Morgunblaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
✝ Björn StefánGuðmundsson
fæddist á Reyni-
keldu á Skarðs-
strönd í Dala-
byggð 18. mars
1939. Hann lést á
sjúkrahúsinu á
Akranesi 7. mars
2018. Foreldrar
hans voru hjónin
Helga Björns-
dóttir, f. 29. des-
ember 1896, d. 6. september
1949, og Guðmundur Jóhann-
esson, f. 23. janúar 1906, d. 1.
febrúar 1986.
Systkini Björns voru Eirík-
ur, f. 1935, d. 1946, og Mar-
grét Kristín, f. 1940, d. 1988.
Björn kvæntist árið 1962
Auði Tryggvadóttur, f. 1943,
d. 2009, en þau skildu. Börn
þeirra eru 1) Helgi Guð-
mundur, f. 1961, maki Kristín
Emilsdóttir, f. 1966. Börn
þeirra eru a) Hlynur, f. 1991,
b) Heiðrún Björk, f. 1992,
maki Brynjar Örn Jensson, f.
1988, og er dóttir þeirra
Katla Sól, f. 2018, c) Álfrún
Lind, f. 2005. 2) Guðbjörg, f.
1962, maki Haraldur Guðni
skóla Íslands 1973. Hann
starfaði alla sína tíð við
kennslu bæði við Grunnskól-
ann í Búðardal og við skólann
á Laugum í Sælingsdal. Hann
var bóndi á Reynikeldu á ár-
unum 1957 til 1964 og var
jafnframt verslunarstjóri við
útibú Kaupfélags Stykkis-
hólms í Skarðsstöð á árunum
1958-1963. Björn var formað-
ur Ungmennafélagsins Vöku í
Skarðshreppi um nokkurra
ára skeið. Jafnframt var hann
formaður Ungmennasambands
Dalamanna og ritari þess.
Hann var kórstjóri barnakóra
um áralangt skeið og söng
með kirkjukórum. Björn var
einn af stofnendum Tónlistar-
skólans í Búðardal og var
kennari þar um tíma og sat
fyrstu árin í skólanefnd hans.
Björn hóf ungur hljóðfæra-
leik á dansleikjum í Dölum og
nærsveitum. Eftir hann liggja
ljóðabækurnar Sæll Dagur og
Vinur minn missti vitið og auk
þess er óútgefið mikið af efni
eftir hann, bæði ljóðum og
smásögum. Fjölmörg verk
Björns hafa birst í blöðum,
tímaritum og á hljómdiskum.
Björn var jafnframt einn af
frumkvöðlum í skógrækt í
Dölum.
Útför Björns verður gerð
frá Hjarðarholtskirkju í Döl-
um í dag, 17. mars 2018, og
hefst athöfnin klukkan 14.
Bragason, f. 1947,
d. 2009. Börn
þeirra eru a) Auð-
unn, f. 1990, maki
Áslaug Dís Bergs-
dóttir, f. 1990, og
er barn þeirra
óskírður drengur,
f. 2018, b) Helga,
f. 1992, maki
Heiðrún Fivelstad,
f. 1994, c) Mar-
grét, f. 2000. 3)
Elísabet Björg, f. 1963, maki
Jón E. Sigurðsson, f. 1968.
Barn Elísabetar og Rögnvald-
ar Pálmasonar er Pálmi, f.
1980, og barn Elísabetar og
Jóns Skúla Sigurgeirssonar er
Stefán Geir, f. 1990, maki
Berglind Anna Víðisdóttir, f.
1992, og er sonur þeirra Bald-
ur Tristan, f. 2012. Stjúpbörn
Elísabetar og börn Jóns eru
Sigurður Einar, f. 1996, Marta
María, f. 1998, og Súsanna
Erna, f. 1998.
Sambýliskona Björns frá
árinu 1999 var Elín Sóley Sig-
urðardóttir, f. 1935, d. 2010.
Björn lauk námi frá Héraðs-
skólanum á Laugarvatni 1955
og kennaraprófi frá Kennara-
Líf okkar í þessum mann-
heimi er upphaf og endir mis-
langt en eftir því hvað ferðalag-
ið hefur staðið lengi.
Fallinn frá vinur minn Bjössi
kennari, sem hann oftast var
kallaður, eftir sitt ferðalag.
Undir það síðasta var hann
greindur með ógleymisminni
sem var farið að koma æ betur í
ljós en hann hélt sínu fram í það
síðasta með sína göngu um
þorpið, mikill stafagöngumaður,
sporléttur, gamansamur og átti
létt með vísnagerð.
Og í mörg ár samdi hann
gamanmál á þorrablótum, fólk
beið spennt að vita um hvað yrði
fjallað á gamansaman hátt.
Við áttum samleið í söng í
mörg ár með nokkrum félögum,
margt áttum við sameiginlegt
sem við færðum með okkur yfir
á aðra braut sem gafst okkur
vel.
Þessa og margs fleira er að
minnast í lok ferðalags, það
ferðalag er leiðir nú skiljast.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson)
Við fjölskyldan kveðjum vin
sem setti svip á þetta samfélag.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Innilegar samúðarkveðjur til
Helga, Guggu, Elsu og afkom-
enda.
Baldvin Guðmundsson.
Hvað er ævi manns annað en
örskots stund í hringrás eilífðar-
innar? Minningar. Allar minn-
ingarnar. Þær hverfa ekki.
Geymdar í fylgsnum hugans, í
hjartanu, í tilfinningunum.
Þær skjótast upp ein eftir
aðra, kalla fram bros, trega, eft-
irsjá vegna alls sem er liðið og
kemur aldrei aftur.
Við Björn Stefán vorum bestu
vinir. Frá barnæsku. Lékum
okkur saman, sungum saman,
deildum leyndarmálum sem
enginn annar mátti vita. Við
röltum um tún og engi, fjöll og
mýrar. Veltum fyrir okkur lífs-
gátunni. Náttúran var okkur
hugleikin, við tíndum ekki blóm
því að okkur fannst miður fal-
legt að rífa lifandi jurt upp að
óþörfu. Ég man svo vel; í skóla
á Reynikeldu þar sem Gugga
bjó til bestu kjötbollur í heimi,
þar sem Bjössi kenndi mér að
hjóla, ég mátti fara sjö ferðir á
dag frá hliðinu og niður að húsi,
þetta var náttúrulega splunku-
nýtt hjól og það þurfti aðeins að
spara. Og svo fannst Bjössa að
hann yrði að sýna mér Frakka-
nes, mér fannst það ansi langt
en Bjössi sagði að þetta væri
steinsnar svo við lögðum af stað,
mýri alla leið, óralangt, komum
uppgefin heim. Guðmundur far-
inn að svipast um eftir okkur.
Nefndi að leiðin væri hættuleg
og við heppin að lenda ekki í
botnlausu dýi.
Tíminn leið hratt. Allt í einu
vorum við orðin táningar, Bjössi
farinn að spila á harmonikku,
ball á Röðli. Björn Stefán í
horni salarins og spilaði af
hjartans list, hann var tónlistar-
maður af Guðs náð. Með falleg-
ustu rödd sem ég hafði heyrt,
kunni öll lög, alla texta og svo
fór hann að búa til kvæði og
smátt og smátt komst samfélag-
ið að því að Björn Stefán frá
Reynikeldu var stórskáld. Hann
hafði tök á öllum bragarháttum,
orti bæði í bundnu máli og
óbundnu.
Og svo var það einn sólskins-
dag í júlí fyrir nokkrum áratug-
um að við Bjössi og Trausti
ákváðum að skreppa í smá bíl-
túr, enduðum lengst úti á Snæ-
fellsnesi. Lentum í ógöngum,
festum bílinn, einhver dró okkur
upp, það var nefnilega ball,
hljómsveit úr Stykkishólmi,
stelpa að syngja sem fékk hjart-
að í Bjössa til að taka nokkur
aukaslög. Hún söng fullum hálsi
Stagger Lee, uppáhaldslag, við
dönsuðum eins og enginn væri
morgundagurinn. Og hvað kom
okkur svo sem við þessi
morgundagur?
Það var þá. Nú er nú og það
er sorg í hjarta mínu. Góði vinur
minn farinn til Guðs og orðinn
að engli, hann var reyndar alltaf
engill af einhverri tegund. Ég
heimsótti hann á sjúkrahúsið
fyrir skömmu, við lásum ljóð og
sungum Stagger Lee. Áttum
yndislega stund þrátt fyrir að
hann væri fárveikur.
Ég á von á því að Björn Stef-
án muni fljótt finna sér harm-
óniku þarna hinum megin við
regnbogann og spili og syngi
fyrir alla herskarana, þegar ég
kem tek ég gítarinn með og þá
munum við syngja okkar söngva
og það verður rokkað fram á
rauðan morgun.
Börnum, afa- og langafabörn-
um sendi ég mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Anna Fr. Kristjánsdóttir.
Björn Stefán Guðmundsson,
sem í mínum huga var alltaf
„Bjössi kennari“, er látinn. Ég
tel mig geta fullyrt að Bjössi
var elskaður og dáður af öllum
þeim börnum sem hann kenndi
um ævina. Hann var gegnheilt
góðmenni sem hafði þann sér-
staklega góða eiginleika að um-
gangast börn með virðingu og
þá virðingu fékk hann óskerta
til baka.
Ég skrepp í tímaflakk þegar
ég sit hérna og skrifa þetta. Fer
um það bil 40 ár aftur í tímann.
Verð aftur tæplega 10 ára stelpa
í skólanum í Búðardal. Það er
október 1976 og ég stend við
kennaraborðið í skólastofunni
sem er í raun ekki skólastofa
heldur efri pallurinn í salnum í
félagsheimilinu Dalabúð því á
þeim tíma var nýja skólahúsið
ekki tilbúið og skólinn enn rek-
inn í félagsheimilinu. Við höfð-
um verið að leysa eitthvert
verkefni, ég man ekki hvað það
var, kannski var það skyndipróf,
allavega sátu allir hljóðir í sín-
um sætum að leysa verkefnið og
ég gekk upp að kennaraborðinu
til að skila mínu verkefni, hafði
klárað snemma. Bjössi sat við
kennaraborðið og eins og venju-
lega byrjaði hann að spjalla um
daginn og veginn. Það voru ekk-
ert margir sem fannst taka því
að spjalla um daginn og veginn
við 10 ára stelpu. En Bjössi tal-
aði alltaf við okkur eins og full-
orðið fólk. Spurði okkur hvernig
við hefðum það og hvað væri að
frétta af fólkinu okkar. Þennan
morgun þar sem allir sátu ein-
beittir að klára verkefnið sitt þá
hvíslar hann og spyr mig eins
og svo oft áður hvað væri að
frétta af honum afa mínum. Og
ég hvísla á móti eins og satt var,
„hann dó í gær“. Ég gleymi því
aldrei hvað honum brá mikið og
ég fékk samstundis samviskubit
yfir því að hafa flutt honum
fréttirnar á ónærgætinn hátt.
Mér hafði fundist ég þurfa að
segja honum frá sviplegu fráfalli
afa míns strax og ég mætti í
skólann um morguninn en ég
var óframfærin og hafði mig
ekki í það.
Uppáhaldið mitt í yngri
bekkjum grunnskóla var tón-
mennt sem Bjössi kenndi. Þá
spilaði hann á orgel og við sung-
um. Hann var mikill söngmaður
og setti á hverju ári fyrir árshá-
tíðina upp kór sem samanstóð af
öllum nemendum skólans, um 90
talsins. Og árshátíðin byrjaði
alltaf á því að kórinn söng undir
stjórn Bjössa.
Bjössi var mikið skáld og eft-
ir hann liggur mikið magn af
vísum og ljóðum. Hann gaf þó
ekki út nema að ég held tvær
ljóðabækur, en gerði meira af
því að stinga vísukornum í vasa
hjá samferðafólki sínu. Hann
var mikill listamaður og hafði
einhverja fallegustu rithönd sem
ég hef séð.
Ég minnist með mikilli hlýju
gamla kennarans míns og votta
Helga, Guggu, Elsu og þeirra
fjölskyldum mína dýpstu samúð.
Steinunn M.
Sigurbjörnsdóttir.
Í dag er borinn til grafar frá
Hjarðarholtskirkju í Dölum
Björn Stefán Guðmundsson,
kennari frá Reynikeldu á
Skarðsströnd. Ég vil hér með
nokkrum orðum minnast hans.
Björn kom til að kenna í Grunn-
skólanum í Búðardal haustið
1964. Ég hafði þá verið skóla-
stjóri skólans í tvö ár en þar
sem þetta var fyrir tíma fæð-
ingarorlofs og ég átti von á
þriðja barni mínu tók ég mér að
mestu frí frá kennslu næstu 2-3
árin. Björn tók við skólastjórn
og ég kenndi örfáa tíma á viku.
Björn var lipur í samskiptum og
urðum við góðir vinir. Björn
hafði gott lag á nemendum sín-
um og var alla tíð vinsæll kenn-
ari. Þegar nemendum fjölgaði í
skólanum var ég aftur í fullu
starfi og kenndum við Björn um
árabil við skólann. Við höfðum
stundum ólíkar skoðanir á hlut-
unum en áttum samt ágætt
samstarf.
Björn var góður hagyrðingur
og ljóðskáld og hafði gaman af
að gauka að samstarfsfólki sínu
hnyttnum vísum. Hann orti
einnig falleg ljóð og samdi jafn-
vel lög við þau. Hann skrifaði
smellnar smásögur sem hann
las gjarnan upp á skemmtunum.
Haustið 1971 bauð Kennarahá-
skóli Íslands upp á réttindanám
fyrir fólk sem kennt hafði fimm
ár eða lengur. Margir hvöttu
Björn til að fara í þetta nám og
gerði hann það og lauk kenn-
araprófi 1973. Hann kom aftur
til starfa í Búðardal og kenndi
þar í mörg ár en réði sig síðar
að Heimavistarskólanum að
Laugum í Sælingsdal þar sem
hann kenndi í nokkur ár. Björn
kenndi einnig við skóla á Húsa-
vík í 2-3 ár en kom síðan aftur
til starfa í Búðardal og lauk
starfsferli sínum þar.
Börn Björns stuðluðu að út-
gáfu tveggja ljóðabóka eftir
hann og einnig stóðu fyrrver-
andi nemendur hans að útgáfu
geisladisks með ljóðum og lög-
um eftir hann.
Björn var góður sögumaður
og átti til að færa frásagnir í
stílinn til að þær yrðu litríkari
og skemmtilegri. Enda sagði
hann að góð saga ætti ekki „að
gjalda sannleikans“.
Björn var músíkalskur og
hafði fallega söngrödd. Hann
söng í ýmsum kórum í héraðinu
og kenndi oft tónmennt. Hann
lét nemendur sína oft syngja í
tímum og lék þá undir á harm-
onikku. Meðan undirrituð var
skólastjóri við Grunnskólann í
Búðardal var það fastur siður að
nemendur komu saman á sal og
sungu og þá gjarnan við undir-
leik Björns, Kjartans Eggerts-
sonar og síðar Halldórs Þórð-
arsonar. Þá voru sungin
ættjarðarlög, dægurlög, gaman-
vísur og sálmar. Á þessum árum
kunnu nemendur fjöldann allan
af alls konar lögum.
Ég vil að lokum þakka Birni
samstarf og vináttu um áratuga
skeið og sendi börnum hans og
fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Björns Stefáns Guð-
mundssonar.
Þrúður Kristjánsdóttir.
Vorbjört er nóttin og víðáttan glitrar
Ég hugsa til þín og hjarta mitt titrar
Ég sé að þú sefur.
(Björn Stefán Guðmundsson)
Það var gott að eiga Bjössa
að vini. Er allt gott að frétta frá
Fagradal? Þannig spurðir þú
hvenær sem við hittumst. Þín
einlæga vinátta og tryggð var
áþreifanleg. Sigggróin hönd og
hlýja í augum. Kærleikurinn á
milli bæjanna okkar var dýr-
mætur og hann mun lifa. Þín
kynslóð vissi hvað fátækt var og
áföll í lífinu. Á Reynikeldu í
tærri fegurð Breiðafjarðar var
þín vagga og rót. Þar munu
verk þín lifa að eilífu sem og þín
hugverk og skógur. Þú varst
vinur litla mannsins og máttir
ekkert aumt sjá. Með sérstöku
þakklæti minnist ég áranna á
Laugum, í leik og námi varstu
klettur sem stýrðir leikverkum,
kórum og stórkostlegu fé-
lagsstarfi. Þú kenndir okkur að
binda inn fleira en bækur. Þú
kenndir okkur að skilja kjarn-
ann frá hisminu. Allir gátu leit-
að til Bjössa og hann sá strax
hverjir áttu undir högg að
sækja og voru hjálpar þurfi. Þitt
lífshlaup var að hlúa að og gefa.
Þakka þér fyrir vináttuna og við
sjáumst á ströndinni okkar.
Börnum þínum og fjölskyldum
sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys,
hnígur að Ægi gullið röðulblys.
Vanga minn strýkur blærinn blíðri
hönd,
og báran kveður vögguljóð við
fjarðarströnd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró. –
Kom, draumanótt, með fangið fullt af
friði og ró.
Syngdu mig inn í svefninn ljúfi blær.
Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan
vær.
Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd,
og leið mig um þín töfraglæstu
friðarlönd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró. –
Kom draumanótt, með fangið fullt af
friði og ró.
(Jón frá Ljárskógum)
Stefán Skafti Steinólfsson
frá Ytri-Fagradal.
Nú er hann Björn Stefán
Guðmundsson fallinn frá. Björn,
eða Bjössi eins og hann var kall-
aður, hafði það að ævistarfi að
kenna börnum og unglingum í
Dölum í 46 ár. Hann var kenn-
ari af einlægu hjarta, sem ávann
sér gjarnan traust og góðvild
nemenda sinna.
Kynni okkar Bjössa hófust af
alvöru árið 1993 þegar við unn-
um saman sem kennarar á
Laugum í Sælingsdal. Bjössi var
þá nánast á sama aldri og faðir
minn og ég að feta mitt fjórða
ár sem kennari. Við vorum sam-
an með heimavistargæslu á
fimmtudagskvöldum í þrjú ár.
Hann með umsjón með yngri
deildinni og ég þeirri eldri. Þeg-
ar börnin voru öll komin í ró að
kveldi settumst við gjarnan um
stund niður í eldhúsinu og maul-
uðum súkkulaði, sem skilið var
sérstaklega eftir handa okkur af
starfsfólki eldhússins. Þessi ein-
staka samvera einkenndist af
spjalli og skrafi um alla heima
og geima. Og þarna á þessum
fimmtudagskvöldum áttaði ég
mig á því að Bjössi var skáld.
Svo skildi leiðir um stund. Ég
flutti úr Dölum en í þá aftur
þrettán árum síðar, sem skóla-
stjóri í Auðarskóla í Búðardal.
Einn af allra fyrstu mönnum inn
á skrifstofu mína var Bjössi.
Hann kom færandi hendi; gaf
mér gamla námsbók frá fyrri
hluta tuttugustu aldar. Svo kom
hann reglulega við hjá mér eftir
það og alltaf flaug stund hratt í
spjalli okkar saman.
Ég var alla tíð áhugasamur
um ljóðin hans og einhvern veg-
inn atvikast það þannig að ég
með hvatningu frá Guðbjörgu
dóttur hans fer að aðstoða hann
við að gefa út ljóðabók. En þrátt
fyrir haug af ljóðum og sögum
hafði lítið verið gefið út eftir
Bjössa. Við unnum að þessu í
eitt og hálft ár með ýmsum
hléum. Hér kynntist ég Bjössa
nokkuð upp á nýtt, því ljóðin
hans lýstu oft á magnaðan eða
skoplegan hátt sýn hans á lífið.
Mörg ljóðanna var hann tilbúin
að ræða mikið en önnur lítið og
sum þau persónulegustu alls
ekki neitt.
Ljóðabækur Björns urðu
tvær: „Sæll dagur 2013“ og
„Vinur minn missti vitið 2015“.
Ekki urðu bækurnar fleiri í bili
en engu að síður liggur eftir
hann mikið magn af ljóðum og
smásögum sem gefur tilefni til
frekari útgáfu.
Bjössi unni einnig tónlist af
lífi og sál. Hann söng og spilaði
víða á skemmtunum og uppá-
komum þegar hann var yngri og
í kennslu og vinnu með börnum
notaði hann tónlist mikið. Hann
spilaði oftast á harmonikku en
einnig á píanó og trommur. Í
raun var hann sjálfmenntaður,
hæfileikaríkur listamaður, sem
túlkaði hjartslátt mannlífs og
náttúru í Dölum. Af efnivið ljóða
hans má sjá að hann leitaði iðu-
lega á náðir skáldskaparins í
óvæginni baráttu sinni við
myrkrið en lýsti einnig óviðjafn-
anlega þeim fögnuði og yl sem
fylgdi birtu lífsins.
Þótt Bjössi hafi nú yfirgefið
þennan heim þá verður minn-
ingin um hann engu að síður
sterk í hjörtum okkar sem hann
þekktu. Hans verður minnst sem
barnagóða kennarans, fjölhæfa
tónlistarmannsins, afkastamikla
skáldsins og geðþekka Dala-
mannsins sem heilsaði öllum
með breiðu brosi, hlýju handtaki
og orðunum „elskan mín“.
Aðstandendum votta ég mína
dýpstu samúð. Blessuð sé minn-
ing Björns Stefáns Guðmunds-
sonar.
Eyjólfur Sturlaugsson
Björn Stefán
Guðmundsson