Morgunblaðið - 14.07.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.07.2018, Qupperneq 16
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þrátt fyrir hamfarirnar í Hítardal um liðna helgi, þar sem gríðarmikil skriða hefur fallið yfir farveginn of- arlega og þurrkað upp langan kafla neðan hennar, heldur lax áfram að veiðast í ánni en 56 laxar veiddust í liðinni viku, á sex stangir. Áin hefur fundið sér nýjan farveg meðfram skriðunni og niður þverána Tálma, og að sögn Birtu Björndóttur, sem var við veiðar þriðjudag til fimmtu- dags, berst talsvert af mosa og öðr- um gróðri niður ána sem er skiljan- lega nokkuð skoluð, auk þess sem hún er talsvert bólgin og vatnsmikil eftir rigningarnar undanfarið. Birta segir að þar sem sum hefð- bundin veiðisvæði séu dottin út hafi verið veitt þéttar en vant er. „Og það veiddist, við fengum fimmtán eða sextán laxa á stangirnar sex,“ segir hún. „Sum svæði voru betri en önnur, allir settu í fisk og sumir náðu að landa,“ segir Birta sem var óheppin því eftir að hafa þreytt sannkallaðan stórlax, sem leið- sögumaðurinn sagði hafa verið „níu- tíu plús“, sleit laxinn tauminn við háfinn. „Það var svekkjandi,“ segir hún. Með því besta sem sést hefur Mjög góð veiði hefur verið í Þverá og Kjarrá í sumar; veiðin í ánni með veiðisvæðin tvö er á toppi listans yf- ir bestu veiðina, 1.186 laxar höfðu verið færðir til bókar á miðviku- dagskvöldið var, sem er nokkuð betra en undanfarin ár á sama tíma, en nær 350 laxar veiddust í liðinni viku á stangirnar 14, um þrír og hálfur lax á stöng á dag að meðaltali. „Þetta er með því besta sem sést hefur í ánni og er klárlega besta veiðin síðan 2013,“ segir Ingólfur Ásgeirsson staðarhaldari en það sumar veiddust 3.374 laxar í Þverá og Kjarrá, sem er met. „Við erum bara búin að veiða í rúman mánuð, bróðurparturinn af júli er eftir, allur ágúst og inn í sept- ember, það er stórstraumur núna og fínar göngur að koma inn. Síðasta holl í Þverá var með 98 laxa og á sama tíma veiddust 60 á fjallinu, í Kjarrá.“ Ingólfur segir hlutfallið af stórlaxi í veiðinni afar gott, það besta sem menn hafa séð undanfarna áratugi. „Stórlax er þriðjungur af veiðinni enn, og framan af júní eingöngu, og svo veiðist mikið af mjög fallegum 67-69 cm virkilega fallegum smálaxi, sem er mjög vel haldinn.“ Á þessu rigningasumri eru að- stæður mjög góðar hvað vatnsstöðu varðar. „Það verður gott vatn út sumarið – nú má fara að stytta upp,“ segir hann og hlær. „Það mætti fara að sjást til sólar.“ Gott í Brennu og Straumum Ingólfur var að koma úr Brennu, ármótum Þverár og Hvítár í Borg- arfirði, þar sem veitt er á þrjár stangir. Og þar hefur veiðin verið frábær, um 260 laxar hafa verið færðir til bókar. „Brennan á að geta farið í 400 til 500 laxa í sumar. Það er fiskur um allt og auk laxins er mikið af mjög fallegum sjóbirtingi að ganga, þriggja til sjö punda fisk- ar. Birtingurinn er mættur óvenju- snemma og síðasta holl fékk tíu. Það er skemmtileg viðbót við frábæra laxveiði.“ Annað ármótasvæði í Hvítá, Straumarnir við Norðurá, voru hæg- ir í gang. Þar veiddust aðeins 12 lax- ar í júní og þótti lélegt. „Það er gjör- breytt staða þar, því nú hafa veiðst þar hundrað laxar á tíu dögum,“ segir Ingólfur. Veiðimenn sem voru þar í gærmorgun náðu 14 löxum fyr- ir hádegi á stangirnar tvær. „Það er lax upp og niður alla Straumana. Það er gaman að sjá veiðina í Borgarfirði á svona góðu róli. Upp úr aldamótum var hlutfall stórlax þar komið niður í fimm til tíu pró- sent en með góðri veiðistjórnun, að stórlaxi sé sleppt og gengið vel um þessa auðlind, eru menn að upp- skera, að sögn fiskifræðinga, bestu stöðu sem sést hefur á stórlaxa- stofnunum síðan um 1990. Allt að þrjátíu prósent laxins sem gengur er stórlax. Þetta er ótvíræður bati.“ Og Ingólfur spáir fyrir um veiðina í Borgarfirði í sumar: „Þetta verður eit af stóru veiðiárunum.“ Smálax gengur af krafti Veiðimenn segja alls staðar sögur um að smálaxinn gangi nú í árnar í ágætum mæli. Í Sporðaköstum á Mbl.is sagði af Ólafi Kr. Ólafssyni sem var við veiðar í Soginu og fékk með félögum sínum tíu laxa á einum degi. Hann sagði fisk hafa verið á nánast öllum veiðistöðum en þeir fé- lagar voru að veiða Bíldsfellssvæðið. „Smálaxinn var að koma inn af full- um krafti,“ sagði hann. Öflugar smá- laxagöngur eru sagðar í Þjórsá, og njóti veiðimenn við Urriðafoss góðs af, veiðin glæddist líka mikið í Rang- ánum í vikunni og þá er til að mynda mikið af smálaxi mætt á neðstu svæði Langár, Grímsár og Laxár í Kjós. Norðan heiða mætir smálaxinn alltaf seinna en er farinn að láta sjá sig, til að mynda í Húseyjarkvísl þar sem leigutakinn segir hann óvenju- snemma á ferðinni. Og blaðamaður var fyrir neðan Ægissíðufoss í Laxá í Aðaldal í vikunni, þar sem stórlax hafði einokað veiðibækur, þegar smálaxar tóku að skríða inn. Nokkr- ir tóku flugur veiðimanna þar vilj- ugir og tíðindin af þeim glöddu veiðimenn sem biðu þeirra ofar í ánni. „Þetta verður eitt af stóru veiðiárunum“  Besta veiði í Þverá-Kjarrá síðan metsumarið 2013  Veiðist í Hítará Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is * Tölur liggja ekki fyrir 0 250 500 750 1.000 Staðan 11. júlí 2018 Veiðivatn Stanga- fjöldi Veiði 12. 7. 2017 13. 7. 2016 Þverá / Kjarrá 14 1.186 1.001 1.003 Norðurá 15 834 794 801 Urriðafoss í Þjórsá 4 718 531 * Miðfjarðará 10 515 749 1.077 Haffjarðará 6 487 420 565 Blanda 14 417 514 1.300 Ytri-Rangá og vesturbakki Hólsár 18 401 570 1.720 Langá 12 346 532 471 Elliðaárnar 6 325 345 309 Grímsá og Tunguá 8 301 361 175 Laxá í Kjós 8 276 251 162 Brennan í Hvítá 3 229 168 * Eystri-Rangá 18 216 145 1.442 Laxá í Aðaldal 17 175 171 378 Laxá á Ásum 4 172 242 163 Morgunblaðið/Einar Falur Átök Þorri Hringsson glímir við 88 cm nýgengna hrygnu sem tók flugu hans í Sjávarpolli í Laxá í Aðaldal. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skoluð Veiðimenn kasta á Breiðina í Hítará frá hinu veiðihúsinu, Lundi. Áin er bólgin og talsvert skoluð og ber með sér gróður eftir að skriðan féll. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018 Allt um sjávarútveg Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.