Morgunblaðið - 15.02.2018, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Frá
morgnifyrir allafjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Laugarnar í Reykjavík
NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Meiriháttar breytingar liggja í loftinu
svo þú þarft að undirbúa þig vel. Allir leggja
sig fram við að geðjast öllum, virðist vera.
20. apríl - 20. maí
Naut Hafðu stjórn á skapi þínu og forðastu
að hlaupa á eftir hverri hugdettu. Þú munt
rekast á einhver ummæli, sem hafa mikil áhrif
á þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar orkan heima fyrir er öll í rugli,
reynir makinn að koma skikki á hlutina. Ein-
hver missir stjórn á sér vegna vanlíðanar eða
mikillar vinnu eða af of miklum áhyggjum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú berir ábyrgð þýðir það ekki að
þú þurfir að gera allt sjálfur og megir ekki
þiggja aðstoð. Ef þú einbeitir þér að viðtök-
unum eyðileggur það fyrir tjáningunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ný ævintýri geta birst þér ef þú hefur
kjark til þess að brjóta upp venjur hversdags-
ins. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér
að segja það sem þig langar til að segja við
fólk.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhver gamall kunningi lætur í sér
heyra og skilaboðin koma róti á hug þinn.
Kannaðu hvort það sé ótti þinn sem truflar
þig að þessu sinni og reyndu að yfirvinna
hann.
23. sept. - 22. okt.
Vog Allt sem tengist vinnunni og vinnuum-
hverfinu ætti að breytast til batnaðar á næst-
unni. Láttu það ekki slá þig út af laginu, þótt
með þér sé fylgst í starfi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Flanaðu ekki að neinu, heldur
tékkaðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu
þegar þú grípur til aðgerða. Leyfðu ástvinum
að eiga í sínum átökum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að það er fortíðin sem
kom þér þangað sem þú ert í dag. Fólk er til í
að vinna með þér, allt sem þú snertir verður
að gulli.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugmyndir yfirboðara verða þér
hvatning til að gera endurbætur í vinnunni.
Haltu fólki í þeirri fjarlægð sem þú vilt því
engan varðar um þína einkahagi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gefðu þér tíma til að velta því fyrir
þér hvað skiptir þig mestu máli í lífinu. Næstu
vikurnar er tilvalið að sækja um lán eða
styrki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur ákveðnar hugmyndir en vinir
þínir vilja draga úr framkvæmdagleði þinni.
Hugsanlegt er að þú fáir hugmynd um nýtt
lífsviðurværi eða viðfangsefni í dag.
Áþriðjudaginn var hátíð í Fríðu-húsi og boðið upp á þorramat.
Þangað kom Gerður Bolladóttir tón-
listarkennari og skemmti okkur með
þjóðlagasöng. Hún lék sjálf undir á
kantele, finnskt strengjahljóðfæri.
Þetta var ánægjuleg stund. Gerður
hefur fallega rödd og fer vel með texta
eins og faðir hennar séra Bolli gerði.
Og gamlir húsgangar rifjuðust upp,
þessir undir þingeysku kvæðalagi:
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurheiðum;
líður á þennan dýrðardag;
drottinn stýri leiðum.
Senn er komið sólarlag
sést á norðurfjöllum;
eftir þennan dýrðardag
drottinn hjálpi oss öllum.
Senn er komið sólarlag,
sendi oss drottinn friðinn
og oss gefi annan dag
eftir þennan liðinn.
Fleiri stökur eru í þessum dúr.
Þessa gömlu alþýðuvísu söng Gerð-
ur undir skagfirsku lagi:
Syngur lóa í laufgum mó,
lipurt spói vellur,
gaggar tóa í klettakró,
krummahróið gellur.
Alkunnan húsgang rifja ég upp úr
annarri átt, sem séra Bjarni segir að
sé sunginn undir kvæðalagi sem er
kennt við Árna „gersemi“:
Vinnukona fór í fjós,
fór að mjólka í bolla;
steypti niður og slökkti ljós.
Stattu, kýrin Kolla!
Hér er „ein af hinum mörgu lífsleið-
inda-vísum vorum“:
Flest ágæti förlast mér
fást ei bætur kífsins;
hverjum sætir að ég er
argintæta lífsins?
Margt var kveðið við börnin, – sumt
gott og fallegt:
Góðu börnin gera það
guð að lofa og biðja,
læra að stafa og lesa á blað,
líka margt gott iðja.
Svo er önnur alþýðuvísa, – gagn-
stæð þessari:
Illu börnin iðka það:
æpa, skæla og hrína;
hitt og þetta hafast að,
heimta, brjóta og týna.
Ekki veit ég hvort það er við hæfi á
sprengidegi að rifja upp grautarvísu,
gamlan húsgang:
Góður þykir mér grautur méls,
gleður hann svangan maga;
en sé hann gerður úr soðinu sels
svei honum alla daga!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Alþýðuvísur og húsgangar
„ÞÚ TÓKST ÞESSAR AÐ LÁNI FYRIR
MINNA EN KLUKKUTÍMA. REYNDIRÐU
NOKKUÐ AÐ LESA ÞÆR?“
„ÉG VEIT AÐ ÞÚ VILDIR FÁ PAKKA AF
FISKIFINGRUM, EN ÞETTA VAR ALLT SEM
ÞEIR ÁTTU TIL!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að setja
afmæliskortið hennar í
póst viku fyrir tímann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BÓKASAFN
SKIL
M-
MJÁ!
BERGMÁL BERGMÁL BERGMÁL
LEYFÐU MÉR
AÐ KLÁRA!
HRÓLFUR, FÖRUM Í
VERSLUNARFERÐ!
ÓKEI!
LEGGJUM Í
HANN!
ENGAR ÁHYGGJUR HELGA! ÞETTA ER
ÖRUGGARA EN SVARTIR FÖSTUDAGAR!
Boðið var upp á bollur í mötuneyt-inu á mánudaginn. Víkverji, sem
sjálfur hefur verið bolla mestalla
sína ævi, ætlaði sér nú ekki að fá sér
eina en fyrir jafningjaþrýsting og
græðgi lét hann bugast. Víkverja
reyndist þó auðveldara að standast
freistinguna en mörgum öðrum því
að það eina sem í boði var voru
vatnsdeigsbollur sem Víkverji hefur
einhvern veginn aldrei komist upp á
lag með að borða.
x x x
Víkverji hélt að hann hefði sloppiðlétt frá vikunni en hafði að sjálf-
sögðu steingleymt því að eins og
dagur fylgir nótt fylgir sprengidag-
ur bolludegi. Víkverji elskar saltkjöt
í spað. Víkverji gæti líklega borðað
saltkjöt oft á ári en hefur sætt sig við
það að það er ekki samfélagslega
ásættanlegt nema þennan eina dag á
ári. Víkverji lét því vel til sín taka,
bæði í hádeginu og um kvöldið. Lík-
lega hefur Víkverji borðað nóg til
þess að endast honum út vikuna, ef
ekki lengur, en það mun víst vera til-
gangur dagsins. Víkverji hefur þó
aldrei látið verða af því að „kveðja
kjötið“ með sprengidegi, enda gæti
hann þá nánast sleppt því að borða.
x x x
Öskudagur er hins vegar lítið í há-vegum hafður hjá Víkverja.
Hann minnist þess þó að hafa klætt
sig upp í grímubúning eins og aðrir á
þessum degi í fyrndinni. Hann tekur
hins vegar eftir því að á seinni árum
er sem sumir vilji blanda öskudegi
saman við hrekkjavökuna þar sem
áherslan er að fólk klæði sig í óhugn-
anlega búninga. Þannig tók Víkverji
eftir því að einn krakkinn sem hann
sá á öskudag hafði klætt sig eins og
norn og annar hafði makað andlitið
út í leikhúsblóði. Víkverji ætlar að
taka enn eitt skrefið í áttina að því
að verða miðaldra og segja þetta
ekki eitthvað sem hann styðji.
x x x
Víkverja er þó alveg ljóst að meðþví er eins og hann sé að öskra á
skýin til þess að kvarta undan þeim.
Enda getur Víkverji lítið gert til að
breyta því að tímarnir breytist og
mennirnir með. Og líklega er það
bara best þannig. vikverji@mbl.is
Víkverji
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
(Jóh: 1.12)