Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.2017, Side 53

Læknablaðið - 01.12.2017, Side 53
kvenlæknar landsins voru Kristín Ólafs- dóttir f. 1889 sem varð cand. med. 1917, fyrst íslenskra kvenna, Katrín Thorodd- sen f. 1896 og Jóhanna Guðmundsson f. 1898 er starfaði í Danmörku. Einn Færeyingur (Níels Finsen), tveir Danir og einn Þjóðverji sem fæddir voru á tímabilinu komu hér að sinna námi eða læknisverkum. Af læknunum 175 voru flestir fædd- ir í Reykjavík eða 29 enda mátti hún í aldarlok teljast höfuðstaður Íslands. Af sýslum landsins ber Húnavatnssýslu hæst með 27 fædd læknisefni. Er það níföld fjölgun frá fyrri hluta aldarinnar. Af þessum 27 voru 74% bændasynir. Nafntogaðastir þessara lækna og allir fæddir á sama áratug munu „Guð- mundarnir þrír“ G. Björnsson land- læknir (f. 1864), G. Hannesson prófessor (f. 1866) og G. Magnússon prófessor (f. 1863) Ýmsum hefur fundist það undrum sæta hve margir húnvetnskir bænda- synir voru sendir í svo dýrt nám í erfiðu árferði. Leitt hefur verið getum að því að hér kunni sauðasalan svonefnda að hafa skipt máli. Á síðari hluta 19. aldar græddu íslenskir bændur veru- lega á sölu sauðfjár á fæti til erlendra kaupmanna sem síðan fluttu féð utan, einkum til Bretlands, fóðruðu það um hríð og slátruðu síðan. Er þess getið að eitt árið hafi 80.000 fjár verið flutt utan. Bændum var borgað í reiðufé sem þeim var hagur að. Árið 1896 voru þessi við- skipti bönnuð í Bretlandi og þvarr þar með þessi tekjulind. Það kann að styðja þessa skýringu að á síðasta áratug 19. aldar fædd- ust flest læknisefnin á einum áratug aldarinnar í Húnavatnssýslu og voru 9 talsins. Fyrstu tvo áratugi nýrrar aldar virtist ævintýrið úti því þá fæddust í sýslunni aðeins tveir læknar. Þeir voru bændasynir og grannar og skildi Laxá á Ásum ein að jarðirnar. Þetta voru þeir Sigurður G. Sigurðsson síðar berkla yfirlæknir og landlæknir sem fæddist á Húnsstöðum 1903 og Hjalti Þórarinsson prófessor í handlækningum er fæddist á Hjaltabakka 1920. Heimild Blöndal LH, Jónsson V. Læknar á Íslandi. Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík 1944. Guðmundarnir þrír. LÆKNAblaðið 2017/103 573

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.