Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018 ✝ Einar S. Mýr-dal Jónsson fæddist á Akranesi 30. ágúst 1928. Hann lést á dval- arheimilinu Höfða Akranesi 14. maí 2018. Foreldrar hans voru Jón Mýr- dal Sigurðsson, skipasmiður á Akranesi, f. 1901, d. 1993, og kona hans Rikka Emilía Sigríksdótt- ir, f. 1910, d. 1972. Einar var elstur fimm barna þeirra, yngri voru Sumarlína, f. 1929, d. 2007, Emilía Mýrdal, f. 1938, Þuríður Mýrdal, f. 1945, d. 2006, og Sigurður Mýrdal, f. 1950, d. 1967. Eiginkona Einars var Hulda Haraldsdóttir, f. 7.júlí 1929, frá Skeggjastöðum í Garði. For- eldrar hennar voru Björg Ólafs- dóttir, f. 1889, d. 1949, og Har- aldur Jónsson, f. 1882, d. 1951, útgerðarbóndi á Skeggjastöð- um. Hulda starfaði lengst af hjá Pósti og síma á Akranesi. bekka Sif og Emilía Rikka; Írisi Mýrdal. 3) Gunnar Mýrdal, f. 11. apríl 1964, yfirlæknir brjóst- holsskurðdeildar Landspítala, maki Ingibjörg Kristjánsdóttir lyflæknir. Dóttir þeirra er Geir- laug María Mýrdal. Börn Gunn- ars eru Hulda Mýrdal, maki Hildur Þóra Sigurðardóttir, Dagmar Mýrdal, maki Bryndís María Theódórsdóttir; Erna Mýrdal; Valdís Jóna Mýrdal; Gunnar Breki Mýrdal; Rafn Al- exander Mýrdal. Einar lauk námi í skipasmíði við Iðnskólann á Akranesi og öðlaðist meistararéttindi í greininni. Hann starfaði við Dráttarbraut Þorgeirs og Ell- erts, síðar Skipasmíðastöð Þ&E, og var þar verkstjóri lengstan sinn starfsaldur. Síðasta hluta starfsævinnar rak hann trésmíðaverkstæði í skúr á lóð- inni hjá sér á Brekkubrautinni og vann þar við að gera upp gömul húsgögn. Einar söng með karlakórnum Svönum á yngri árum. Hann starfaði lengi í Lionsklúbbi Akraness, var um tíma formaður Sveinafélags skipasmiða á Akranesi. Þá var hann einn af stofnendum Sund- félags Akraness og fyrsti for- maður þess. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Einar og Hulda voru alla tíð búsett á Akranesi, lengst af á Brekkubraut 3. Þau eignuðust þrjú börn: 1) Rósa Mýrdal, f. 3. mars 1955, verkefna- stjóri hjá Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, maki Guðmundur Otte- sen Valdimarsson vélvirki. Þau eiga tvo syni: Einar Mýrdal, maki Sædís Þórhallsdóttir, börn þeirra Alex Þór, Sindri Már, Aron Snær og Rósa Mjöll; Valdimar Þór, maki Tinna Steindórsdóttir, börn þeirra eru Anna Valgerður, Arnór Dagur og Guðmundur Hrafn. 2) Rikka Mýrdal, f. 19. júní 1957, svæf- ingahjúkrunarfræðingur á Landspítala Fossvogi, maki Kristinn Ellert Guðjónsson raf- virki. Þau eiga tvær dætur: Guðrúnu Huld, maki Rúnar Gísli Valdimarsson, börn þeirra eru Kristinn, Elísabet Rut, Re- Elsku Einar, nú ertu kominn í sumarlandið. Ég datt sko heldur betur í lukkupottinn þegar ég kom í þessa frábæru fjölskyldu fyrir rúmum 15 árum. Það var yndislegt að fá að kynnast þér og heyra allar þínar dásamlegu og skemmtilegu sögur. Börnin okk- ar Einar míns áttu sko besta langafann, aldrei leiddist þér að sitja hjá þeim og segja þeim alls- kyns sögur og eru þau ríkari fyrir vikið. Það er henni Huldu þinni erfitt að þú skulir vera farinn, en þangað til þið hittist aftur skulum við passa upp á hana fyrir þig. Ég dáðist alltaf af góð- mennsku þinni og umburðarlyndi gagnvart öllum. Margar minn- ingar þjóta um hugann sem við komum til með að rifja upp um aldur og ævi. Þú áttir alltaf sér- stakan sess í hjarta mínu, elsku Einar minn. Hvíl í friði. Knús til þín. Þín tengdatengdadóttir, Sædís. Elsku afi minn. Erfitt er að finna orðin og minningar eru ótal svo ég skrifa því þessi orð til þín: Glettinn, hress, ávallt kætir, sixpensara á höfði ber. Nærvera sem stöðugt bætir, ást og gleði í hjarta fer. Tóbaksdós og korn á fæti, brýst fram í huga mér. Klúti næst ég við það bæti, við mynd sem ég sé af þér. Afi minn, nafni og vinur, horfinn á braut þú ert. Tárin kinnar niður rennur, sorgin sár en lítið get gert. Hvíl í friði, yndislegi maður, ég kveð þig elsku afi minn. Ég veit hvar sem er þá ertu glaður. Bless, bless, nú um sinn. Þinn nafni, Einar Mýrdal. Elsku besti afi minn. Takk fyr- ir öll árin okkar saman. Allar sögustundirnar, alla fótboltaleik- ina sem við horfðum á saman, all- ar samlokurnar sem þú smurðir fyrir mig, góða matinn sem þú eldaðir, allar stundirnar okkar úti í skúr þegar við vorum að smíða. Takk fyrir allt. Takk fyrir húmorinn, hlýjuna, kærleikann og jákvæðnina. Þú kenndir mér svo margt en það mikilvægasta sem þú kennd- ir mér var að finna dýrmæta ást og halda í hana. Vona að þér líði vel, elsku afi, ég sakna þín en minning þín mun lifa um ókomna tíð. Ég lofa að passa vel upp á stelpuna þína. Elska þig, elsku besti afi. Hvíldu í friði. Dagmar Mýrdal. Besti vinur okkar er dáinn, við kynntumst afa snemma þar sem við eyddum miklum tíma í gula húsinu á Akranesi. Afi og amma komu síðan til Svíþjóðar á sumrin og þá var sungið: Bíbí og blaka brandur skeit á klaka sýslumaður sá í rass og sagðist skyldi taka. Afi var algjör snillingur í að segja manni sögur frá því sem hann hafði lent í um ævina og sát- um við stjörf að hlusta með eina skonsu með hangikjöti. Við vor- um líka mikið að dunda okkur í smíðaskúrnum bakvið gula húsið þar sem afi sýndi okkur hvað hann hafði smíðað og okkur fannst skrýtið að hann væri ekki heimsþekktur listamaður þar sem maðurinn var mjög flinkur í höndunum. Maður ólst upp við ást og umhyggju frá afa og sá hvað afi var ástfanginn af ömmu, hvert skipti sem hann sá hana þá ljómaði hann. Afi kallaði hana líka alltaf stúlkuna sína og maður trúði á ást við að sjá þau saman. Afi hafði sínar skoðanir og til dæmis spurði blaðið DV fólk á förnum vegi um hvað tíska væri og svarið hjá honum var að tíska væri ekkert annað en apaskapur í fólki sem lætur sér detta hin og þessi vitleysa í hug. Afi Einar var góð fyrirmynd og mun hann alltaf eiga stað í hjörtum okkar. Við kveðjum þig í síðasta sinn, besti afi okkar, við vonum að Guð eigi nóg af neftóbaki og þú verður að láta okkur vita hvert við verðum að senda það ef þig vantar meira, munum sakna þín alltaf. Valdís Jóna og Gunnar Breki Mýrdal. Mig langar að segja nokkur orð tileinkuð afa mínum Einari Mýrdal sem kvaddi okkur 14. maí síðastliðinn. Ég hef alltaf þekkt afa sem einstaklega barngóðan, hjartahlýjan og ástríkan mann. Ég á svo margar yndislegar minningar af Brekkubrautinni frá því ég var lítil stelpa með afa og ömmu. Mér fannst fátt skemmtilegra en að dúsa með honum í skúrnum, smíða alls kon- ar hluti og fá svo grillsamlokuna í hádeginu sem var sígild hefð þeg- ar ég var í heimsókn. Afi var þús- undþjalasmiður og meistari í að gera upp húsgögn og hann hafði endalausa þolinmæði til að kenna mér og systkinum mínum að smíða fallega hluti sem ég á enn þann dag í dag. Afi var listakokk- ur og hafði gaman af elda- mennsku og sá alfarið um elda- mennskuna á heimilinu í seinni tíð. Honum tókst að galdra fram þessa fínu rétti, eins og svikinn héra svo eitthvað sé nefnt. Alltaf var afi til í að fara með okkur öll systkinin hitt og þetta, sýna okk- ur staði og segja sögur. Ég hef alltaf haft einstaklega gaman af því hvað afi átti gott með að segja sögur. Hann hafði einstaklega gaman af að segja okkur frá ýms- um ævintýrum úr ferðalögum þeirra ömmu um heiminn. Alltaf hef ég litið upp til afa og ömmu og þá sérstaklega hvað varðar virð- ingu, traust og ást þeirra hvors í annars garð. Afi hætti aldrei að segja mér frá því hvað hann var heppinn að finna ömmu. Alltaf voru þau jafn innilega ástfangin og góðir vinir. Það er margt gott sem afi hefur kennt mér sem ég mun taka með mér út í lífið og segja mínum börnum frá. Hvíldu í friði elsku afi minn, þín verður sárt saknað. Þín Erna. Elsku besti afi minn. Ég sakna þín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kyssa þig bless daginn áður en við fórum til Spánar. Fengum okkur í síðasta skipti tóbak saman. Þú tókst ekki ann- að í mál þó að þú hafir verið orð- inn slappur. Allar minningarnar frá Brekkubrautinni þegar við Dag- mar vorum litlar. Að fá að gista hjá ykkur ömmu var eins og að vera í ævintýri. Við fengum að umbreyta sjónvarpsherberginu kvöld eftir kvöld í flatsæng. Það dýrmæta hjá ykkur ömmu var að í stað þess að skella okkur systr- unum í verndað barnaprógramm fékk maður að vera í teyminu ykkar ömmu og taka þátt í ykkar daglega lífi. Þegar maður sat hjá þér og ömmu úti í skúr á meðan þú varst að smíða fékk maður sitt verkefni. Það var alltaf gaman með þér elsku afi. Að hengja upp tóbaksklútana þína var meira að segja skemmtilegt því allar sög- urnar sem þú sagðir manni á meðan voru svo spennandi. Tala nú ekki um allan fótboltann sem við horfðum á saman. 10 ára gamlar upptökur af heimsmeist- aramótinu. Saman horfðum við á alla leikina, hljóðlausa, því þér fannst pirrandi að heyra í mönn- unum rausa þessa vitleysu. Í staðinn vildir þú njóta þess að horfa á meðan við spjölluðum saman. Þú í þínum sófa og ég í ömmu sófa. Núna í seinni tíð hefur verið enn dýrmætara að kíkja í heim- sókn til ykkar ömmu. Að spjalla um lífið sjálft, lífið ykkar ömmu og öll ferðalögin ykkar. Þegar ég grínaðist með það að þið amma væruð ekki búin að fá leið hvort á öðru eftir 70 ár sagðir þú mér að þetta væri ekki flókið. Amma væri stelpan þín og þannig var það. Þið voruð eitt. Meira að segja eftir að amma hætti að vinna sat hún með þér úti í skúr og þið hjálpuðust að. Ykkur leið best saman og það gerði heimilið ykk- ar svo fallegt. Húmorinn og kærleikurinn þinn, elsku afi, þú hefur kennt mér svo margt. Ég lofa að passa vel upp á hina Hulduna þína og pabba. Elska þig, elsku afi minn. Hvíldu í friði. Hulda Mýrdal. Einar S. Mýrdal Jónsson Elsku Óli. Þá hefurðu kvatt þessa jarðvist eftir stutt en erfið veik- indi og við, sem von- uðumst til að eiga svo margar fleiri góðar stundir með ykkur Emmu, stöndum eftir með sökn- uð og sorg í hjarta. Það er svo margs að minnast þegar maður hefur fylgst að svona stóran hluta af lífinu. Við fundum strax við fyrstu kynni að við náðum vel saman og höfðum sömu gildi í líf- inu. Samverustundirnar voru margar, allar utanlandsferðirnar, matarboðin, fótbolta- og körfu- boltaleikirnir, fjölskylduveislur, spjall yfir kaffibolla eða í síma og að ógleymdri ferðinni til Gríms- eyjar þegar við komum að landi í 20 stiga hita eins og ykkur hafði verið lofað. Þú varst sannur vinur og alltaf til í að rétta hjálparhönd þegar á Ólafur Ásbjörn Jónsson ✝ Ólafur ÁsbjörnJónsson fædd- ist 4. janúar 1937. Hann lést 9. maí 2018. Útför Ólafs fór fram 22. maí 2018. þurfti að halda eins og til dæmis þegar við vorum að koma okkur fyrir í Or- lando og þið Emma voruð óþreytandi að þeysast með okkur um allar jarðir í leit að rétta húsbúnað- inum. Allir sem þekktu þig vissu hvar hjartað sló, fjölskyldan og heim- ilið alltaf í fyrsta sæti og mesti Keflvíkingur og United-maður sem sögur fara af. Já, elsku Óli, það er svo margs að minnast eftir öll þessi ár, eins og jarðarberja- veislunnar í Þýskalandi þar sem berin fundust ekki, en þegar þau fundust pantaðir þú „ein Er- dbeer“ og fékkst eitt jarðarber en við hin fulla skammta, þá var hlegið eins og svo oft þegar við vorum saman. Nú kveðjum við þig, elsku vin- ur, og biðjum góðan Guð að geyma þig og styðja Emmu okk- ar og fjölskylduna alla. Allar fal- legu minningarnar geymum við í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þangað til við hittumst á ný. Þín, Valgerður og Willard Okkar elskulegi ÞÓRARINN SVEINN ARNARSON, sem lést miðvikudaginn 23. maí, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 1. júní klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir fjölskyldu hins látna: 0301-13-300618, kt. 020572-5159. Marta Guðrún Daníelsdóttir Baldur Örn Þórarinsson Bjarki Daníel Þórarinsson Guðmundur Brynjar Þórarinsson Kristinn Rúnar Þórarinsson Örn Þorbergsson Guðrún Þórarinsdóttir Örvar Arnarson Ingibjörg Magnúsdóttir Stefanía Ósk Arnardóttir Orri Guðjónsson Daníel Gunnarsson Kristrún Guðmundsdóttir Halldóra Rut Daníelsdóttir Hafþór Helgason Guðmundur B. Daníelsson Guðrún Árnadóttir Okkar ástkæra SIGRÚN ANGANTÝSDÓTTIR, Silló, lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 27. maí. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 9. júní klukkan 14. Jón Dalmann Pétursson Björn Angantýr Ingimarsson Halldóra Bergsdóttir Sigríður Huld Jónsdóttir Atli Örn Snorrason Símon Guðvarður Jónsson Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALBJÖRG PÉTURSDÓTTIR, Hjallavegi 4, Hvammstanga, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hvammstanga, 26. maí. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju 5. júní klukkan 14. Fjóla B. Helgadóttir Guðjón Ólafsson Margrét Þ. Jakobsdóttir Aðalsteinn Jakobsson I. Signý Kristinsdóttir Helga Jakobsdóttir Ingólfur Bragi Arason Ágúst F. Jakobsson Sólrún D. Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÚLÍUS JÓNASSON vélstjóri, Húsavík, lést á sjúkrahúsinu á Húsavík laugardaginn 26. maí. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 1. júní klukkan 14. Kristín Sigurðardóttir Sigríður Árdís Kristínardóttir Aðalheiður Ámundadóttir Kristján Júlíusson Rannveig Júlíusdóttir tengdabörn og barnabörn Ástkær móðir okkar, ÞÓRA ÞORBERGSDÓTTIR, Hátúni 10, Vík í Mýrdal, lést á Hjallatúni mánudaginn 28. maí. Útförin fer fram frá Víkurkirkju mánudaginn 4. júní klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Þykkvabæjarklausturskirkju eða Dvalarheimilið Hjallatún, Vík í Mýrdal. Þorbergur Þ. Reynisson Gunnhildur Haraldsdóttir Sigurður Karl Hjálmarsson Áslaug Einarsdóttir Vilborg Hjálmarsdóttir Kristján Benediktsson Anna M. Hjálmarsdóttir Einar Hjörleifur Ólafsson Jón Hjálmarsson Sigrún Guðmundsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.