Morgunblaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
S T A K I R S T Ó L A R
KARETTA STÓLL
kr. 92.000
F r á bær t ú rv a l a f s t ö k um s t ó l um
Sem unglingur vann ég við smíðar og bauðst að koma á samning íþví fagi. Ég sagðist hins vegar stefna á kokkinn og var þá ekkiað orðlengja að meistarinn sem ég starfaði hjá tók upp símann,
hringdi í vin sinn sem rak veitingastað og þar byrjaði ég að vinna fá-
einum dögum síðan. Þar með voru örlög mín í raun ráðin,“ segir Tóm-
as Þóroddsson veitingamaður á Kaffi krús á Selfossi sem er 47 ára í
dag.
Tómas er fæddur og uppalinn á Selfossi og hefur búið þar nánast
alla sína tíð. „Selfoss er lifandi samfélag og alltaf eitthvað áhugavert í
deiglunni. Í dag eru hér íbúakosningar um tillögu að deiliskipulagi
fyrir nýjan miðbæ; hugmynd sem mér finnst áhugaverð. Um þetta mál
hafa verið miklar umræður síðustu daga meðal íbúa og skoðanirnar
sterkar, eins og ég finn í samtölum við kaffigesti sem koma til okkar,“
segir Tómas sem árið 2010 tók við rekstri Kaffi krúsar, sem kunnugir
segja að sé elsta kaffihúsið utan höfuðborgarinnar.
„Við erum með fjölbreyttan matseðil, hér er gestagangur allan dag-
inn og gaman að vera. Sjálfur gríp ég stundum í að vera á gólfinu að
þjóna en er að mestu hættur í eldamennskunni. Utan vinnunnar þá
hef ég mikinn áhuga á fótbolta og sit í stjórn KSÍ. Því fylgir meðal
annars að fylgja landsliðunum eftir í æfinga- og keppnisferðir sem
mér finnast bestu fríin sem ég kemst í,“ segir Tómas sem er fjögurra
barna faðir í sambúð með Idu Sofiu Gröndberg.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Veitingamaður Tómas Þóroddsson við Kaffi krús í miðbæ Selfoss.
Þar með voru örlög
mín í rauninni ráðin
Tómas Þóroddsson er 47 ára í dag
T
ómas Sveinsson fæddist í
Keflavík 18.8. 1943 en
ólst upp í Reykjavík og
á Ólafsfirði. Hann var
sex til sjö sumur í sveit:
„Þetta voru góðir tímar. Ég var
lengst af á Miðhóli í Sléttuhlíð í
Skagafirði, hjá ömmu, langömmu og
þremur móðursystkinum mínum.
Þar var ekkert rafmagn né sími og
sláttuvél, snúningsvél og rakstrarvél
dregnar af hestum. En þarna leið
mér vel.
Auk þess var ég eitt sumar vestur
í Staðarsveit á Snæfellsnesi og ann-
að í Stafholtstungum í Borgarfirði.“
Tómas vann við hafnargerð í tíu
sumur frá 12 ára aldri á nokkrum
stöðum á Norðurlandi.
Fyrsta skólaár hans var í Barna-
skólanum á Ólafsfirði. Hann gekk
síðan í Laugarnesskóla í Reykjavík,
þaðan lá leiðin í Réttarholtsskóla,
nýstofnaðan, hann lauk landsprófi í
Vonarstræti, stúdentsprófi frá MR
árið 1963 og cand. theol. prófi frá HÍ
1968. Hann var við nám í sálgæslu í
Uppsölum í Svíþjóð 1973-74 , sótti
námskeið hjá St. Lukasstiftelsen í
sálgæslu á árunum 1972-74, sótti
einnig fyrirlestra og tók þátt í sem-
Tómas Sveinsson, fyrrv. sóknarprestur í Háteigskirkju – 75 ára
Stór hópur Tómas og Unnur Anna með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum, á Löngumýri íSkagafirði.
Kristin íhugun nálgast
Guð í þögninni
Hjónin Tómas og Unnur í Háteigskirkju eftir síðustu messu Tómasar þar.
Reykjavík Guðmundur Alex Páls-
son fæddist þann 26.12. 2017,
kl.12:05. Hann vó 3098g og var
49 sm langur. Foreldrar hans eru
Páll Guðmundsson og Margrét
Ósk H. Hallgrímsdóttir.
Nýr borgari
Grindavík Hákon Örn
fæddist á Landspít-
alanum í Reykjavík laug-
ardaginn 14. október,
2017, kl. 04:29.
Hann vó 3934 g og var
49 cm langur. Foreldrar
hans eru Ingvar Boga-
son og Thanom Nanna
Sunarak.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.