Morgunblaðið - 30.05.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Plokk Sjálfboðaliðar úr Ferðafélagi Íslands tína rusl við Vesturlandsveg í
vor. Náttúruvernd byggist á sterkri vitund almennings um gæði náttúru.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
N
eysluhegðan almenn-
ings, fyrirtækja og
stofnana þarf að vera
ábyrgari enda er hún
orsök þess vanda sem
nú er uppi í umhverfismálum. Allir
geta lagt sín lóð á vogarskálarnar og í
atvinnulífinu eru gerðar vaxandi
kröfur til fyrirtækja um sjálfbærni
og virkar aðgerðir í þágu samfélags-
ins,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir, nýr
formaður Landverndar. „Skylda
okkar í nútímanum er að skila nátt-
úrunni í góðu og betra horfi til kom-
andi kynslóða. Þá er líka mikilvægt
að við víkjum frá skammtímasjón-
armiðum og vertíðarhugsun sem er
Íslendingum svo töm. Í öllum að-
gerðum sem snerta náttúruna á einn
eða annan hátt ber að horfa langt
fram í tímann.“
Efla samstarf við grasrótina
Hvatning utan úr samfélaginu
og áhugi á umhverfismálum réðu því
að Rósbjörg gaf kost á sér til for-
mennsku í Landvernd á aðalfundi
samtakanna sem haldinn var nýlega.
Hún er viðskiptamenntuð og hefur
síðustu árin unnið meðal annars að
formun klasa fyrirtækja og stofnana
svo sem í jarðhitamálum og ferða-
þjónustu. Klasahugmyndafræðin
byggist meðal annars því að fá marga
ólíka aðila saman að borðinu, stilla
saman strengi og finna bestu mögu-
legu lausnir til sóknar. Þegar kemur
að ferðamálum og nýtingu jarðhita
eru umhverfismálin mikilvægur þátt-
ur; það er sjálfbærnin sem er Rós-
björgu hugleikin. Sjálf segist hún
vera náttúrubarn og er hestakona.
Fátt finnist sér skemmtilegra en fara
út á land með hestum og hundi. Snæ-
fellsnesið sé sinn eftirlætisstaður á
landinu, en taugarnar liggi þó víðar
svo sem austur og ekki hvað síst að
Laugarvatni þar sem Rósbjörg var í
sveit.
„Mér fannst ég hafa margt fram
að færa, þekkingu, reynslu og ýmis
verkfæri og tól þannig að ég gæti lát-
ið gott af mér leiða í þágu heildar-
innar en það hef ég kappkostað í öll-
um mínum störfum. Það er
mikilvægt að við hjá Landvernd efl-
um allt samstarf við grasarótina og
almenning – og séum virkir þátttak-
endur í grænu pólitíkinni og allri
ákvarðanatöku á sviði umhverf-
ismála. “
Nærsýn í umhverfismálum
Á aðalfundi Landverndar á dög-
unum flutti Andri Snær Magnason
áhugaverða hugvekju þar sem lang-
tímahugsun og skýr framtíðarsýn
var leiðarstefið. Lagði hann þar
áherslu á að aðgerðir í umhverf-
ismálum ættu ekki að miðast við líð-
andi stund, heldur komandi kyn-
slóðir. Nefndi þar barnabörn
barnabarnanna okkar, það er fólkið
sem verður á sviðinu árið 2160.
„Þessi nálgun Andra Snæs
snerti mig djúpt og fær mann til þess
að setja hlutina í annað samhengi. Í
umhverfismálum erum við oft mjög
nærsýn en það verður að breytast.
Höfða verður til ábyrgðartilfinn-
ingar hvers og eins; kenna fólki
ábyrga hegðan í umhverfismálum.
Ferðamáti, innkaup, sorpflokkun og
svo framvegis; þetta skiptir allt
máli.“
Forsenda velferðar
Hlutverk Landverndar er, eins
og því er lýst á vefsetri samtakanna,
að standa vörð um íslenska náttúru
og vera virkur þátttakandi í stefnu-
mótun, fræðslu og upplýstri ákvarð-
anatöku í málum er varða land-
notkun, auðlindir og umhverfi. Litið
er svo á að náttúru- og umhverf-
isvernd, sem og endurreisn spilltra
náttúrugæða, séu forsenda efnahags-
og samfélagslegrar velferðar til
lengri tíma litið.
Innan Landverndar eru 40 að-
ildarfélög um allt land en auk þess
eru rúmlega 5.000 manns skráðir í
samtökin sem sinna ýmsum fræðslu-
verkefnum. Má þar nefna Grænfán-
ann, Bláfánann, landgræðsluverkefni
með skólum á Suðurlandi. Einnig
hafa samtökin talsvert látið að sér
kveða síðustu misserin með umsögn-
um um m.a. lagafrumvörp, skipulags-
breytingar og mat á umhverfisáhrif-
um og kærum á útgáfu
framkvæmdaleyfa ýmissa verkefna.
Má þar nefna uppbyggingu nýs veg-
ar í gegnum Þingvallaþjóðgarð,
byggingu Brúarárvirkjunar í Bisk-
upstungum og nú síðast byggingu
nýs vegar yfir Hornafjarðarfljót.
Hefur aðkoma Landverndar að þess-
um málum verið gagnrýnd, það er að
samtökin komi alltof seint inn í málin
og setji þau í baklás þegar fram-
kvæmdir séu í þann mund að hefjast
Leikreglum sé breytt
„Óánægjuraddirnar eru um
margt skiljanlegar. Hins vegar er
markmið okkar í Landvernd að gæta
hagsmuna náttúrunnar og því
ábyrgðarhlutverki ætlum við að
standa undir. Það er mjög mikilvægt
að sjónarmið náttúruverndar sé í fyr-
irrúmi þegar fara á í framkvæmdir á
viðkvæmum svæðum. Við teljum að
þetta samtal og aukna samvinnu á
þessum sviðum verði að efla og
tryggja þurfi að þeim sem hagsmuna
eiga að gæta og/eða hafa þekk-
inguna, sé gefinn kostur fyrr í verk-
ferlinu á því að skila umsögnum eða
hafa áhrif. Með því er hægt að standa
vörð og koma í veg fyrir að ráðist sé í
aðgerðir sem eru óafturkræfar,“ seg-
ir Rósbjörg og bætir við að síðustu.
„Eins og staðan er í dag hafa
þeir sem gæta náttúrunnar takmark-
aða möguleika til áhrifa fyrr nema
þann að kæra útgáfu fram-
kvæmdaleyfa sem er vissulega nokk-
uð seint í ferlinu. Og því þarf að
breyta leikreglunum sem ætti að
vera allra hagur.“
Skylda í nútímanum
Sjálfbærni og virkar aðgerðir í umhverfismálum í þágu samfélagsins eru áherslu-
mál. Þetta segir Rósbjörg Jónsdóttir, nýr formaður Landverndar. Hún vill að hags-
munir náttúrunnar séu ofar á blaði í áherslum og að hugsað sé til langs tíma.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Formaður „Höfða verður til ábyrgðartilfinningar hvers og eins; kenna fólki
ábyrga hegðan í umhverfismálum,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir í viðtalinu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dettifoss Stórbrotin náttúra lands-
ins heillar ferðamenn víða frá.
Tíu ára starfi sögubílsins Æringja,
sem Borgarbókasafnið í Reykjavík
gerir út, er fagnað um þessar mundir.
Í Borgarbókasafninu í Grófinni og í
menningarhúsinu í Spönginni í Graf-
arvogi eru uppi sýningar þar sem far-
ið er yfir starfsemi Æringja í máli og
myndum. Þar má nefna sögur með
Æru Æringjadóttur og Björk bóka-
veru í aðalhlutverkum sem 5. bekkur
Melaskóla samdi. Einnig eru mynda-
bækur um Sólu sögukonu sem börn í
1. og 2. bekk Ingunnarskóla í Grafar-
holti hafa skreytt og skrifað. Í Gróf-
inni má svo fræðast um sögu Æringja
á veggspjöldum sem eru til sýnis í
barnadeild á 2. hæð.
Í Grófinni á morgun, fimmtudaginn
31. maí, kl. 9:30, tekur Björk bóka-
vera á móti helmingi barna í 5. bekk
Melaskóla sem bæta sögum um gest-
gjafa sinn við sýninguna.
„Við förum í alla leikskóla borg-
arinnar og erum eftirsótt. Krökkum
finnst gaman að heyra sögur og
þetta gerum við m.a. til að örva mál-
vitund þeirra og ímyndunarafl,“ segir
Ólöf Sverrisdóttir, verkefnisstjóri Ær-
ingja. „Okkur hefur tekist að ná vel til
krakkkanna sem finnst gaman að
koma í skreyttan Æringjabílinn. Þetta
slær þau eins og að vera inni í litlum
helli, en úr sögum er þekkt að þar
gerast oft undur og ævintýri.“
Æringi á ferð um borgina í heilan áratug
Þar gerast undur og ævintýri
Æringi Sóla sögukona er í áhöfn og eftirlæti hjá bókabörnum í Reykjavík.