Morgunblaðið - 15.02.2018, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
ÁSKRIFTARHAPPDRÆTTI MORGUNBLAÐSINS
Detroit Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinningshafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.
S
ú var tíðin að Detroit var
einfaldlega þekkt sem Mót-
orborgin (e. The Motor
City), enda er hún frá fornu
fari heimkynni stóru bílaframleið-
andanna þriggja í Bandaríkjunum,
General Motors, Ford og Chrysler.
Blómaskeið bandarískra bíla var um
leið blómaskeið Detroit, og þegar
hallaði undan fæti hjá „The Big
Three“ gaf að sama skapi á bátinn
hjá borginni og það rækilega. En
þegar einar dyr lokast opnast jafnan
einhverjar aðrar og Detroit er um
þessar mundir að endurnýja sig sem
ein mest spennandi borg Bandaríkj-
anna. Rétt eins og skapandi einstak-
lingar flykkjast oft í hverfi þar sem
ódýrt húsnæði er að finna, færa
þangað líf og lit uns hverfið er með
þeim eftirsóttustu (hugsið ykkur
Williamsburg í Brooklyn og Grand-
ann í Reykjavík) þá hefur ungt og
drífandi fólk hópast til Detroit og
fyrir bragðið er borgin nú kraum-
andi pottur lista, menningar, mat-
argerðar og almennrar lífsgleði. Það
er bókstaflega allt að frétta af
Detroit og magnað að upplifa stór-
borg í miðri endurnýjun – eða hrein-
lega endurfæðingu. Fyrir bragðið er
hún núna jafnan kölluð og það rétti-
lega, „The Comeback City.“
Hönnunarborg UNESCO
Detroit er nefnilega borg sem er
vön að koma til baka eftir hallæri,
svo það var bara tímaspursmál hve-
nær hún næði vopnum sínum á ný.
Má í því sambandi nefna að mottó
borgarinnar á latínu er „Speramus
meliora, resurget cineribus“ sem út-
leggst á íslensku sem „Vonumst eftir
betri tíð, hún mun rísa úr öskunni.“
Einkunnarorð þessi komu til í kjöl-
far þess að borgin brann nánast öll í
miklum eldsvoða árið 1805. Rétt eins
og fuglinn Fönix er Detroit á uppleið
á ný, og ungt fólk, listamenn og
frumkvöðlar hópast þangað. Tómum
lóðum hefur verið umbreytt í mat-
jurtagarða inni í borginni, atvinnu-
húsnæði sem stóð yfirgefið um-
breytt í veitingastaði og gallerí.
Gróskan á sér engin mörk um þessar
mundir í gömlu bílaborginni. Mikið
til beinist hún að því að varðveita
byggingar þær sem spruttu upp af
fádæma krafti um miðja síðustu öld
og þessa viðleitni hefur UNESCO
verðlaunað með því að útnefna
Detroit „Hönnunarborg“ árið 2015,
fyrst allra bandarískra borga. Fyrir
áhugafólk um arkitektúr og húsa-
gerðarlist er ómissandi að heim-
sækja Detroit því í borginni er sam-
ankomið eitt stærsta safn af
friðuðum húsum frá 19. öld og fyrri
hluta þeirrar 20. Í því sambandi er
nauðsynlegt að benda á Lafayette
Park, en það er hverfi sem sjálfur
Ludwig Mies van der Rohe skipu-
lagði og þar eru margar módernísk-
ar perlur eftir hann.
Dansinn dunar í Detroit
Áhugafólk um tónlist ýmiss konar
fer gjarnan í hálfgerða pílagrímsför
til Detroit því þar er gríðarmikil
saga og hefð fyrir tónlist. Hér var
hin goðsagnakennda plötuútgáfa
Motown til húsa og Motown-sándið
byggðist ekki á neinu smákanónum:
meðal listamanna sem útgáfan var
með á sinni könnu voru Michael
Jackson og the Jackson 5, Stevie
Wonder, Marvin Gaye, The Tempta-
tions, The Four Tops, Smokey Rob-
inson og The Miracles, Diana Ross
og The Supremes, og Gladys Knight
& the Pips. Þegar leið á níunda ára-
tuginn sprakk teknó-senan aftur á
móti út með látum og það stóðu ekki
minni goðsagnir að þeirri tónlist:
fremstir í flokki voru þremenningar
sem kölluðust „The Belleville
Three“, en það voru þeir Derrick
May, Kevin Saunderson og Juan
Atkins. Enn þann dag í dag er
Detroit álitin höfuðborg teknó-tón-
listar og síðan árið 2000 er raftónlist-
arhátíðin „Movement Electronic
Music Festival“ haldin í borginni við
gríðarlegar vinsældir. Í ár verður
hátíðin haldin dagana 26.-28. maí og
meðal þeirra sem koma fram í ár eru
Claude VonStroke, John Digweed,
Modeselektor, Kevin sjálfur Saund-
erson og svo Wu-Tang Clan.
Allt fyrir íþróttaáhugafólkið
Þekktasta liðið frá Detroit er vafa-
laust NBA-körfuboltaliðið Detroit
Pistons, sem varð NBA-meistari ár-
in 1989 og 1990. Liðið var skipað
harðskeyttum leikmönnum á borð
við bakverðina Joe Dumars og Isiah
Thomas, í bland við hreinræktaða
fanta svo sem framherjana Dennis
Rodman og John Salley, að
ógleymdum miðherjanum Bill Laim-
beer, sem að líkindum er einn verst
þokkaði leikmaður deildarinnar fyrr
og síðar of ekki að ósekju; það er
ekki út í bláinn að liðið fékk í þá daga
á sig viðurnefnið „The Bad Boys“. Í
dag er talsvert annar bragur á Pi-
stons-liðinu og nýjasta viðbótin er
stjörnuleikmaðurinn Blake Griffin.
Það er því ekki úr vegi að bregða sér
á leik í Little Caesars Arena og sjá
„stimplana“ eins og liðið heitir í leik.
Af öðrum liðum er vert að nefna
ruðningsliðið Detroit Lions, hafna-
boltaliðið Detroit Tigers og loks ís-
hokkíliðið Detroit Red Wings.
Lifandi borg á uppleið
Ef taka ætti eitt fyrirtæki sem
ímynd upprisu þeirrar sem Detroit
hefur gengið í gegnum hin seinni ár-
in mætti gjarna nefna í því sambandi
fyrirtæki sem kallast Shinola [sjæ-
nóla]. Það er ungt að árum, stofnað
árið 2011, og upphaflega sem fram-
leiðandi armbandsúra. Mörgum
þótti það glapræði á sínum tíma –
hver vill eiginlega úr frá Detroit? –
en með fallegri hönnun og almenni-
legum gæðum þar sem handverkið
er í hávegum haft hefur fyrirtækið
blómstrað og framleiðir í dag breiða
línu armbandsúra ásamt reiðhjólum
og margs konar leðurvöru, og hefur
náð því takmarki sínu að sýna svo
ekki verður um villst að það er vel
hægt að framleiða hluti ennþá í
Bandaríkjunum. Shinola rekur í dag
verslanir víða um Bandaríkin en
flaggskipsbúðin við 441 W Canfield
er einkar glæsileg og gaman að
koma þar við, þó ekki nema til að
skoða sig um og dást að því sem fyrir
augu ber.
Matgæðingar eru óvíða í betri
málum en í Detroit um þessar mund-
ir, þökk sé sprengingu í veitinga-
stöðum, kaffihúsum og allra handa
matsölustöðum. Vert er að benda
sælkerum á Dime Store í Chrysler
House-byggingunni, þar sem hægt
er að fá besta brönsinn í borginni all-
an daginn; Standby er sá staður sem
hristir bestu kokteilana og þar á
meðal er hinn vinsæli og eiturgræni
Snake in the Grass. Ostborgararnir
eru að sama skapi ljúffengir. Fyrir
huggulega stund á veitingastað í
miðborginni má mæla með hinum
vinsæla Wright & Co, sem er mitt á
milli þess að vera afslappaður og
sparilegur. Mikilvægt er að muna að
glápa ekki um of ef þú sérð frægt
fólk en það það er upp til hópa fasta-
gestir á þessum stað.
Þú hefur því val þegar kemur að
Detroit – að láta þér nægja að lesa
um borgina sem blómstrar um þess-
ar mundir eða upplifa sprenginguna
af eigin raun.
Upprisa Mótorborgarinnar
Áningarstaður Sælkerar ættu að leggja leið sína í Dime Store í Chrysler
House því þar má fá ljúffengan bröns frá morgni til kvölds.
Módernismi Detroit hefur að geyma ótal merkilegar byggingar og meira
að segja heilt hverfi – Lafayette Park – er eftir Mies van der Rohe.
AFP
Flugkappinn Hinn öflugi Blake Griffin er genginn til liðs við körfuboltaliðið
Detroit Pistons en að troða boltanum í körfuna eru hans ær og kýr.
Hönnunarverslun Flaggskipsbúð Shinola er í Detroit og þar fást armbands-
úr, reiðhjól, plötuspilarar og fleira, allt hannað og handunnið í borginni.
Detroit Bæjarstæði bílaborgarinnar miklu er ekki amalegt þar sem
hún stendur á landamærum Bandaríkjanna og Kanada við bakka
Detroit-árinnar sem rennur milli St. Clair-vatns og Erie-vatns.