúið að sígildum
ævintýrum, sem eru mér minnisstæð
frá bernskuárunum,“ segir Hreinn
og heldur áfram: „Á sýningunni eru
styttur af Rauðhettu og úlfinum,
Mjallhvíti og dvergunum sjö, Dim-
malimm kóngsdóttur úr samnefndri
sögu eftir Guðmund Thorsteinsson,
og einnig svaninum og Pétri kóngs-
syni úr því ævintýri. Í hópnum er líka
lítill smaladrengur, sem ég kalla
Tuma, en hann fæddist út frá ljóðinu
Hann Tumi fer á fætur, og honum
fylgir vitaskuld Snati hans hirðfíflið
og hrúturinn ráðgjafinn.“
Sýningin, sem er samstarfsverk-
efni Hreins og Amtsmanns-
bókasafnsins, er ekki aðeins augna-
yndi heldur gegnir því hlutverki að
hvetja börn til að lesa meira. „Einu
sinni í viku eru lesnar fyrir þau sögur
og ævintýri og að því búnu er farið
með þau til að heilsa upp á
sögupersónurnar – sem eru
stytturnar mínar. Sumar þeirra voru
úti í garðinum hjá mér í sumar en þá
furðaði ég mig svolítið á að mörg
barnanna sem komu í heimsókn
könnuðust ekkert við ævintýrið um
Dimmalimm kóngsdóttur og fleiri.
Og þannig fæddist hugmyndin að
samstarfinu við bókasafnið.“
Vonda drottningin
Að þessu sögðu er ljóst að garð-
urinn hjá Hreini hefur töluvert að-
dráttarafl fyrir yngstu kynslóðina.
Raunar líka fullorðna og ekki síst
ferðamenn, bætir hann við. Hann
kveðst ætíð taka því vel þegar fólk
bankar upp á og vill skoða sig um í
garðinum, enda hafi hann gaman af
að ganga þar um með smáum sem
stórum og segja frá ævintýrum þar
sem allt getur gerst.
Hreinn upplýsir að næsta ævin-
týrapersóna sem líti dagsins ljós
verði vonda drottningin úr sögunni
um Mjallhvíti og dvergana sjö. „Síð-
an veiðimaðurinn og kóngssonurinn
og þá verður þessu draumaverkefni
mínu til margra ára lokið,“ segir
hann. Og annað tekur við. Þau eru
mörg ævintýrin.
„Ramagnsvírar geta verið skó-
reimar og bútur úr eldhúskrana
silfurhólkur á skotthúfu, eins og
til dæmis hennar Sigríðar.“
Í Amtsbókasafninu Hreinn ásamt Mjallhvíti og tveimur dverganna á sýningunni í Amts-
bókasafninu þar sem ævintýrapersónurnar aðstoða við að efla áhuga barna á lestri.
Rauðhetta
og úlfurinn
Rauðhetta á
leið til
ömmu
sinnar.
Dimmalimm Það var Dimmalimm
að þakka að Pétur kóngssonur losn-
aði úr álögum galdranornar sem
hafði breytt honum í svan.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
87
51
6
02
/1
8
Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn fimmtudaginn 8. mars 2018
á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl 16:00.
DAGSKRÁ FUNDARINS
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
eða tap félagsins á reikningsárinu
3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu
5. Kosning stjórnar félagsins
6. Kosning endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum
8. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf
9. Önnur mál löglega fram borin
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi
ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með það löngum
fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins sem lögð verður fram tveimur
vikum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 16:00
fimmtudaginn 22. febrúar 2018. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins,
www.icelandairgroup.is/agm
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins
njóta ekki atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð
eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn
þessara kosta er bent á að kynna sér hvernig þeir skuli bera sig að á heimasíðu
félagsins. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig
þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins, tillögur
að breytingum á samþykktum og allar aðrar tillögur, eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu
félagsins frá og með 15. febrúar 2018 kl. 16:00.
Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu félagsins tveimur vikum fyrir fundinn,
þann 22. febrúar 2018 kl. 16:00.
Hluthöfum er bent á að skv. 1. og 2. mgr. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna
skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Skal fram-
boðstilkynningum skilað til stjórnar í síðasta lagi laugardaginn 3. mars 2018 kl. 16:00.
Tilkynnt verður um framkomin framboð eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins,
www.icelandairgroup.is/agm
Skráning á fundinn hefst kl. 15:30 á fundardegi.
Reykjavík, 15. febrúar 2018,
stjórn Icelandair Group hf.
AÐALFUNDUR
ICELANDAIR GROUP HF.