Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is 14. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.43 107.95 107.69 Sterlingspund 140.95 141.63 141.29 Kanadadalur 81.3 81.78 81.54 Dönsk króna 16.745 16.843 16.794 Norsk króna 13.162 13.24 13.201 Sænsk króna 12.03 12.1 12.065 Svissn. franki 106.81 107.41 107.11 Japanskt jen 0.9535 0.9591 0.9563 SDR 150.58 151.48 151.03 Evra 124.85 125.55 125.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.0557 Hrávöruverð Gull 1244.85 ($/únsa) Ál 2120.0 ($/tonn) LME Hráolía 74.17 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Samkeppnis- eftirlitið hefur nú til rannsóknar sam- keppnisleg áhrif samruna vegna kaupa Samkaupa hf. á eignum 14 verslana af Basko verslunum ehf. Þetta kemur fram á vef Sam- keppniseftirlitsins. „Þar sem um er að ræða samruna á mörkuðum sem varða almenning miklu hefur Sam- keppniseftirlitið ákveðið að óska op- inberlega eftir sjónarmiðum almenn- ings og fyrirtækja um áhrif samrunans á samkeppni,“ segir á vefnum. Í tilkynningunni er samrunatilkynn- ingin vegna málsins birt, og kemur þar meðal annars fram að um er að ræða kaup á öllum sjö Iceland verslununum, fimm 10-11 verslunum, og tveimur Há- skólabúðum. tobj@mbl.is Samkeppniseftirlitið skoðar kaup Samkaupa Verslun Vilja styrkja sig á höfuð- borgarsvæðinu. STUTT BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is „Það er ekki alveg sama bjartsýni og gleði eins og í fyrra til dæmis. Fólk var að bóka hjá okkur svolítið fram í tímann í fyrra, en við sáum að með Color Run var rólegt í bókunum í maí, miðað við ári áður en svo sá fólk viku fyrir hlaup að það yrði ágæt- isveður og þá tóku bókanir við sér. En veðrið hefur áhrif á þetta, eins og örugglega allt á Íslandi,“ segir Ragnar Már Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri Basic Events, eiganda Gung Ho-hindrunarhlaupsins og Color Run-skemmtihlaupsins. Gung Ho verður haldið hérlendis 28. júlí. Aðspurður hvernig gengur að selja miða á viðburðinn segir Ragnar Már það ganga ágætlega en miðasala sé oftast mest rétt fyrir hlaupið. „Það eru enn tvær vikur í hlaup, en það er orðið uppselt í nokk- ur hólf. Það eru 250 manna hólf sem eru ræst út á 15 mínútna fresti. Þannig að það eru kringum þúsund manns sem eru ræst út á hverjum klukkutíma.“ Rúm 30 m.kr. fjárfesting Basic Events fjárfesti í þrauta- brautunum sem notaðar eru í Gung Ho í fyrra að sögn Ragnars. „Já, við fjárfestum í þessum brautum. Þetta eru 13 brautir og 10 mismunandi tegundir. Þetta var fjárfesting upp á yfir 30 milljónir króna, en við notum þetta næstu fjögur til fimm árin um alla Evrópu. Við flytjum þetta á milli landa. Þetta var síðast í Stokkhólmi en verður komið til landsins fyrir hlaupið þann 28. júlí. Eftir hlaup fer það beint til Danmerkur og verður notað þar í ágúst og september.“ Markaðsstofan Manhattan hefur verið viðriðin bæði Color Run- og Gung Ho-hlaupin vinsælu frá byrj- un. Fyrirtækið eignaðist íþróttavið- burðina báða að fullu um áramótin, eins og greint var frá í Morgun- blaðinu. „Þetta byrjaði allt þegar Manhattan var fengin til þess að sjá um Color Run-viðburðinn árið 2015,“ segir Ragnar. „Við vorum fengin til að sjá um viðburðinn, markaðssetn- ingu og viðburðarstjórnun fyrir að- ilann sem átti þetta á sínum tíma. Eftir það hlaup keyptum við 50% í fyrirtækinu. Árið 2016 bættum við leyfinu á Gung Ho við og héldum það síðan í fyrsta sinn hérlendis árið 2017. Um síðustu áramót keyptum við hlut Davíðs Lúthers Sigurðsson- ar og eignuðumst þannig þessi hlaup að fullu.“ Fleiri lönd mögulega á dagskrá Basic Events er einnig með leyfi fyrir hlaupunum tveimur á Norður- löndum. Gung Ho var haldið í fyrsta sinn í Stokkhólmi í maí og fjögur hlaup eru á dagskrá í Danmörku í ágúst og september. Aðspurður hvort útrásin hafi gengið vel, segir Ragnar að Color Run hafi verið leng- ur í Svíþjóð og Danmörku heldur en á Íslandi. „Það byrjaði þar árið 2014 og er vel þekkt á þessum mörkuðum og um alla Evrópu. Gung Ho er frek- ar nýr viðburður, en hann byrjaði í Bretlandi árið 2015. Við tryggjum okkur leyfið af honum 2016 og flytj- um hann heim 2017. Við vorum í raun fyrstir til þess að fara með þetta út fyrir Bretland. Við vorum síðan með hlaup í Dan- mörku í fyrra sem gekk vel. Miða- sala fyrir hlaupið nú gengur vel, en það verður haldið í annað sinn í Dan- mörku bráðlega. Fyrsta árið er oft- ast erfiðara á þessum mörkuðum en annað árið er yfirleitt miklu betra. Við vorum í Svíþjóð í fyrsta skipti í vor, það gekk bara fínt, það var ekki uppselt í hlaupið en það bætist von- andi þá meira í á næsta ári.“ Veðrið hefur áhrif á bókan- ir í Gung Ho og Color Run Morgunblaðið/Hanna Sumar Gung Ho var haldið í fyrsta sinn á Íslandi síðasta sumar og var almenn ánægja með viðburðinn.  Nota þrautabrautina næstu fjögur til fimm árin um alla Evrópu Flugfélagið WOW air ehf. tapaði tæpum 2,4 milljörðum króna á árinu 2017, eða 22 milljónum bandaríkjadala, en árið á undan var tapið 35,5 milljónir dala, eða rúmir 3,8 milljarðar. Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi félagsins, segir í frétta- tilkynningu að niðurstaðan sé von- brigði. „WOW air hefur vaxið og fjárfest gríðarlega síðustu ár en með þessum fjárfestingum höfum við verið að tryggja langtímahorfur félagsins. Bæði 2015 og 2016 voru mjög góð ár en afkoman fyrir árið 2017 olli vonbrigðum þar sem þessi mikli vöxtur og fjárfesting reyndist dýrari en við ætluðum okkur,“ segir Skúli. Hann segir að ytri aðstæður hafi reynst félaginu krefjandi svo sem hækkandi olíuverð, styrking krón- unnar, dýrt rekstrarumhverfi á Ís- landi og mikil samkeppni á lyk- ilmörkuðum félagsins. Tekjur 61 milljarður króna Tekjur WOW air ehf. árið 2017 námu 486 milljónum bandaríkja- dala, eða um 61 milljarði króna, sem samkvæmt tilkynningunni er 58% aukning miðað við árið á und- an. Rekstrarhagnaður fyrir af- skriftir, fjármagnsgjöld og tekju- skatt (EBITDA) var fjórar milljónir dala samanborið við 46 milljónir dala árið 2016. Rekstr- artap (EBIT) félagsins árið 2017 var 13,5 milljónir dala samanborið við 30 milljóna dala hagnað árið 2016. Eiginfjárhlutfall félagsins var 10,9% í árslok. Starfsmenn eru nú 1.500 en voru 1.100 á sama tíma í júlí 2017. tobj@mbl.is Flug WOW air segir horfur fyrir ár- ið 2018 vera ágætar. WOW tapar 2,4 milljörðum króna  Forstjórinn segir niðurstöðuna vonbrigði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.