Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640
Jeremy Model 2987
L 241 cm Leður ct. 25 Verð 645.000,-
L 241 cm Áklæði ct. 70 Verð 435.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Rússneskur vopnaframleiðandi,
sem sérhæfir sig í hátæknihernaði,
segist munu nýta sér brak sem sagt
er vera af bandarískum stýriflaug-
um, svonefndum Tomahawk. Er
stjórnarher Sýrlands sagður hafa
grandað flaugunum þegar Banda-
ríkin, Bretland og Frakkland hófu
sameiginlegar hernaðaraðgerðir
gegn sveitum Bashars al-Assads.
„Við sem sérfræðingar erum
mjög áhugasamir um að fylgjast
með hvernig mismunandi vopna-
kerfi reynast í Sýrlandi, þ.á m.
Tomahawk. Nú þegar við höfum
þessa flaug í höndum vitum við
hvernig henni er stjórnað,“ segir
sá, en hann telur fyrirtæki sitt geta
nýtt sér þekkinguna til að bæta
rússnesk vopn enn frekar.
RÚSSLAND
AFP
Hátækni Stýriflaug skotið á loft.
Munu nýta sér brak
úr Tomahawk
Kim Young Chol,
varaformaður
kommúnista-
flokksins í
Norður-Kóreu,
er sagður vera á
leiðinni til
Bandaríkjanna,
en tilgangur
ferðarinnar er að
funda með þar-
lendum stjórn-
völdum. Chol kemur til New York á
morgun, miðvikudag.
Breska ríkisútvarpið (BBC)
greinir frá því að Chol hafi í gær
ferðast til Peking og fundað þar
með kínverskum ráðamönnum. Til
stendur að leiðtogar Norður-Kóreu
og Bandaríkjanna fundi í Singapúr
12. júní næstkomandi.
NORÐUR-KÓREA
Fundar með stjórn-
völdum í New York
Kim
Young Chol
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Óður maður myrti í gærmorgun þrjá
á götu úti í austurhluta borgarinnar
Liége í Belgíu. Þau sem létust eru
tvær lögreglukonur og 22 ára karl-
maður. Árásarmaðurinn, sem sagður
var 36 ára, var skotinn til bana af sér-
sveitarmönnum. Þá særðust einnig
fjórir lögreglumenn í átökunum.
Fréttamiðlar í Belgíu greina frá
því að árásarmaðurinn hafi verið
með ríkisfang þar í landi og hafi degi
fyrir árásina verið sleppt tímabundið
úr fangelsi. Hafði hann verið dæmd-
ur fyrir fíkniefnabrot.
Hrópaði „Allah er mikill“
Er maðurinn sagður hafa ráðist
fyrirvaralaust á lögreglukonurnar
með eggvopni og stungið þær ítrekað
í bakið. Því næst tók hann skotvopn
annarrar þeirra og beitti því gegn
þeim. Á meðan á þessu stóð hrópaði
hann „Allahu Akbar“ eða „Allah er
mikill“ á arabísku. Belgískur sak-
sóknari lýsir árásinni sem „villi-
mannslegri“.
Ódæðismaðurinn hélt því næst
áfram för sinni fótgangandi og er
hann nálgaðist skólabyggingu kom
hann að kyrrstæðum bíl. Inni í hon-
um sat ungur maður, nemandi við
skólann, og var sá skotinn til bana.
Þá tók maðurinn starfsmann skól-
ans gíslingu. Um svipað leyti komu
þungvopnaðir sérsveitarmenn á
vettvang og greinir breska ríkisút-
varpið (BBC) frá því að þeir hafi
skipst á skotum við ódæðismanninn.
Komst þá skólastarfsmaðurinn und-
an á hlaupum. Fjórir lögreglumenn
urðu fyrir kúlum árásarmannsins áð-
ur en sá var yfirbugaður, hæfði hann
tvo í fótlegg en hina í handlegg.
Minnst einn lögreglumannanna er
sagður alvarlega særður.
Öfgamaður myrti þrjá
Kom aftan að tveimur lögreglukonum og stakk þær ítrekað í bakið með egg-
vopni Komst yfir vopn lögreglu og beitti því gegn konunum og ungum manni
Inni í hinni glæstu og fjölsóttu Versalahöll
Loðvíks konungs fjórtánda í nágrenni Parísar í
Frakklandi fjölmennti hópur fólks í þeim til-
gangi að sýna sig og sjá aðra. Var fólkið prúð-
búið og klætt upp á gamla mátann og því ekki
laust við að höllin hafi minnt á eldri tíð.
Eitt þekktasta rými Versala er speglasalurinn
mikli, sem teiknaður er af arkitektinum J.H.
Mansart, en salurinn var aðalhátíðarsalur hallar-
innar og tengir íbúð konungs við drottningar-
íbúðina. Lítur salurinn eins út í dag og þegar
Loðvík sextándi kvæntist Maríu Antoinette.
AFP
Versalahöll Loðvíks
minnti á forna tíma
Sýrlenski stjórnarherinn er tilbúinn
að hefja sókn inn á svæði uppreisn-
armanna í suðvesturhluta landsins.
Hefur fréttastofa Reuters þetta eftir
ónafngreindum hershöfðingja. Á
sama tíma eru vopnaðir hópar upp-
reisnarmanna sagðir vera að undir-
búa sig fyrir komandi átök.
Talið er víst að stjórnarherinn ætli
sér að ná yfirhöndinni á þeim svæð-
um sem næst eru landamærunum að
Ísrael og Jórdaníu. Fari herinn af
stað myndi slíkt ögra mjög Banda-
ríkjamönnum sem áður hafa varað
við „hörðum“ aðgerðum gegn vopn-
uðum átökum við landamærin.
„Sýrlenski stjórnarherinn mun
bera hitann og þungann af þessum
átökum, en hann er nú orðinn öfl-
ugur og fær um það,“ er haft eftir
sama hershöfðingja.
Landvinningar létta álagið
Suðvesturhluti Sýrlands er eitt
helsta svæði uppreisnarhópa þar í
landi. Hefur stjórnarhernum tekist
að vinna mjög á annars staðar í Sýr-
landi og fengið til þess aðstoð frá
rússneskum hersveitum, en ráða-
menn í Kreml hófu í september 2015
að veita ríkisstjórn Bashars
al-Assads Sýrlandsforseta hernaðar-
aðstoð. Þá hafa einnig hundruð ír-
anskra hermanna barist við hlið
stjórnarhersins að undanförnu.
Í Damaskus og norður af borginni
Homs hefur hermönnum Assads
gengið vel og þeir lagt undir sig stór
svæði. Þessir landvinningar eru
sagðir hafa létt mjög á því álagi sem
herinn er undir og þykir renna enn
frekari stoðum undir að sókn sé á
næsta leiti í suðurhluta landsins.
Hefur meðal annars utanríkisráð-
herra Rússlands, Sergei Lavrov,
sagt að einungis hersveitir Assads
forseta eigi rétt á að vera í þeim
landshluta. khj@mbl.is
Með suðurhluta
Sýrlands í sigtinu
Herinn sagður öflugur og tilbúinn
AFP
Átök Sýrlensk orrustuþota gerir
árásir á skotmörk í Damaskus.