Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018 Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Berglind Svavarsdóttir hrl. er nýr formaður Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) eftir aðalfund félagsins 25. maí sl. „Fyrst um sinn verða engar áherslubreyting- ar, ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem eru í gangi,“ segir Berglind í samtali við Morgunblaðið, innan félagsins hefur verið unnið að endurskoðun samþykkta og siða- reglna LMFÍ auk allsherjarendur- skoðunar á lögmannalögum. „Ný stjórn á líka enn eftir að koma saman til að skerpa áherslur. Til að mynda tel ég að þurfi að gera reglur um réttaraðstoð virkari og raunhæfari sbr. skýrslu LMFÍ um þau mál, svo þarf að skoða leiðir til réttaraðstoðar í stjórnsýslunni, en eins og er, þá er gjafsókn eingöngu veitt í málum sem eru rekin fyrir dómstólum.“ Berglind er að sögn önnur konan til að gegna formennsku í LMFÍ í 107 ára sögu félagsins, eða frá því að Þórunn Guðmundsdóttir lét af formennsku árið 1997. „Það var komið að máli við mig í vetur og eftir töluverða umhugsun ákvað ég að slá til,“ segir Berglind, en hún kveðst hafa komið talsvert að starfi félagsins í gegnum tíðina sem varamaður í úrskurðarnefnd lögmanna, aðalmaður og varafor- maður í stjórn LMFÍ. „Þá kom ég einnig að stofnun Félags kvenna í lögmennsku og sat þar í stjórn um tíma.“ Berglind tekur við formennsku félagsins af Reimari Péturssyni hrl. sem hefur verið formaður félagsins síðan árið 2015. Með Berglindi í stjórn LMFÍ voru kjörnir aðal- menn Hjördís Harðardóttir, Heið- rún Jónsdóttir, Stefán A. Svenson og Sigurður Örn Hilmarsson. Vara- menn eru Birna Hlín Káradóttir og Viðar Lúðvíksson. Tillaga um skipan í laganefnd var samþykkt, hana skipa Grímur Sig- urðarson, Einar Farestveit, Almar Möller, Helga Lára Hauksdóttir, Jón Gunnar Ásbjörnsson, Aldís Geirdal Sverrisdóttir og Geir Gests- son. Stjórn námsjóðs skipa Reimar Pétursson, Finnur Magnússon, Hulda Árnadóttir og Þórunn Helga Þórðardóttir. Berglind nýr formaður LMFÍ  Önnur konan í 107 ára sögu félagsins Berglind Svavarsdóttir Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Einhverjir kunna greinilega hvorki mannasiði né að nota klósett,“ eru skilaboð á fésbókarsíðu sem Miðalda- dagar á Gásum halda úti. Skemmdarverk voru unnin á sal- ernisaðstöðu sem komið hefur verið upp skammt frá minjum eina versl- unarstaðarins á Íslandi frá miðöld- um. Gásir eru staðsettir við Hörg- árósa í Eyjafirði. „Þetta er skemmdarverk þar sem einbeittur brotavilji hefur ráðið för. Auk skemmda á salernum og brot á rúðum var utanhúsklæðningin risp- uð. Við erum miður okkar,“ segir Ragna Gestsdóttir, starfsmaður á Minjasafni Akureyrar, sem þekkir vel til á Gásum. „Það hefur hjálpað okkur að al- menningur hefur brugðist vel við og nokkrar ábendingar hafa borist. Meðal annars er verið að skoða upp- lýsingar um nýsprautaðan silfurgrá- an bíl. Það hefur ekki tekist að finna skemmdarvargana en lögreglan vinnur að því að upplýsa málið,“ segir Ragna. Hún segir að salernin hafi fengið að vera í friði í nær áratug og það sé óskiljanlegt hvað vaki fyrir skemmdarvörgunum. „Þriðju viku í júlí höldum við Mið- aldadaga á Gásum sem þúsundir gesta heimsækja. Það var meðal ann- ars ástæðan fyrir því að hér var sett upp salernisaðstaða. Gásakaupstaður ses, með aðstoð Minjasafns Akureyrar og fleiri sveit- arfélaga hefur rekið staðinn sem rek- inn hefur verið rekin að miklu leyti á sjálfboðavinnu og styrkjum.Tjónið af völdum skemmdanna kemur illa við reksturinn,“ segir Ragna. Skammt frá bílastæðinu þar sem salernin eru staðsett eru minjar af miðaldaverslunarstaðnum og þar til hliðar er verið að útbúa tilgátuþorp að sögn Rögnu sem segir að almennt beri fólk virðingu fyrir fornminjunum. „Gásir eru vinsæll útivistarstaður fyrir Eyfirðinga og margir fara þar í gegn á leið niður í fjöru. Það eru því margir á ferli allt árið sem hugsan- lega hefur komið í veg fyrir að fleiri skemmdarverk hafi verið unnin þarna,“ segir Ragna sem vonast til þess að skemmdarvargarnir náist sem allra fyrst. Kunna hvorki mannasiði né á klósett  Skemmdarverk á salernum á Gásum  Einbeittur vilji til að skemma  Kemur illa við Miðaldafélag- ið sem rekið er á styrkjum og sjálfboðavinnu  Lögreglan rannsakar málið  Vinsæll útivistarstaður Ljósmynd/Aðsend Á Gásum Skemmdir á salernum koma sér illa fyrir gesti og gangandi. Ljósmynd/Aðsend Skemmdarverk Salerni á Gásum. Verið er að ljúka viðgerð og frá- gangi á Þúfunni, umhverfislista- verki sem stendur við Norðurgarð í Örfirisey, við vestanverða inn- siglinguna í Reykjavíkurhöfn. Þúf- an verður opnuð fyrir umgengni fyrir næstu helgi, sjómannadags- helgina. Listaverkið skemmdist í miklum rigningum í febrúar- mánuði, en þá rann vatnsósa jarð- vegurinn fram á austurhlið þess. Þúfan hefur notið vinsælda og daglega leggja margir leið sína upp á topp hennar, en efst á hóln- um er fiskhjallur. Höfundur verksins er Ólöf Nordal myndlist- armaður, en verkið er í eigu HB Granda. Þúfan var reist árið 2013 og er í eigu HB Granda. Hún er 26 metrar í þvermál og átta metra há. aij@mbl.is Þúfan í Örfirisey opnuð eftir viðgerð  Skemmdist í vatnsveðri í febrúar Morgunblaðið/Valli Þúfan Unnið við lagfæringar á grjóthleðslu listaverksins. Heildarafkoma opinberra fram- haldsskóla hefur verið jákvæð und- anfarin tvö ár. Árið 2016 var 76,9 milljóna króna afgangur af rekstri framhaldsskóla í heild, sem nemur 0,41% af heildarfjárheimild til fram- haldsskóla. Afgangurinn í heild af rekstri framhaldsskólanna árið 2017 var hins vegar 552,4 milljónir króna, sem nemur 2,71% af heildarfjár- heimild skólanna. Þetta er breyting frá árunum 2013-2015 þegar afkom- an var neikvæð upp á samtals 711,5 milljónir. Þrír af 27 opinberum framhalds- skólum voru með rekstrarhalla undir 14% af heildarfjárheimild árið 2017, þ.e. að teknu tilliti til fluttra fjár- heimilda frá fyrra ári. Einn fram- haldsskóli var hins vegar með rekstrarhalla undir -4% innan ársins 2017. Árið 2016 voru fjórir skólar með rekstrarhalla undir -4% af fjár- heimild innan ársins. Þetta kom fram í svari Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráð- herra, við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um rekstur framhalds- skóla. Fyrirspurnin var í níu liðum. Auk spurningar um árlegan kostnað framhaldsskólanna og frá- vik í rekstri var m.a. einnig spurt um brottfall nemenda. Í svarinu kemur fram að bráðabirgðatölur frá Hag- stofu Íslands um stöðu nýnema ár- anna 2010-2012 liggi nú fyrir. „Staða nýnema sem innrituðust árið 2012, fjórum árum síðar, er þannig að brautskráð eru 55,2% (48,9% karlar og 61,6% konur). Brott hafa fallið 24,9% (28,5% karlar og 21,3% konur). Enn eru í námi 19,9% (22,6% karlar, 17,1% konur).“ Fram kemur að töluvert sé um að framhaldsskólanemar skipti um skóla. gudni@mbl.is Betri afkoma skólanna  Jákvæð heildarafkoma framhaldsskóla 2016 og 2017 eftir mögur ár  Drjúgur helmingur nýnema 2012 útskrifaður Stúdentar Ekki ljúka allir námi sem hefja nám í framhaldsskóla. Bankastræti 12 | sími 551 4007 | skartgripirogur.is Armband Frá 14.900,- Hálsmen 7.900,- Hálsmen 13.900,- Eyrnalokkar 6.900,- Hringur 14.900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.