Morgunblaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta var alveg mögnuð upplifun. Á
þessu námskeiði sá maður að okkar
sterkasta vopn í löggæslu núna er
menntun og tækjabúnaður. Það er
mikilvægt að fylgja eftir tækninni
og mennta fólkið okkar,“ segir
Ragnar Jónsson, rannsóknarlög-
reglumaður og sérfræðingur á sviði
blóðferla í tæknideild lögreglunnar.
Ragnar sótti á dögunum nám-
skeið hjá hinum virtu samtökum
The Association for Crime Scene
Reconstruction í Bandaríkjunum.
Auk þess að sækja fyrirlestra og
sitja í málstofu sat hann tvö nám-
skeið, annars vegar um skotstefnu-
rannsóknir og hins vegar um notkun
þrívíddarskanna við rannsókn á
upprunasvæði blóðferla.
„Þetta voru þrír heilir dagar og
kvöld. Ég var ekkert æstur að fara
heim,“ segir Ragnar en kvöldunum
var varið í að þátttakendur lögðu
mál fyrir kollega sína. Annað hvort
er um upplýst mál að ræða eða mál
sem eru til rannsóknar og leita þeir
þá aðstoðar hinna sérfræðinganna.
Ragnar lagði rannsóknir sínar úr
umfangsmiklu sakamáli sem skók
þjóðina fyrir kollega sína og mælt-
ust þær vel fyrir.
„Það að geta staðið þarna fyrir
framan 76 sérfræðinga og farið yfir
málið án þess að fá eina athugasemd
um að eitthvað hefði mátt gera bet-
ur eða eitthvað hefði mátt betur fara
er sannarlega klapp á öxlina fyrir
okkur á deildinni. Enda reyndi þessi
rannsókn á ofboðslega marga þætti.
Við vorum öll meira og minna á kafi
í tvo mánuði og skiluðum af okkur 3-
400 blaðsíðum af gögnum,“ segir
hann.
Meðal annarra mála sem kollegar
Ragnars tóku til umfjöllunar var
hryðjuverkaárásin í Stokkhólmi fyr-
ir ári síðan. „Það var Svíi þarna sem
fór yfir það og það var mjög flott
hvernig þeir unnu það. Þeir skönn-
uðu þessar götur með þrívíddar-
skanna og svo gat maður farið eftir
leið vörubílsins á tölvuskjá. Það var
rosalega flott,“ segir Ragnar en alls
voru átta mál til umfjöllunar, hvert
öðru hryllilegra að sögn Ragnars.
Að námskeiðinu og fyrirlestri
Ragnars loknum var honum boðin
innganga í The Association for
Crime Scene Reconstruction. Sam-
tökin rekja sögu sína aftur til 1991
og í þeim eru sérfræðingar á sviði
glæpa- og vettvangsrannsókna. Alls
eru um 200 félagsmenn í samtök-
unum, flestir Bandaríkjamenn en að
undanförnu hefur færustu rannsak-
endum í öðrum löndum verið boðin
innganga. Ragnar viðurkennir að
sér sé mikill heiður sýndur.
„Já, þetta er stóra sviðið. Það get-
ur ekkert hver sem er labbað þarna
inn. Ég fæ inngöngu af því ég hef
starfað sem blóðferlasérfræðingur í
15 ár og er viðurkenndur sem vitni
fyrir Hæstarétti.“
Tengslanetið mikilvægt
Hann segir að það mikilvægasta
við samtökin sé tengslanetið. „Nú er
ég kominn með 200 tengiliði sem ég
get sent tölvupóst eða hringt í og
fengið aðstoð. Tengslanetið er svo
ofboðslega mikilvægt. Ég hef verið
að segja vinnufélögunum að ég fari
ekki einn á næsta námskeið. Fingra-
farasérfræðingar og brunasérfræð-
ingar okkar eiga að koma líka og
hitta aðra sérfræðinga. Það er svo
mikilvægt að geta sest niður og far-
ið yfir mál. Ég sá til dæmis þarna að
í gömlu máli okkar voru atriði sem
við hefðum getað farið öðruvísi að.
Það hefði ekki haft áhrif á nið-
urstöðuna eða rannsóknina, við
hefðum bara getað gert aðeins bet-
ur.“
Hvernig kemur það til að þú verð-
ur sérfræðingur á sviði blóðferla?
„Þetta byrjaði árið 2001. Þá var
ég í tæknideild en hafði áður verið í
ofbeldisbrotadeild. Eitt af hlut-
verkum þar var að sinna andláts-
rannsóknum. Mig langaði að bæta
mig á þessu sviði og fann námskeið í
lögregluháskóla í Flórída, Death and
Injury Investigation, sem hljómaði
áhugavert. Þetta var stórgott nám-
skeið og þarna var heill dagur til-
einkaður blóðferlum. Meðal annars
með rannsakanda sem hafði verið 20
ár í NCIS, hernum. Ég varð bara svo
heillaður af þessu. Þetta er svo mikil
áskorun. Þú kemur á vettvang og
einhver er látinn. Gerandinn er ekki
á staðnum. Þú hefur enga frásögn
um atburðarás en blóðið getur sagt
þér heilmikið um hvað gerðist,
hvernig það gerðist og hvað gerðist
ekki. Það er svo rosaleg áskorun,“
segir Ragnar og bendir á að þetta
fag krefjist þess að maður fylgist vel
með til að viðhalda þekkingunni. „Þú
þarft að komast í mál, lesa mál til að
sjá hvað menn voru að gera og af
hverju þeir voru að gera það.“
Ragnar hefur nú starfað í 17 ár í
tæknideild lögreglunnar og segist
hafa lært eitthvað nýtt á hverju ein-
asta ári, sótt námskeið og fleira.
Hann er í forsvari fyrir norrænan
hóp blóðferlasérfræðinga og fundaði
með þeim í Helsinki á dögunum.
„Við vorum að setja okkur reglur.
Árið 2020 eiga nefnilega allar tækni-
deildir í Evrópu að vera orðnar ISO-
vottaðar. Allt verklag. Það er því
verið að leggja línurnar fyrir þetta
núna, til að mynda að enginn vinni
við greiningar nema hann hafi
ákveðna menntun og reynslu, og svo
framvegis. Ég fer í hæfnispróf á
næstunni þar sem ég fæ sendan disk
með mynd af blóðugum mynstrum.
Svo á ég að útskýra hvað er að sjá á
myndunum og hvað hafi gerst. Er
þetta dropi í dropa, er þetta yfir-
færslublettur?“ segir Ragnar og
bendir á að ekki sé auðvelt að ís-
lenska öll hugtök og heiti í blóðferla-
fræðunum.
Hann viðurkennir fúslega að hann
sjái hlutina ekki sömu augum og
aðrir vegna þessarar vinnu sinnar.
„Nei, þegar ég kem á einhvern
stað og það er mikið blóð þá segja
flestir að þetta sé nú hræðilegt. Það
fyrsta sem ég hugsa er að þetta sé
nú áhugavert,“ segir hann og hlær.
Hvað með sjónvarpið, er ekki erf-
itt að horfa á sakamálaþætti og sjá
vinnubrögðin einfölduð og afbökuð?
„Jú, ég held að ég sé ekki
skemmtilegasti félaginn til að horfa
á sjónvarpsþætti og bíómyndir með.
Ég er reyndar aðeins farinn að læra
að bíta bara stundum á jaxlinn og
þegja.“
Hvað með íslenska sjónvarps-
þætti, eru þeir raunverulegir?
„Þeir eru á leiðinni þangað. Mér
finnst þeir hafa tekið miklum fram-
förum,“ segir Ragnar sem einmitt
hefur starfað sem ráðgjafi við sjón-
varpsþætti á borð við Ófærð, Ham-
arinn, Hraunið og Rétt auk kvik-
myndarinnar Ég man þig. „Mér
finnst gaman að vinna með skapandi
fólki,“ segir hann um þessa vinnu.
Spennandi þrívíddarskannar
Morð eru sem betur fer ekki dag-
legt brauð á Íslandi og því sinnir
Ragnar fjölbreyttum rannsóknum
um allt land, eins og aðrir í tækni-
deild lögreglunnar.
„Við erum í hverjum einasta mán-
uði viðstödd krufningar. Það er al-
veg sama hversu oft maður kemur
niður á Barónsstíg – það skal alltaf
vera eitthvað nýtt sem maður er að
sjá eða læra.“
Hefur verkefnum fjölgað?
„Já. Nú síðast var verið að fjalla
um lyfjadauðsföll. Það er merkjan-
leg fjölgun í því að fólk sé að taka of
stóra skammta. Svo er skrítið, í ekki
stærri borg, að við erum að fara á
hverju einasta ári í fólk sem er búið
að vera látið lengi. Það er líka fjöldi
sjálfsvíga, ungt fólk sem er að gef-
ast upp. Mér finnst ágætt að minna
á þessa setningu: Gefðu morgundeg-
inum tækifæri. Sofðu á þessu, sjáðu
hvernig þú vaknar á morgun.“
Ekki má heldur gleyma auknum
fjölda ferðamanna hingað. „Það eru
öll umferðarslysin, sumir hrapa í
sjóinn og sumir koma hingað til
lands til að deyja. Það eru nokkur
þannig tilvik á hverju einasta ári.“
Þegar Ragnar er spurður um nýj-
ustu vendingar í glæparannsóknum
segir hann að þrívíddarskannar séu
mest spennandi.
„Það eru allir komnir með þrí-
víddarskanna núna. Þarna úti feng-
um við að sjá handskanna sem var
eins og iPad, þú horfir bara á það
sem þú ert að skanna. Þeir nota
þetta til dæmis ef það finnst lík í
vegkanti. Þá skanna þeir vettvang-
inn og eftir þrjár mínútur geta þeir
skoðað líkið og vettvanginn frá öll-
um hliðum. Þetta er með ólíkindum.
Það þurfti öll embættin á landinu
til að fjármagna skannann sem við
eigum. Verkefnum hefur fjölgað eft-
ir að hann kom til sögunnar hjá okk-
ur enda er gríðarlega gott að geta
skannað vettvang. Hvert skann tek-
ur svona 4-5 mínútur og við tökum
kannski 6-7 skönn á hverjum slysa-
vettvangi. Svo komum við hingað
inn á tæknideild og erum fljótir að
raða saman mynd af vettvanginum.
Þetta verður bara eins og ljósmynd í
þrívídd og það er gott að geta heim-
sótt vettvanginn aftur.“
Ragnar viðurkennir það fúslega
að hann myndi vilja sjá betri tækja-
kost við rannsóknir sínar. „Það er
ekkert launungarmál að draumur
minn er að tæknideildin verði sjálf-
stæð ef verkefnunum heldur áfram
að fjölga.“
Heillaður af blóðferlarannsóknum
Ragnar Jónsson hlaut á dögunum inngöngu í virt samtök sérfræðinga á sviði glæpa- og vettvangs-
rannsakenda í Bandaríkjunum Getur fyrir vikið leitað aðstoðar 200 kollega sinna úti í heimi
Ragnar segir að á námskeiðinu
úti hafi verið talað svolítið um
CSI-áhrifin, þær hugmyndir sem
fólk hefur úr sjónvarpsþáttum,
að allt sé mögulegt í hans
starfi.
„Það er ætlast til þess að við
getum allt. Ég verð nú ekki mik-
ið var við það hér heima en hef
þó rekist á einstaklinga sem
spyrja hvort maður geti tekið
fingrafar af tölvusnúru eða ein-
hverju álíka. Nei, segir maður og
fær þá á móti að fólk hafi séð
það í sjónvarpinu.“
Ertu ekki kallaður Dexter á
kaffistofunni?
„Nei. Ég hef reyndar stundum
grínast með það við krakka í há-
skólanum að ég sé kallaður
Raxter. En ég er ekkert að drepa
fólk á kvöldin.“
Raxter,
ekki Dexter
CSI-ÁHRIFIN VEL ÞEKKT
Morgunblaðið/Hari
Á rannsóknarstofunni Ragnar Jónsson hefur starfað við blóðferlarannsóknir síðustu 15 árin.
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf