Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.03.2018, Qupperneq 20
FRÉTTASKÝRING
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.3. 2018
ir. Á móti kemur að Vinstri grænir
eru ýmsu vanir og forystan hefur áð-
ur glímt við villiketti, eins og það er
stundum kallað,“ segir Baldur og
nefnir í því sambandi Steingrím J.
Sigfússon og Svandísi Svavarsdóttur,
auk formannsins, Katrínar Jakobs-
dóttur en þau sátu öll í ríkisstjórn Jó-
hönnu.
Ógnar ekki stjórnar-
samstarfinu
Baldur á þrátt fyrir allt ekki von á því
að hegðun Rósu Bjarkar og Andrésar
Inga muni tefla stjórnarsamstarfinu í
tvísýnu. „Þetta eru auðvitað um
margt ólíkir flokkar og eðlilegt að
menn takist á um málefni en sam-
starfið virðist eigi að síður ganga vel.
Maður sér ekki annað en að formenn
flokkanna gangi í þokkalegasta takti,
þrátt fyrir að þessir tveir þingmenn
standi fyrir utan. Það er auðvitað
betra að vera með 35 þingmanna
meirihluta en 33 en stjórnin getur
samt hæglega setið út kjörtímabilið í
skjóli hans,“ segir Baldur.
Grétar tekur undir þetta og bætir
við að ekkert bendi til þess að Rósa
Björk og Andrés Ingi hafi skipt um
skoðun í pólitík; þvert á móti virðist
þau vera sammála flokkssystkinum
sínum í flestum málum. Þau treysti
bara ekki Sjálfstæðisflokknum og
ráðherrum hans. „Það er ekki eins og
þau séu á móti öllu sem ríkisstjórnin
kemur fram með í þinginu. Ég get
ekki séð að þau séu yfirleitt að kjósa
öðruvísi en VG í
flestum málum,
þannig að
þau eiga
greinilega ennþá samleið með flokkn-
um, þrátt fyrir þann ágreining sem er
uppi um stjórnarsamstarfið. Þetta
eru ekki slettirekur úr allt annarri
átt. Það lá fyrir þegar stjórnin var
mynduð að meirihlutinn væri 35 mín-
us 2, alla vega í einhverjum málum,
og það hefur ekkert breyst. Stjórn-
arsamstarfið stendur ennþá styrkum
fótum og hegðun Rósu Bjarkar og
Andrésar Inga þarf ekki að trufla
samstarf flokkanna svo lengi sem
ekkert meira gerist. Um leið og einn
stjórnarþingmaður í viðbót fer að
hegða sér með sama hætti myndi
staða stjórnarinnar aftur á móti
þrengjast en á þessu stigi málsins
bendir ekkert til þess að það komi til
með að gerast.“
Eru sjálfum sér samkvæm
Spurður hvort líta megi svo á að
þingmennirnir tveir
séu á móti ein-
um stjórn-
arflokkanna
en ekki rík-
isstjórninni
Af pólitískum
villiköttum
Þ
egar ríkisstjórn Katrínar
Jakobsdóttur var mynd-
uð fyrir áramótin lá fyrir
að tveir þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs styddu hana ekki í
öllum málum og ættu vont með að
treysta öðrum samstarfsflokknum,
Sjálfstæðis-
flokknum.
Stjórnin var eigi
að síður á vetur
sett, enda meiri-
hluti hennar
óháður þessum
tveimur þing-
mönnum og fyrst
reyndi fyrir al-
vöru á þau Rósu
Björk Brynjólfs-
dóttur og Andrés
Inga Jónsson
þegar stjórnar-
andstaðan lagði
nýverið fram
vantrauststillögu
á Sigríði Á. And-
ersen dóms-
málaráðherra. Atkvæði þeirra voru
síst til þess fallin að lægja öldurnar á
stjórnarheimilinu en Rósa Björk og
Andrés Ingi studdu téða tillögu, sjálf-
stæðismönnum til lítillar fróunar.
Rýnum í stöðuna!
Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann á Ak-
ureyri, eru sammála um að staðan
sem Andrés Ingi og Rósa Björk eru í
sé vissulega sjaldgæf í íslenskum
stjórnmálum en alls ekkert eins-
dæmi. Ekki þurfi að fara lengra aftur
en til vinstristjórnar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, sem var við völd frá 2009-
13, til að finna dæmi um að líf ríkis-
stjórnar hafi hangið á bláþræði vegna
hegðunar og mótþróa stjórnarþing-
manna. Slík hegðun tengist þó oftar
einstökum málum frekar en stjórn-
arsáttmála eða stefnu stjórnarinnar í
breiðum skilningi. Eins og menn
muna þá gekk Ögmundur Jónasson
út úr þeirri ríkisstjórn. Hann sagði
sig þó aldrei úr flokknum og varð aft-
ur ráðherra seinna á kjörtímabilinu.
Ásmundur Einar Daðason, Atli
Gíslason og Lilja Mósesdóttir sögðu
sig hins vegar úr flokknum á sama
kjörtímabili og forysta VG þurfti að
hafa fyrir því að halda öðrum þing-
mönnum innan þingflokksins.
Eins og menn muna þá gekk á
ýmsu í samfélaginu á þessum tíma og
tekist var á um risavaxin mál, eins og
aðild að Evrópusambandinu og Ice-
save.
Sprottin af öðrum rótum
Annað dæmi um að þingmenn hafi
sagt sig úr flokki vegna stjórnarsam-
starfs var þegar Ingi Björn Alberts-
son og Hreggviður Jónsson gengu úr
Borgaraflokknum þegar hann bætt-
ist við ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar árið 1989. Mynduðu þeir
eigin flokk, sem nefndist Frjálslyndi
hægri flokkurinn og gekk hann
nokkru síðar inn í Sjálfstæðisflokk-
inn. Þá sagði Kristinn H. Gunnarsson
sig úr Framsóknarflokknum árið
2007 og gekk í Frjálslynda flokkinn
og fækkaði stjórnarþingmönnum þar
með um einn.
Uppreisnin innan þingflokks VG er
sprottin af öðrum rótum að þessu
sinni en kjörtímabilið 2009-13, að
dómi Baldurs. „Það var hinn íhalds-
sami armur VG sem var í uppreisn
gegn ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Rósa Björk og Andrés Ingi
eru á hinn bóginn fulltrúar frjáls-
lynda arms flokksins og áskorunin
sem forysta VG stendur frammi fyrir
á þessu kjörtímabili er sú hvort henni
takist að halda í þetta fólk, ekki bara
þingmennina tvo heldur líka almenna
flokksmenn sem fylgja svipaðri línu,
eða hvort það fái nóg og gangi til liðs
við annan flokk, til dæmis Samfylk-
inguna. Þessi frjálslyndi armur er al-
þjóðasinnaðri en íhaldssami arm-
urinn og vill almennt sjá meiri
breytingar á samfélaginu.“
Ekki í uppreisn gegn VG
Grétar segir stöðu Andrésar Inga og
Rósu Bjarkar að því leytinu sérstaka
að þau séu ekki í uppreisn gegn flokki
sínum og hans gildum heldur séu þau
einfaldlega á móti stjórnarsamstarf-
inu, einkanlega því að vinna með
Sjálfstæðisflokknum. „Þetta kom
skýrt fram í máli þeirra þegar stjórn-
in var mynduð og þess vegna þurfti
ekki að koma á óvart að þau skyldu
ekki greiða atkvæði gegn van-
trauststillögunni á Sigríði Á. And-
ersen dómsmálaráðherra,“ segir
Grétar.
Enda þótt Rósa Björk og
Andrés Ingi séu ennþá í þing-
flokki VG þá segir Baldur aug-
ljóst, með hliðsjón af því sem
á undan er gengið, að rík-
isstjórnin geti ekki treyst á
stuðning þeirra, allra síst í
erfiðum málum, jafnvel þó
þau hafi sagst myndu
verja stjórnina falli.
„Mann grunar að and-
rúmsloftið í þing-
flokknum sé lævi bland-
ið og þingflokks-
formaðurinn, Bjarkey
Olsen Gunnarsdóttir,
hefur raunar staðfest það
opinberlega. Það er
óvenjulegt að ekki sé
hægt að treysta á hluta
hópsins sem velur eftir
eigin geðþótta en ekki
flokkslínunni og spurning
hversu þolinmóður þing-
flokkurinn verður gagn-
vart því þegar fram í sæk-
sem slíkri segir Grétar alveg mega
gera það. „Ætli aðalatriðið í þessu sé
samt ekki það að þau hafa verið sjálf-
um sér samkvæm sem þýðir að stjórn-
in veit hvar hún hefur þau. Nú eða
hefur þau ekki.“
Grétar skilur vel að hegðun þing-
mannanna tveggja fari fyrir brjóstið á
samstarfsflokkunum, ekki síst Sjálf-
stæðisflokknum, en best sé þó fyrir
flokkinn að bölva í hljóði og sitja á
strák sínum; fórna þannig minni hags-
munum fyrir meiri.
Að dómi Grétars er þetta engin ósk-
astaða fyrir þingflokk VG; betra sé þó
að hafa samstarfið við þingmennina
tvo hálfa leið en alls ekki. „Það eru
ekki brýnir hagsmunir fyrir þing-
flokkinn að losna við þau enda þótt
þetta skapi nudd og einhverja
árekstra. Hefð er fyrir því að þing-
menn Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins haldi þétt saman í
stjórnarsamstarfi en VG hefur ekki
beinlínis þá sögu úr síðustu ríkisstjórn
sem flokkurinn sat í. Það var alveg
innistaða fyrir því hjá Jóhönnu Sig-
urðardóttur þegar hún talaði sem
frægt var um kattasmölun. Einmitt
þess vegna er flokknum í mun að sýna
að hann sé stjórntækur í þessari lotu.
Það yrði mjög vont fyrir VG spryngi
þetta stjórnarsamstarf í loft upp.
Hvað yrði um flokkinn þá?“
Þrennt gæti gerst
Hvað Andrés Inga og Rósu Björk
varðar segir Baldur þrennt geta
gerst á kjörtímabilinu. Í fyrsta
lagi að ástandið verði
óbreytt; það er að segja að
þingmennirnir tveir verði
áfram hluti af þingflokki
VG en greiði atkvæði eftir
eigin geðþótta og sann-
færingu, óháð vilja
flokksforystunnar. Í öðru
lagi að Rósa Björk og Andrés
Ingi fái á tilfinninguna að flokk-
urinn þeirra sé að fá meira út úr
stjórnarsamstarfinu en þau bjugg-
ust við og lýsi fyrir vikið yfir fullum
stuðningi við stjórnina. Í þriðja lagi
að þingmennirnir yfirgefi VG og
stofni nýjan þingflokk eða gangi til
liðs við annan flokk á Alþingi.
Af tveimur síðarnefndu kostunum
þykir Baldri líklegra að þau gangi úr
flokknum. Það mat byggir hann á því
Rósa Björk Brynjólfsdóttir
hefur verið alþingismaður
Suðvesturkjördæmis
síðan 2016 fyrir VG.
Tveir þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs styðja sem kunn-
ugt er ekki sáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og greiddu á dög-
unum atkvæði með vantrauststillögu á dómsmálaráðherra. Stjórnmálafræð-
ingar segja stöðuna sem upp er komin vegna þessara „pólitísku villikatta“
óvenjulega og snúna en ólíklegt sé þó að hún ógni stjórnarsamstarfinu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Grétar Þór Eyþórsson
Baldur Þórhallsson
Andrés Ingi Jónsson hefur
verið alþingismaður Reykja-
víkurkjördæmis norður
síðan 2016 fyrir VG.
Morgunblaðið/Eggert