Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 mér til að bæta heilsu fólks, en bara með öðrum leiðum.“ Landsmönnum fjölgar og meðalaldurinn hækkar Lögin skapa nokkuð skýran ramma utan um störf landlæknis og er hlutverk embættisins einkum að veita stjórnvöldum og almenningi ráðgjöf og fræðslu, annast forvarnir og heilsueflingu, vinna að gæðaþró- un, og hafa eftirlit með heilbrigðis- kerfinu og fólkinu sem þar starfar. Framkvæmd og stefnumótun er, þegar upp er staðið, í höndum ráð- herra og stjórnvalda, og landlækni því viss takmörk sett þegar kemur að því að kljást við þær mörgu áskoranir sem glíma þarf við á sviði heilbrigð- ismála. „Krefjandi verkefni eru fram- undan enda fer landsmönnum fjölg- andi og meðalaldur Íslendinga er á uppleið. Með hverju árinu eru líka gerðar meiri kröfur til heilbrigð- iskerfisins, eins og eðlilegt er, en á sama tíma þarf að vinna innan tiltek- ins fjárhagsramma, forgangsraða og fara vel með peningana,“ segir Alma þegar hún er spurð um áhersluatriðin þau fimm ár sem skipun hennar var- ir. Hún telur eitt helsta tækifæri heil- brigðiskerfisins fólgið í bættri lýð- heilsu. „Það er langbesta leiðin til að draga úr þörfinni fyrir heilbrigð- isþjónustu til lengri tíma litið að stuðla að heilbrigðari lífsháttum. Í dag vitum við svo miklu meira en áð- ur um þann mikla heilsufarslega ávinning sem hlýst með því að borða hollari mat, stunda reglulega hreyf- ingu, drekka í hófi, sleppa reykingum og iðka geðrækt. Allt þetta þarf að efla. Við þurfum þannig öll að líta í eigin barm og skoða hvað við getum gert til að efla eigin heilsu og spyrja okkur hvað við getum gert fyrir heil- brigðiskerfið, ekki bara hvað heil- brigðiskerfið getur gert fyrir okkur. Það er jú allra hagur.“ Af málaflokkum sem eru sér- staklega aðkallandi nefnir Alma mis- notkun lyfja og fíkniefna. Virðist sá vandi fara vaxandi og reglulega frétt- ir berast af fólki sem hefur fallið frá í blóma lífsins vegna fíknar og hættu- legra efna. „Þetta er vissulega öm- urleg staðreynd og málefni sem snertir okkur öll. En um leið er um flókið vandamál að ræða og einfaldar lausnir ekki í boði. Heilbrigðis- ráðherra hefur sett saman starfshóp sem skipaður er okkar fremstu sér- fræðingum á þessu sviði til að gera aðgerðaáætlun. Þetta er heilsufars- vandi sem landlæknisembættið mun svo sannarlega setja í forgang og m.a. það sem embættið getur gert til að stuðla að skynsamlegri notkun og ávísun lyfja.“ Mikil vöntun á fólki Íslenska heilbrigðiskerfið glímir líka við skort á starfsfólki og segir Alma að samkvæmt nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar séu yfir 200 stöðugildi hjúkrunarfræðinga ómönnuð, bæði við Landspítalann og hjúkrunarstofnanir úti á landi. Bend- ir Alma á að hluti af lausninni kunni að vera að hækka laun stéttarinnar en grunnlaun hjúkrunarfræðinga eru í dag 12% lægri en laun sambæri- legra stétta hjá BHM. „Laun hjúkr- unarfræðinga eru bundin af kjara- dómi til ársins 2019 en á sama tíma er góðæri í landinu og launaskrið og því ekki að furða að margir hjúkrunar- fræðingar hafi farið til annarra starfa,“ segir Alma. „Það þarf einnig að skoða vinnuskipulag almennt og mætti líka létta á þörfinni fyrir fleira starfsfólk með hnitmiðuðu umbóta- starfi og tilfærslu á störfum, þannig að ritarar gætu t.d. tekið við sumum störfum hjúkrunarfræðinga, og hjúkrunarfræðingar tekið við sumum störfum lækna þannig að vinnutíma sérfræðinga sé þannig varið að við nýtum sem best þá menntun sem þeir hafa.“ Alma er ekki fráhverf einkarekstri í heilbrigðiskerfinu en segir að vantað hafi skýrari stefnu um útvistun verk- efna. „Mikilvægt er að útvistunin sé á forsendum almannahagsmuna og sjúklingannna sjálfra og þyrfti að skilgreina betur hvaða þjónustu ríkið kaupir hverju sinni, bæði hvað varðar magn og gæði. Einkarekstur hefur kosti, eins og aukið aðgengi og val- frelsi fyrir sjúklinga og starfsmenn og að létta álagi af opinberum stofn- unum, en það má ekki skauta yfir gallana og t.d. er ekki gott í svona litlu landi að dreifa verkefnunum of mikið, þá sérstaklega sérhæfðum verkefnum. Það má alls ekki haga út- vistuninni þannig að við hættum á að veikja getu opinberra stofnanir til að sinna þeim hlutverkum sem þeim er ætlað að sinna.“ Alma vill leita lausna sem víðast og hana grunar að íslenska heilbrigðis- kerfið geti lært margt af kerfum ann- arra landa og að við getum tileinkað okkur það besta utan úr heimi. „Við erum þjóð sem býr við mikla hagsæld og góðar aðstæður hvað lýðheilsu varðar. Við erum líka vel upplýst og eigum frábærlega vel menntað starfsfólk í heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu, auk þess að vera ennþá frekar fámenn þjóð og ung. Ef að við getum ekki skipulagt góða heilbrigð- isþjónustu hver á þá að geta það?“ Besta sóknarfæri í bættri lýðheilsu  Mörg krefjandi verkefni bíða, segir Alma D. Möller, nýr landlæknir  Hjúkrunarstofnanir glíma við manneklu, mikið álag er á heilbrigðiskerfinu og deilt um hvaða stefnu væri farsælast að taka Morgunblaðið/Eggert Áskorun „Við þurfum öll að líta í eigin barm og skoða hvað við getum gert til að efla eigin heilsu og spyrja okkur hvað við getum gert fyrir heilbrigðiskerfið, ekki bara hvað heilbrigðiskerfið getur gert fyrir okkur. segir Alma. Undanfarin ár hefur lífleg um- ræða átt sér stað um hvort rétt sé að reisa nýjan spítala við Hringbraut, steinsnar frá núverandi Landspítala. Ölmu þykir umræðan missa marks og brýnt að framkvæmdum við Hringbraut ljúki sem fyrst. „Ég held að það séu liðin fimmtán ár síðan fyrst var byrjað að ræða um hvort og hvar ætti að reisa nýjar spítalabyggingar. Landspítalinn var í alvarlegum húsnæðisvanda þá, og ástand- ið orðið alveg óviðunandi í dag svo að málið þolir enga bið.“ Alma segir hægt að finna ótal rök bæði með og á móti staðsetningu nýrra spítala- bygginga. „Í fullkomnum heimi myndum við byggja nýjan spít- ala frá grunni á vel völdum stað, en það er ekki í boði lengur. Hringbraut hefur ítrek- að verið valin sem hentug staðsetning, jarðvegs- framkvæmdir þegar hafnar og það myndi tefja verkefnið um 10-12 ár til viðbótar ef ætti að fara að endurskoða staðarvalið á núna ,“ segir hún. „Hins veg- ar er skynsamlegt, þegar fram- kvæmdum verður lokið á Hringbrautarreitnum árið 2023, að við förum að huga að staðarvali fyrir næstu kynslóð spítala og þá jafnvel að við horfum marga áratugi fram í tímann.“ Framkvæmdir þola enga bið NÝR LANDSPÍTALI Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA Bolli Héðinsson formaður Samtaka sparifjáreigenda Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Gylfi Zoega prófessor í hagfræði við HÍ og Birckbeck College í Lundúnum VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það voru töluverð umskipti fyrir Ölmu D. Möller þegar hún tók við embætti landlæknis í byrjun mán- aðarins. Frá því hún höf störf sem læknir á Landspítalanum árið 1988 hefur Alma verið í eldlínunni, m.a. sem yfirlæknir á gjörgæsludeild og framkvæmdastjóri aðgerðasviðs en á sínum tíma var hún líka fyrsta konan til að starfa sem þyrlulæknir hér á Ís- landi. Alma er einnig fyrsta konan til að gegna embætti landlæknis hér á landi og í hópi sárafárra kvenkyns landlækna á heimsvísu. Þrátt fyrir að hún muni verja vinnudeginum á bak við skrifborð næstu árin lítur Alma samt á nýja starfið sem eins konar framlengingu af því gamla. „Ég hef mest starfað á gjörgæslunni þar sem við höldum fólki á lífi með alls kyns vélum og inn- gripum. Þar er gríðarlega mikið gert fyrir tiltölulega fáa sjúklinga, og um að ræða dýrasta form þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Þegar ég síðan fór í nám í lýðheilsustjórnun skrifaði ég um lýðheilsu út frá sjónarhóli gjör- gæslulæknis og áætlaði þar að um 70- 80% tilvika sem gjörgæslan sinnir tengist lífsstílstengdum atriðum, og sjúkdómum sem hægt væri að fyr- irbyggja. Bætt lýðheilsa er eitt af verkefnum landlæknisembættisins svo ég ég lít þannig á að ég muni halda áfram að nota læknagenin í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.