Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 44
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Réðst á konu eftir að hafa fengið …
2. Fangi lést á Kvíabryggju í gær
3. Hilmir Snær tekur við af Stefáni Karli
4. Villingurinn í dönsku höllinni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Verðlaunakvikmyndin Svanurinn,
sem byggð er á samnefndri skáld-
sögu Guðbergs Bergssonar, verður
sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl. 20 að
Guðbergi og leikstjóra myndarinnar,
Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, við-
stöddum og munu þau svara spurn-
ingum úr sal að sýningu lokinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Spurt og svarað með
Ásu og Guðbergi
Kvikmynda-
klúbburinn Í
myrkri heldur
þriðja kvikmynda-
kvöld sitt í Kling &
Bang í Marshall-
húsinu í kvöld kl.
20. Klúbburinn
býður upp á reglu-
legar sýningar á
völdum heimildarmyndum og til-
raunakenndum kvikmyndum eftir
áhugaverða kvikmyndagerðarmenn
og að þessu sinni verða sýndar Two
Dreams Later eftir Pilar Monsell og
stuttmyndin Step Across the Border
eftir Nicolas Humbert og Werner
Penzel. Að kvöldinu standa Yrsa Roca
Fannberg, Ragnheiður Gestsdóttir og
Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir í sam-
vinnu við Kling & Bang-galleríið.
Þriðja kvikmynda-
kvöld Í myrkri
Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason
leikur nokkur lög af nýjustu plötu
sinni, Margt býr í þokunni, í Gallerí
Porti í kvöld kl. 21 og
verða um leið sýndar
teikningar sem Þránd-
ur Þórarinsson gerði
við lögin á plötunni.
Lög sín og texta vann
Snorri upp úr ís-
lenskum þjóð-
sögum.
Tónar og teikningar
Á föstudag Suðvestan 8-15 m/s og él, hvassast syðst, en hægari
og bjartviðri austanlands. Frostlaust við suður- og vesturströndina
en frost annars 1 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 8-15 m/s og skúrir
eða él, hvassast á Vestfjörðum en hægara og úrkomulítið suðvest-
antil. Suðvestan 8-13 með skúrum eða slydduéljum syðra í kvöld.
VEÐUR
Liverpool bauð upp á flug-
eldasýningu á Estádio do
Dragao-leikvanginum í
Porto í gærkvöld en liðið
burstaði Porto, 5:0, í fyrri
leik liðanna í 16-liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar í
knattspyrnu karla. Tvö ensk
lið standa þar með vel að
vígi í 16-liða úrslitum
keppninnar.
Á Santiago Bernabeu
hrósaði Real Madrid 3:1-
sigri gegn Paris SG. »2
Níu mörk í
tveimur leikjum
Martha Hermannsdóttir og stöllur
hennar í B-deildarliði KA/Þórs mæta
Haukum í undanúrslitum Coca Cola-
bikarkeppni kvenna í handknattleik
en dregið var til undanúrslita í gær.
Íslandsmeistarar Fram takast á við
öflugt lið ÍBV í hinum leik undan-
úrslitanna. „Ég á von á því að Ak-
ureyringar muni
fjölmenna í Höll-
ina til að styðja
við bakið á okk-
ur,“ sagði Ásdís Sig-
urðardóttir, leik-
maður KA/Þórs-
liðsins, í gær og var
hvergi bangin. »1
Efsta lið B-deildarinnar
dróst gegn Haukum
„Þessi leikur var í takt við þá síð-
ustu. Fyrri hálfleikur góður þar sem
mikið áræði var í leikmönnum en
svo brotnaði liðið í upphafi síðari
hálfleiks þegar Svartfellingar fóru
að spila fastar,“ sagði Ívar Ásgríms-
son, landsliðsþjálfari í körfuknatt-
leik kvenna, eftir 32 stiga tap fyrir
landsliði Svartfellinga í Podgorica í
gærkvöldi, 69:37. »3
Endurtekið efni hjá
landsliðinu í Podgorica
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dansinn dunar sem aldrei fyrr og
annan laugardag verður úrval dans-
ara, ásamt Brynju Pétursdóttur
danskennara, með danssýninguna
„Street Dans Carnival“, í Iðnó í
Reykjavík.
„Þetta er búið að vera draumur
lengi og ég set sýninguna upp sjálf,
fyrst og fremst áhugans vegna,“
segir Brynja, sem rekur og á dans-
skólann Dans Brynju Péturs, eina
street-dansskólann hérlendis. „Ég
er með nemendasýningar í skól-
anum mínum tvisvar á ári en mig
langaði til þess að setja upp sérsýn-
ingu sem er sérstaklega hönnuð
fyrir áhorfendur sem vilja sjá það
allra besta sem við höfum upp á að
bjóða.“
Street-dans hefur þróast á götum
og klúbbum í New York og fleiri
borgum síðan á áttunda áratug lið-
innar aldar. Brynja hefur kynnt sér
þar strauma og stefnur í dansinum
og undanfarin ár hefur hún verið
tíður gestur í New York til þess að
læra og dansa, m.a. í um fjóra mán-
uði í fyrra. „Sýningin okkar tekur
mið af því sem ég hef kynnt mér
erlendis, þar sem danshöfundar
koma saman og fá algjört sköp-
unarfrelsi,“ segir hún og leggur
áherslu á að dansinn sé í stöðugri
þróun. „Ég kem alltaf með eitthvað
nýtt í farteskinu þegar ég kem
heim frá New York. Þetta eru ein-
hverjar skemmtilegustu sýningar
sem ég hef séð og ég vil leggja mitt
af mörkum til að áhugafólk um
dans geti upplifað sömu hátíð-
arstemningu og á street-karnivali.“
Fastur liður
Sýningarhópur Brynju reið á
vaðið fyrir um ári og segir Brynja
að vel hafi tekist til. Þá komu fram
um 35 til 40 dansarar, bæði strákar
og stelpur, og verða þeir álíka
margir í ár. Flestir á aldrinum 16
til 25 ára en sú yngsta er 11 ára.
„Þetta var sérlega skemmtilegt í
fyrra og markmiðið er að þetta
verði fastur liður í menningar-
dagatali borgarinnar,“ segir
Brynja.
Brynja hefur verið sjálfstæður
danskennari í 14 ár og hóf rekstur
dansskólans 2012. Skólinn er nú á
átta stöðum í Reykjavík með yfir
600 nemendur og 18 kennara. Hún
sér um viðburðastjórnun og
utanumhald en Kristján Þór Matt-
híasson, unnusti hennar, hefur
haldið utan um fjármálin og skrán-
ingu frá vorönn í fyrra. „Krakk-
arnir æfa allt að sex sinnum í viku
og þeir sem taka þátt í þessari sýn-
ingu þurfa að leggja enn meira á
sig í um það bil mánuð fyrir
skemmtunina, en okkur finnst öll-
um spennandi að vinna að stækkun
danssenunnar á Íslandi,“ segir
Brynja. „Íslenski dansflokkurinn
hefur verið með frábærar sýningar
í Borgarleikhúsinu og mig langar
að koma með annan vinkil, þróa
hann og breikka þannig danssviðið
á Íslandi.“
Sýningin hefst klukkan 16 laug-
ardaginn 24. febrúar og eru miðar
komnir í sölu á tix.is. „Ég elska
andann í Iðnó, staðurinn er í hjarta
Reykjavíkur og tilvalinn fyrir þessa
skemmtun,“ segir Brynja.
Brynja breikkar danssviðið
Danssýningin
„Street Dans
Carnival“ í Iðnó
Ljósmynd/Árni Rúnarsson
Dans Brynju Péturs Frá danssýningunni „Street Dans Carnival“ í Iðnó í fyrra. Hún verður með svipuðu sniði í ár.
Stjórnandinn Brynja Pétursdóttir