Morgunblaðið - 17.03.2018, Blaðsíða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
ICQC 2018-20
P
ip
ar
\T
B
W
A
SAMKEPPNI
UM KÓRLAG
ALDARAFMÆLIS
FULLVELDIS
ÍSLANDS
Kórlaginu (í raddsetningu fyrir blandaðan kór án
undirleiks) skal skila á skrifstofu afmælisnefndar
Kirkjustræti 8 fyrir kl. 16, 20. júlí 2018 merkt
„Samkeppni um kórlag“. Verk sem berast eftir auglýstan
skilafrest verða ekki gjaldgeng í samkeppnina.
Þegar úrslit liggja fyrir verður tónskáldinu falið að
útsetja lag sitt fyrir blandaðan kór og sinfóníuhljómsveit
og verður greitt sérstaklega fyrir þá útsetningu lagsins.
Tillagan skal merkt dulnefni og nöfn höfunda eiga að
fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu.
Nánari upplýsingar og samkeppnisreglur er að finna
vefsíðu afmælisársins www.fullveldi1918.is og
www.sinfonia.is.
www.fullveldi1918.is
Afmælisnefnd í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir til samkeppni um
nýtt kórlag sem frumflutt verður 1. desember 2018 á hátíðardagskrá í Hörpu.
Kórlagið skal samanstanda af frumsömdu og óbirtu ljóði og lagi fyrir blandaðan kór.
Verkið skal hæfa tilefninu og henta vel til söngs. Verðlaunafé er 1.000.000 kr. sem skiptist
til helminga milli tónskálds og ljóðskálds.
Dómnefnd skipa fulltrúar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem fer með formennsku í dómnefndinni, Tónskáldafélags Íslands, Rithöfundasambands
Íslands, Félags tónskálda og textahöfunda, Félags íslenskra hljómlistarmanna og Ríkisútvarpsins, auk fulltrúa afmælisnefndar.
Ljóðatónleikar verða haldnir í
Hannesarholti á morgun kl. 17. Á
þeim flytja söngkonurnar Hlín Pét-
ursdóttir Behrens og Magnea Tóm-
asdóttir franska ljóðasöngva ásamt
Gerrit Schuil píanóleikara.
Á dagskrá er tónlist eftir Hector
Berlioz, Henri Duparc, Eric Satie
og Franz Liszt. Ljóðin snerta allt
lífið, hið stóra og smáa í tilverunni,
segir í tilkynningu. „Atburður,
augnatillit, tilfinningar sem rúmast
í einu augnabliki fela í sér sann-
leika heillar eilífðar,“ segir þar,
„blæbrigðarík efnisskrá með fjár-
sjóðum franskrar ljóðahefðar; Nu-
its d’été eftir Berlioz, Trois chan-
sons eftir Saite og valin lög eftir
Duparc og Liszt.
Aðgangseyrir er kr. 3.000 og fer
miðasala fram á tix.is og við inn-
ganginn.
Flytjendur Hlín Pétursdóttir, Magnea Tómasdóttir og Gerrit Schuil.
Tilfinningar sem rúm-
ast í einu augnabliki
Enski kvikmyndaleikstjórinn
Danny Boyle sagði í viðtali í vik-
unni að hann væri að skrifa handrit
næstu kvikmyndar um njósnarann
James Bond ásamt John Hodge.
Myndin verður sú 25. um njósnar-
ann. Boyle var spurður í sjónvarps-
viðtali út í verkefnið og staðfesti
hann að þeir Hodge væru að vinna
að handritinu samhliða öðru fyrir
leikstjórann Richard Curtis. Boyle
sagði að líklega myndu tökur á
Bond-myndinni hefjast í árslok og
að handritið væri byggt á frábærri
hugmynd. Þeir Hodge hafa unnið
saman að þremur kvikmyndum sem
Boyle leikstýrði, Trainspotting, T2:
Trainspotting og The Beach.
Boyle er með virtari leikstjórum
samtímans, hefur m.a. hlotið Ósk-
arsverðlaunin og forvitnilegt verð-
ur að sjá hvaða tökum hann tekur
007. Daniel Craig mun snúa aftur í
hlutverki njósnarans og að öllum
líkindum í síðasta sinn. Síðustu
kvikmyndir um Bond hafa notið af-
ar góðrar aðsóknar og fallið aðdá-
endum njósnarans vel í geð og þá
sérstaklega Skyfall. Aðalframleið-
andi Bond-myndanna hefur ekki
enn staðfest að Boyle muni leik-
stýra þeirri næstu en til stendur að
frumsýna hana 8. nóvember 2019.
Danny Boyle skrifar handrit næstu
Bond- myndar og leikstýrir henni einnig
AFP
Virtur Leikstjórinn Danny Boyle.
Sinfóníuhljóm-
sveit Mennta-
skóla í tónlist
heldur tónleika í
kvöld kl. 20 í
Neskirkju.
Hljómsveitin
leikur fjölbreytta
efnisskrá sem
samanstendur af
verkum eftir
W.A. Mozart,
C.P.E. Bach, H. Berlioz, J. Massenet
og Saint-Saëns. Einnig verður
frumflutt nýtt verk fyrir sinfóníu-
hljómsveit eftir Hjalta Nordal
Gunnarsson sem er hluti af stúd-
entsprófi hans frá skólanum. Hjalti
er einn af fyrstu nemendum skólans
til að útskrifast með stúdentspróf
en hann hefur stundað nám við
skólann með tónsmíðar sem aðal-
námsgrein. Einleikari á tónleik-
unum verður Kristín Ýr Jónsdóttir
flautuleikari og einsöngvari Sigrún
Ruth Lopez Jack en þær báru sigur
úr býtum í einleikarakeppni sem
haldin var innan skólans síðastliðið
haust. Stjórnandi á tónleikunum er
Joseph Ognibene.
Sinfóníuhljómsveit
frumflytur verk
Hjalta í Neskirkju
Hjalti Nordal
Gunnarsson
Tveir viðburðir
verða í Alþýðu-
húsinu á Siglu-
firði nú um
helgina.
Brák Jóns-
dóttir opnar sýn-
ingu í Kompunni
í dag kl. 15 og
Bergþór Morth-
ens verður með
kynningu á verk-
um sínum í Sunnudagskaffi með
skapandi fólki á morgun kl. 14.30.
Brák hefur dvalið í sýningarrým-
inu langtímum saman, rannsakað
galleríið og möguleika þess og
hversdagsleg nálgun, útvíkkun efn-
is og áferðar í rýminu fylltu hana
löngun til að leika sér með rifurnar
milli gólfborðanna, segir í tilkynn-
ingu. Bergþór mun segja frá eigin
verkum og þróun í sköpunarferli og
koma m.a. við sögu vendingar í
ferli málverksins, átök ólíkra stíla
og hræðsla við liti.
Brák og Bergþór
í Alþýðuhúsinu
Verk eftir Bergþór
Morthens
Á uppboði Gallerís Foldar á mánu-
daginn kemur kl. 18 verður meðal
annars boðið upp úrval eldri og
nýrra abstraktverka, til að mynda
málverk eftir Þorvald Skúlason frá
1973, málverk eftir Bernd Kober-
ling og fjögur olíumálverk eftir
Kristján Davíðsson.
Boðin verður upp skissa Nínu
Tryggvadóttur að altaristöflunni í
Skálholtskirkju og sérstök teikning
eftir Alfreð Flóka.
Í tilkynningu er einnig bent á að
áhugavert úrval grafíkverka verði
á uppboðinu, meðal annars eftir
Gunnlaug Scheving, Erró og Braga
Ásgeirsson, áritað þrykk eftir
Salvador Dalí og verkið Heimaey II
eftir Richard Serra.
Sýning á verkunum stendur yfir í
Gallerí Fold alla helgina og á vef-
síðunni myndlist.is.
Skissa Vatnslitamynd Nínu Tryggvadótt-
ur af altaristöflunni í Skálholtskirkju.
Fágæti á uppboði
Gallerís Foldar