Morgunblaðið - 18.08.2018, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
aukningin samtals um 564
milljónir. Þá fer íþróttasvið
rúman hálfan milljarð fram
úr áætlun. Vega þar þyngst
grassvæði Víkings og fram-
kvæmdir við Sundhöllina í
Reykjavík og við íþrótta-
svæði Fram. Samtals eru
þetta 455 milljónir króna.
Fjórða mesta aukningin er
í flokknum ýmsar fasteign-
ir. Þar er kostnaður við
Perluna og Nauthólsveg samtals 310 milljón-
um meiri en ráðgert var. Hins vegar eru út-
gjöld vegna hverfastöðvar í Örfirisey 222 millj-
ónum minni en áætlað var. Aukningin hjá
menningar- og ferðamálasviði er 43,5 millj-
ónir.
Á móti þessari aukningu kemur meðal ann-
ars að stofnkostnaður gatna er 1.226 millj-
ónum króna lægri en áður var áætlað. Þá er
framlag til bílastæðasjóðs 1.125 milljónum
undir fyrri áætlun. Um er að ræða tvo liði: 900
millj. vegna bílastæðahúss á Austurbakka 2
við Hörpu og 225 millj. vegna miðamæla við
bílastæðahús.
Mikil uppbygging á skólahúsnæði
Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður
Samfylkingarinnar og borgarfullrúi, segir við-
aukann við áætlunina m.a. endurspegla mikla
uppbyggingu í Reykjavík á öllum sviðum, ekki
síst á skólahúsnæði og íþróttaaðstöðu.
„Þarna eru tilfærslur milli liða. Það má
segja að pólitískar áherslur okkar hafi birst í
upphaflegu áætluninni. Þær breytast ekki
mikið með þessari uppfærslu. Okkar pólitísku
áherslur eru fólkið í borginni og að búa vel að
því og okkar starfsemi hver sem hún er til að
geta veitt betri þjónustu. Á síðasta ári var auð-
vitað mikil uppbygging á skóla- og íþrótta-
svæðum. Uppbyggingin í Úlfarsárdal er auð-
vitað gríðarlega umfangsmikil. Einnig má
nefna Sundhöll Reykjavíkur, Húsdýragarðinn
og bókasöfnin. Við erum að gera borgina betri
og skemmtilegri fyrir okkur öll. Síðan er í
gangi gríðarleg húsnæðisuppbygging í borg-
inni og miklar götuframkvæmdir meðal ann-
ars út af því og líka vegna átaks í viðhaldi
gatna. Þetta kostar,“ segir Heiða Björg.
Kröfur Minjastofnunar auka kostnaðinn
Hún bendir á að áætlunin hafi verið sam-
þykkt af síðasta meirihluta. Núverandi meiri-
hluti muni leggja fram sína fyrstu fjárfesting-
aráætlun fyrir A-hluta árið 2019. Varðandi
kostnað við byggingu bragga við Nauthólsvík
bendir hún á að Minjastofnun hafi gert kröfu
um að bragginn yrði endurbyggður og varð-
veittur. Kostnaður hafi því reynst meiri en
áætlað var. Þá segir hún aðspurð að tafir á
uppbyggingu við Austurhöfn skýri frestun út-
gjalda vegna bílastæðakjallara.
Skólar reyndust mun dýrari
Borgarráð samþykkir fjárfestingaráætlun Töluverð frávik Borgarstjóri segir stöðuna sterka
Endurskoðuð fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2018
Upphæðir í þús. kr. Endurskoðuð
áætlun 2018 Breyting
Með
breytingum
Menningar- og ferðamálasvið 743.200 43.500 786.700
Skóla- og frístundasvið 2.907.500 1.248.000 4.155.500
Íþrótta- og tómstundasvið 2.237.000 501.600 2.738.600
Velferðarsvið 644.300 -201.000 443.300
Ýmsar fasteignir 1.352.000 195.000 1.547.000
Bílastæðasjóður 1.125.000 -1.125.000 0
Stofnkostnaður fasteigna samtals 9.009.000 662.100 9.671.100
Þjóðvegir, hluti Reykjavíkur og aðrar
umferðargötur 490.000 20.000 510.000
Nýbyggingarhverfi 2.538.000 -153.000 2.385.000
Miðborgin 1.125.000 -510.000 615.000
Umhverfis- og aðgengismál 1.238.000 -161.000 1.077.000
Umferðaröryggismál 150.000 -70.000 80.000
Umhverfissvið - Ýmsar framkv. 2.455.000 -352.400 2.102.600
Stofnkostnaður gatna samtals 7.996.000 -1.226.400 6.769.600
Áhöld, tæki og hugbúnaður 988.500 140.500 1.129.000
Áhöld og tæki bílastæðasjóðs 0 150.000 150.000
Ný byggingarsvæði, þróun og uppbygging 997.400 258.800 1.256.200
Endurbætur og meiriháttar viðhald 1.025.000 15.000 1.040.000
Aðrar fjárfestingar samtals 3.010.900 564.300 3.575.200
Samtals fjárfesting 20.015.900 0 20.015.900
Framkvæmd Milljónir kr. Upphæð Alls framlag
Klettaskóli 400 780
Grunnskóli við Úlfarsbraut 300 1.500
Vesturbæjarskóli - viðbygging 260 490
Víkingur, grassvæði 255 275
Úlfarsárdalur, Hverfi 3 stækkun 500+ íb. 200 550
Kaup vegna skipulagseigna 178 178
Kirkjusandur 170 170
Varmahlíð 1, Perlan 160 650
Nauthólsvegur 100 150 150
Menningarmiðstöð Úlfarsbraut 110 150
Úlfarsárdalur, íþróttasvæði Fram 100 125
Sundhöllin í Reykjavík 100 215
Endurnýjun tölvubúnaðar 100 405
Endurbygging boltagerða á skólalóðum 100 400
Forgangur Strætó 90 100
Framkvæmd Milljónir kr. Upphæð Alls framlag
Hraðahindranir, aðgerðir vástaðir -70 80
Umferðarmiðstöð, breytingar -90 10
Austurstræti og Lækjartorg -120 50
Laugavegur, endurbætur, Hlemmur-
Katrínartún -125 10
Frakkastígur, endurgerð -155 15
Kirkjusandur, strætóreitur, hringtorg o.fl. -170 0
Götulýsing - LED væðing, undirbúningur -210 200
Hverfastöð Örfirisey -222 250
Miðamælar, Bílastæðasjóður -225 0
Framtíðarverkefni vegna skammtíma-
og dagvistunar -271 200
Malbikslögn -340 1.400
Hlíðarendi, gatnagerð -348 300
Austurbakki 2 - Harpa bílastæðahús -900 0
Mestu frávik
Klettaskóli
Skammtíma-
og dagvistun
Grunnskóli
við Úlfarsbraut
Malbikslögn
Vesturbæjarskóli
Víkingur,
grassvæði
Hlíðarendi,
gatnagerð Austurbakki
400
milljónir
-271
milljónir
300
milljónir
-340
milljónir
260
milljónir
-348
milljónir
225
milljónir
-900
milljónir
Heiða Björg
Hilmisdóttir
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Töluvert er um frávik í samþykktri endur-
skoðun á fjárfestingaráætlun A-hluta
Reykjavíkurborgar, sem borgarráð samþykkti
í fyrradag. Samanlögð fjárfesting er óbreytt
frá fyrri áætlun, alls rúmlega 20 milljarðar (sjá
graf).
Mesta frávikið innan meginflokka áætlunar-
innar er á skóla- og frístundasviði. Þar fara
fjárfestingar 1,25 milljarða fram úr áætlun.
Skólabyggingar reyndust dýrari
Skýringin er fyrst og fremst meiri kostn-
aður við framkvæmdir við Klettaskóla, grunn-
skóla við Úlfarsbraut og við Vesturbæjarskóla
en áætlað var. Samtals um 960 milljónir króna.
Næst koma aðrar fjárfestingar. Þar er
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, segir fjárfest-
ingarheimildir færðar upp og niður í
áætluninni. Miklu fé sé varið í gælu-
verkefni á kostnað brýnni verkefna.
„Breytingarnar
eru samtals fjórir
milljarðar, eða um
20% af fjárfest-
ingaráætluninni,
sem telst ansi
mikið frávik. Það
sem kemur til
lækkunar flyst að
miklu leyti á
næsta ár. Það er
því ekki raun-
verulegur sparn-
aður heldur frestun útgjalda milli
áramóta. Það má því búast við hressi-
legum útgjaldaauka á næsta ári,“
segir Eyþór og gagnrýnir forgangs-
röðun meirihlutans.
Hundruð milljóna í bragga
„Það vekur athygli að nokkur verk-
efni sem eru dálítið langt frá því að
vera kjarnastarfsemi fara mjög mikið
fram úr áætlun. Þar má nefna end-
urgerð braggans í Nauthólsvík sem
var talinn myndu kosta 158 milljónir
en nú er áætlað að hann kosti 400
milljónir. Það er næstum hálfur millj-
arður fyrir kaffihús,“ segir Eyþór.
„Annað dæmi er áframhaldandi
framúrkeyrsla vegna framkvæmda
við Hlemm mathöll. Fyrst var áætlað
2016 að kostnaðurinn við að endur-
hanna Hlemm yrði 99,8 milljónir en
heildarkostnaðurinn fór yfir 308
milljónir króna og er ekki allt búið.
Þá var áætlað að breytingar á Ráð-
húsinu myndu kosta 80 milljónir en
nú er kostnaðurinn áætlaður 110
milljónir sem rekja má til fjölgunar
borgarfulltrúa. Framúrkeyrslan í
þessum þremur verkefnum er á við
nokkrar leikskóladeildir.“
Skorið niður í vegamálum
Þá bendir Eyþór á að fjárfesting í
bílastæðum frestast og fer úr 1.125
milljónum króna niður í núll.
„Það þýðir að bílastæðum mun
ekki fjölga eins og gert var ráð fyrir.
Þá eru fjárfestingar í gatnakerfinu að
dragast saman. Malbikun verður
minni sem nemur 340 milljónum
króna miðað við áætlun ársins. Það er
milljón á dag sem minna er malbikað
í borginni. Ég hefði frekar viljað sjá
fjármagn fara í samgöngur, hvort
sem er bílastæði eða aðrar sam-
göngur, en í framúrkeyrslu. Einnig
mætti nefna lægri framlög til skamm-
tíma- og dagvistunarmála sem eru
271 milljón króna lægri vegna þess að
þar frestast mál líka.“
Illa farið með fé
Oddviti Sjálfstæðisflokks segir mikið
fé fara í gæluverkefni meirihlutans
Eyþór
Arnalds
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is