Morgunblaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Mangó jógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Hjartagáttin lokuð í mánuð
Meiri sumarlokanir á Landspítalanum Allt vegna skorts á hjúkrunarfræðingum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hjartagátt Landspítalans við Hringbraut verður
lokuð í mánuð í sumar vegna skorts á hjúkrunar-
fræðingum. Meira er dregið úr starfseminni í sum-
ar en áður, en lokanirnar dreifast á lengri tíma.
Sumarlokanir deilda Landspítalans hefjast um
miðjan júní og standa út ágústmánuð. Þær eru þó
mismiklar. Minnsta starfsemin verður í lok júlí og
byrjun ágúst, það er að segja vikurnar í kringum
verslunarmannahelgina. Auk lokana verður einnig
dregið úr skipulögðum aðgerðum, eins og venju-
lega á þessum tíma. Það er til þess að gefa starfs-
fólki spítalans kost á því að fara í frí auk þess sem
sjúklingar vilja síður fara í aðgerðir á þessum tíma
árs.
Af færri rúmum að taka
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður for-
stjóra Landspítalans, segir að spítalinn hafi þurft
að draga saman starfsemi að undanförnu vegna
skorts á hjúkrunarfræðingum og fari þess vegna
öðruvísi inn í þetta sumar en önnur. Af færri rúm-
um sé að taka við sumarlokanir.
„Við erum fyrst og fremst að draga saman
vegna þess að okkur vantar hjúkrunarfræðinga,“
segir Anna Sigrún. Hún nefnir hjartagáttina á
Hringbraut sem dæmi um það. Hún er bráðadeild
fyrir hjartasjúklinga og reynt hafi verið allt sem
hægt er til að komast hjá lokun á henni. Það hafi
því miður ekki tekist og verði deildin lokuð frá 5.
júlí til 3. ágúst. Sjúklingunum er í staðinn vísað á
bráðamóttökuna í Fossvogi og þar verða hjarta-
sérfræðingar og annað starfsfólk til að sinna því,
að sögn Önnu Sigrúnar.
80% rúma spítalans í notkun
Niðurstaðan er sú, ef þau rúm eru talin með sem
nú þegar hafa verið tekin úr notkun, að meiri sam-
dráttur er í starfseminni í sumar en undanfarin ár.
Lokanir standa lengur, auk þess sem loka þarf
hjartagáttinni um tíma. Anna Sigrún segir að þeg-
ar verst lætur í sumar verði 80% rúma spítalans
tilbúin til notkunar.
Miklar umræður urðu á Alþingi í gær
um stjórnarfrumvarp um persónu-
vernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Margir stjórnarandstæðingar tóku
til máls. Málið var þó afgreitt til
nefndar og sent út til umsagnar.
Hinsvegar tókst ekki að flytja þings-
ályktunartillögu um upptöku per-
sónuverndarreglna ESB í EES-
samninginn.
Frumvarpinu, sem er mjög viða-
mikið, var dreift á Alþingi í fyrradag
en það er alls 147 blaðsíður að lengd.
Ekki hafa verið gerðar viðamiklar
breytingar frá þeim frumvarpsdrög-
um sem birt voru á samráðsgátt
Stjórnarráðsins í mars sl. Fjölmarg-
ar athugasemdir bárust þá og fór
starfshópur yfir þær og ræddi m.a. ít-
arlega athugasemdir sem bárust
varðandi sektarákvæði frumvarpsins
en margir hafa lýst miklum áhyggj-
um af því hversu háar þær geta verið
eða allt að 20 milljónir evra (2,4 millj-
arðar kr.) fyrir alvarlegustu brot eða
4% af heildarveltu fyrirtækis. Sam-
kvæmt Evrópureglugerðinni hafa að-
ildarríkin val um hvort þau veita
heimild í landslögum til að leggja
stjórnvaldssektirnar á opinbera að-
ila. Starfshópurinn féllst ekki á óskir
um að stjórnvöld yrðu undanþegin
þessu. ,,Með hliðsjón af því að stjórn-
völd bera refsiábyrgð samkvæmt lög-
um nr. 77/2000 á sama hátt og lög-
aðilar eins og fyrr segir og því að
önnur Norðurlönd hafa valið að nýta
framangreinda heimild þykir eðlilegt
að álagning stjórnvaldssekta taki líka
til stjórnvalda,“ segir í greinargerð.
Einnig er bent á að í mörgum tilvik-
um vinna stjórnvöld með umfangs-
mikið magn persónuupplýsinga, bæði
almennra og viðkvæmra. Hins vegar
er tekið fram að fram komi í skýr-
ingum við ákvæði frumvarpsins að
þegar stjórnvaldssektir séu lagðar á
aðila sem ekki eru fyrirtæki ,,ætti að
taka tillit til almenns tekjustigs og
fjárhagsstöðu aðilans“.
Persónuvernd er hitamál
Talið eðlilegt að stjórnvaldssektir taki líka til stjórnvalda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samfélag Innleiðing Evrópureglna
um persónuvernd er mikið hitamál.
Atvinnuvega-
nefnd Alþingis
fær í dag í hendur
lagafrumvarp,
þar sem gert er
ráð fyrir að veiði-
gjöld í sjávar-
útvegi verði end-
urútreiknuð
vegna versnandi
afkomu fyrir-
tækja í sjávar-
útvegi. Sérstaklega verður horft til
lítilla og meðalstórra fyrirtækja við
útreikninginn, segir Lilja Rafney
Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna og formaður nefndarinnar.
Bendir hún á að veiðigjöld hafi
verið til umræðu hjá nefndinni í vet-
ur og að nefndin hafi kallað á fundi
sína fjölda aðila úr sjávarútvegi, sem
gert hafi grein fyrir versnandi af-
komu vegna mikillar hækkunar
veiðigjalda.
Núgildandi lög um veiðigjöld falla
úr gildi 31. ágúst og er þessu frum-
varpi ætlað að ná yfir tímabilið frá 1.
september fram til áramóta, en þá
er gert ráð fyrir að enn önnur lög
taki gildi. „Þessu frumvarpi er ætlað
að brúa bilið fram að áramótum og
það kemur til með að breyta þeim
veiðigjöldum sem viðkomandi aðilar
eru að greiða þetta fiskveiðiár og út
þetta ár. Þetta skýrist betur þegar
frumvarpið lítur dagsins ljós, en í því
verður horft sérstaklega til litlu og
meðalstóru fyrirtækjanna.“
Veiðigjöld
reiknuð
upp á nýtt
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Lítil og meðalstór
fyrirtæki í vanda
Samninganefndir ríkisins og ljós-
mæðra undirrituðu nýjan kjara-
samning á sáttafundi hjá Ríkis-
sáttasemjara í gær. Ekki hafði verið
haldinn formlegur fundur í þrjár
vikur en samningamenn þó hist á
vinnufundum og var það hjálplegt að
sögn Áslaugar Valsdóttur, formanns
Ljósmæðrafélags Íslands.
Áslaug segir að aðkoma Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
hafi gert gæfumuninn í lausn deil-
unnar. „Það er fagnaðarefni að hér
sé komin lausn á þessari erfiðu
deilu,“ segir Svandís. Hún sagði gott
að búið væri að tryggja þessa mikil-
vægu þjónustu.
Samningurinn verður kynntur fé-
lagsmönnum Ljósmæðrafélagsins.
Samið í kjara-
deilu ljósmæðra
Hafið er niðurrif viðbyggingar við Landsíma-
húsið við Kirkjustræti og Thorvaldsensstræti.
Byggja á mun stærri byggingu við upprunalega
húsið fyrir hótel. Lengi hefur verið unnið að
undirbúningi þessa hótels enda er framkvæmdin
umdeild. Deiliskipulag var loks samþykkt undir
lok síðasta árs. Þá hefur úrskurðarnefnd skipu-
lags- og auðlindamála hafnað kröfu sóknar-
nefndar Dómkirkjunnar og félagsins Kvosar um
að stöðva niðurrif hússins.
Nýja húsið mun ná yfir bílastæðin sem voru
framan við Landsímahúsið og langleiðina út að
Kirkjustræti. Talið er að undir stæðunum og
húsinu sé að finna hluta af elsta kirkjugarði
Reykjavíkur, svokölluðum Víkurgarði.
Viðbygging við Landsímahúsið rifin
Morgunblaðið/Arnþór
Framkvæmdir hafnar við hótel við Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti