Breiðfirðingur - 01.04.1984, Page 88
86
BREIÐFIRÐINGUR
Uppbyggingin hélt áfram, fólkinu fjölgaði. Allt það
gamla var á undanhaldi fyrir nýjum og fullkomnari vinnu-
brögðum. Hvert ár færði fólki breytingar. Kúm fækkaði
í þorpinu og fór svo að það sáust ekki lengur kýr í stórum
hópum á beit í Fossárdal, eða koma baulandi niður Ytra
Klifið á leið í þorpið að kvöldi í fylgd með kúasmala stað-
arins. Pess í stað var mjólkin keyrð frá bændum úr nær-
liggjandi sveitum og seld fólkinu uppúr brúsum í búðinni.
Par með voru kýr úr sögunni í Ólafsvík Jóhanna sætti sig
illa við að eiga enga skepnu til að sinna um og heyja fyrir
sér til gamans. Því fékk hún sér tvö lömb, það væri þá
hægt að segja: „Kerlingin í Bifröst á þá kindur,“ sagði
hún stundum í gamni.
Árið 1952 andaðist Alexander Valentínusson bróðir Jó-
hönnu. Eins og áður segir fluttist hann frá Ólafsvík 1924
til Reykjavíkur. Forlög höguðu því þannig til að leiðir
þeirra systkina lágu aðeins saman meðan Alexander var
búsettur í Ólafsvík. Þau voru bæði fædd að Kóngsbakka
í Helgafellssveit en Alexander var komið í fóstur á fyrsta
ári til hjónanna Kristínar Pétursdóttur og Jóns Jónssonar
í Borgarholti í Miklaholtshreppi. Kristín var föðursystir
hans. Þar ólst hann upp á góðu efnaheimili til 19 ára
aldurs. Þegar fóstri hans deyr 1891 leggur hann af stað
út í heiminn. Snemma hneigðist hugur hans til smíða,
mun hann fyrst hafa numið trésmíði hjá Gísla Krist-
jónssyni í Ytra-Skógarnesi, þeim listhaga manni. Þá lá
leið Alexanders til Stykkishólms, þar nam hann járnsmíði
hjá Kristjáni Jónssyni í Nesi. Hjá honum dvelur hann í
2 ár.
Árið 1895 flytur hann til Ólafsvíkur og stofnar þar sitt
heimili. Þá er Jóhanna alsystir hans búsett þar, ennfremur
Eliníus Jónsson uppeldisbróðir hans frá Borgarholti.
Á þeim árum sem Alexander dvaldi í Ólafsvík starfaði
hann mikið að félagsmálum meðal annars í góðtemplara-
reglunni. í stúkunni Jökulblómi starfaði hann af lífi og
sál, enda hæfileikamaður að halda uppi slíkum félags-