Morgunblaðið - 14.07.2018, Blaðsíða 43
ötullega að jafningjafræðslu um
„viðhorf til vímugjafa“.
Samhliða tónlistarnáminu, að
loknu stúdentsprófi, las Kolbeinn
bókmenntir, íslensku, þýsku og
heimspeki við Háskóla Íslands.
Hann yfirgaf háskólanámið í miðri
skáldsögu Henrys Fieldings, Tom
Jones, og gerðist nemandi austur-
ríska flautusnillingsins Manuelu
Wiesler í Grjótaþorpinu. Síðar lá leið
hans til Basel og New York í frekara
nám, m.a. í japanskri tónlist. Kol-
beinn starfaði sem flautuleikari og
-kennari á Íslandi frá 1984 til 2016
en kom jafnframt fram víða um heim
og hljóðritaði einleiksdiska fyrir al-
þjóðleg útgáfufyrirtæki. Hann hefur
starfað talsvert með japönskum tón-
skáldum og tónlistarmönnum, einnig
hefur hann átt tónlistarlegt athvarf í
Búkarest og Belfast svo helstu dæmi
séu tekin.
Kolbeinn stofnaði tónlistarhópinn
Caput (Höfuð á latínu) ásamt Guðna
Franzsyni árið 1987.
Hann útskrifaðist með meistara-
próf í tónsmíðum frá Listaháskóla
Íslands árið 2013. Síðustu árin hefur
hann helgað sig tónsmíðum en nú
virðist sem bókmenntirnar ætli að
soga hann til sín á nýjan leik. Flest
tónverk hans byggjast á bók-
menntum að meira eða minna leyti,
hvort sem þau eru samin fyrir söng
eða hljóðfæri eingöngu. Meðal
skálda sem hafa orðið fyrir barðinu á
ómstríðum tónum Kolbeins eru
Pablo Neruda, Egill Skallagrímsson,
John Berrymann og Snorri Hjartar-
son. Þá hefur Kolbeinn skrifað all-
nokkuð um tónlist. Ritgerðir hans
um tónlist Leifs Þórarinssonar
komu út hjá bókaútgáfunni Nýr kafli
árið 2014 og nú í júní kom út hjá Sæ-
mundi viðamikið rit hans um Helgu
Ingólfsdóttur semballeikara og
Sumartónleika í Skálholtskirkju
ásamt ýmsum sögulegum fróðleik
öðrum og vangaveltum um tónlist –
og þó einkum um hugmyndir manna
um tónlist.
Kolbeinn hefur verið útivistar- og
göngumaður frá unga aldri, allt frá
Keflavíkurgöngum um miðjan sjö-
unda áratuginn. Hann tók til við að
hlaupa fyrir u.þ.b. 10 árum og mun
halda upp á sextugsafmælið á hlaup-
um frá Landmannalaugum niður í
Þórsmörk.
Fjölskylda
Eiginkona Kolbeins er Guðrún
Óskarsdóttir, f. 5.1. 1962, sembal-
leikari. Foreldrar hennar eru hjónin
María Eiríksdóttir, f. í Þýskalandi
1937, kennari, og Óskar Jónsson,
prentari, síðar kirkjuvörður. Þau
eru bús. í Hafnarfirði.
Sonur Kolbeins með Kristínu
Magnúsdóttur lífefnafræðingi er
Jóhann Bjarni Kolbeinsson, f. 20.5.
1980, fréttamaður, bús. í Reykjavík.
Maki: Eyrún Jóhannsdóttir, stjórn-
málafræðingur og starfsmaður utan-
ríkisráðuneytisins. Börn þeirra:
Benedikt Ari, f. 2010, og Lóa Krist-
ín, f. 2014. Börn Kolbeins og Guð-
rúnar eru Sólrún Kolbeinsdóttir, f.
21.9. 1993, sameindalíffræðingur,
bús. í Stokkhólmi, og Sölvi Kolbeins-
son, f. 17.2. 1996, saxófónleikari, bús.
í Berlín.
Bróðir Kolbeins er Sigfús Bjarna-
son, f. 4.12. 1956, líffræðingur og
deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun
Evrópu í Kaupmannahöfn, bús. á
Skáni.
Foreldrar Kolbeins: Hjónin Adda
Bára Sigfúsdóttir, f. 30.12. 1926, veð-
urfræðingur og stjórnmálamaður,
bús. í Reykjavík, og Bjarni Bene-
diktsson frá Hofteigi, f. 25.4. 1922, d.
18.7. 1968, rithöfundur.
Kolbeinn Bjarnason
Gísli Helgason
bóndi á Egilsstöðum
Jónína Benediktsdóttir
húsfreyja á Egilsstöðum í Vopnafirði
Benedikt Gíslason frá Hofteigi
bóndi og rith. á Hofteigi, síðar í Rvík
Geirþrúður Bjarnadóttir
húsfreyja á Hofteigi á Jökuldal, síðar í Rvík
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi
rithöfundur í Rvík
Bjarni Gíslason
útvegsbóndi á Sól-
mundarhöfða
Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Sólmundarhöfða á Akranesi
igurður Z. Gíslason, prestur
á Söndum í Dýrafirði
Sigurður Flosason
tónlistarmaður
nna Pálmadóttir
skrifstofum. í
Reykjavík
Hjörleifur
Hjartarson
listamaður
(Hundur í
óskilum)
Gunnar Ben
tónlistarmaður,
m.a. í Skálmöld
Hulda Sigfúsdóttir bóka-
safnsfræðingur í Rvík
Soffía Sigurhjartar-
dóttir húsfr. í Rvík
Hjörtur E. Þórarins-
son bóndi á Tjörn í
Svarfaðardal
Benedikt
Sveinbjörnsson
aðalbókari Norð-
lenska á Akureyri
Jón Þórarins-
son tónskáld
Þórarinn Eldjárn
rithöfundur
Bergþóra
Benedikts-
dóttir húsfr.
í Kópavogi
Þórarinn Benediktsson hreppstj. og alþm. í Gilsárteigi í Eiðaþinghá
Kristján Eldjárn
forseti Íslands
Sigurður Rúnar Jónsson
(Diddi fiðla) tónlistarmaður
Sigrún
Sigurhjartar-
dóttir húsfr.
á Tjörn í
Svarfaðardal
SJón Sigurðsson
bassaleikari
AEinar Már
Guðmundsson
rithöfundur
Friðrika Sigurðardóttir
húsfreyja á Urðum
Sigurhjörtur Jóhannesson
bóndi á Urðum í Svarfaðardal
Sigfús Sigurhjartarson
ritstj. og alþingismaður í Rvík
Sigríður Stefánsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Stefán Sigurðsson
bóndi á
Brettingsstöðum
Guðrún Erlendsdóttir
húsfreyja á Brettingsstöðum í Laxárdal, S-Þing.
Úr frændgarði Kolbeins Bjarnasonar
Adda Bára Sigfúsdóttir
veðurfræðingur og
stjórnmálamaður, bús. í Rvík
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2018
Jón Svanbjörn Frímannssonfæddist 14. júlí 1903 á Akur-eyri. Foreldrar hans voru hjón-
in Frímann Jakobsson, f. 1868, d.
1937, trésmíðameistari þar, og Sigríð-
ur Björnsdóttir, f. 1874, d. 1963, hús-
freyja.
Eitt systkina Svanbjörns var
Jakob, kaupfélagsstjóri á Akureyri
og stjórnarformaður SÍS, afi Jakobs
Frímanns Magnússonar tónlistar-
manns.
Svanbjörn ólst upp á Akureyri og
lauk námi frá Gagnfræðaskóla
Akureyrar árið 1920. Stóð hugur
hans mjög til frekara náms, en til
þess voru engin efni, en honum
bauðst þegar eftir gagnfræðapróf
starf við við útibú Íslandsbanka á Ak-
ureyri. Seinna gat hann farið út í nám
í bankafræðum og tungumálum í
Danmörku og Þýskalandi veturinn
1928-1929 og í London 1935-1936.
Svanbjörn starfaði hjá Íslands-
banka og síðar Útvegsbanka Íslands
á Akureyri til 1935 og árið 1936 hóf
hann störf í Landsbanka Íslands í
Reykjavík. Hann var aðalféhirðir
Landsbankans 1937-1942, aðalbókari
og aðstoðarbankastjóri 1945-1957, og
bankastjóri frá 1957 til 1970. Svan-
björn var bankastjóri Seðlabanka
Íslands 1971-1973.
Svanbjörn var formaður Viðskipta-
ráðs 1943-1945. Hann átti sæti í ýms-
um samninganefndum um verslunar-
viðskipti við útlönd 1948-1963 og var
m.a. einn þriggja fulltrúa Íslands á
stofnfundi Alþjóðabankans og Gjald-
eyrissjóðsins í Bretton Woods í
Bandaríkjunum árið 1944. Þá átti
Svanbjörn sæti í stjórn Flugfélags Ís-
lands og síðar Flugleiða, og gegndi
stjórnarformennsku í Kassagerð
Reykjavíkur um árabil.
Eiginkona Svanbjörns var Hólm-
fríður Andrésdóttir, f. 4.9. 1915, d.
30.5. 2005, húsmóðir. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Andrés Andrésson
klæðskerameistari og Halldóra Þór-
arinsdóttir. Börn Svanbjörns og
Hólmfríðar eru Andrés, Sigríður
Halldóra og Agnar Frímann.
Svanbjörn lést 9. júlí 1992.
Merkir Íslendingar
Svanbjörn
Frímannsson
Laugardagur
90 ára
Anna Grímsdóttir
Barbro S. Þórðarson
Jón Örvar Skagfjörð
85 ára
Ástríður Helgadóttir
Gíslína Ingibjörg
Ingólfsdóttir
Ólöf Helgadóttir
Steinunn D. Ólafsdóttir
75 ára
Bjarni Steinarr
Kristmundsson
Dóra Sigurðardóttir
70 ára
Eliseo Nable Cabiles
Guðlaug Sigmarsdóttir
Guðmunda Brynjólfsdóttir
Helena Sigtryggsdóttir
Jóhann Egill Hólm
Jón B. Bjarnason
Kristín Sigurbjörg
Jónsdóttir
60 ára
Birgir Rafn Jóhannesson
Bjarni Sigurjón
Kristbergsson
Boguslaw Henryk Konczal
Haraldur Páll
Guðmundsson
Helga Jóhanna
Baldursdóttir
Hjálmar Gunnarsson
Jadwiga Uscinowicz
Kolbeinn Bjarnason
Krzysztof Jerzy Gancarek
Lilja Rós Sigurðardóttir
Magnús Waage
Ríkarð Óskarsson Snædal
Sigríður Helga Einarsdóttir
Steinunn Leósdóttir
Þór Guðjónsson
50 ára
Andrzej Ryszard
Arendarski
Guðfinna Björk
Kristjánsdóttir
Helga Birna
Ingimundardóttir
Jón Benjamínsson
Linda Björk
Snæbjörnsdóttir
Stefán Eðvald Sigurðsson
Þorsteinn Árnason
40 ára
Auður Lilja Davíðsdóttir
Birgir Vestmar Björnsson
Frímann Sigurðsson
Hilda Hrund Cortes
Janusz Stanislaw Kaleta
Jón Sævar Baldursson
Natalie T. Narvaéz
Antonsdóttir
Ólafur Már Jónsson
Pálmi Pálmason
Ríkarð Svavar Axelsson
Robert Tomasz
Adamczewski
Vignir Rafn Valþórsson
Vivi Jacobsen
30 ára
Arnar Gylfi Jóhannesson
Auður Ásbjörnsdóttir
Bjarney Einarsdóttir
Dainius Ligeika
Kristbjörg Helga S. Cooper
Kristín Kara Collins
Lydía Dögg Egilsdóttir
Magnús Benedikt
Magnússon
Ragnar Jón Hrólfsson
Sara Kristín Kjartansdóttir
Steinþór Andri
Steinþórsson
Theodór Gaukur
Kristjánsson
Tómas Vilberg
Valdimarsson
Unnur Jónsdóttir
Þóra Ágústsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Olgeir Möller
85 ára
Benedikta Guðnadóttir
Sigríður Markúsína
Helgadóttir
80 ára
Lára Hjartardóttir
75 ára
Elín Rebekka Tryggvadóttir
Guðlaug Gunnlaugsdóttir
Helgi Sigurjón Ólafsson
Katrín Bára Bjarnadóttir
Óskar Axelsson
70 ára
Bjarnheiður Jónsdóttir
Gestur Þorgeirsson
Kristinn Einarsson
Kristján Harðarson
Kristján Jón Jónsson
Sara Maríanna Jónsdóttir
Sverrir Páll Erlendsson
60 ára
Anna Björk Aðalsteins-
dóttir
Guðmundur Baldvinsson
Guðný Snorradóttir
Guðrún Lind Valsdóttir
Waage
Hildur Þóra
Hallbjörnsdóttir
Janina Antochowska
Kristjana Karen Jónsdóttir
Smári Bent Jóhannsson
Sveinn Trausti Hannesson
Vigfús Ingvarsson
50 ára
Arngrímur V. Ásgeirsson
Álfheiður Ingólfsdóttir
Árni Jóhannesson
Bogdan Jan Strzalka
Edda Sigurbjörg Aradóttir
Gunnar Brynjólfsson
Hákon Ásgrímsson
Helga Erla Þórisdóttir
Helgi Eyjólfsson
Inga Nína Matthíasdóttir
Karl Jóhann Jónsson
Pálína Sif Gunnarsdóttir
Sigurður Skarphéðinsson
40 ára
Arnór Gunnarsson
Baldvin Þór Baldvinsson
Elmar Hauksson
Guðjón Elmar Guðjónsson
Kristófer Róbertsson
Nivaldo F.P. Cardoso
Carvalhal
Tinna Ösp Arnardóttir
Þórdís Hauksdóttir
30 ára
Aleksei Kudlenko
Andris Prenka
Ari Guðmundsson
Björn Alfreðsson
Bryndís Pálsdóttir
Bryndís Þórðardóttir
Halldóra Huld Ingv-
arsdóttir
Ivana Krasnanová
Íris Óskarsdóttir
Karol Kagan
Kristín Ólafsdóttir
Kristján Ólafur Ólafsson
Linda Dögg Kristjánsdóttir
Manuel Jean Philippe
Morvan
Pálmar Dan Einarsson
Ragnheiður Halldórsdóttir
Sigrún Finnsdóttir
Tryggvi Guðmundsson
Til hamingju með daginn