Morgunblaðið - 30.05.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
FYRIR
HUNDA
80% kjöt
20% jurtir
grænmeti
ávextir
O% kornmet
– fyrir dýrin þín
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir selt snjó á norðurpólnum
ef út í það væri farið í dag. Sjálfstraust þitt
er í hæstu hæðum þessa dagana.
20. apríl - 20. maí
Naut Gerðu enga samninga, hvorki stóra né
smáa, án þess að kynna þér vandlega inni-
hald þeirra og smáa letrið. Þú hefur enn
taugar til gamals vinar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur fyllstu ástæðu til þess
að vera ánægð/ur með sjálfan þig en
mundu að dramb er falli næst. Treystu
innsæi þínu og gerðu það sem þér finnst
rétt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Áhugi þinn á tiltekinni persónu
magnast með hverri klukkustund. Vertu
viðbúin/n því að komast að ýmsu óvæntu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að vera með kynningu og það
tekur á taugarnar. Einfaldaðu líf þitt með
því að losa þig við það sem þú þarft ekki
lengur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hugur þinn er dálítið í fortíðinni
núna og líklegt að þrá eftir liðinni tíð grípi
þig annað veifið. Það eru blikur á lofti í
ástamálunum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að tjá þig jafnan afdrátt-
arlaust svo enginn þurfi að velkjast í vafa
um hvert þú ert að fara. Vatnaskil verða í
sambandi við frændsystkin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gætir lent í óþægilegri að-
stöðu er þú leitast við að aðstoða vin í
vanda. Þú leggur land undir fót fljótlega.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er margt sem freistar
þessa dagna en þú verður að halda að þér
höndum varðandi fjárútlát. Hlúðu líka að
sjálfum/sjálfri þér og innri friði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Í dag er gott að ganga frá laus-
um endum í tengslum við tryggingar, fast-
eignir eða skuldir. Þú tekur einhvern í bak-
aríið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Jafnvel þótt nánustu sambönd
þín hafi batnað að undanförnu eru ákveðin
vandamál úr fortíðinni að koma upp á yfir-
borðið. Taktu tilboði sem þú færð.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú óttast að þú munir ekki ná settu
marki. Einhver er þungur á bárunni, sem
hefur áhrif á vinnuandann. Reyndu að
hugsa jákvætt.
Helgi Ingólfsson yrkir á Boðn-armiði:
Já, sumir nú sigrinum veifa,
en samt mátti atkvæðum dreifa.
Það illt finnst mér þó
að enginn fékk nóg
svo allir nú þukla og þreifa.
Skagfirskir hagyrðingar eru
farnir að velta fyrir sér úrslitum
sveitarstjórnarkosninganna og
hvað taki við. Páll Dagbjartsson
yrkir:
Í fjarskagóðum bæ ég bý
bætist í gráu hárin.
Við skulum gefa Framsókn frí
fjörutíu næstu árin
Ólafur Sigurgeirsson hefur sína
sýn á málin:
Vandasamt mér virðist þar
að velta um þeim reit.
Því fjórir eru framsóknar-
flokkar hér í sveit.
Fyrir kosningar orti Sigurður
Arnarson á Boðnarmiði:
Loforð fögur, skjall og skrum
skortir stefnu ljósa.
Því hef ég ekki hugmynd um
hvað ég á að kjósa.
Jón Atli Játvarðsson vildi hafa
botninn svona:
Hugur minn í hremmingum
en hættulaust að kjósa.
Út frá þessu spunnust nokkrar
umræður. Hallmundur Guðmunds-
son sagði vísu Sigurðar fína en sér
þætti alltaf miður ef h- væri látið
stuðla með hv-, að ekki sé talað
um ef k- væri í sömu ljóðlínu og
hv-. Sigurður svaraði því til að
móðir sín hefði alist upp á Skeið-
um en amma sín ættuð úr Skafta-
fellssýslu. – „Allt mitt móðurfólk
gerir greinarmun á hv og kv. Því
þykir mér þetta í lagi.“ Og til
frekari áherslu bætti hann við:
„Þegar Matthías flutti norður virð-
ist hann hafa haldið sínum sunn-
lenska mjúka framburði og látið h
stuðla við hv. Þegar árin liðu og
hann bjó hér á Akureyri hætti
hann því. Ég lagast sjálfsagt ef ég
bý hér áfram, en þangað til hef ég
móðurmálið í heiðri.“ Orðum sín-
um til frekari áherslu tilfærði
hann þetta erindi eftir séra Matt-
hías:
Því hræðst þú ei, þótt hér sé kalt
og heimsins yndi stutt og valt,
og allt þitt ráð sem hverfult hjól,
í hendi Guðs er jörð og sól.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um kosningar og
hv- eða kv-framburð
„TÍMINN TIL AÐ FARA ER ÞEGAR ENN ER
EFTIRSPURN. EN EF ÞAÐ HEFÐI GERST
VÆRUM VIÐ EKKI HÉRNA.“
„SKILAÐU ÞESSU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar stundum eru
ský á himni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
STUNDUM GET ÉG
BARA EKKI SOFIÐ
ÞETTA ER EKKI EIN
AF ÞEIM STUNDUM
ÉG ÆTLA AÐ BORGA
ÞÉR TÍUND AF
NÆSTU ÁRÁS
MINNI!
ÉG GET EKKI
TEKIÐ VIÐ
PENINGUM SEM
ERU FENGNIR
MEÐ ÞJÁNINGUM!
HEYRIÐ NÚ! SÉRANN VILL AÐ ÁRÁSIN VERÐI
SNÖRP OG ÞJÁNINGALAUS!
Víkverji fékk nýverið skilaboð ánetinu frá manni, sem hann hafði
ekki heyrt frá lengi. Skilaboðin voru
dularfull, broskarl og slóð að mynd-
skeiði. Víkverji getur verið hrekk-
laus í meira lagi. Forvitni hans var
vakin og hann smellti samstundis á
slóðina. Við það opnaðist gluggi með
kassa í einu horninu þar sem boðið
var upp á uppfærslu til að hægt væri
að horfa á myndskeiðið. Enn anaði
Víkverji áfram og smellti á hnappinn
til að fá uppfærsluna. Þegar ekkert
gerðist fór honum að leiðast þófið og
smellti aftur. Enn gerðist ekkert.
x x x
Ekki leið á löngu áður en Víkverjafóru að berast skilaboð frá ýms-
um vinum. „Þú ert sennilega með vír-
us,“ sagði einn. „Er óhætt að smella á
þetta,“ sagði annar. Víkverja var nú
farið að gruna hvernig í pottinn væri
búið. Sá sem sendi honum upp-
runalegu skilaboðin hefði sennilega
ekki haft hugmynd um það og nú
væri Víkverji farinn að breiða út
ófögnuðinn.
x x x
Í ofboði reyndi hann að vara þá viðsem höfðu sent honum skeyti, en
nú neitaði forritið að senda skila-
boðin. Skömmu síðar var Víkverja
hent út af fésbókinni og skilaboða-
skjóðunni sömuleiðis með þeim skila-
boðum að sennilega hefði hann verið
beittur svikum og prettum. Hann fór
að renna í grun hvernig Adam og
Evu hefði liðið þegar þeim var úthýst
úr Eden. Víkverji hafði freistast til
að bíta í hinn forboðna ávöxt og nú
hafði honum verið hent út úr helgi-
dómi fésbókarinnar. Það versta var
að slóðin, sem hann smellti á, var
ekki einu sinni spennandi. Það fylgdi
því engin eftirvænting að smella á
slóðina, hann beið ekki í ofvæni eftir
að sjá hvað kæmi í ljós. Víkverji gerði
sig einfaldlega sekan um hugs-
unarleysi.
x x x
Víkverji er viss um að hann er ekkieinn um hrekkleysi þegar hann
ferðast um netheima og ákvað því að
setja inn þessi varnaðarorð - til að
vara lesendur við hugsunarleysi í
sýndarheimum netsins.
vikverji@mbl.is
Víkverji
En þetta er ritað til þess að þið trúið
að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að
þið í trúnni eigið líf í hans nafni.
(Jóh: 20.31)