Morgunblaðið - 14.07.2018, Page 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018
Lífið getur verið erf-
itt. Það geta fylgt því
alls konar erfiðleikar og
öll höfum við upplifað þá
af einhverju tagi. Þó að
það sé ekki nema ein-
göngu að takast á við
erfiðar tilfinningar,
hugsanir eða streitu í
daglegu lífi. Það fylgir
lífinu að takast á við ein-
hvers konar erfiðleika,
hvort sem þeir eru minni háttar eða
meiribháttar. Það getur verið auðvelt
að fallast hendur og gefast upp á þess-
um erfiðleikum. Sérstaklega ef maður
er ekki í stakk búinn til þess að taka á
móti þeim. Það er jafnvel auðveldari
leiðin að gera það. En það er önnur
leið til að takast á við lífið og erfiðleik-
ana sem getur fylgt því. Það er að efla
sig andlega og líkamlega til þess að
takast á við þá. Efla þrautseigju sína
til þess að takast á við þá og komast
heil ef ekki betri í gegnum þá.
Það er ekki undir okkar stjórn hvað
verður á vegi okkar í lífinu. Að minnsta
kosti ekki allt. Þótt við getum haft
áhrif á margt. En við getum stjórnað
því hvernig við bregðumst við erfið-
leikum. Það liggur í okkar valdi að
velja hvernig við bregðumst við þeim.
Árið 2017 skall á mig eitt slíkt verk-
efni. Ég greindist 28 ára gömul með
brjóstakrabbamein. Það var mikill
skellur og langt ferli sem fylgdi því eft-
ir í meðferð. En ég hafði valið hvernig
ég brást við því. Það var í mínum
höndum og mínu valdi
að bregðast við því á
uppbyggilegan hátt og
spyrja mig að því og lífið.
„Hvað get ég lært af
þessu?“ „Hverju hef ég
stjórn á?“
Við búum öll nú þegar
yfir margs konar leiðum
til að efla okkur andlega
og líkamlega. Það er
hins vegar allt annað
mál hvort við notum þær
leiðir reglulega. Það get-
ur verið erfitt að sjá til-
ganginn í því að hlúa að sér og styrkja
sig andlega og líkamlega dags daglega.
En þegar öllu er á botninn hvolft er
það gífurlega mikilvægt að hlúa að
bæði sál og líkama til að efla sig í að
takast á við lífið og erfiðleikana sem
geta fylgt því. Þar að auki hafa verið
rannsakaðar ýmsar aðferðir innan sál-
fræðinnar m.a., sem hafa sýnt árangur
í að efla getuna til að draga úr streitu,
kvíða og depurð og auka og viðhalda
vellíðan.
Við berum ábyrgð á eigin heilsu og
það er því mikilvægt að skoða hvað
það er sem hver og einn getur gert fyr-
ir sig til að efla getu sína að takast á við
streituna sem getur fylgt daglegu lífi
og starfi. Þar að auki er mjög gagnlegt
að kynna sér aðferðir sem hafa verið
rannsakaðar og sýnt árangur sinn til
þess að bæta eigin geðheilsu.
Ein þessara leiða er þjálfun í núvit-
und. Með því að þjálfa núvitund lærir
maður að beina athyglinni að sjálfum
sér og upplifun sinni án þess að dæma
þessar upplifanir og samþykkja þær
eins og þær eru. Þetta er gífurlega
stórt atriði, að kanna hjá sjálfum sér
hvaða hugsanir, hvaða tilfinningar, lík-
amsskynjanir eru að fara í gegnum
meðvitund okkar. Þetta er fyrsta
skrefið að því að uppgötva hvernig þér
líður og hvað er raunverulega að ger-
ast innra með þér. Mörgum finnst
þetta gífurlega erfitt, því þeir geta ótt-
ast hvað þeir sjá innra með sér. En það
er mikilvægt að læra og finna hvernig
manni líður, svo það sé hægt að læra
síðan að bregðast við þeim upplifunum
á uppbyggilegan máta.
Rannsóknir hafa sýnt að með því að
iðka núvitundarhugleiðslu reglulega í
ca. 30-40 mínútur á dag má draga úr
streitu, kvíða og depurð og þar að auki
viðhalda vellíðan.
Það er hægt að stunda ýmsar æfing-
ar sem efla mann í þessu og hægt er að
nálgast á www.styrkleikamat.is þar
sem ég held úti greinum og fræðslu
um þessa og fleiri hluti.
Að efla sig í að
takast á við erfiðleika
Eftir Sigrúnu Þóru
Sveinsdóttur »Með því að efla sig
andlega og líkam-
lega er hægt að vera öfl-
ugri í að takast á við það
sem verður á vegi okkar
í lífinu.
Sigrún Þóra Sveinsdóttir
Höfundur er klínískur sálfræðingur
sérmenntuð í sálfræði heilsueflingar.
sigrun@styrkleikamat.is
Heimildir: Williams, M. og Penman, D. (2011).
Mindfulness: A practical guide to finding
peace in a frantic world. London: Piatkus.
Í Morgunblaðsgrein
sinni 6. júlí 2018 víkur
Haraldur Ólafsson, for-
maður Heimssýnar,
nokkrum orðum að
Morgunblaðsgrein
minni 23. júní 2018.
Grein Haraldar
Grein Haraldar er að
flestu leyti misskiln-
ingur. Hann heldur
fram að viðhorf mín séu „að Íslend-
ingar eigi að setja Evrópusambands-
lög um orkumál“. Þarna er Haraldur
að snúa öllu á hvolf og gera mér upp
skoðanir sem ég er alls ekki með.
Haraldur nefnir að ég fari „ótal-
mörgum orðum um ágæti markaðs-
búskapar í orkumálum og þess vegna
sé best að setja lög sem hjálpi þess
háttar búskap“. Hann hefði mátt
nefna að markaðsbúskapur var lög-
leiddur á Íslandi með Raforkulögum
2003 eða fyrir 15 árum og er fram-
kvæmd þeirra komin vel á veg.
Markaðsbúskapur hefur verið tekinn
upp í öllum iðnvæddum löndum, ekki
bara í Evrópu en einnig um allan
heim. Reynslan hefur verið mjög góð.
Eftirfarandi skítkast er ekki svara-
vert: „Kannski telur hann [þ.e. ég] að
menn sem vinna fyrir erlend ríki séu
betur til þess fallnir að stjórna á Ís-
landi en íslenskir ráðamenn, því út-
lendingunum þyki svo vænt um Ís-
lendinga eða hugsi svo skýrt.“
Haraldur segist hafa heyrt að ein-
hverjir hafi „misst nætursvefn vegna
sverðaglamurs í orkusölusamkeppn-
inni“. Þetta eru alveg nýjar upplýs-
ingar fyrir mig þó að ég hafi lagt mig
fram við að kynna mér málið í hví-
vetna. Þess vegna lít ég á þetta sem
ætlaðan sniðugan útúrsnúning sem
hefur ekkert á bak við sig. Kannski
hefur Haraldur heyrt þetta sjálfur og
ætti hann þá að leita til læknis.
Skoðanakönnun
Heimssýnar
Skoðanakönnun á
vegum Heimssýnar var
gerð dagana 24. apríl til
7. maí 2018 og var hún
framkvæmd af fyrir-
tækinu Maskínu.
Spurt var: „Ertu
fylgjandi eða andvíg(ur)
því að aukið vald yfir
orkumálum á Íslandi
verði fært til evrópskra
stofnana?“ Þetta mundi
maður kalla leiðandi spurningu.
Í frétt frá Heimssýn kom fram að
samtals voru 80,5% þjóðarinnar and-
víg því að færa vald yfir íslenskum
orkumálum til evrópskra stofnana.
Þar af eru 57,4% mjög andvíg og 23%
frekar andvíg. Hins vegar eru 8,3%
hlynnt því.
Ef ég væri spurður svona spurn-
ingar mundu viðbrögðin vera að ég
væri mjög andvígur.
Það furðulega er að Heimssýn
snýr skoðanakönnuninni yfir á þriðja
orkupakkann, sem er alls óskylt mál.
Spurningin á alls ekki við að því leyti.
Þriðji orkupakkinn
Í upptalningunni hér á eftir eru
sýnd nokkur atriði sem haldið hefur
verið fram af andstæðingum þriðja
orkupakkans og útskýrt er hvers
vegna röksemdir þeirra standast
ekki. Þessi listi hefur áður verið birt-
ur.
Þriðji orkupakkinn:
– fjallar ekki um hvort eigi að
leggja sæstreng frá Íslandi til Bret-
lands. Ákvörðun um það er alfarið á
hendi íslenskra stofnana, sem til þess
eru bærar.
– fjallar ekki um rekstur raforku-
sæstrengja milli landa, þ.e. hvaða raf-
straumur er sendur hverju sinni og í
hvora átt. Það ákvarðast eingöngu af
framboði og eftirspurn á raforku-
markaði í einstökum aðildarríkjum
og þar með raforkuverði á uppboðs-
markaði, en aðildarríkin hafa sjálf
full tök á þeim málum hvert fyrir sig.
– fjallar ekki um hvort eigi að
hækka orkuverð til almennings á Ís-
landi, við ákveðum það sjálf. Við
munum áfram sem hingað til taka
þátt í þróun raforkumarkaða, þar
sem verðlagning á losun gróðurhúsa-
lofttegunda mun skipta æ meira máli.
– fjallar ekki um framsal á forræði
í eftirliti með raforkumálum á Íslandi
til ESB, það verður áfram sem hing-
að til hjá ESA.
– fjallar ekki um framsal á forræði
yfir íslenskum virkjunum til ESB,
hvorki hvað varðar byggingu nýrra
virkjana né rekstur þeirra.
– fjallar ekki um aukið álag á
vatnsaflsvirkjanir, sem gæti haft
spillandi umhverfisáhrif t.d. með því
að breyta vatnsstöðu í miðlunum tíð-
ar og meira.
Það ekki hugmyndin með þriðja
orkupakkanum að hlutast til um upp-
byggingu og rekstur raforkukerfa og
virkjana í einstökum löndum Evrópu,
nema ef til vill með ráðgjöf og þá að-
eins ef þess væri óskað. Það gæti ver-
ið mikils virði að hafa slíka ráðgjöf á
takteinum áður er farið verður í
gríðarframkvæmdir, sem jafnan eru
á ferðinni í raforkumálum.
Lokaorð
Í samræmi við málflutninginn
mætti að kalla félagsskap Haraldar
Þröngsýn í stað Heimssýn.
Grein Haraldar Ólafssonar,
formanns Heimssýnar
Eftir Skúla
Jóhannsson »Haraldur hefði mátt
nefna að markaðs-
búskapur var lögleiddur
á Íslandi með Raf-
orkulögum 2003 eða fyr-
ir 15 árum.
Skúli Jóhannsson
Höfundur er verkfræðingur.
skuli@veldi.is
Þvílíkir offorsmenn
hafa tekið sæti í
„mannréttinda- og
lýðræðisráði Reykja-
víkurborgar“! Án
minnsta samráðs við
borgarbúa vilja þau
með einróma sam-
þykkt þvinga bæði
kyn til að baðast nak-
in saman á sund-
stöðum!
Mannréttinda- og lýðræðisráð
borgarinnar leggur til „að við upp-
byggingu nýrra mannvirkja borg-
arinnar sem og við breytingar og
aðrar framkvæmdir sé þess gætt
að salernis-, sturtu- og búnings-
aðstaða sé eins ókynbundin og
frekast er unnt.“ Já, þar með talin
sturtu- og búningsaðstaða í nýjum
sundmannvirkjum borgarinnar!
Er ekki nokkuð ljóst, hvað þau
ætla sér?
Þau kalla sig „mannréttinda- og
lýðræðisráð“ borgarinnar, en ekki
báru þau samþykkt sína undir lýð-
ræðislegan vilja Reykvíkinga! Því-
lík ofdirfska!
Mjög stór hluti kvenna og karla
vill alls ekki baðast í sameiginlegri
sturtuaðstöðu, og hvað er þá að
segja um krakka á viðkvæmu
feimnisskeiði, t.d. 10-15 ára, sem
verða útsettir þarna fyrir stríðni og
áreitni hins kynsins!? En einnig
þetta (ekki bara að karlar fái að
gera þarfir sínar á kvennaklósett-
um og öfugt) var partur af þessari
makalausu, kynlausu fyrstu ákvörð-
un þessa nýkjörna „mannréttinda-
og lýðræðisráðs“! Hér er opinskátt
verið að reyna á blygðunarkennd
fólks.
Er þá tilgangurinn kannski ekki
aðeins að draga úr hreinlæti, held-
ur líka að fæla fullorðna og börn
frá sundferðum? Mun borgin þá
missa af ómældum tekjum vegna
erlendra ferðamanna (sem gjarnan
borga hæsta gjald, 980 kr. á hvern
18 ára og eldri, fyrir hverja sund-
ferð)? Ferðamenn eru ekki vanir
svona einsýnni pólitískri ofstæk-
isstefnu.
Að þvinga bæði kyn til að baðast
saman er stefna sem felur í sér
nauðung og ofríki og hefði einmitt
helzt verið að „vænta“ frá pólitísk-
um „rétttrúnaðarmönnum“ vinstri
flokkanna.
Þarna hafa þeir stæku fengið að
ráða, en meðvirkar
gungur í ráðinu
(fulltrúar hægri og
miðjuflokka) ekki þor-
að að hafa á þessu
sjálfstæða og siðlega
skoðun eða nennt að
minna á virðingu fyrir
lýðræði.
Öll saman hafa þau
gert nafn þessa
„mannréttinda- og lýð-
ræðisráðs“ að hláleg-
um öfugmælum.
Það væri fróðlegt að vita hvaða
ráðleysingjar eru í þessu „mann-
réttinda- og lýðræðisráði Reykja-
víkurborgar“. Ég sé að Guðrún Ög-
mundsdóttir, nýlega staðfest sem
einn aðalóvinur ófæddra barna,
vegna lagatillagna sinna, er þarna
(já, í mannréttindaráði!), sem og
oddakona Pírata, en þætti fróðlegt
að vita, hverjir þeir eru, fulltrúar
minnihlutaflokkanna, sem tóku þátt
í þessari fjarstæðukenndu „ein-
róma samþykkt“ hins ráðlausa
„mannréttinda- og lýðræðisráðs“.
Þetta lið á allt að segja af sér án
tafar og ekki voga sér að reyna það
aftur að troða sínum afbrigðilegu
óskahugdettum upp á allan al-
menning í Reykjavík.
Þótt þarna sé að sönnu talað um
nýjar mannvirkjaframkvæmdir
borgarinnar, er þar líka talar um
„breytingar“ (á eldri mann-
virkjum), en fyrst og fremst blasir
við, að nýjar sundlaugar verði
hannaðar samkvæmt þessum
reglum! Ekkert er minnzt á íbúa-
fundi um málin.
Er þetta er kannski í aðra rönd-
ina aðferð vinstri flokkanna, með
allan sinn ömurlega rekstrarvanda,
til að losna við að byggja upp sund-
laugar í nýjum hverfum eins og
Úlfarsárholti? Augljóst er, að fólk
myndi almennt sækja þaðan sund-
laugar annars staðar, fremur en í
furðulegri hverfisnektarnýlendu
vinstri manna í borgarstjórn.
Borgarsamþykkt
þvingar bæði kyn
til að baðast saman
á sundstöðum
Eftir Jón Val
Jensson
Jón Valur Jensson
» Þessi stefna felur í
sér nauðung og of-
ríki, reynir á blygðunar-
kennd fólks og mun fæla
bæði börn og fullorðna
frá sundferðum.
Höfundur er guðfræðingur m.m.
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli