Morgunblaðið - 07.04.2018, Side 13
Út úr skápnum – þjóðbúningana í
brúk er yfirskrift verkefnis Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands, sem hefur það
að markmiði að fá landsmenn til að
taka þjóðbúninga af öllu tagi út úr
skápunum og fram í dagsljósið. Á
morgun kl. 13-16, sunnudaginn 8.
apríl, er almenningi boðið að koma í
húsakynni félagsins, Nethyl 2e í
Reykjavík, með þjóðbúninga og bún-
ingahluta til skoðunar og mátunar án
endurgjalds. Á staðnum verða sér-
fræðingar í búningum og búninga-
silfri til ráðgjafar og ráðlegginga.
Hægt er að máta á staðnum og fá ráð
ef breytingar þarf að gera til að bún-
ingur passi. Einnig kjörið tækifæri til
að fá leiðbeingar um að festa skott-
húfur og hnýta peysufataslifsi. Allir
hjartanlega velkomnir.
Sérfræðingar í búningum og búningasilfri gefa góð ráð
Gersemar Heimilisiðnaðarfélagið hvetur ungar konur sérstaklega til að draga
fram fjölskyldugersemar og klæðast búningum formæðra sinna.
Leynist þjóðbúningur í skápnum?
Draglistamenn F.v. Atli Demantur, Neville Ingley, Kristrún Hrafnsdóttir, Bjarni Óskarsson, umsjónarmaður, og
Sigurður Heimir Guðjónsson. Draglistamennirnir hafa hver um sig þróað sinn stíl og tekið sér listamannsnafn.
nýjar hæðir með túlkun sinni í söng
og dansi í anda burlesque eða kabar-
etta með fjaðravængjum og öllu til-
heyrandi. Atli demantur, sem aldrei
er kallaður annað, er gríðarlega
orkumikill og tvímælalaust besti
dansarinn í hópnum. Hann hefur ein-
stakt lag á að fá fólk til að dansa,
syngja og skemmta sér.“
Í næsta bás við RuPaul
Sigurður Heimir segir að Atli
demantur sé lærður förðunarfræð-
ingur og hinum innan handar, en
annars sjá drottningarnar hver um
sig hvað förðun varðar eins og þær
eru vanar. Þótt Bjarni hvorki farði
sig né skrýðist kjól, hefur hann mik-
ilvægu hlutverki að gegna sem nokk-
urs konar umsjónarmaður ferð-
arinnar. „Hann ýtir okkur áfram og
er alveg bráðnauðsynlegur, meðal
annars sem reddarinn hlauparinn og
töskuberinn.“
Hópurinn er himinlifandi yfir að
hafa fengið úthlutað næsta bás við
RuPaul, sem er sá langstærsti á ráð-
stefnunni. „Við stöndum þar vaktina
saman og/eða til skiptis, blöndum
geði við gestina og sýnum þeim brot
af dragmenningunni á Íslandi,“ segir
Sigurður Heimir. Hann upplýsir að
Gógó hafi túrað um Bandaríkin og
kynnst þá nokkrum frægum, banda-
rískum dragstjörnum, sem hún von-
ist til að hitta aftur.
Dragdrottningarnar verða vita-
skuld í sínu fínasta pússi alla þrjá
daga ráðstefnunnar. „Eitt dress dug-
ir ekki til, við þurfum að hafa mörg til
skiptanna ásamt nóg af fylgihlutum.
Þökk sé flugfélaginu WOW, sem
styrkir okkur til fararinnar, þurfum
við ekki að hafa áhyggjur af yfirvigt-
inni.“ Af öðrum styrktaraðilum nefn-
ir hann ferðaskrifstofuna Pink Ice-
land og súkkulaðifyrirtækið Omnom.
„Sjálf sitjum við ekki auðum
höndum, því í kvöld höldum við
styrktarsýningu á Gauknum fyrir
fyrstu íslensku dragútrásina,“ segir
Sigurður Heimir og lofar frábærum
skemmtiatriðum, miklu ljósasjói, gliti
og glimmeri og a.m.k. 70 partíbomb-
um.
Styrktarsýningin From RVK to
LA er kl. 21-23.45 í kvöld, laug-
ardaginn 7. apríl, á Gauknum Nán-
ari upplýsingar facebook-síðu
Drag-Súgs.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Vörulyftur og varahlutir
frá sænska framleiðandanum
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Hollvinir tjarnarinnar eru óformlegur
hópur sjálfboðaliða á vegum Fugla-
verndar sem hafa árlega hist og tekið
til í friðlandi fugla í Vatnsmýrinni.
Sjálfboðaliðar hafa tínt rusl á svæð-
inu og lagt greinar í bakka til að
koma í veg fyrir landbrot og sinnt
fleiri verkum. Stefnt er að því að hóp-
urinn hittist kl. 13 í dag, laugardaginn
7. apríl, við Norræna húsið og taki
enn á ný til hendinni með því mark-
miði að gera svæðið aðlaðandi varp-
svæði fyrir endur og mófugla.
Sömu helgi, 7.-8. apríl er umhverf-
ishátíð í Norræna húsinu, frá kl. 13-17
báða dagana, og verður Fuglavernd
einnig með kynningu á félaginu þar.
Áhersla er lögð á hvernig hægt er að
sporna gegn matarsóun með því að
gefa fuglunum í garðinum matar-
afganga og það sem til fellur í stað
þess að þurfa að henda. Um 1.300 fé-
lagsmenn eru í Fuglavernd, sem er
aðili að samtökunum BirdLife Int-
ernational, sem vinna að verndun
fugla og náttúrusvæða í 120 löndum.
Friðlandið í Vatnsmýrinni er með
facebooksíðu.
Hollvinir tjarnarinnar á vegum Fuglaverndar
Ljósmynd/Dögg Matthíasdóttir
Fuglavinir Sjálfboðaliðar Fuglaverndar við tiltekt í friðlandi fuglanna í fyrra.
Sjálfboðaliðar taka til
í friðlandinu í Vatnsmýrinni
Morgunblaðið/Eggert
Jenny Purr Dragdrottning sem tekur kvenleikann upp í hæstu hæðir og
með túlkun sinni í söng og dansi í anda burlesque eða kabaretta.