Breiðfirðingur - 01.04.1981, Síða 37
BREIÐFIRÐINGUR
35
Á móti búrdyrunum, til vinstri, var skellihurð fyrir litlum
gangi inn að baðstofustiganum, en moldargöngin héldu áfram,
með lágum tröppum upp í hlóðaeldhúsið. Inn í vegginn, á
þessum göngum, var rúmgóð hola, hundahola, þarsemseppinn
svaf.
Hlóðaeldhúsið var fremur rúmgott, með 4 hlóðum, í horninu
til hægri var malkvörnin. Til vinstri í eldhúsinu lágu dyr inn í
annað búr, innra búr eða tunnubúr. Meðan tvíbýli var, þurfti
hvor húsmóðirin að hafa sitt búr. Ólöf hafði innra búrið. Fyrir
innan skellihurðina, sem var á móti búrdyrunum fremri, var
stuttur gangur að baðstofustiganum. Baðstofan var að lengd 4
stafgólf og nokkuð breið, líklega 2-3 ál. milli rúma. Hún var öll
þiljuð, risið með skarsúð úr þunnum, flettum borðum.
Baðstofunni var skipt í tvennt, með þili og hurð, sem oftast var
opin á daginn. Á suðurherberginu var stafngluggi, með 6
smáum rúðum og hliðargluggi yfir fremra rúminu, en rúmin
voru 4, tvö undir hvorri hlið. Við höfðalagið á hverju rúmi voru
hillur, 1 eða 2. I miðju herberginu var háa hilla, tvísett, fest í
súðina, þvert yfir fyrir neðan mæninn. Á henni voru geymdar
guðsorðabækurnar og fleiri bækur og annað, sem börn máttu
ekki ná í.
Húsgögn voru engin, nema lítið borð undir glugganum og
lítil kommóða, sem setið var á við annan enda borðsins. Svo var
lítill, rauður skápur, sem festur var framan á rúmþilið, milli
rúmanna, undir vesturhliðinni. í þessum skáp voru geymd
bollapör og önnur kaffiáhöld. Svo var Borgundarhólms-
klukka á milliþilinu, á bak við hurðina, svo koffort, sem faðir
minn hafði við rúmið sitt. í fremri hluta baðstofunnar, fyrir
framan þilið, undir vesturhlið, var vinnukonurúmið,
hliðargluggi yfír því með 2 litlum rúðum, móti því rúmi var
stigaopið með hlera yfír (lúgugat). Til hliðar við það var naglfast