Morgunblaðið - 15.02.2018, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Tilkynnt var í gær hvaða fjórir
listamenn eru tilnefndir til Ís-
lensku myndlistarverðlaunanna
sem myndlistarráð stendur að en
þau verða afhent í fyrsta skipti eft-
ir viku. Listamennirnir eru þau
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Egill
Sæbjörnsson, Hulda Vilhjálms-
dóttir og Sigurður Guðjónsson.
Verðlaunin hlýtur listamaður sem
þykir hafa skarað fram úr með ný-
legum verkum og sýningu á Íslandi
á síðastliðnu myndlistarári, 2017.
Tilgangurinn er að vekja athygli á
því sem vel er gert á sviði mynd-
listar á Íslandi og stuðla að kynn-
ingu á íslenskum myndlistar-
mönnum og styðja við myndsköpun
þeirra.
Íslensku myndlistarverðlaunin
má kalla arftaka Íslensku sjónlist-
arverðlaunanna sem voru veitt í
síðasta skipti fyrir rúmum fimm ár-
um en þá hlaut Ragnar Kjartans-
son sjónlistaorðu verðlaunanna.
Einnig hvatningaverðlaun
Öllum var frjálst að tilnefna
myndlistarmenn til verðlaunanna,
með rökstuðningi, og þá tók dóm-
nefnd við tilnefningunum og valdi
þessa fjóra listamenn. Hún var
skipuð Margréti Kristínu Sigurð-
ardóttur, formanni myndlistarráðs,
Sigrúnu Hrólfsdóttur frá LHÍ,
Bryndísi Hrönn Ragnarsdóttur,
sem var fulltrúi SÍM, Magnúsi
Gestssyni frá Listfræðafélagi Ís-
lands, og Margréti Elísabetu Ólafs-
dóttur, sem var fulltrúi safnstjóra
Íslenskra safna.
Þegar tilkynnt verður á fimmtu-
dag hver hlýtur Íslensku mynd-
listarverðlaunin, og eina milljón
króna, verða jafnframt afhent sér-
stök hvatningaverðlaun en þau
hlýtur ungur, starfandi myndlistar-
maður sem lokið hefur grunnnámi
á síðustu fimm árum og hefur sýnt
opinberlega innan þess tíma. Hlýt-
ur hann hálfa milljón króna í verð-
laun.
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir er
tilnefnd fyrir sýninguna Erindi
sem var í Sverrissal Hafnarborgar.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Margbrotin sýning Önnu Júlíu
Friðbjörnsdóttur myndar und-
urfagra heild sem sameinar um-
fjöllun um náttúrurómantík, vís-
indalegar flokkunaraðferðir, pólitík
og ljóðræna framsetningu. […]
Með [sýningunni] tekst Anna Júlía
á við aðkallandi viðfangsefni sam-
tímans sem tengjast breytingum á
umhverfi dýra og manna. Flæk-
ingsfuglar af ætt söngvara verða
táknmynd fyrir streymi flótta-
manna og stjörnukort á bláum
kalkipappír myndgerving fyrir
áhættusöm ferðalög. Sýningin býr
yfir pólitísku inntaki, en einnig
angurværð sem má upplifa og túlka
sem ljóðræna náttúrurómantík.
Sýningin býður áhorfendum að
taka siðferðilega afstöðu til náttúru
og samfélags og vekur til vitundar
um fegurð og viðkvæma tilvist. Á
sýningunni Erindi tekst Önnu Júlíu
að samþætta fagurfræðilega og sið-
ferðilega þætti listarinnar á áhrifa-
mikinn hátt.“
Yfirgripsmikil ádeila
Egill Sæbjörnsson er tilnefndur
fyrir sýninguna Ùgh & Bõögâr Je-
wellery sem var í i8. Í umsögn seg-
ir: „Egill Sæbjörnsson kynnti tröll-
in Ùgh & Bõögâr fyrst til sögunnar
á sýningunni Out of Controll á
Feneyjatvíæringnum 2017. Eftir
dvölina í Feneyjum og kynni tröll-
anna af alþjóðlegum listheimi komu
þau til Íslands sem heimsborgarar
og umbreyttu sýningarrými gall-
erís i8 í glæsilega skartgripaversl-
un. Í þessari munaðarvöruverslun
[…] gaf að líta djásn í tröllslegum
stærðum, gerð úr úfnu hrauni, fág-
uðu Murano gleri og gullhúðuðum
leir. Sýningin í i8 er afsprengi viða-
mikillar sýningar í Feneyjum og
saman mynda þær sannfærandi
heild yfirgripsmikillar ádeilu á
samtímann. Um leið er sýningin
full af leikgleði, barnslegum við-
horfum og sköpunargleði, sem und-
irstrikar að allir búa yfir sköp-
unarkrafti – líka tröllin […]
Dómnefndin telur sýningu Egils
Sæbjörnssonar í i8 tala af dirfsku
beint inn í samtímann. Hann teflir
fram verkum sem við fyrstu sýn
virðast skopleg en hreyfa í raun við
grafalvarlegum málefnum.“
Þungur undirtónn
Hulda Vilhjálmsdóttir er tilnefnd
fyrir sýninguna Valbrá í Kling &
Bang. Í umsögn segir: „Málverk
Huldu Vilhjálmsdóttur hafa vakið
athygli á undanförnum árum fyrir
hráleika, samfara ríkri tjáningu.
[…] Öll verkin búa yfir þunga og
tjá allt í senn hættu og öryggi. Þau
eru samtímis hrá og meitluð, öguð
og kvik. Meginviðfangsefni verka
Huldu er fólk og tilfinningar sem
eru tjáðar með hraðri pensilskrift í
málverkum sem búa yfir djúpum
ljóðrænum streng með þungum
undirtóni. Á sýningunni var vegið
upp á móti melankólískum tóni
málverkanna með leirskúlptúrum í
óræðu formi, sem Hulda hefur ekki
sýnt áður. Þessi verk birtu áhorf-
endum nýja vídd og sýndu áhuga-
verða þróun í verkum Huldu.
Dómnefndin telur verk Huldu á
sýningunni Valbrá vera líkt og
myndljóð þar sem innsæi og næmi
kalla fram öflug og meitluð mál-
verk, vatnslitamyndir og leirverk.“
Áhrifamikið samspil
Sigurður Guðjónsson er til-
nefndur fyrir sýninguna Innljós í
kapellu og líkhúsi St. Jósepsspítala
en hún var sett upp á vegum Lista-
safns ASÍ. Í umsögn segir: „Sýn-
ingin samanstendur af þremur
myndbandsverkum, Fuser 2017,
Scanner 2017 og Mirror Projector
2017, sem er varpað á gólf og veggi
á þremur stöðum í byggingunni.
Myndefnið er sótt í heim vél-
tækninnar og auga myndavélar-
innar beint að taktfastri og end-
urtekinni hreyfingu vélarhluta í
nærmynd. Niðurstaðan eru dáleið-
andi abstrakt myndir, línur og ljós
sem vísa fram og aftur í tíma, í út-
hugsuðu samspili myndar og hljóðs
[…] Vélrænn, síendurtekinn taktur
og flöktandi birta eiga sinn þátt í
að skapa heildarupplifun, sem vek-
ur samtímis vitund um líkamleika
og efni og skynjun andlegra vídda
og nálægðar handanheima. Mynd-
efnið og framsetning þess undir-
strikar sögu hússins og náin tengsl
þess við hugmyndir um mis-
kunsemi, náð og líkn.“ […] Dóm-
nefndin telur að verk Sigurðar
myndi einstaklega sterka heild.
„Með áhrifamiklu samspili myndar
og hljóðs tekst honum með verkum
sínum að gera áhorfandann sér
meðvitandi um sögu sýningarstað-
arins, andlegar víddir og eigin
hverfulu tilvist.“ efi@mbl.is
Fjögur tilnefnd fyrir myndlist
Tilnefningar til
Íslensku myndlist-
arverðlaunanna
Anna Júlía „Sýningin býður áhorfendum að taka siðferðilega afstöðu til
náttúru og samfélags,“ segir um sýninguna Erindi í Hafnarborg.
Egill „Hann teflir fram verkum sem við fyrstu sýn virðast skopleg en hreyfa
í raun við grafalvarlegum málefnum,“ segir um Ùgh & Bõögâr Jewellery.
Hulda „… myndljóð þar sem innsæi og næmi kalla fram öflug og meitluð
málverk, vatnslitamyndir og leirverk,“ segir um Valbrá í Kling & Bang.
Sigurður Verkin vöktu „samtímis vitund um líkamleika og efni og skynjun
andlegra vídda og nálægðar handanheima,“ segir um sýninguna Innljós.
Anna Júlía
Friðbjörnsdóttir
Egill
Sæbjörnsson
Hulda
Vilhjálmsdóttir
Sigurður
Guðjónsson