Skírnir - 01.09.2013, Page 145
SKÍRNIR AÐ MÆLA RÓTEINDIR MEÐ GRAÐUBOGA 375
bendir til þess að greftrunarsiðir, að minnsta kosti einsog þeim er lýst
í sögunum, hafi aðeins verið iðkaðir fyrir hefðar sakir og hjátrúar en
ekki vegna raunverulegrar hættu á hefndaraðgerðum að handan;
með öðrum orðum hafi þeir þannig ekki haft praktískt gildi, heldur
verið iðkaðir einfaldlega vegna þess að fólk var vant því að þannig
væri þetta gert. Draugar og afturgöngur tilheyrðu hinum yfirnátt-
úrlega heimi, í munnmælum var þeim lýst sem raunverulegum
fyrirbærum en á sama tíma gátu þeir ekki verið til án þess að lögmál
Guðs og skynseminnar væri brotið fyrst. Þannig voru afturgöngur
í strangasta skilningi ómögulegar og fyrir vikið má réttilega telja
þær til hins yfirnáttúrlega. Þær eru mirabilia á mörkum magica —
hið óútskýrða á mörkum hins djöfullega.
Fantasía eða veruleiki?
Einsog hér hefur verið rakið fylgja frásagnir af óvættum í Islend-
ingasögum tvenns konar lögmálum sem haldast í hendur: fjarlægð
þeirra frá frásagnarmiðju annars vegar og þeirri undrun sem þær
vekja hins vegar.38 Þegar sögusvið færist innan frásagnar breytast
lögmál frásagnarinnar samhliða, einsog Torfi H. Tulinius (1990:
148-155) hefur bent á. Það er að segja: því fjær frá frásagnarmiðju
sem farið er þeim mun meira verður um ýmiss konar skrímsl á borð
við dreka og finngálkn, einsog almennt var við að búast á miðöld-
um. Við frásagnarmiðjuna sjálfa geta afturgöngur látið á sér kræla,
en til þess þarf að rjúfa náttúrulögmálið. Tröll vega salt þarna á milli:
þau eru hin ókennilega andstæða samfélagsins og kristindómsins,
en þó reynast tröllin stundum vera venjulegt fólk. Engin þessara
óvætta á sér fantasískar rætur eða skýringar nema miðað sé við skil-
greiningu Todorovs, en hið fantasíska í hans skilningi er undrunin,
óttinn eða óvissan sem fylgir óútskýrðum og/eða yfirnáttúrlegum
atburðum. Ég sé ekki þörfina fyrir slíkt hugtak eða hvernig merk-
ing hugtaksins sjálfs, hins fantasíska, tengist því sem því er ætlað að
túlka, nema það sé beinlínis ætlunin að greina yfirnáttúrleg fyrir-
brigði einsog þau horfa við nútímamönnum, sem getur verið gott og
38 Á þessu hef ég gert ítarlega úttekt. Sjá Arngrím Vídalín 2012.