Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2017, Síða 4

Læknablaðið - 01.12.2017, Síða 4
531 Hörður Már Kolbeinsson, Elsa Björk Valsdóttir, Páll Helgi Möller Árangur brottnáms á endaþarmi vegna krabbameins eða forstiga þess á Landspítala 2008-2012 Krabbamein í endaþarmi eru um 2-3% allra krabbameina á Íslandi í dag með nýgengi um 6-8 á hverja 100.000 íbúa. Skurðaðgerð er hornsteinn í meðferð þessara meina og byggir árangur læknandi meðferðar einna helst á hvort vel tekst til að fjarlægja meinið með viðunandi skurðbrúnum. Aðgerðir á endaþarmi vegna krabbameina eru tæknilega erfiðar en þar spilar inn í djúp lega endaþarms í grindarholi, lítill hreyfan- leiki og nálægð aðliggjandi líffæra. 537 Gísli Kristófersson, Ársæll Arnarsson, Guðmundur Heimisson, Dagbjörg Sigurðardóttir Ólögmæt dreifing örvandi lyfseðilsskyldra lyfja meðal unglinga í 10. bekk Samkvæmt rannsóknum er talið að 6-10% barna og um 5% fullorðinna séu með ADHD. Örvandi lyf eru notuð í meðferð ADHD og þykja veita bestu svörun, en til þeirra teljast mismunandi form af metýlfenídati og amfetamíni. Samkvæmt upplýs- ingum úr lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis frá vorinu 2017 fengu 9119 einstak- lingar ávísað örvandi lyfjum á Íslandi árið 2016 miðað við 5324 einstaklinga árið 2012 sem er rúmlega 72% hækkun á tímabilinu. Þessari rannsókn var ætlað að svara spurningunni hversu algengt lyfjaflakk sé meðal íslenskra unglinga sem fá ávísað örvandi lyfjum. Einnig var skoðað hvort þessi hegðun tengist kyni, tilfinningalegum tengslum við foreldra og notkun vímuefna. 543 Ólína Þorvarðardóttir Lækning, trú og töfrar - samþætting og þróun fram yfir siðaskipti Í bókmenntaarfinum, elstu lækningahandritum og ekki síst galdraritum 17. aldar sem urðu tilefni brennudóma yfir fjölda Íslendinga eftir að galdraofsóknirnar í Evrópu teygðu anga sína hingað til lands má greina ákveðna þróun sem sýnir að 16. og 17. öld voru þekkingarlegt hnignunarskeið hvað lækningar varðar. Lærðar lækningar voru þá skammt á veg komnar líkt og í nágrannalönndum og óljós skil milli lærðra og leikra. Á sama tíma og fólk var brennt á báli fyrir það sem í galdraskræðurnar var skráð iðkuðu menntamenn danska ríkisins lækningar sem vert er að bera saman við fyrrnefndar heimildir og spyrja: Hvar lágu skilin milli töfra og vísinda – milli læknis og galdramanns? 524 LÆKNAblaðið 2017/103 F R Æ Ð I G R E I N A R 12. tölublað ● 103. árgangur ● 2017 527 Rannsóknir í læknisfræði, traust og fagmennska Ritstjórn Læknablaðsins Við þurfum að draga lærdóm af niðurstöðum plastbarka- skýrslunnar og styrkja jafn- framt þá umgjörð, samtal og aðstöðu sem læknum og sjúklingum er búin til vísinda- rannsókna hér á landi. 529 Vaxtarverkir stafrænnar tæknibyltingar Björn Hjálmarsson Við þurfum að læra að umgangast hina stafrænu tæknibyltingu af hófstillingu og skynsemi. Yfirdrifinn rafrænn skjátími er nýtt lýðheilsuvandamál. L E I Ð A R A R

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.