Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.03.2018, Side 35
25.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 14.-20. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Mið-AusturlöndMagnús Þorkell Bernharðsson
2 ÞorstiJo Nesbø
3 Vegurinn heim lengistFredrik Backman
4 KrítarmaðurinnC. J. Tudor
5 Flúraða konanMads Peder Nordbo
6
Konan sem át fíl og
grenntist (samt)
Margrét Guðmundsdóttir
7 Það sem að baki býrMerete Pryds Helle
8 UppruniDan Browm
9 Áttunda dauðsyndinRebeck Edgren Aldén
10 Köld slóðEmelie Schepp
1 Hin illa arfleifðThomas Enger
2 Hulduheimar 3 – SkýjaeyjanRosie Banks
3 Óvættaför 30 – AmiktusAdam Blade
4 Hvolpasveitin – Litabók
5
Lærðu að láta þér líða vel
Judith M.Glasser Ph.D./
Kathleen Nadeau Ph.D
6 Á SkyndihæðBenji Davies/Linda Sarah
7 Stóra bókin um HvolpasveitinaMary Tillworth
8
Bjarnastaðabangsarnir
sýna þakklæti
Stan & Jan Berenstain
9
Bjarnastaðabangsarnir
– Of mikið afmæli
Stan & Jan Berenstain
10
Bjarnastaðabangsarnir
– Of mikið sumarfrí
Stan & Jan Berenstain
Allar bækur
Barnabækur
Ég les og hlusta á bækur, kvölds og
morgna, og er með margar í gangi
í einu. Russell Brand lauk nýverið
fyrir mig lestri á nýj-
ustu bók sinni Reco-
very: Freedom from
Our Addictions sem
sló ferskan tón í
mínu eigin batalífi
frá áfengi. Bókin er
ætluð fólki sem vill hætta að
drekka eða misnota lyf og ég mæli
hiklaust með henni þótt fólk sé nú
þegar hætt.
Þýðing vinkonu minnar, Ing-
unnar Snædal, á bók
Xiaolu Guo, Einu
sinni var í austri, er
mögnuð bók um
konur í Kína sem ég
er með á náttborð-
inu en ég er líka að
hlusta á Beauty Myth eftir Naomi
Wolf sem fjallar femínískt um kon-
ur á Vesturlöndum. Báðar ómiss-
andi fyrir alla fem-
ínista.
Í námi með vinnu
les ég námsbækur af
miklum móð. Nú síð-
ast Samskiptafærni
eftir þá Hauk Inga og
Helga Þór sem leiða MPM námið
við Háskólann í Reykjavík. Hún er,
eins og hinar, ógleymanleg í sam-
hengi verkefnastjórnunarfræða.
ÉG ER AÐ LESA
Sara Stef.
Hildardóttir
Sara Stef. Hildardóttir, forstöðukona
bókasafns Háskólans í Reykjavík.
Í nafni sannleikans heitir ný glæpasaga eftir
Vivecu Sten. Líkt og fyrri bækur Sten gerist bók-
in í sænska skerjagarðinum, á eynni Sandhamn,
og helstu persónur eru æskuvinirnir lögfræðing-
urinn Nóra Linde og rannsóknarlögreglumað-
urinn Thomas Andreasson sem hefur snúið aftur
til starfa hjá lögreglunni. Þegar ungum dreng er
rænt úr siglingabúðum á lítilli eyju skammt frá
Sandhamn þurfa þau að leggjast á eitt um að
finna drenginn áður en það er um seinan. Ugla
gefur bókina út, Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Um áratuga skeið tók Halldór Laxness þátt í
þjóðfélagsumræðu og lá ekki á skoðunum sín-
um í ritgerðum og blaðagreinum samhliða
skáldskapnum. Í bókinni Landkostum – úrval
greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984
er úrval greina hans um svo ólíka hluti sem inn-
flutning á ávöxtum, endurreisn Þingvalla, ís-
lenskan landbúnað, virkjanir og náttúruvernd,
mannasiði, skógrækt, kaffidrykkju, gestrisni og
íslenskt mýrlendi. Halldór Þorgeirsson valdi
greinarnar. Vaka Helgafell gefur út.
Sænski rithöfundurinn Emelie Schepp ritar
glæpasögur sem gerast í Norrköping og í þeim er Jana Berzelius sak-
sóknari í aðalhlutverki. Í bókinni Köld slóð, sem
MTH gefur út, segir frá því er ung kona finnst lát-
in um borð í hraðlestinni frá Kaupmannahöfn til
Stokkhólms á aðallestarstöðinni í Norrköping
og reynist vera með eiturlyf innvortis. Ferða-
félagi hennar, önnur ung stúlka, er horfin spor-
laust út í myrkrið. Jana Berzelius fær málið til
rannsóknar og fyrr en varir flækist hún í at-
burðarás þar sem skuggaleg leyndarmál fortíðar
hennar minna á sig. Kristján H. Kristjánsson
þýddi bókina.
NÝJAR BÆKUR
Indverski rithöfundurinn Arundhati Roy er einhverharðasti gagnrýnandi heimalands síns og umdeildeftir því. Nýlega kom út hjá Forlaginu í þýðingu
Árna Óskarssonar bókin Ráðuneyti æðstu hamingju sem
tók hana tíu ár að skrifa. Þetta er önnur skáldsaga henn-
ar og sömuleiðis önnur bók hennar sem er gefin út á ís-
lensku en verðlauna- og metsölubókin Guð hins smáa
kom út árið 1998.
„Ég gæti ekki lifað með því í þessu landi ef ég myndi
ekki tala um hvað er í gangi. Ekki aðeins í Indlandi held-
ur út um allan heim er verið að búa til hagkerfi sem
breikkar bilið á milli fólks. Ég skrifa um hvernig þetta
kerfi er að rústa hinum viðkvæmu í þessu landi,“ sagði
Roy í nýlegu viðtali við AFP.
Ráðuneyti æðstu hamingju er „margbrotin, ágeng,
gáskafull og átakanleg saga frá Indlandi,“ segir í lýsingu
útgefanda. Frásögnin spannar mörg ár og söguþráð-
urinn vindur sig frá öngstrætum Gömlu-Delhi og breið-
strætum nýrra borgarhverfa til fjallanna og dalanna í
Kasmír, þar sem stríð er friður og friður stríð. Sagt er
frá fólki á jaðri samfélagsins.
Sumir gagnrýnendur hafa sagt bókina vera langa og
ruglingslega en Roy á svar við því. „Ég veit að sumir lýsa
þessu sem óreiðu en þessi óreiða er skipulögð,“ segir
Roy sem býst við því að lesendur hennar eyði góðum
tíma í að rannsaka nýju bókina.
Sagan sem stórborg
„Þetta er eins og að horfa á söguna eins og hún sé stór-
borg eins og Delhi. Það er í raun ekki bara hægt að lesa
Ráðuneyti æðstu hamingju heldur verður þú að kynnast
henni eins og þú kynnist borg, ganga yfir breiðstræti,
litlar götur, garða, yfirgefna staði,“ sagði hún.
Roy var 35 ára þegar hún gaf út frumraun sína, Guð
hins smáa, sem er indversk fjölskyldusaga sem vann
Booker-verðlaunin og seldist í meira en átta milljónum
eintaka í 42 löndum. Þá var henni lýst sem nýrri rödd
þessarar kynslóðar en biðin eftir næstu bók var löng. Í
millitíðinni gaf hún hinsvegar út fjölda ritgerða, sam-
tímasagna og heimildarmynda. Hún hefur verið áber-
andi í að mótmæla spillingu í ríkisstjórninni, barist gegn
þjóðernissinum og ójafnrétti og fyrir umhverfinu og
sjálfstæði Kasmír. Hún hefur verið valin á lista tímarits-
ins Time yfir 100 áhrifamestu manneskjur heims. Hún á
marga aðdáendur en líka gagnrýnendur sem finnst hún
óraunsæ draumóramanneskja. Hún hefur sætt ákæru og
setið í fangelsi og þurfti að flýja Indland stuttlega á síð-
asta ári vegna þess að hún óttaðist um líf sitt.
Roy segir að Indland hafi ekki skipst lengi upp í svona
andstæða póla eins og undir stjórn núverandi forsætis-
ráðherra, hindúans og þjóðernissinnans Narendra Modi.
Hún mótmælir ofbeldi gegn þeim sem berjast fyrir
sjálfstæði Kasmír, en hópur mótmælenda var nýlega
blindaður af lögreglu, og hún er verulega ósátt við upp-
gang bókstafstrúarfólks á Indlandi.
„Þetta getur ekki haldið áfram svona,“ varar hún við.
„Eitthvað mun rísa annað hvort úr algjörri eyðileggingu
eða einhvers konar byltingu. En þetta getur ekki haldið
svona áfram.“
Skipulögð óreiða
Nýjasta bók hins umdeilda indverska rithöfundar Arundhati Roy,
Ráðuneyti æðstu hamingju, var að koma út í íslenskri þýðingu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Arundhati Roy hafði ekki sent frá sér skáldsögu í 20 ár.
AFP
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt