Morgunblaðið - 06.07.2018, Síða 11
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2018
Þessa dagana er býsna for-
vitnileg sýning í Breska
matarsafninu, The British
Museum of Food, sem stend-
ur við King’s Cross í London.
Sýningin heitir Scoop og þar
er fjallað um vinsælasta eft-
irrétt allra tíma, ís, frá öllum
hugsanlegum sjónarhornum.
Fjallað er um sýninguna í
breska blaðinu The Guardian
og þar segir að á sýningunni
sé fjallað um ísgerð í fortíð,
nútíð og framtíð. Til dæmis
var það eingöngu á færi að-
alsmanna í Bretlandi og
þeirra allra auðugustu á 17.
og 18. öld að borða ís.
Reyndar var ísát hálfgert
stöðutákn, ekki ósvipað því
að drekka rándýrt kampavín
nú til dags. Ísgerðarmenn
voru í hávegum hafðir, ís-
gerðarlistin gekk í erfðir og
Jakob I., konungur Englands,
lét byggja sérstakt ísgerðar-
hús fyrir sig fyrir um 400 ár-
um
Smekkur breska aðalsins
áður fyrr á öldum virðist hafa
verið talsvert annar en nú,
því vinsælustu ísbragðteg-
undirnar voru gúrka og fjóla.
Þeim sem eru á leið til
London og hafa hug á að fara
á sýninguna og fræðast um
ís er bent á að eingöngu er
hægt að kaupa miða á vef-
síðu safnsins: www.bmof.org.
Ísinn hylltur á sýningu í Breska matarsafninu
Ís Sýning helguð þessu vinsæla lostæti stend-
ur nú yfir á Breska matarsafninu í London.
Ís í fortíð, nútíð og framtíð
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Eftir þessa ferð finn ég fyrirmiklu nánari tenginguvið fólkið sem vinnur viðræktunina, fólkið á bak
við kaffið sem við drekkum hér á Ís-
landi,“ segir Vala Stefánsdóttir,
kaffibarþjónn með meiru.
Vala kom nýverið heim frá Kól-
umbíu þar sem hún dvaldi í tíu daga
og tók þátt í raunveruleikaþættinum
Barista & Farmer. Í þættinum fá tíu
kaffibarþjónar sem elska kaffi að
starfa við að tína kaffibaunir og önn-
ur störf á kaffibúgarði. Og fá um leið
ómetanlega innsýn í og fræðslu um
tilurð þessa yndislega drykkjar.
Umræddur þáttur er ítalskur og
þetta var í fjórða sinn sem hann var
tekinn upp. Afraksturinn má sjá á
Facebook-síðu þáttarins.
Ríkmannlega tekið á móti mér
Vala hefur um árabil starfað
sem kaffibarþjónn á Íslandi, í Osló
og London. Um þessar mundir starf-
ar hún sem sölumaður hjá Ölgerð-
inni og rekur kaffiskóla á vegum fyr-
irtækisins. Auk þess rekur hún eigin
kaffibrennslu ásamt Lukas Stencel,
Kvörn. Nú er hægt að fá kaffi frá
Kvörn á Bismút við Hverfisgötu og á
Kaffi Laugalæk en vonir standa til
að kaffiáhugafólk geti keypt kaffi-
baunir frá Kvörn til heimabrúks inn-
an tíðar.
„Ég er búin að vera að vinna
með kaffi og kenna öðrum í að verða
tíu ár en ég hafði aldrei komið á
kaffibúgarð áður. Það var ánægju-
legt að sjá að flest það sem ég hef
verið að segja var nokkurn veginn
rétt hjá mér,“ segir Vala og hlær.
Um 300 manns sóttu um að fá
að taka þátt og tíu voru á endanum
valdir. Stíf dagskrá var alla tíu dag-
ana, að sögn Völu. „Við vöknuðum
klukkan fimm á morgnana og fórum
í rútuferð í heimsóknir á kaffibú-
garða. Þar hittum við bændurna og
tókum þátt í að tína kaffi. Við lærð-
um allt um ferlið hvernig það er
gróðursett, ræktað og unnið. Þetta
var í raun ótrúleg upplifun. Við
sáum mikla fátækt en um leið var
tekið svo ríkmannlega og fagnandi á
móti okkur.“
Ástríðan var augljós
Meðal þess sem Vala og aðrir
keppendur tókust á við var keppni í
að tína kaffi og ýmiss konar þrautir.
Keppt var í boðhlaupi þar sem þurfti
að leysa gátur á leiðinni, til að
mynda um hvaða hreinsiefni hentaði
til að hreinsa hverja kaffivél.
„En svo var mikið um fyrir-
lestra. Það voru fluttir inn fyrirles-
arar sem fræddu okkur um hreinsi-
efni, espressovélar, kaffibrennslu og
landbúnað og voru mjög áhugaverð-
ir. Ég er enn að vinna úr öllum þess-
um upplýsingum sem ég fékk. Á
meðan við vorum í burtu fræddu
þessir fyrirlesarar svo bændurna á
búgörðunum. Það hefur verið mark-
mið með þessum þáttum, að heima-
menn græði líka á þessum heim-
sóknum.“
Hvað situr eftir hjá þér eftir
þessa ferð?
„Fyrst og fremst þessi nána
tenging við fólkið á bak við kaffið.
Það náði að kenna mér mjög mikið
þó það talaði bara spænsku en ég
ekki. Ástríðan var augljós þegar þau
sýndu okkur landið sitt og buðu okk-
ur velkomin.“
Hún segir jafnframt að eftir
standi vilji allra sem þarna voru til
að bæta aðstæður bændanna. „Við
hugsum um hvað við getum gert til
að bæta þeirra lifibrauð. Og ekki
bara með því að borga hærra verð
fyrir kaffið heldur með því að fjár-
festa í þekkingu og jafnvel í tækjum.
Staðreyndin er sú að 70% þeirra sem
vinna við kaffi þarna eru í tínslu og
það er ekki margt ungt fólk sem vill
vinna við það. Því þarf að finna leiðir
til að auka þekkingu og gera rækt-
unina skilvirkari.“
Með hugmyndir í farteskinu
Skilar þessi innblástur sér í að
þú gerir nú betra kaffi en áður?
„Ég veit ekki hvort ég geri
betra kaffi en ferðin skilaði mér inn-
blæstri til að gera betur. Ég er með
fullt af nýjum hugmyndum. Til
dæmis um hverju hægt sé að breyta
í brennsluferlinu til að gera kaffi
betra. Sælkerakaffi úti í heimi er að
þróast þannig að kaffið er ristað að-
eins ljósara en verið hefur. Þá færðu
meira af náttúrulegu bragði af
kaffinu sjálfu.“
Vala sigraði ekki í keppninni en
segir að sigurinn hafi verið fólginn í
því að vera valin í hópinn. „Það
myndaðist ekki nein keppni milli
okkar tíu, við vorum bara sterk liðs-
heild og ég eignaðist mjög góða vini
þarna – við vorum svo langan tíma
saman. Þetta var erfitt en algerlega
þess virði.“
Kynntist
ástríðunni í
kaffiræktun
Vala Stefánsdóttir dvaldi í tíu daga í Kólumbíu og tók
þátt í raunveruleikaþætti. Hún fékk að starfa við að
rækta og tína kaffibaunir og fékk ómetanlega innsýn í
það hvernig þessi vinsæli drykkur kaffi verður til. Með bændum Vala heimsótti sjö mismunandi kaffibúgarða og fékk innsýn í störf og ástríðu kaffibænda í Kólumbíu.
Innblástur Heimsókn kaffibarþjónsins Völu til Kólumbíu varð henni hvatn-
ing til að gera betur í kaffigerð. Hún rekur kaffibrennsluna Kvörn.