Morgunblaðið - 15.02.2018, Qupperneq 41
Virtur Bonaventure S. B. Ndikung.
Annar gestur í röð Umræðuþráða
Listasafns Reykjavíkur í Hafn-
arhúsi í ár er sýningarstjórinn Dr.
Bonaventure Soh Bejeng Ndikung
og heldur hann fyrirlestur í safninu
í kvöld kl. 20.
Ndikung er sjálfstætt starfandi
sýningarstjóri og líftæknifræð-
ingur, stofnandi og listrænn stjórn-
andi listamiðstöðvarinnar SAVVY í
Berlín og ritstjóri samnefnds tíma-
rits sem fjallar um afríska samtíma-
list. Hann var einn sýningastjóra
Documenta 14 í Kassel í Þýskalandi
í fyrra. Ndikung hefur kennt og
haldið fyrirlestra víða um lönd og
þá m.a. í Aalto-háskólanum í Hels-
inki, Art Basel, Villa Arson í Nice,
Muthesius Kunsthochschule í Kiel
og á Gwangju-tvíæringnum.
Umræðuþræðir er samstarfs-
verkefni Listasafns Reykjavíkur,
Kynningarmiðstöðvar íslenskrar
myndlistar og Listaháskóla Íslands
og frá árinu 2012 hefur listamönn-
um, fræðimönnum og sýninga-
stjórum sem njóta viðurkenningar
verið boðið hingað til lands á veg-
um verkefnisins.
Ndikung gestur Umræðuþráða
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Íslenskar ástarsögur verða í öndvegi
í Hannesarholti í kvöld, í tali og tón-
um. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir,
söng- og leikkona, og Karl Olgeir Ol-
geirsson píanóleikari munu flytja vel
valin íslensk ástarlög á milli þess
sem Katrín Jakobsdóttir, bók-
menntafræðingur og forsætisráð-
herra, mun fræða gesti um sögu ís-
lenskra ástarsagna og bjóða upp á
leiklestur úr nokkrum sögum, m.a.
tveimur eftir Jón Thoroddsen, Pilti
og stúlku og Manni og konu, með
leikaranum Ævari Þór Benedikts-
syni.
„Við Kata erum vinkonur úr
menntaskóla og okkur hefur alltaf
langað að gera eitthvað saman. Fyr-
ir um tíu árum var hún með fyr-
irlestur um íslenskar ástarsögur í
Keflavík og þá leiklas ég og Jana
María flutti tónlist. Og núna langar
okkur að gera þetta aftur og Kata
ætlar að prófa að leiklesa á móti Æv-
ari vísindamanni og það liggur bein-
ast við að við Kalli sjáum um tónlist-
ina,“ segir Sigríður Eyrún þegar
hún er spurð að því hvernig þetta
þemakvöld hafi komið til.
Einu erlendu laumað inn
Ævar er þekktur sem barnabóka-
höfundur og þáttagerðarmaður í
sjónvarpi en færri tengja hann lík-
lega við það starf sem hann er
menntaður í, leiklist. „Hann er rosa
flottur leikari og okkur vantaði ein-
hvern til að lesa,“ segir Sigríður Ey-
rún um Ævar. Sem fyrr segir munu
Ævar og Katrín lesa upp úr tveimur
bókum eftir Jón Thoroddsen og
nýrri bókum en betra er að halda því
leyndu hverjar þær eru, fyrir þá sem
vilja láta koma sér á óvart.
En hvaða lög ætla þau Karl að
flytja?
„Við erum aðallega búin að velja
íslensk lög, eitt erlent fær að lauma
sér inn á milli. Við ætlum að flytja
svolítið eftir Magga Eiríks, t.d.
„Draumaprinsinn“, eitt lag eftir
Megas, „Tvær stjörnur“ og „Some-
where“ úr West Side Story eftir
Bernstein og Sondheim,“ nefnir Sig-
ríður sem dæmi. „Þetta er eldgamalt
í bland við nýlegra.“
– Þetta verður ákaflega róm-
antískt kvöld, er það ekki?
„Jú og það er tilvalið að splæsa í
miða handa ástinni sinni og svo er
líka geggjaður matur alltaf í Hann-
esarholti og líka æðislegt kaffihús.
Þetta er yndislegt hús að koma í,“
svarar Sigríður. Miðasala fer fram á
Tix.is en vilji fólk snæða kvöldverð
áður er mælt með borðapöntunum í
síma 511-1904 eða meðpósti á hann-
esarholt@hannesarholt.is. Ástar-
sagna- og lagadagskráin hefst kl. 20.
Ást í tali og tónum
Ástin verður við völd í Hannesarholti í kvöld Forsætis-
ráðherra tekur þátt í dagskránni sem bókmenntafræðingur
Morgunblaðið/Eggert
Músíkölsk Karl Olgeir Olgeirsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir verða á rómantískum nótum í Hannesarholti.
Katrín
Jakobsdóttir
Ævar Þór
Benediktsson
Lindy hop-vetrardanshátíðin Lindy
on Ice verður haldin í fyrsta sinn á
Flúðum frá og með deginum í dag
til sunnudags og er búist við fjölda
erlendra og innlendra dansara, að
því er fram kemur í tilkynningu
vegna hátíðarinnar.
Hátíðin er sú fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi og verður boðið
upp á sóló-djass og Lindy hop-
kennslu fyrir byrjendur og lengra
komna undir leiðsögn þriggja af
fremstu sveifludönsurum heims,
segir í tilkynningunni og að tvær af
frambærilegustu sveifluhljómsveit-
um landsins, Siggi Swing & His
Bluesberries og HG Quintet með
Hauk Gröndal í fararbroddi, muni
leika fyrir dansi öll kvöld hátíð-
arinnar. Með þeim verður ástralski
saxófón- og klarínettleikarinn
Adrian Cunningham sem er marg-
verðlaunaður djasstónlistarmaður
sem leiðir eina eftirsóttustu Lindy
hop-hljómsveit heims.
Auk danskennslu og dansleikja
verður gestum boðið upp á útsýn-
isferðir um helstu kennileiti Suður-
lands, slökun í heitum náttúrulaug-
um, gönguferðir um nágrennið og
ef vel viðrar, verður hægt að dansa
undir berum himni við sindrandi
norðurljós, eins og segir í tilkynn-
ingu. Félagsheimilið á Flúðum
verður aðalvettvangur hátíðar-
innar en lokadansleikur hennar fer
fram í Iðnó í Reykjavík á sunnu-
dagskvöld.
Lindy hop hefur verið dansað um
allnokkurt skeið á Íslandi og á ræt-
ur að rekja til Harlem í New York á
þriðja áratug síðustu aldar.
Í sveiflu Lindy Hop dansinn varð til í Harlem í New York á þriðja áratug síðustu aldar og
voru það þeldökkir íbúar hverfisins sem stigu hann við sveiflutónlist þess tíma.
Lindy hop-danshátíð haldin á Flúðum
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 7.50
Sýnd kl. 10.30Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 9 - FORSÝNING
Sýnd kl. 5.30