Morgunblaðið - 15.02.2018, Qupperneq 18
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hinrik prins, eiginmaður Margrétar
Þórhildar Danadrottningar, lést í
fyrrakvöld, 83 ára að aldri. Hann var
umdeildur og átti á köflum í storma-
sömu sambandi við dönsku þjóðina.
Hann var „uppreisnarmaðurinn í
höllinni“ eins og segir í eftirmælum
danska ríkisútvarpsins um prinsinn.
En hver var hann, maðurinn sem
giftist drottningu elsta konungs-
veldis Evrópu? Hinrik var af greifa-
ættum, fæddur í Gironde í Frakk-
landi 11. júní 1934 og var skírður
Henri Marie Jean André de Laborde
de Monpezat. Faðir hans stjórnaði
fjölskyldufyrirtæki í Hanoi í Víetnam
og þar ólst Hinrik upp fyrstu ár æv-
innar. Hann stundaði háskólanám í
lögum, stjórnmálafræði og tungu-
málum í háskólum í Frakklandi,
Hong Kong og Víetnam, hann hóf að
því loknu störf í franska sendiráðinu í
London og þar lágu leiðir þeirra
Margrétar saman í kvöldverðarboði
árið 1965, en hún var þá við hag-
fræðinám í borginni.
Parísar-sjarminn
Í ævisögu sinni Skæbnen for-
pligter sagðist Hinriki svo frá að
hann hefði á þessum tíma haft orð á
sér fyrir að njóta talsverðrar kven-
hylli. Þegar honum virtist borð-
daman vera ónæm fyrir töfrum hans
skrúfaði hann frá „Parísar-
sjarmanum“ eins og hann sagði sjálf-
ur. „Hún var fáguð, með leiftrandi
kímnigáfu og sterkar skoðanir. Hún
heillaði mig á augabragði,“ rifjaði
prinsinn upp.
Þau hittust síðan ekki aftur fyrr en
ári síðar og þá bauð Frakkinn
dönsku prinsessunni í kvöldverð þar
sem boðið var upp á franskar krásir á
borð við froskalæri og snigla. „Það
kvöld áttaði ég mig á því að ég var yf-
ir mig ástfangin af honum,“ sagði
drottningin síðar meir.
Foreldrar hennar, Friðrik 9. og
Ingiríður drottning, lögðu blessun
sína yfir hjónabandið, en faðir Hin-
riks var ekki jafn ánægður með ráða-
haginn. Hann sagði við son sinn að
með því að giftast verðandi drottn-
ingu væri hann að gefa eigin frama
upp á bátinn. Hann yrði að hafa á
hreinu, áður en gengið yrði í hnapp-
helduna, hver staða hans innan kon-
ungsfjölskyldunnar yrði.
Vildi fá konungstitil
Parið gekk í hjónaband árið 1967.
Þeim fæddist eldri sonurinn Friðrik
árið 1968 og Jóakim ári síðar. Friðrik
9. lést árið 1972, þá varð Margrét
drottning og Hinrik fékk titilinn
prins.
Fljótlega benti ýmislegt til að
þessi fyrsti drottningarmaður í sögu
Danmerkur væri óánægður með
stöðu sína. Hann gagnrýndi margoft
að hann fengi ekki konungstitil og
benti á að eiginkona konungs fengi
drottningartitil. „Hvers vegna ætti
það sama ekki að gilda um karla og
konur? Þetta er jafnréttismál,“ sagði
prinsinn. Hann ákvað síðar að taka
sér titilinn „prinsgemal“ (prins, sem
er maki) sem enginn annar hefur
borið. Framan af fékk Hinrik ekki
sjálfstæða fjárúthlutun frá danska
ríkinu, heldur var hann á framfæri
eiginkonu sinnar, þrátt fyrir að hann
gegndi ýmsum störfum í þágu
danska ríkisins. Þessu var ekki
breytt fyrr en á 9. áratugnum, eftir
að hann hafði ítrekað gert athuga-
semdir við þetta fyrirkomulag.
Olli fjaðrafoki
Störf hans voru af ýmsum toga,
hann sat m.a. í stjórnum fjölda félaga
og samtaka, kom fram fyrir hönd
Danmerkur við ýmis tækifæri og
sinnti góðgerðarmálum. Þá voru
málefni Grænlands honum einkar
hugleikin. Hinrik prins var list-
hneigður, hann fékkst m.a. við list-
málun og höggmyndagerð, gaf út
nokkrar matreiðslu-, mynda- og
ljóðabækur og kom fram í mat-
reiðsluþáttum. Hann fór á eftirlaun
að eigin ósk í byrjun árs 2016 og
hætti þá að mestu þátttöku í opinber-
um störfum.
Í fyrrahaust varð talsvert fjaðra-
fok þegar hann lýsti yfir að hann vildi
ekki láta grafa sig við hlið konu sinn-
ar í dómkirkjunni í Hróarskeldu eins
og venjan er með konungshjón Dan-
merkur. Mánuði síðar sendi danska
hirðin frá sér tilkynningu um að Hin-
rik hefði verið greindur með elliglöp
og voru fjölmiðlar beðnir að taka til-
lit til þess. Síðan þá hefur heilsu hans
farið hrakandi og í janúar greindist
hann með æxli í lunga. Í fyrradag var
hann fluttur frá ríkissjúkrahúsinu í
Kaupmannahöfn til Fredensborgar-
hallar þar sem hann lést. Í dag verð-
ur líki Hinriks ekið frá Fredensborg-
arhöll til Amalíuborgar, aðseturs
konungsfjölskyldunnar í Kaup-
mannahöfn. Kista hans mun standa í
kirkjunni við Kristjánsborgarhöll
laugardag, sunnudag og mánudag
þar sem almenningi gefst tækifæri til
að kveðja hann hinstu kveðju.
Að ósk prinsins verður hann ekki
jarðsettur með konunglegri viðhöfn,
heldur verður útför hans frá Krist-
jánsborgarhallarkirkjunni þriðju-
daginn 20. febrúar að viðstöddum
fjölskyldumeðlimum og nánum vin-
um. Lík hans verður brennt, helm-
ingi öskunnar verður dreift yfir hafi
við strendur Danmerkur, hinn helm-
ingurinn verður jarðsettur í einka-
grafreit við Fredensborgarhöll.
Hlýr og skemmtilegur maður
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Íslands, hitti Hinrik
margoft og tókust með þeim góð
kynni og vinátta. „Ég kynntist Hin-
riki prins býsna vel og minnist hans
með mikilli virðingu og hlýju. Hann
var viðræðugóður, afar skemmti-
legur og víðlesinn. Hann var sérlega
hlýr maður,“ segir Vigdís.
Leiðir þeirra lágu fyrst saman
þegar Vigdís fór í sína fyrstu opin-
beru heimsókn sem forseti til Dan-
merkur. Síðan áttu þau eftir að fara
saman bæði til Bandaríkjanna og
Japans á vegum kynningarátaksins
Scandinavia Today þar sem listir og
menning Norðurlandanna voru
kynnt. „Þar kynntumst við mjög vel.
Ég naut þeirra forréttinda að tala
frönsku og við náðum prýðilega vel
saman á því tungumáli, honum
fannst alltaf best að tala það, þótt
hann hafi líka talað ágæta dönsku.“
Vigdís hitti Hinrik prins síðast fyr-
ir um fjórum árum. Það var á degi
franskrar tungu í Danmörku, en af
því tilefni var efnt til móttöku í
Amalienborgarhöll. „Þarna var mik-
ið um að vera en hann bauð mér í
hliðarsal og vildi endilega að ég
kæmi og skoðaði listaverkin sem þar
voru. Hann vissi allt um þau og kunni
sögu hvers einasta listmunar sem
þarna var.“
Vigdís segir að eitt af því sem hafi
einkennt Hinrik prins hafi verið
gamansemi hans. „Hann var svo
mikill húmoristi og það var gaman að
koma auga á eitthvað spaugilegt með
honum. Hann var afar franskur
Fransmaður, en líka heimsmaður og
hafði gríðarlega mikinn áhuga á list-
um. Ef það væri til gott orð á ís-
lensku fyrir að vera „sjarmerandi“,
þá myndi ég nota það orð.“
Uppreisnarmaðurinn í höllinni
Hinrik Danaprins lést í fyrrakvöld Var alla tíð gagnrýninn á stöðu sína Heillaði drottningu
með „Parísar-sjarma“, sniglum og froskalærum Vigdís minnist Hinriks með virðingu og hlýju
Ljósmynd7Kongehuset.dk
Hinrik og Margrét Á gullbrúðkaupsdeginum hinn 10. júní síðastliðinn um borð í snekkjunni Dannebrog.
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
O
ttó
A
u
g
lýsin
g
astofa
Stoppar 90% óhreininda
Dyra og hreinsimottur
Þau voru mörg ummælin sem
Hinrik lét falla í gegnum tíðina,
ýmist í gamni eða alvöru, og
danskir fjölmiðlar gripu á lofti.
„Börn eru eins og hundar eða
hestar. Það þarf að temja þau
svo hægt sé að umgangast
þau,“ sagði prinsinn t.d. um
barnauppeldi.
Steininn þótti taka úr í frægu
viðtali við danska götublaðið BT
árið 2002 þar sem prinsinn
kvartaði yfir því að hann kæmi á
eftir syni sínum, krónprinsinum,
hvað tign varðaði. Í kjölfarið fór
hann til Frakklands þar sem
hann sagðist ætla að „endur-
meta stöðu sína og líf sitt“.
Danskir fjölmiðlar hæddust
að prinsinum, kölluðu Frakk-
landsför hans „fýluferðina“ og
voru talsverðar vangaveltur um
að hjónin myndu skilja.
Viðtalið
fræga 2002
PRINSINN VIÐ FJÖLMIÐLA
Morgunblaðið/RAX
Lýðveldishátíðin 1994 Myndin er tekin við Bessastaði. Frá vinstri: Haraldur
Noregskonungur, Sonja Noregsdrottning, Hinrik Danaprins, Margrét Þór-
hildur Danadrottning, Vigdís Finnbogadóttir og Karl Gústaf Svíakonungur.