Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.03.2018, Qupperneq 25
25.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Sælkera-hnetusteik
á brauði með rauðrófum
ur (ekki verra að merja þær und-
ir klút, með buffhamri eða potti)
og bakið í ofni í 45 til 50 mínútur,
eða þar til allt er eldað í gegn og
og grunnurinn orðinn stífur við-
komu.
Til skrauts er hægt að nota það
sem er við hendina, til dæmis
rauðrófur eða kryddjurtir
RAUÐRÓFUR MEÐ APPELS-
ÍNU, CHILLI OG KANIL
Um 2 stórar glerkrukkur
2 kg rauðrófur
Kryddlögur
1 lítri af vatni
1 lítri eplasafi
650 g hrásykur
1 ferskt rautt chilli
rifinn börkur og safi af 1 appelsínu
1 kanilstöng
3 stjörnuanís
10 heil svört piparkorn
15 fennel-fræ
1 lítil handfylli af salti
Skolið rauðrófurnar og setjið
þær í pott með vatni og salti.
Sjóðið rauðrófurnar í 20–30
mínútur, þar til þær eru mjúkar
og sjóðið þær ekki of lengi. Sting-
ið í þær með litlum hnífi og at-
hugið að rauðrófur verða að vera
mjúkar en ekki ofsoðnar. Einnig
er mikilvægt að rauðrófurnar séu
af svipaðri stærð, þannig að þær
eldist jafnt og rétt. Skolið þær svo
undir kalda krananum og þá er
auðvelt að nudda hýðið af. Hægt
er að notað hanska (sem notaðir
eru fyrir matreiðslu) ef þið viljið
ekki fá rauðar hendur.
Svo er þeim raðað í krukkur
og sjóðandi kryddleginum hellt
yfir. Látið þær standa í tíu mín-
útur á eldhúsborðinu. Lokið
krukkunni vel og látið þær standa
í 3 daga í kæli áður en þið borðið
þær. Gott að skreyta með þunn-
um sneiðum af hráum rófum.
Borið fram á veganbrauði að
eigin vali.
GRÆNMETISSTEIK MEÐ
RAUÐRÓFUTENINGUM
60 g soðin quinoa-fræ (Inkakorn)
eða linsubaunir
150 g afgangs grænmeti
1 laukur og smá hvítlaukur
2 sellerístilkar
200 g sætar kartöflur eða grasker
2 greinar rósmarín
½ tsk cayenne-pipar
1 tsk paprikuduft
1 tsk þurrkað eða ferskt oregano
Salt og pipar og smá olía
2–4 stk sveppir
1 stk sítrónu- eða limebörkur
80 g þurrkuð trönuber
100 g þurrkaðar apríkósur
100 g blandaðar hnetur, svo sem
val-, kasjú-, hesli- og pekanhnetur
Forhitið ofninn í 180 gráður.
Gott er að smyrja formið og
setja líka bökunarpappír.
Eldið Inkakorn eða linsubaunir
samkvæmt leiðbeiningum á
pakka, setjið til hliðar og kælið.
Á meðan er grænmetið skorið
og sætar kartöflur í 1 cm bita
(það má skræla grænmetið).
Skrælið og saxið laukinn, ásamt
hvítlauk, og grófskerið selleríið.
Hitið 2 matskeiðar af ólífuolíu í
stórri pönnu á miðlungshita, bæt-
ið söxuðu grænmetinu við og
steikið (með rósmaríngreinum).
Bætið cayennedufti, paprikudufti
og oregano við. Kryddið með
salti og pipar og hrærið vel.
Lækkið svo aðeins hitann og eld-
ið í um 15 mínútur, eða þar til
það hefur aðeins mýkst. Skerið
sveppina gróft og bætið út á
pönnuna þegar um fimm mín-
útur eru eftir af eldunartím-
anum.
Takið pönnuna af hitanum.
Gott er að krydda með berki af
sítrusávexti. Setjið blönduna yfir í
stóra skál, hrærið síðan saman
við kælt Inkakornið (eða linsu-
baunir), þurrkaða ávexti og hnet-
„Smurbrauðið er af flestum talið
helsta framlag Dana til matar-
menningar heimsins. Sérstaða
þess felst í listilega smurðu opnu
brauði þar sem áleggið fær að
gæla við augað. Brauðið sjálft er
ýmist grófkorna súrdeigsrúgbrauð
(sem Danir eru afar stoltir af) eða
einfalt hvítt brauð, skorið þunnt,
gjarnan með skorpu. Þegar brauð-
ið hefur verið smurt er salatblað
oftast notað til að mynda fallega
undirstöðu undir frekara álegg af
ýmsum toga. Salatblaðið kemur
einnig í veg fyrir að brauðið blotni
upp og verði ólystugt með tím-
anum enda þarf það að geta hald-
ist lystugt tímunum saman þegar
það er notað sem nesti. Uppruna-
lega er talið að smurbrauðið hafi
þróast sem nesti á tímum iðnvæð-
ingarinnar upp úr miðri nítjándu
öld. Það var hádegisverður verka-
manna sem þurftu að vera að
heiman langa daga. Smurbrauðið
er fyrir vikið ríkuleg máltíð enda
kallað dags daglega „et stykke
mad“. Smurbrauðið er ávallt
borðað með hníf og gaffli.
Í seinni tíð hefur smurbrauðs-
menning Dana hafið sig yfir fátæk-
legan bakgrunn sinn og þróast
sem afar fáguð matseld. Brauðið
má kaupa á fínum veitingahúsum
og sérstökum smurbrauðs-
stöðum,“ segir á visindavefur.is.
Saga smurbrauðsins
Hin fullkomnaþrennaVel samsett boost, einusinni á dag, eykur orkuna,kemur meira jafnvægi áblóðsykurinn.
Candéa
Byggir upp og kemur
jafnvægi á þarma-
flóruna. Öflugt fyrir
ónæmiskerfði og vinnur
á candéa sveppnum.
Betri melting
Aukin orka
Öflugra ónæmiskerfi
Meltingin og þarmaflóran er grunnur að góðri heilsu
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Digest Spectrum
– einnig gegn fæðuóþoli
• Styður meltingu á glúteini, laktósa,
kaseini, próteini og baunum.
• Hentar vel þeim sem glíma við
ýmiskonar fæðuóþol.
• Viðurkennt af Autism Hope Aliance.
• Hentar allri fjölskyldunni,
tekið rétt fyrir mat.
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.