Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Annað árið í röð voru framkvæmd yfir 1.000 þungunarrof á Íslandi en þungunarrof voru 1.044 árið 2017 og 1.021 árinu á undan. Þetta kemur fram í fréttabréfi Landlæknis, Talnabrunni. Þar kemur einnig fram að 2017 hafi 13,1 þungunarrof verið fram- kvæmt fyrir hverjar 1.000 konur á frjósemisaldri sem talinn er vera frá 15 til 49 ára aldurs. Tæplega 53% þungunarrofa voru hjá konum 20 til 29 ára. Fækkað hjá yngsta aldurshópi Þungunarrof hjá 15 til 19 ára stúlkum árið 2017 voru 12,4 á hverj- ar 1.000 stúlkur sem er svipað og ár- ið áður. Þungunarrofum hjá yngsta aldursflokknum hefur fækkað mikið á undanförnum árum. Árið 1996 til 2000 voru þau 21,2 á hverjar 1.000 stúlkur og 18,8 að meðaltali 2001 til 2005. Búseta virðist skipta máli þegar kemur að fjölda þungunarrofa. Flest þungunarrof voru hjá konum 15 til 49 ára búsettum á Suðurnesjum, 14,6 af 1.000, en fæst hjá konum á sama aldri búsettum á Vesturlandi, 6,7 af 1.000. 75% þungunarofs með lyfjum Þungunarrof eru framkvæmd með tvennum hætti, lyfjagjöf eða að- gerð. Tilfellum þungunarrofa með lyfj- um hefur fjölgað úr 57% árið 2012 í 75 árið 2017. Flest þungunarrof voru framkvæmd á kvennadeild Land- spítalans, rúmlega 90%, á Sjúkra- húsi Akureyrar 6,3% og 1,3% á Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Meðgöngurof á Íslandi eru nálægt norrænu meðaltali 13,3 á hverjar 1.000 konur. Fæst meðgöng- urof eru framkvæmd í Finnlandi 8,2 en flest í Svíþjóð 17,6. Tíðni þung- unarrofa á Norðurlöndum er lág miðað við önnur Evrópulönd. Fleiri karlar í ófrjósemisaðgerð Árið 2017 voru framkvæmdar 638 ófrjósemisaðgerðir. 85% af þeim sem fóru í aðgerð voru karlar eða 542. Þá fóru 69 konur í aðgerð og er það í fyrsta skipti síðan skráningar hófust að ófrjósemisaðgerðir á kon- um eru undir 100 á ári. Fyrir 20 ár- um voru konur 83% þeirra sem fóru í ófrjósemisaðgerð og 40% fyrir 10 ár- um. Algengast er að einstaklingar fari í ófrjósemisaðgerð á aldrinum 35 til 44 ára. 92,3% karla og 12% kvenna fara í aðgerðina á stofum sjálfstætt starfandi sérfræðinga. 1.044 þungunarrof árið 2017  Yfir 1.000 þungunarrof annað árið í röð  Tíðni nálægt norrænu meðaltali  Lægra en í Evrópu  Fleiri karlar í ófrjósemisaðgerð  13,1 þungunarrof á hverjar 1.000 íslenskar konur 15- til 49 ára 1,3%Fjöldi þungunarrofa 2006 til 2017 Tíðni eftir aldurshópum miðað við 1.000 konur* 25 20 15 10 5 0 /1.000 15–19 ára 20–24 ára 25–29 ára 30–34 ára 35–39 ára 40–44 ára 45-49 ára Heimild: Landlæknir *Konur á frjósemisaldri, 15 til 49 ára 1.044 var heildarfjöldi þungunarrofa 2017 eða 13,1/1.000 Kvennadeild LÍ Sjúkrah. á Akureyri Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi Framkvæmd þungunarrofa 2017 90% 6,3% Sólveig Anna Jónsdóttir, for- maður Eflingar – stéttarfélags, vildi í gær ekk- ert segja um það hvort það væri á dagskrá hjá stjórn Eflingar að lýsa van- trausti á Gylfa Arnbjörnsson, forseta Alþýðusambands Íslands, rétt eins og VR, Verkalýðsfélag Akraness og Framsýn hafa gert. „Á þessum tímapunkti hef ég ekkert um það mál að segja,“ sagði Sólveg Anna í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar hún var spurð hvort í undirbúningi væri hjá Eflingu að samþykkja vantraust á forseta ASÍ. Sólveig Anna sagði aðspurð að næsti stjórnarfundur Eflingar yrði haldinn 7. júní nk. Hún var spurð hvort hún ætti von á að þetta mál kæmi til umræðu og af- staða stjórnar Eflingar til forseta ASÍ yrði rædd á þeim stjórn- arfundi. „Ég ætla ekki að tjá mig um það að svo stöddu.“ agnes@mbl.is Afstaða Eflingar til Gylfa óráðin Sólveig Anna Jónsdóttir  Óvíst með vantraust á forseta ASÍ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við finnum það að áhuginn á ís- lenska liðinu og Íslandi eykst stöð- ugt núna þegar nær dregur heims- meistaramótinu,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, verkefnis- stjóri hjá Íslandsstofu. Inspired by Iceland kynnti í gær nýtt myndband þar sem fólki um all- an heim er boðið að ganga til liðs við Team Iceland og styðja Ísland á HM í knattspyrnu sem hefst í Rússlandi í næsta mánuði. Í myndbandinu koma fram grínistarnir Anna Svava Knútsdóttir og Steindi jr. og færa heimsbyggðinni þann boðskap að allir geti staðið með Íslandi á HM, óháð áhuga á fótbolta. Fleiri myndbönd væntanleg Sigríður Dögg segir í samtali við Morgunblaðið að von sé á fleiri myndböndum sem þessu fram að HM. „Já, á næstu dögum munu birt- ast myndbönd þar sem við leitum stuðnings annarra þjóða, til að mynda þeirra sem ekki verða með á HM að þessu sinni. Við erum auðvit- að litla liðið á HM og þetta er mikið ævintýri. Við setjum þetta þannig fram að ef fólk ætli að halda með ein- hverju liði, af hverju ekki Íslandi?“ segir Sigríður. Meðal þeirra þjóða sem ekki komust á HM eru Ítalía, Holland og Bandaríkin. 10 milljón áhorf á forsetahjón Eins og Morgunblaðið hefur greint frá er Team Iceland- verkefnið unnið undir merkjum Inspired by Iceland og er ætlað að nýta meðbyrinn vegna þátttöku Ís- lands á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi. Tæplega 30 þúsund manns frá 168 löndum hafa nú þegar skráð sig í Team Ice- land. Íslandsstofa skipuleggur þetta markaðsverkefni í samvinnu við um 50 íslensk fyrirtæki, stjórnvöld og Knattspyrnusambandið með áherslu á samtakamáttinn. Herferðin hófst 8. mars með myndbandi þar sem for- setahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Elíza Reid, buðu heimsbyggðinni að vera með. Hafa nú um 10 milljón manns horft á myndbandið. Samkvæmt upplýsingum frá Ís- landsstofu hafa umfjallanir um Ís- land í tengslum við þátttökuna á HM birst í fjölmörgum erlendum miðlum víða um heim. Fjöldi erlendra fjöl- miðlamanna hefur komið til landsins til að kynna sér Ísland nánar. Bjóða ferð til Íslands í verðlaun Þeir sem ganga í Team Iceland fá rafræna landsliðstreyju með skrán- ingarnúmeri sínu á bakinu. Að auki er á peysunni íslensk útgáfa af nafni viðkomandi en fólki býðst að skrá nafn á föður eða móður og þá kemur íslensk útgáfa af eftirnafninu. Íslendingar eru hvattir til að bjóða erlendum vinum sínum að ganga í Team Iceland. Þeir sem það gera eiga möguleika á að vinna ferð til Íslands til að horfa á fyrsta leik- inn gegn Argentínu hinn 16. júní. Team Iceland Grínistarnir Anna Svava Knútsdóttir og Steindi jr. segja að allir geti haldið með Íslandi á HM í nýju kynningarmyndbandi Team Iceland sem fór í loftið í gær. Von er á fleiri slíkum myndböndum á næstu dögum. Leita stuðnings þjóða sem komust ekki á HM  Sívaxandi áhugi á íslenska ævintýrinu á HM í Rússlandi Mjólkursamsalan hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavík- ur í markaðsmisnotkunarmáli fé- lagsins. MS var dæmt til að greiða 440 milljóna króna sekt vegna misnotk- unar á markaðsráðandi stöðu með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni, hrámjólk, til framleiðslu á mjólkurvörum á mun hærra verði en MS sjálft og tengdir aðilar, Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélög, þurftu að greiða. Þar að auki var félagið dæmt til að greiða 40 milljónir vegna brota á upplýsinga- skyldu samkeppnislaga með því að halda mikilvægu gagni frá Sam- keppniseftirlitinu. Áður hafði áfrýjunarnefnd sam- keppnismála fellt niður sektir Sam- keppniseftirlitsins þar sem búvöru- lög heimiluðu þessa háttsemi. MS dæmt til að greiða 480 milljónir í sektir 17 DAGAR Í FYRSTALEIK ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.