Morgunblaðið - 07.04.2018, Side 52
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Þrír vopnaðir verðir um borð
2. Fór inn í húsið fyrir eldsvoðann
3. „Myndir aldrei byggja svona hús …
4. McGregor handtekinn - „ógeðslegt“
Íslensku hljómsveitirnar Reptilicus
og Stereo Hypnosis sameina krafta
sína á raftónleikum í Mengi í kvöld kl.
21. Reptilicus er samstarfsverkefni
Jóhanns Eiríkssonar og Guðmundar I.
Markússonar og hefur verið starf-
rækt frá árinu 1988. Stereo Hypnosis
var stofnuð árið 2006 af feðgunum
Óskari og Pan Thorarensen en tón-
skáldið Þorkell Atlason gekk til liðs
við sveitina 2014.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Reptilicus og Stereo
Hypnosis í Mengi
Í tilefni af sjö-
tugsafmæli Guð-
mundar Ólafs-
sonar fornleifa-
fræðings gangast
Hugvísindasvið
Háskóla Íslands
og Þjóðminjasafn
Íslands fyrir mál-
þingi til heiðurs
honum í dag kl. 13 í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands við Suð-
urgötu.
Málþing haldið til
heiðurs Guðmundi
Trommarinn Arnar Þór Gíslason
verður 40 ára á morgun og mun af
því tilefni halda afmælistónleika í
kvöld í Bæjarbíói þar sem hann mun
lemja húðir. 10 hljómsveitir koma
fram með Arnari og mun ágóði af
miðasölu renna til góð-
gerðarmálefna sem
eiga það sameiginlegt
að efla hafnfirsk ung-
menni í gegnum tón-
list. Meðal þeirra
hljómsveita sem koma
fram eru Dr. Spock,
Ensími, Írafár og
Pollapönk.
Tíu sveita afmæli
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt, 3-10 m/s og víða bjartviðri, en stöku él úti við norður-
ströndina. Hægari um kvöldið. Hiti að 6 stigum syðra, en annars kringum frostmark.
Á sunnudag Hæg suðaustlæg eða breytileg átt og léttskýjað framan af degi, en 5-10
m/s og þykknar síðan upp syðra. Hiti 1 til 6 stig sunnantil að deginum, en annars kring-
um frostmark. Á mánudag Suðaustan og austan 8-13 m/s og lítilsháttar rigning eða
slydda syðra, en hægara og bjartviðri norðan heiða. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum.
Staðan í undanúrslitaeinvígi Hauka
og Vals í Olís-deild kvenna í hand-
bolta er jöfn, 1:1, eftir að Haukar
unnu annan leik liðanna á Ásvöllum í
gærkvöld, 23:22. Haukar voru yfir all-
an leikinn en rétt eins og í fyrsta
leiknum á Hlíðarenda var spenna í
leiknum allan tímann. Liðin mætast
þriðja sinni á mánudag en vinna þarf
þrjá leiki til að komast í úrslit. »2
Haukar jöfnuðu metin
í spennandi einvígi
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu er í efsta sæti
síns riðils í undankeppni
HM nú þegar undankeppnin
er hálfnuð. Liðið vann
öruggan 2:0-sigur á Slóven-
íu ytra í gær, þar sem bæði
mörkin komu eftir löng inn-
köst Sifjar Atladóttur í fyrri
hálfleiknum. Aðalkeppi-
nautar Íslands, Þýskaland
og Tékkland, mætast í dag.
» 3
Innköstin komu
Íslandi á toppinn
„Ég var svolítinn tíma að ná mér nið-
ur en þegar á kvöldið leið var ég orð-
inn rólegur og sofnaði vært. Maður er
öllu vanur frá Selfossi,“ segir hinn 16
ára gamli Haukur Þrastarson sem sló
í gegn í sínum fyrsta A-landsleik í
handknattleik gegn Noregi í fyrra-
dag. »4
Ég var svolítinn tíma
að ná mér niður
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hallveig Guðmundsdóttir og Ómar
Ágústsson voru meðal 15 slökkvi-
liðsnema sem aðstoðuðu við
slökkvistarf í stórbrunanum í Mið-
hrauni í Garðabæ í vikunni. Þau
voru fullbúin og á leið á æfingu
þegar kallið kom. „Við vorum á leið
í verklega reykköfun, kalda reyk-
köfun, á æfingu í St. Jósefsspítala.
Öll saman í galla, alveg tilbúin,“
segir Hallveig. „Við vissum að
Hafnarfjarðarstöðin var á leiðinni í
útkall og svo kom F1, eldur í Mið-
hrauni,“ segir Hallveig en F1 er
hæsta viðbúnaðarstig viðbragðs-
aðila hérlendis. „Við vorum í stræ-
tónum sem við erum með, 15
slökkviliðsmenn, sáum reykinn og
okkur var bara snúið við,“ segir
Ómar. Nemendarútunni var stefnt
beint í Miðhraunið og voru þau
meðal þeirra fyrstu á vettvang.
„Við erum að koma þarna áður
en varðstjórar eru búnir að rann-
saka vettvanginn, mögulega smá
óþægilegt fyrir þá að fá svona stór-
an hóp af fólki á vettvang án þess
að vera búnir að gera sér grein fyr-
ir aðstæðum,“ segir Hallveig en
þau voru sett strax í verkefni..
„Þegar við komum var þetta bara
að byrja, við komum mjög snemma
og það voru alveg ennþá bílar upp
að hurðinni og við heyrðum spreng-
ingar. Það var mjög mikil eldvirkni
og eldurinn að breiðast hratt út
þegar við komum,“ segir Ómar.
Fer beint í reynslubankann
Hallveig segir að þessi reynsla
fari klárlega í reynslubankann en
verkefnin sem nemarnir voru settir
í voru fjölbreytt og erfið. „Maður
fær þetta beint í æð hvað það er
mikið í húfi. Þarna fær maður
miklu meiri tilfinningu fyrir því
hvað felst í þessu starfi. Þetta
krefst mikilla líkamsburða og mað-
ur þarf að bera þunga hluti og það
er erfitt að vera með búnaðinn á
sér í svona langan tíma.“
Ómar segir að stór hluti nem-
anna hafi komið að brunanum í
Hellisheiðarvirkjun en þetta var
hins vegar fyrsta stóra útkallið
þeirra og voru þau sett í mikilvæg-
ari verkefni.
„Við vorum í mörgum störfum
þarna, meðal annars í björgunar-
vinnu og niðurrifsvinnu. Við feng-
um að prófa margar hliðar starfs-
ins. Við erum auðvitað í þessum
æfingum og frá því við tókum for-
námið í fyrra þá höfum við verið
virkir slökkviliðsmenn en það hafa
ekki verið svona stór útköll síðan
þá, þannig að þarna fengu allir eitt-
hvert hlutverk,“ segir Ómar.
Fengu eldskírn í Miðhrauni
Hópur slökkvi-
liðsnema með þeim
fyrstu á vettvang
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stórbruni Mikill eldur var í byggingunni þegar slökkviliðið bar að garði.
Morgunblaðið/Eggert
Nemar til bjargar Hallveig Guðmundsdóttir og Ómar Ágústsson voru á leið á æfingu í reykköfun þegar rútunni
var snúið við og stefnt beint að brunanum í Garðabæ. Þau og 15 aðrir nemar voru meðal þeirra fyrstu á vettvang.