Morgunblaðið - 15.02.2018, Page 35
að, og kom út árið 2017, hjá Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræð-
um, í samstarfi við Þorbjörgu Helga-
dóttur, sérfræðing hjá Norrænu
fornmálsorðabókinni í Kaupmanna-
höfn.
Áhugamál Bjarna tengjast að
nokkru starfi hans og fræðum, svo
sem kennslu- og uppeldismálum: „Ég
hef auk þess komið að starfi fagfé-
laga, t.d. setið í stjórn Hins íslenska
kennarafélags, hef áhuga á land-
græðslu, skógrækt, garðyrkju, nátt-
úruvernd, ferðalögum og gönguferð-
um, einkum innanlands. Ég hef lengi
haft gaman af skák, hef haft afskipti
af félagsmálum skákmanna, t.d. setið
í stjórn Taflfélags Kópavogs um ára-
bil og eitt kjörtímabil í stjórn Skák-
sambands Íslands.“
Fjölskylda
Eiginkona Bjarna er Kristín Ind-
riðadóttir, f. 14.11. 1947, fyrrv. yfir-
bókavörður við Kennaraháskóla Ís-
lands. Foreldrar hennar voru
Jakobína Björnsdóttir, f. 20.3. 1916,
d. 3.8. 1957, og Indriði Guðmundsson,
f. 5.3. 1892, d. 17.4. 1976.
Fyrri kona Bjarna er Gerður G.
Óskarsdóttir, f. 5.9. 1943, fyrrv.
fræðslustjóri Reykjavíkur.
Börn Bjarna eru Óskar Bjarnason,
f. 19.7. 1966, leiðsögumaður, búsettur
í Lúxemborg; Ásta Bjarnadóttir, f.
20.1. 1969, framkvæmdastjóri mann-
auðssviðs Landspítala, gift Árna Sig-
urjónssyni, skrifstofustjóra á skrif-
stofu forseta Íslands; Tjörvi Bjarna-
son, f. 6.3. 1976, sviðsstjóri útgáfu- og
kynningarsviðs Bændasamtaka Ís-
lands, kvæntur Örnu Bjartmars-
dóttur, ferðaráðgjafa hjá Icelandair;
Æsa Guðrún Bjarnadóttir, f. 4.3.
1978, ritstjóri hjá Forlaginu, gift
Sverri Jakobssyni, sagnfræðipró-
fessor við HÍ; Elsa Bjarnadóttir, f.
2.2. 1985, hjúkrunarfræðingur á
Landspítala.
Stjúpsonur Bjarna er Rögnvaldur
Jóhann Sæmundsson, f. 3.3. 1968,
dósent í iðnaðarverkfræði við HÍ,
kvæntur Birnu Helgadóttur, verk-
efnastjóra umbóta á rekstrarsviði
Landspítala. Barnabörnin eru 14.
Systur Bjarna eru Anna Ólafs-
dóttir, f. 8.6. 1948, fyrrv. aðalbókari
Borgarbyggðar, búsett í Borgarnesi,
og Hafdís Ólafsdóttir, f. 26.9. 1959,
skrifstofumaður í Reykjavík.
Foreldrar Bjarna voru hjónin
Ólafur Jónsson, f. 6.3. 1919, d. 31.12..
2006, bílstjóri, og Ásta Ólafsdóttir, f.
30.5. 1921, d. 9.7. 1995, húsfreyja. Þau
voru búsett í Kópavogi allan sinn bú-
skap..
Bjarni Ólafsson
Vilborg Hálfdanardóttir
húsfr. á Holtum, síðar á Tjörn á Mýrum
Jón Páll Bjarnason
b. í Holtum á Mýrum
í Hornafirði
Anna Pálsdóttir
húsfr. í Holtahólum
Ásta Ólafsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Ólafur Einarsson
b. í Holtahólum á Mýrum í Hornafirði
Guðrún Eiríksdóttir
húsfr. í Holtahólum,
síðar í Rvík
Einar Sigurðsson
b. í Holtahólum á Mýrum, síðar verkam. í Rvík
Bjarni Bjarnason b. í Hörgsdal
Páll Bjarnason b. á Seljalandi í Fljótshverfi
Helgi Bjarnason b. á Núpum í Fljótshverfi
Helga Guðný Bjarnadóttir húsfr. í Múlakoti á Síðu
Ragnar Friðrik Jónsson
skipstj. í Hafnarfirði
Sigrún Jónsdóttir húsfr.
í Prestbakkakoti á Síðu
Hermann G. Jónsson lögfr. og
sýslumannsfulltr. á Akranesi
Halldór Jónsson
bæjargjaldkeri í Kópavogi
Þórhallur
Vilmundarson
prófessor
Vilmundur
Jónsson
landlæknir
Jón Sigurðsson b.
á Fornustekkum í
Nesjum
Sigríður Kristófersdóttir húsfr. í Hörgsdal
Jón Kristófersson skipstj. í Rvík
Friðrik Kristófersson b. og
söðlasmiður í Mörk á Síðu
Vilborg Ólafsdóttir húsfr. á Höfn
Guðrún Ólafsdóttir húsfr.
á Kirkjubæjarklaustri
Sigríður Ólafsdóttir
húsfr. í Holtahólum
Guðjón Einarsson, skrifstofustj. hjá
Eimskip, Reykjavík og alþjóðlegur
knattspyrnudómari
Hafdís Ólafsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Anna Ólafsdóttir
aðalbókari
Borgarbyggðar, í
Borgarnesi
Rannveig Jónsdóttir
húsfr. á Breiðabólsstað
Kristófer Þorvarðarson
póstur og b. á
Breiðabólsstað á Síðu
Anna Kristófersdóttir
húsfreyja í Hörgsdal, Keldunúpi og Mosum
Jón Bjarnason
b. í Hörgsdal, Keldunúpi og Mosum á Síðu
Páll Pálsson
alþm., pr. og
málleysingakennari
í Þingmúla
Helga Pálsdóttir
húsfr. í Hörgsdal
Bjarni Bjarnason
b. í Hörgsdal
Úr frændgarði Bjarna Ólafssonar
Ólafur Jónsson
bílstj., bæjarfulltrúi og form.
Samtaka eldri borgara, í Kópavogi
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Ingimar Jónsson fæddist íHörgsholti í Hrunamanna-hreppi 15.2. 1891. Foreldrar
hans voru Jón Jónsson, bóndi og
kennari á Högnastöðum og Hruna-
krók í Hrunamannahreppi, í Grinda-
vík og í Laxárdal í Hrunamanna-
hreppi, og Sesselja Guðmundsdóttir,
húsfreyja í Laxárdal.
Jón var sonur Jóns Jónssonar í
Hörgsholti, og k.h., Guðrúnar
Snorradóttur húsfreyju, en Sesselja
var dóttir Guðmundar Helgasonar,
bónda í Hellisholtum, á Grafarbakka
og á Fossi í Hrunamannahreppi, og
k.h., Margrétar Guðmundsdóttur
ljósmóður.
Eiginkona Ingimars var Elínborg
Lárusdóttir rithöfundur og voru
synir þeirra Lárus, stórkaupmaður í
Reykjavík, og Jón, hdl. og skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu.
Ingimar lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborg 1911, kennaraprófi frá KÍ
1913, stúdentsprófi frá MR 1916 og
prófi í guðfræði frá HÍ 1920.
Ingimar var stundakennari á
námsárunum við Kvennaskólann í
Reykjavík, Unglingaskóla Ásgríms
Magnússonar, Iðnskólann í Reykja-
vík og Flensborgarskóla. Hann
sinnti skrifstofustörfum í Reykjavík
1920-22, var prestur að Mosfelli í
Grímsnesi 1922-28, varð for-
stöðumaður Ungmennaskóla
Reykjavíkur 1928, skipaður skóla-
stjóri hans 1933 sem þá fékk heitið
Gagnfræðaskóli Reykjavíkur, en
fékk síðar heitið Gagnfræðaskóli
Austurbæjar. Sá skóli var lengst af
til húsa í Franska spítalanum við
Lindargötu og var oftast nefndur
Ingimarsskóli í daglegu tali.
Ingimar var áhrifamaður um
menningarrýni og gagnrýndi m.a.
órímuð ljóð atómskálda. Hann var
stórtemplar og jafnaðarmaður, sat í
stjórn ASÍ og miðstjórn Alþýðu-
flokksins, í hreppsnefnd Gríms-
neshrepps, í niðurjöfnunarnefnd
Reykjavíkur, yfirskattanefnd, í
skólanefnd Miðbæjarskólans og í
þjóðleikhússráði.
Ingimar lést 6.1. 1982,
Merkir Íslendingar
Ingimar
Jónsson
90 ára
Karl Kristinsson
Pálína Guðmundsdóttir
85 ára
Arnþór Ingólfsson
Edda Ingibjörg
Margeirsdóttir
80 ára
Bergljót Halldórsdóttir
Stefán Örn Stefánsson
Sveinn Vilhjálmsson
75 ára
Bjarni Ólafsson
Emma María Krammer
Jónatan Jóhann
Stefánsson
70 ára
Alexander Jóhannesson
Áslaug Hrefna Bjarnadóttir
Edda Hörgdal Stefánsdóttir
Emma Ásgeirsdóttir
Hjálmar Ágústsson
Ólafur Eggertsson
Ragnar Jónsson
Sigmundur Rafn Einarsson
Sigríður Brynd
Sigurjónsdóttir
Sævar Björn Gunnarsson
Unnar Víðir Björnsson
60 ára
Edda Elísabet Kjerúlf
Eva Rozália Nagy
Guðrún Barbara
Tryggvadóttir
Hanna Björk Hilmarsdóttir
Jón Stefán Ingólfsson
Kristján Hauksson
Sigrún Edda Hringsdóttir
Steinþór Gunnarsson
Ægir Magnússon
50 ára
Birgir Svanur Birgisson
Guðný Úlla Ingólfsdóttir
Gunnar Jóhannesson
Gunnar Karl Karlsson
Harpa Magnadóttir
Hörður Jónsson
Jolanta Sienda
Jóanna Atladóttir
Jóninna G. Karlsdóttir
Kristinn Guðlaugsson
Kristjana Birna Svansdóttir
Rúnar Þór Gunnarsson
Sigurður Þ. Þorsteinsson
Svala Hilmarsdóttir
Þórleif Sigurðardóttir
40 ára
Alda Karen Svavarsdóttir
Björg Bjarnadóttir
Díana Hilmarsdóttir
Elva Hrund Ágústsdóttir
Garðar Kristinn Jensson
Ingibjörg H. Halldórsdóttir
Joanna Danuta Krupa
Jón Arnar Ólafsson
Jósep Valur Guðlaugsson
Kolbrún H. Sigurgeirsdóttir
Margrét H. Gísladóttir
Ólafur Gauti Guðmundsson
Rajmund Rai
Sveina Berglind Jónsdóttir
Un Ruean
Thaenphonkrang
30 ára
Arnór Víkingsson
Dovile Kacinske
Elna Albrechtsen
Gints Norkarklis
Justyna Malgorzata Fierka
Krzysztof Snarski
Mateusz Tomasz Koziel
Selma Sigurðardóttir
Sigurður Eyjólfsson
Sunna Kristín Óladóttir
Sævar Birgisson
Valbjörg Ómarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Valbjörg ólst upp í
Njarðvík, býr í Reykja-
nesbæ, lauk stúdents-
prófi og sveinsprófi í
snyrtifræði og er flug-
freyja hjá Icelandair.
Maki: Kristina Elísabet
Andrésdóttir, f. 1986,
starfsmaður hjá Iceland-
air.
Engin börn en Valbjörg
komin 16 vikur á leið.
Foreldrar: Elín Björk Ein-
arsdóttir, f. 1963, og Óm-
ar Kristjánsson, f. 1957.
Valbjörg
Ómarsdóttir
30 ára Sævar lauk prófi í
viðskiptafræði frá Bifröst,
starfar hjá VÍS og er ól-
ympíufari í skíðagöngu
frá 2014.
Maki: Eva Rún Þorsteins-
dóttir, f. 1993, starfs-
maður á leikskóla.
Sonur: Birgir Thor, f.
2017.
Foreldrar: Birgir Gunn-
arsson, f. 1963, og Þor-
gerður Sævarsdóttir, f.
1966. Þau búa í Mos-
fellsbæ.
Sævar
Birgisson
30 ára Sunna ólst upp á
Selfossi, býr þar, lauk BA-
prófi í uppeldis- og
menntunarfræði frá HÍ og
starfar hjá Landsvirkjun.
Maki: Ragnar Sigurð-
arson, f. 1988, jarðfræð-
ingur hjá Nýsköpunar-
miðstöð Íslands.
Foreldrar: Margrét Andr-
easen, f. 1968, félags-
ráðgjafi, og Óli Fjalar
Böðvarsson, f. 1962, vél-
stjóri og rafvirki hjá
Landsvirkjun.
Sunna Kristín
Óladóttir
Vilt þú létta á líkamanum eftir saltkjötið og baunirnar?
Weleda Birkisafinn hjálpar!
Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út-
hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt
fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaIceland