Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 0. M A Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  125. tölublað  106. árgangur  KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR VERÐLAUNUÐ STEINUNN Í SVIÐSLJÓSINU RÓSBJÖRG JÓNSDÓTTIR ER NÝR FORMAÐUR NEW YORK OG DRESDEN 30 LANDVERND 12MAÍSTJARNAN 31 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Íslenskur karlmaður með fötlun hefur hvorki rétt til örorkulífeyris frá Tryggingastofnun né atvinnu með stuðningi því hann bjó með foreldrum sínum í Svíþjóð í 15 ár á barnsaldri. Lárus Theodórsson Blöndal er í dag 27 ára og býr í Svíþjóð þar sem hann fær örorkulífeyri og vinnur á nytjamarkaði í gegnum atvinnu með stuðningi. Þriggja ára flutti hann fyrst til Svíþjóðar með foreldrum sínum. Árið sem hann varð 18 ára fluttu þau aftur heim og er foreldrum hans þá tjáð af Tryggingastofnun ríkisins að hann eigi rétt á örorkulífeyri eftir þriggja ára samfleytta búsetu hér á landi. „Eftir þann tíma, þegar við sækjum um örorkulífeyri fyrir hann, kemur í ljós að hann á engin réttindi á Íslandi vegna þess að við fluttum ekki heim í síðasta lagi þegar hann var 15 ára,“ segir Guðrún Lárusdóttir Blöndal, móðir Lár- usar. „Samkvæmt reglum verður að flytja heim a.m.k þremur árum áður en barnið verður 18 ára því upphaf örorku í þessu samhengi miðast við sjálfræðisaldur- inn. Lárus var orðinn of gamall þegar við fluttum heim og mun því aldrei eiga rétt á örorkulífeyri hér á landi.“ Réttur Lárusar til örorkulífeyris í Svíþjóð flyst með honum til Íslands samkvæmt EES-samningnum en ekki rétturinn til atvinnu með stuðningi sem helst í hendur hér á landi við örorkubætur greiddar frá Tryggingastofnun. Guðrún segir að vinnuréttindi hans séu þeim geysilega mikilvæg. Vegna þessa fékk Lárus enga vinnu hér á landi eftir stúdentspróf, sem hafði mjög slæm áhrif á hann og varð til þess að fjöl- skyldan flutti aftur út til Svíþjóðar. „Þetta hefur haft geysileg áhrif á líf okkar og við erum dæmd til að búa í Svíþjóð," segir Guðrún. Flutti of seint heim til Íslands MEru dæmd til að búa í Svíþjóð »11 Örorkulífeyrir » Réttindi ein- staklinga byggjast á búsetu á Íslandi á tímabilinu 16-67 ára. Skilyrði er að einstaklingur hafi verið búsettur á Ís- landi a.m.k. þrjú síðustu ár áður en hann sækir um, segir á vefsíðu Tryggingastofnunar.  Íslendingur með fötlun á erfitt með að búa hérlendis Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Eyjalistinn og H-listinn, Fyrir Heimaey, ákváðu í gærkvöldi að hefja formlegar viðræður um meiri- hlutamyndun í bæjarstjórn Vest- mannaeyja. Ráðgert er að niður- staða verði ljós fyrir næstu helgi. Formlegar viðræður um myndun meirihluta í sveitarstjórnum eru víða langt komnar, þó ekki í öllum sveitarfélögum landsins. Í Hafnarfirði gekk Sjálfstæðis- flokkurinn til formlegra viðræðna við Framsóknarflokkinn, en bæjar- stjórnarfulltrúi Bjartrar framtíðar, samstarfsflokks Sjálfstæðisflokks í fráfarandi bæjarstjórn, bauð sig þó fram undir merkjum annars lista. Sjálfstæðismenn í Kópavogi eru ósammála um hvort flokkurinn skuli halda áfram samstarfi við Bjarta framtíð, nú undir merkjum BF/ Viðreisnar, eða leita til framsóknar- manna um samstarf. Einhverjir sjálfstæðismenn hafa lýst óánægju með samstarfið á síðasta kjör- tímabili. » 6 Hefja viðræður í Eyjum Morgunblaðið/Ófeigur Vestmannaeyjar Viðræður um nýjan meirihluta í bæjarstjórn.  Óvissa um fram- haldið í Kópavogi Veðrið lék við fólk fyrir norðan og austan í gær. Heitast var 24,3 stig í Ásbyrgi, sem er hæsti hiti sem nokkru sinni hefur mælst þar í maí og á Akureyri var hiti um 20 gráður þegar best lét um miðjan dag, í sól og sunnanvindi. Eva Ingólfsdóttir, Birna Pétursdóttir og Birg- itta Björk Bergsdóttir, starfsmenn Lystigarðs- ins á Akureyri, settu niður þessi litríku flauels- blóm í beð þegar blaðamaður rölti um garðinn síðdegis. Hlýtt verður áfram nyrðra í dag og spáin er enn betri fyrir Austurland; gera má ráð fyrir 22-24 stigum á Fljótsdalshéraði. Blómlegt í veðursældinni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson lögfest innan sambandsins fyrir árið 2025. Fyrir liggur að nái bannið til Ís- lands myndi það hafa gríðarleg áhrif hérlendis en sérhver Íslend- ingur notar að meðaltali fleiri tugi kílóa af umbúðaplastvörum á ári. Ísland hefur þegar hafið aðgerð- ir til að draga úr plastmengun. María Mjöll segir að áhersla verði lögð á aðgerðir gegn plastmengun í tengslum við formennsku Íslands í norðurskautsráðinu og Norrænu ráðherranefndinni. » 18 Verði tillaga framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins um að banna einnota plastvörur að til- skipun má telja líklegt að hún fái einnig lagagildi á Íslandi. Þetta staðfestir María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, en tillagan er að mati ESB „EES-tæk“ og myndi því falla undir EES-samninginn. Auk banns við ýmsum einnota plast- vörum leggur framkvæmda- stjórnin til að ákvæði um endur- vinnslu á plastflöskum verði ESB vill banna einnota plast Morgunblaðið/Ómar Plast ESB áformar að banna ein- nota plastvörur með tilskipun.  Bannið fengi lagagildi á Íslandi vegna EES-samningsins  Starfandi utanríkisráðherra tókst ekki að mæla fyrir þingsálykt- unartillögu á Alþingi í gær um upp- töku persónuverndarreglna ESB í EES-samninginn. Miklar umræður urðu um frumvarp dómsmálaráð- herra um innleiðingu reglnanna í íslenskan rétt og komst fyrrnefnda málið ekki að. „Það er brýnt að þessi mál klárist fyrir byrjun júlí, þegar fyrirhugað er að sameiginlega EES-nefndin taki persónuverndargerð ESB upp í EES-samninginn,“ segir Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra og starfandi utanríkisráðherra. Hún segir mikilvægt að lögin verði tilbú- in þegar reglurnar taka gildi þann- ig að ekki verði hnökrar á miðlun persónuupplýs- inga frá Evrópu til íslenskra fyrir- tækja og stofnana og ekki síður frá þeim til Evrópu. Ef þingsályktun- artillagan sem gerir ráð fyrir heimild Alþingis til að taka gerðina upp í EES-samninginn verður ekki tilbúin í tíma þýðir það að regl- urnar verða ekki heldur teknar upp í Noregi og Liechtenstein, sam- starfsríkjum okkar í EFTA. Tíminn er naumur því síðasti starfsdagur Alþingis er áætlaður á fimmtudag í næstu viku. »2, 18 Óvíst um gildistöku persónuverndarreglna Sigríður Á. Andersen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.