Morgunblaðið - 15.02.2018, Page 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Ég er ekki alveg
með það á hreinu hvers
vegna ég tók aldrei bíl-
próf. Kannski var
ástæðan sú að ekki var
bíll á bernskuheimili
mínu eða þá að ég hafði
alltaf haft ímugust á
vélum. Hins vegar
hafði ég tvo góða fætur
sem höfðu borið mig
upp á hálendið löngu
áður en það komst í
tísku. Eftir að ég gifti mig urðu hvers
kyns ferðalög og flutningar þægilegri
en ég veigraði mér aldrei við að nota
almenningsvagna og reiðhjólið mitt
kom að góðu gagni.
Eftir að maðurinn minn féll
skyndilega frá árið 2003 breyttust að
sjálfsögðu margar forsendur en svo
fór lífið að ganga sinn vanagang og til
þess naut ég aðstoðar Jóns Bjarna
Þorsteinssonar, heimilislæknis míns.
Um 2006 kom í ljós við læknisskoðun
að slit var í báðum mjaðmaliðum og
að ráði Jóns Bjarna sneri ég mér til
Jóns Ingvars Ragnarssonar bækl-
unarlæknis. sem taldi ekki tímabært
að gera á mér aðgerð en þar sem ég
vissi að ég átti í vændum tvær að-
gerðir lagði ég fast að honum að hefja
hina fyrri hið allra fyrsta.
Jón Ingvar tók máli mínu vel og
fyrri liðaskiptaaðgerðin fór fram
snemma árs 2013. Ég naut góðrar að-
hlynningar á Heilsustofnun Vest-
urlands og var fljót að
ná mér og hóf mín störf.
Ég fylgdi ráðum Jóns
Ingvars að fara með öllu
gætilega næstu vik-
urnar.
Það er svo ekki fyrr
en 4 árum síðar að ég
hrekk skyndilega úr
liðnum á eldhúsgólfinu
heima hjá mér. Mér var
ekið í skyndi upp á
bráðamóttöku þar sem
mér var kippt í liðinn –
til frambúðar að menn
töldu. Ég hafði samband við Jón
Ingvar sem bauð mér að koma til
skoðunar og myndatöku upp á Akra-
nes þar sem hann fann enga skýringu
á þessum skakkaföllum aðra en að ég
hefði hreyft mig ógætilega.
Sama atvik endurtók sig aftur og
tvisvar enn og þá var ég í þeirri að-
stöðu að gæta lítils barns en okkur
tókst í sameiningu að gera foreldrum
og bráðaliðum viðvart. Síðasta lið-
hlaupið var svo fyrir framan Grens-
áskirkju þar sem ég var að binda á
mig skó í svörtu vetrarmyrkri. Ef ég
hefði verið úti á víðavangi hefði vart
verið að sökum að spyrja.
Starfsfólk bæklunardeildar var
farið að líta á mig sem hálfgerðan
gistivin en bauð mér samt upp á nýja
aðgerð 30. janúar 2017. Læknirinn
sem framkvæmdi aðgerðina sagðist
hafa fundið skýringuna á þessum tíðu
liðhlaupum sem hefði verið örlítil
rauf við ofanverðan liðinn ef ég man
rétt. Ég gekk alsæl út í hækkandi sól,
gat þó ekki stillt mig um að skýra
Jóni Ingvari frá þessari niðurstöðu.
Hann kvaðst hins vegar alls ekki
sammála henni og bað mig endilega
að fara gætilega áður en við kvödd-
umst.
Nýja kúlan sat greinilega blýföst
en eftir að ég fékk hana hef ég verið
mismunandi draghölt og á í vandræð-
um með einfaldar hreyfingar, auk
þess sem ég finn oft fyrir sársauka.
Nýi læknirinn minn gat ekki veitt
mér neina úrlausn og Eva Sigríður
Kristmundsdóttir, heimilislæknirinn
minn, sem hafði fylgst með öllu þessu
ferli sagði mér að trúlega hefði svæð-
ið umhverfis liðinn orðið fyrir svo
miklu hnjaski að einungis stíf sjúkra-
þjálfun gæti bætt úr. Nú hef ég notið
fagmennsku frábærra sjúkraþjálfara
og vissulega hefur orðið hér nokkur
bragarbót en ég sit uppi með þykkt
bólguflykki sem lætur hvergi undan.
Nú er ég mjög illa ferðafær, ekki
síst í þeirri hálkutíð sem gengur hef-
ur yfir. Á þessari vegferð hafa greini-
lega verið gerð mistök sem ég sit nú
uppi með án þess að bót sé sýnileg.
Liðir
Eftir Guðrúnu
Egilson
Guðrún
Egilson
» Á þessari vegferð
hafa greinilega verið
gerð mistök, sem ég sit
nú uppi með án þess að
bót sé sýnileg.
Höfundur er fyrrverandi
Verslunarskólakennari.
Silja Dögg Gunn-
arsdóttir og átta aðrir
þingmenn lögðu fram
frumvarp þess efnis
nú í lok janúar að um-
skurður drengja
(nema af heilsu-
farsástæðum) yrði
bannaður, enda er
umskurður á kynfær-
um stúlkna þegar
bannaður með lögum.
Þetta virðist sjálfsagt mál, enda:
„Umskurður á drengjum er ekki
hættulaus aðgerð, að sögn barna-
skurðlæknis. Árlega deyja tvö
hundruð ungbörn í Bandaríkj-
unum eftir að hafa blætt út eftir
slíka aðgerð.“ (RÚV 7.2. 2018).
En í kjölfarið á frumvarpi þessu
hafa trúarleiðtogar gyðinga og
múslima, innlendir sem erlendir,
mótmælt kröftuglega. Kannski við
að búast. En þarna virðist vegið
að forræðishyggju og hefðbundum
hugarfjötrum fleiri trúarbragða en
fyrrnefndra, og kristnir klerkar,
hér- og erlendir hafa líka hneyksl-
ast stórlega, til að mynda Marx
nokkur kardínáli:
„Reinhard Marx,
kardínálinn í Münc-
hen, einn af nánustu
ráðgjöfum Frans páfa
og formaður Samtaka
biskupa í löndum
Evrópusambandsins,
fordæmir fyrirhugað
umskurðar-frumvarp
Silju Daggar Gunn-
arsdóttur og átta
annarra þingmanna
og segir það hættu-
lega atlögu að trú-
frelsinu. Evrópskir
rabbínar hafa þegar hvatt til þess
að íslensk stjórnvöld verði beitt
þrýstingi til að koma í veg fyrir að
frumvarpið verði samþykkt.“
(RÚV 7.2. 2018)
Þetta hljómar svolítið skringi-
lega, en þó kunnuglega. Kardínál-
inn segir þetta frumvarp hættu-
lega atlögu að trúfrelsi. Trúfrelsi
hvers? Þeir aðilar sem málið snýst
um, sem sagt nýfæddir drengir
sem eiga það á hættu að deyja eða
örkumlast í þarflausri skurð-
aðgerð, eru örugglega ekki komnir
með neina skoðun á trúar-
brögðum.
Er það ekki eðlilegur þáttur í
frelsisvakningu nútímans að fólk
ráði sjálft eftir föngum yfir hug
sínum og líkama, en þurfi ekki að
lúta fornri sérvisku sem fer eftir
því í hvaða landi eða trúarsvæði
það slysast til að fæðast? Það er
hugsanlegt að sumt fólk vilji láta
umskera sig, skíra sig til kristni,
eða hvað annað sem gert er af
trúarlegum ástæðum, en þá á fólk
sjálft að taka upplýsta ákvörðun
um slíkt. Það væri í samræmi við
almenn nútímaleg og framsækin
viðhorf. Og rétt er að benda á að
dómstóll í Köln hefur úrskurðað
að það flokkist undir líkamsárás
að umskera drengi, nema um sé að
ræða læknisfræðilega nauðsyn.
Ja hérna hér
Eftir Ólaf
Halldórsson »Er það ekki eðlilegur
þáttur í frelsisvakn-
ingu nútímans að fólk
ráði sjálft eftir föngum
hug sínum og líkama, en
þurfi ekki að lúta fornri
sérvisku.
Ólafur Halldórsson
Höfundur er BS í líffræði.
olafurh@verslo.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
RENAULT CAPTUR INTENS
nýskr. 07/2017, ekinn 2 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 3.190.000 kr.
Raðnúmer 257380
NISSAN X-TRAIL ACENTA PLUS 2WD
nýskr. 05/2017, ekinn 6 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Einkabíll! Verð 4.440.000 kr.
Raðnúmer 257351
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
BMW520d XDRIVE nýskr. 09/2016, ekinn 12
Þ.km, diesel (191 hö), sjálfskiptur (8 gíra). Bíllinn er
hlaðinn aukabúnaði og virkilega glæsilegur!
BESTAVERÐIÐ 6.690.000 kr. Raðnúmer 256774
M.BENZ SPRINTER 316D L2H1
03/2012, ekinn aðeins 97 Þ.km, dísel, beinskiptur.
Verð 2.590.000 kr. +vsk.
Raðnúmer 257463
FORD TRANSIT 350 TREND L3 FWD
nýr og ókeyrður dísel, 6 gíra.
Verð 4.490.000 kr. + vsk. Raðnúmer 257474
- Eigum von á 4wd bílum.
Eitt af því sem ég
kann að meta frá fæð-
ingarlandi mínu Hol-
landi er umburðar-
lyndi en Hollendingar
líta ekki aðeins á það
sem dyggð heldur
jafnvel sem þjóðlega
skyldu. Þeir bera
mikla virðingu fyrir
frelsi fólks tilað lifa
lífinu eins og það
sjálft kýs og standa vörð um rétt
einstaklinga til að þroskast á ólík-
um forsendum.
Ég geri umburðarlyndi hátt und-
ir höfði í skoðunum mínum og við-
horfi til lífsins. En hvað felst í um-
burðarlyndi?
1. Umburðarlyndi er að fella ekki
dóma
Umburðarlyndi er að breyta ekki
fólki sem er ekki sama sinnis held-
ur frekar að virða líf og skoðanir
annarra. Leyfa fólki að vera eins
og það er án þess að fella dóma
þegar það sem það gerir eða segir
er okkur ekki að skapi. Það hafa
allir rétt á sínum skoðunum hvort
sem um er að ræða stjórnmála-
skoðanir, trúmál, lifnaðarhætti eða
fatasmekk, svo nokkur dæmi séu
tekin. Við þurfum að vera opin fyr-
ir öðrum skoðunum og átta okkur á
því að við erum öll
mismunandi. Það er
ekki hægt að steypa
alla í sama mótið.
Margir hafa aðrar
skoðanir og fara aðra
leið í lífinu en við og
með því að setja okkur
í dómarasætið lítum
við niður á þá og gef-
um þau skilaboð í leið-
inni að okkar leið sé
æðri. Mikilvægt er að
læra að sleppa þeirri
hugmynd að manns
eigin leið sé ávallt besta leiðin og
hætta að ætlast til þess að aðrir
séu eins og við.
2. Umburðarlyndi er að leggja
sig fram um að skilja fólk
Frekar en að reyna að breyta
öðrum eða krefjast þess að aðrir
sjái hlutina í sama ljósi og við, er
mikilvægt að setja sig í spor fólks.
Um leið og við skiljum hvers vegna
fólk hegðar sér eins og það gerir
eykst skilningurinn og umburð-
arlyndið. Þegar við öðlumst aukinn
skilning á fólki fáum við nýja sýn
og nýjar hugsanir. Til að skilja fólk
betur þurfum við að sýna áhuga,
vera forvitin, spyrja spurninga og
taka fólk alvarlega. Sýna því kær-
leika og virðingu og reyna að skilja
tilfinningar þess, efasemdir og líð-
an. Með því skapast traust og
gagnkvæm virðing.
3. Umburðarlyndi er að allir fái
að vera eins og þeir eru
Umburðarlyndi er að leyfa fólki
að vera eins og það er. Við höfum
öll mismunandi hæfileika, kosti og
lesti. Það sem okkur finnst gott er
ekki endilega gott fyrir aðra. Hver
og einn er með sín eigin viðmið.
Hver erum við að ákveða hvað ein-
hver ætti eða ætti ekki að gera?
Þetta snýst um að geta rætt það
sem maður er ósammála um án
þess að halda því fram að skoðun
þín sé betri en skoðun hins aðilans.
Umburðarlyndi er ekki það sama
og hlutleysi eða afskiptaleysi. Þeg-
ar okkur mislíkar eitthvað eða ef
við teljum eitthvað siðferðilega
rangt þá eigum við auðvitað að láta
í okkur heyra. Þetta á t.d. við þeg-
ar um er að ræða mannréttinda-
brot, ofbeldi og grimmd. Lífs-
skoðun annarra má auðvitað ekki
skaða né ganga á rétt annarra til
orða og athafna.
Að leyfa fólki að
vera eins og það er
Eftir Ingrid
Kuhlman
Ingrid Kuhlman
»Umburðarlyndi er að
fella ekki dóma,
leggja sig fram um að
skilja fólk og leyfa því
að vera eins og það er.
Höfundur er áhugamaður um upp-
byggileg samskipti.
ingrid@thekkingarmidlun.is