Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.03.2018, Síða 21
25.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
að þau virðist einfaldlega standa
býsna langt frá hinum þingmönnum
flokksins. „Setji maður á sig spá-
mannsgleraugun er líklegra að þau
stofni nýjan þingflokk en að þau
gangi í annan flokk á þinginu, alla
vega fyrst um sinn. Mögulega myndu
þau svo ganga í annan flokk í aðdrag-
anda næstu kosninga, sækist þau á
annað borð eftir endurkjöri.“
Hafandi sagt það þá útilokar Bald-
ur alls ekki að Rósa Björk og Andrés
Ingi þrauki í VG fram að næstu kosn-
ingum og leggi verk sín þar með í
dóm almennra flokksmanna og próf-
kjörsnefnda. Freisti þess þannig að
styrkja sín sjónarmið innan flokks-
ins, sérstaklega þyki VG hafa farið
halloka í stjórnarsamstarfinu.
Úrsögn úr flokknum ólíkleg
Grétari þykir ólíklegt að Andrés Ingi
og Rósa Björk segi skilið við þing-
flokk VG á kjörtímabilinu; þau geti
einfaldlega haft meiri áhrif á gang
mála í þinginu innan hans en utan.
Bæði með setu sinni í nefndum og svo
á fundum þingflokksins sem veiti
þeim betri aðgang að upplýsingum.
Grétar segir sjálfstæðan vilja ein-
stakra þingmanna alltaf hafa með
þingstyrk viðkomandi stjórnar að
gera; þannig hafi ýmsir þingmenn
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í
„hrunstjórninni“ svonefndu, einkum
þeir yngri, átt það til að hlaupa út
undan sér og styðja ekki ákveðin mál.
Það hafi bara ekki haft svo mikil
áhrif, þar sem sú stjórn bjó að 40
manna meirihluta.
Svo má alltaf velta fyrir sér hvort
það sé ekki bara heilbrigt og eðlilegt
að þingmenn greiði atkvæði eftir eig-
in sannfæringu. „Það var mikil um-
ræða um flokksaga og sannfæringu
kjörtímabilið 2009-13 en hún leiddi
ekki til neinnar niðurstöðu. Ég er
hins vegar hræddur um að ef allir 63
þingmennirnir á Alþingi Íslendinga
ætluðu alltaf að fylgja sannfæring-
unni þá yrði landið varla stjórntækt.
Starf þingmannsins snýst alltaf um
málamiðlanir; menn gefa eftir hér til
að fá eitthvað á móti þar. Þannig
virkar lýðræðið,“ segir Grétar.
Eins og fram hefur komið hér að
framan þá virðist lausbeislun þing-
manna vera að aukast í seinni tíð.
Spurður hvort búið sé að gefa tóninn
fyrir framtíðina svarar Grétar: „Upp-
lausnin sem fylgdi hruninu gaf tóninn
og við getum dregið þá ályktun að
hún hafi losað um flokksaga og gefið
ólíkri hugmyndafræði og nálgun byr
undir báða vængi. Hver hefði til
dæmis búist við því að við yrðum með
átta flokka á þingi árið 2018? Það er
önnur birtingarmynd þessarar þró-
unar. Það er aldrei slæmt að ólík
sjónarmið séu uppi um það hvernig
stjórna eigi þessu landi en spurningin
er þessi: Hvenær kemur það til með
að ógna stöðugleikanum?“
Vatn á myllu Vinstri
grænna?
Að sögn Baldurs er ekki óalgengt að
ágreiningur um ríkisstjórnarsam-
starf rísi innan flokka á Norðurlönd-
unum og einstakir þingmenn lendi
fyrir vikið í sömu stöðu og Andrés
Ingi og Rósa Björk. Slíkt ástand sé
þó alla jafna algengara hjá flokkum
sem eru ekki „valdaflokkar“, rétt eins
og VG hér heima ef við lítum á Sjálf-
stæðisflokkinn og Framsóknarflokk-
inn, sem lengst hafa setið í ríkis-
stjórn, sem hina íslensku valda-
flokka. „Slíkir flokkar eru oftar en
ekki skipaðir hugsjónafólki sem á
ekki alltaf gott með að sætta sig við
málamiðlanir, eins og flokkar sem
vanir eru setu í samsteypustjórnum
þurfa iðulega að gera. Róttæki
vinstriflokkurinn í íslenskri pólitík,
VG og forverar hans, er ekki eins
vanur því að fara með fram-
kvæmdavaldið, eins og Sjálfstæð-
isflokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn, og þess vegna kemur ekki á
óvart að hann eigi í meiri erf-
iðleikum með að laga sig að að-
stæðum.“
Þessu tengt þá nefnir Baldur að
örlög síðustu ríkisstjórnar gætu orð-
ið vatn á myllu VG og þess vegna
Framsóknarflokksins líka. Sú stjórn
hafi meðal annars sprungið vegna
þess að litlu flokkarnir tveir, Björt
framtíð og Viðreisn, hafi ekki fengið
að njóta sín sem skyldi í samstarfinu
við Sjálfstæðisflokkinn, sem var
langstærstur. Þetta olli mikilli
óánægju í grasrót Bjartrar fram-
tíðar sem notaði fyrsta tækifærið
sem gafst til að slíta samstarfinu.
„Mér segir svo hugur að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi lært af þessu og fyr-
ir vikið komi smærri flokkarnir tveir
til með að fá meira fyrir sinn snúð á
þessu kjörtímabili en Viðreisn og
Björt framtíð á því síðasta. Í þessu
sambandi er ekki hægt að útiloka að
staða Rósu Bjarkar og Andrésar
Inga komi til með að halda sjálfstæð-
ismönnum ívið meira við efnið og
jafnvel framsóknarmönnum líka.
Þannig að VG gæti á endanum haft
hag af þessu öllu saman.“
„Ég vil biðja þingheim allan um að virða mér það
til vorkunnar að ég mun ekki greiða atkvæði með
þessari tillögu en tek undir það sem fram kom hjá
einum hv. þingmanni stjórnarandstöðunnar, að
það verður í minnum haft hvernig menn greiða
hér atkvæði á eftir,“ sagði Sigríður Á. Andersen í
umræðum um vantraust á hana á Alþingi.
Jóhanna Sigurðardóttir komst að
því í forsætisráðherratíð sinni að
það er snúið verk að smala köttum.
Þingið sett í fyrsta
sinn árið 2018
Alþingi kemur saman
eftir jólafrí
Morgunblaðið/Hari
Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er
þrifinn að innan sem utan,
allt eftir þínum þörfum.
Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Bónstöð opin virka daga frá 8-19,
Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll)
Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI