Morgunblaðið - 15.02.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á næstu 16 mánuðum er fyrirhugað
að nýtt og fullkomið uppsjávarfrysti-
hús rísi á Shikotan, sem er ein Kúril-
eyja austast í Rússlandi. Nýlega var
gengið frá samningi tæknifyrirtækj-
anna Skagans 3X, Kælismiðjunnar
Frost og Rafeyrar á Akureyri um
byggingu þessarar verksmiðju fyrir
dótturfélag rússneska útgerðar-
félagsins Gidrostroy. Móðurfélagið
er stórt með
fjölda veiðiskipa,
verksmiðjuskip
og fiskvinnslu í
landi. Höfuð-
stöðvarnar eru á
Sakhalin-eyju í
Okhotsk-hafi, en
fyrirtækið er
einnig með starf-
semi á nokkrum
stöðum á Kúril-
eyjum.
Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans 3X, segir að þetta
verði vandasamt verkefni, en um leið
séu þessir landvinningar við Kyrra-
haf mikil áskorun fyrir starfsmenn
fyrirtækjanna. Ef vel tekst til geti
falist í því margvísleg tækifæri í
Rússlandi, en breytingar eru að
verða í rússneskum sjávarútvegi og
áhersla á endurnýjun og uppbygg-
ingu. Hérlendis munu starfsmenn
fyrirtækjanna og undirverktaka
koma að verkefninu, meðal annars á
Akranesi, Ísafirði, Akureyri, Hafnar-
firði og Garðabæ.
Flokka, pakka og frysta
900 tonn á sólarhring
Fyrirtækið á Shikotan stundar
meðal annars veiðar á alaskaufsa og
sardinellu (síldartegund) í Kyrrahafi,
en stofn hennar er stór og vaxandi.
Fyrirhugað er að setja verksmiðjuna
upp í tveimur áföngum næsta haust
og síðan vorið 2019. Stefnt að því að
geta byrjað að vinna ufsa í hluta
verksmiðjunnar í haust, en fullum af-
köstum verði náð í verksmiðjunni
fyrri hluta næsta árs.
Ekki hefur verið greint frá samn-
ingsupphæð, en miðað við sambæri-
leg verkefni fyrirtækjanna má ætla
að það hlaupi á nokkrum milljörðum
króna. Skaginn 3X, Frost og Rafeyri
standa saman að samningnum, en
Skaginn er leiðandi aðili.
Fyrir nokkru er byrjað að hanna
verksmiðjuna og er byggt á sömu
lausnum og meðal annars í verk-
smiðjunum sem fyrirtækin reistu á
Eskifirði og eru að koma upp á
Þvereyri á Suðurey í Færeyjum, en
það verður eitt stærsta uppsjávar-
frystihús í heimi. Áætlað er að verk-
smiðjan í Shikotan verði búin tækni
til að flokka, pakka og frysta 900
tonn af uppsjávarfiski á sólarhring
og verður hún því heldur stærri en
verksmiðja Eskju.
Landvinningar við Kyrrahaf
Þrjú íslensk tæknifyrirtæki byggja uppsjávarverksmiðju á Kúrileyjum Yfir 50 starfsmenn á
Shikotan í sumar Tækifæri í Rússlandi Lyftistöng fyrir mannlífið á eyjunni, segir eigandi Gidrostroy
Shikotan
Reykjavík
Moskva
R Ú S S L A N D
K Í N A
INDLAND
Indlandshaf
Barentshaf Austur-Síberíuhaf
Okotskhaf
Ky rrahaf
At lantshaf
Rotterdam
Gíbraltar-
sund
Súes-
skurðurinn
Vladivostok
S-Kórea
Japan
Kúrileyjar
Kamtsjatka-
skagi
Leiðin til Shikotan
Ingólfur
Árnason
Lyftistöng Verksmiðjan á að vera fullbúin eftir um 16 mánuði á Shikotan þar sem lífið snýst um veiðar og vinnslu.
Á síðustu misserum hafa íslenskar
viðskiptasendinefndir farið nokkr-
um sinnum til Rússlands, m.a. í sam-
vinnu utanríkisráðuneytisins og Ís-
landsstofu. Sömuleiðis hafa fyrir-
tæki kynnt starf-
semi sína og sótt
sýningar í þessu
víðfeðma landi.
Berglind Ás-
geirsdóttir,
sendiherra í
Rússlandi, segist
finna fyrir vax-
andi áhuga á ís-
lenskum sjávar-
útvegi og þeim
árangri sem þar
hafi náðst. Hægt og bítandi hafi
þekking á íslenskum fyrirtækjum,
hönnun og hugviti farið vaxandi.
Hún segist ekki vita annað en að
samningur fyrirtækjanna þriggja
um uppbyggingu á Shikotan sé
stærsti einstaki samningur sem ís-
lensk fyrirtæki hafi gert í áratugi í
Rússlandi. „Útflutningur á sjávaraf-
urðum frá Íslandi til Rússlands
hrundi um 95% á milli áranna 2014
og 2016, eftir að rússneska við-
skiptabannið var sett á sumarið
2015. Ég veit ekki um neina þjóð
sem missti svo mikið vegna við-
skiptabannsins. Því er dýrmætt að
það skuli þó gefast möguleikar á
öðrum tækifærum,“ segir Berglind.
Aðspurð hvort þessi samningur
gæti verið upphafið að lausn hvað
varðar viðskiptabannið segist hún
ekki telja að svo sé, þetta tvennt sé
algerlega aðskilið.
Berglind segir að í gangi sé metn-
aðarfull áætlun rússneskra stjórn-
valda um endurnýjun fiskiskipaflot-
ans og uppbyggingu landvinnslu.
Þetta hafi m.a.verið gert á þann hátt
að heimildir hafi verið innkallaðar
nú í lok 10 ára úthlutunar. Í staðinn
taki við 15 ára úthlutun með sér-
stökum hvata um að þeir sem ráðist í
uppbyggingu fái aukinn kvóta.
Landsliðið í fótbolta
Sjávarútvegur var þó ekki efstur á
verkefnalista sendiherrans í gær
heldur knattspyrna. Á vinnufundi
sendiherra um 30 þjóða var farið yfir
ýmislegt varðandi HM í Rússlandi í
sumar. Íslenski sendiherrann fór
síðan í viðtal beint á eftir rússneska
íþróttaráðherranum þar sem fjöl-
margir fjölmiðlar voru. Berglind
segir að áhugi á Íslandi sé greinilega
mikill. aij@mbl.is
Aukin þekking
og vaxandi áhugi
Stærsti einstaki samningurinn í áratugi
Berglind
Ásgeirsdóttir
Alls eru Kúrileyjar 56 og liggja á
1.200 kílómetra belti milli Ok-
hotsk-hafs í vestri og norðvest-
anverðs Kyrrahafs í austri. Eyja-
boginn liggur á eldfjallahrygg frá
suðurodda Kamchatka-skaga í
Rússlandi að norðurodda Hokka-
ídó-eyju í Japan í suðri.
Samtals búa liðlega 20 þús-
und manns á eyjunum, sem hafa
verið undir rússneskum yfir-
ráðum frá lokum síðari heims-
styrjaldar, en Rússar og Japanir
hafa lengi deilt um eyjarnar. Tvö
bæjarfélög eru á Shikotan, sem
er syðst á eyjaboganum, og búa
þar alls um þrjú þúsund manns.
Störf við fiskveiðar og -vinnslu
og önnur störf tengd sjávar-
útvegi eru ráðandi í atvinnulífi á
eyjunum.
Lífið tengt
fiskveiðum
MILLI KAMCHATKA
OG HOKKAÍDÓ
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC